Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1988, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1988, Blaðsíða 38
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988: .§8 Afmæli Árni Benediktsson Árni Benediktsson framkvæmda- stjóri, Kjalarlandi 23, Reykjavík, er sextugur í dag. Árni er fæddur á Hofteigi á Jökuldal og ólst þar upp fram undir fermingu. Hann lauk verslunarprófi frá Samvinnuskól- anum 1949 og vann síðan í Land- smiðjunni, Hraðfrystistöðinni hf. á Sauðárkróki og Meitlinum hf. í Þor- lákshöfn. Árni var framkvæmda- stjóri Kirkjusands hf. 1963-1977 og Framleiðni sf. 1977-1985. Hann var formaður Félags Sambandsfisk- framleiðenda 1968-1985 og fram- kvæmdastjóri þess félags frá 1986. Árni er varaformaður stjórnar Fisk- veiðasjóðs íslands, í stjórn Fiskifé- lags íslands, Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins, Vinnumálasam- bands samvinnufélaganna og Út- vegsfélags samvinnumanna. Arni kvæntist 27. maí 1950 Björgu Dúfu Bogadóttur, f. 31. júlí 1929, verslunarmanni. Foreldrar Bjargar eru Bogi Stefánsson, b. í Garði í Kelduhverfi, síðar leiktjaldasmiður í Þjóðleikhúsinu, og kona hans, Sig- urveig Einarsdóttir. Bróöir Bjargar er Stefán læknir. Bogi er sonur Stef- áns, b. í Ólafsgerði, Erlendssonar, alþingismanns í Ási, Gottskálksson- ar, b. í Nýja Bæ í Kelduhverfi, Magnússonar, ættföður Gottskálks- ættarinnar, forfóöur Guömundar Magnússonar (Jóns Trausta), Bjarna Benediktssonar forsætisráð- herra, Thors Vilhjálmssonar rithöf- undar og Guðmundar Benedikts- sonar ráðuneytisstjóra. Móðir Sig- urveigar var Björg Grímsdóttir, systir Sveins Víkings, prests og biskupsritara. Börn Árna og Bjarg- ar eru Margrét, f. 14. janúar 1952, læknir í Lundi í Svíþjóð, Björg, f. 27. september 1957, myndlistar- kennari og blaðamaður í Luleá í Svíþjóö, gift Bjarna Bjarnasyni for- stjóra og eiga þau tvo syni, og Bene- dikt, f. 23. júní 1966, háskólanemi. Systkini Arna eru Bjarni, f. 25. apríl 1922, d. 1968, rithöfundur í Rvík, gift- ur Öddu Báru Sigfúsdóttur, veður- fræðingi ogborgarfulltrúa, ogeiga þau tvo syni, Hildur, f. 15. júlí 1923, gift Stefáni Einarssyni, d. 1985, járn- smíðameistara og eiga þau þrjú börn, Lára Margrét, f. 4. febrúar 1925, verslunarmaður í Borgarnesi, gift Karli Jónssyni vegaverkstjóra og eiga þau tvö börn, Sigríður, f. 23. mars 1926, símavörður í Rvík, Berg- þóra, f. 30. apríl 1927, gift Sveinbirni Bárðarsyni flugumferðarstjóra og eiga þau íjóra syni, Guðrún Auður, f. 11. desember 1930, skrifstofumað- ur í Rvík, var gift Sigurði Rúnari Guðmundssyni verkfræðingi og eiga þau tvo syni, Hrafn, f. 14. des- ember 1933, skrifstofustjóri í Rvík og fyrrum kaupfélagsstjóri á Kópa- skeri, kvæntur Finnlaugu Óskars- dóttur og eiga þau sjö börn, Gísh Egill, f. 14. janúar 1936, d. 1967, flug- stjóri, kvæntur Elísbetu Steinunni Jónsdóttur, verslunarmanni í Rvík, Steinar, f. 23. ágúst 1937, fyrrum skrifstofumaður í Rvík, var kvænt- ur Jóhönnu Bjarnadóttur og eiga þau tvö börn og Einar, f. 15. mars 1939, d. 1986, lyfsali í Hveragerði, fyrri kona hans var Stella Jóhanns- dóttir og eiga þau tvö börn, síðari kona hans var Anna Ólafsdóttir verslunarstjóri og eiga þau eina dóttur. Foreldrar Árna eru Benedikt Gíslason, b. á Hofteigi og síðar rit- höfundur í Rvík, og kona hans, Geir- þrúöur Bjarnadóttjr. Benedikt er sonur Gísla, b. á Egilsstöðum í Vopnafirði, Helgasonar, b. á Gei- rólfsstöðum í Skriðdal, bróöur Guð- Arni Benediktsson. rúnar, ömmu Gunnars Gunnars- sonar skálds. Helgi var sonur Hall- gríms, skálds á Stóra-Sandfelli, Ás- mundssonar, bróður Indriða, afa skáldanna Jóns og Páls Ólafssona. Móðir Benedikts var Jónína Hildur Benediktsdóttir, systir Þórarins, al- þingismanns í Gilsárteigi, föður Jóns tónskálds. Geirþrúður er dóttir Bjarna Gíslasonar, b. á Sólmundar- höfða á Akranesi, og kona hans, Guðrún Sigurðardóttir. Árni verður að heiman á afmælisdaginn. Til hamingju með af mælið 30« desember 85 ára 50 ára Gestur Sœmundsson, Ægisgötu 31, Akureyri. Magnús Sigursteinsson, Vesturgötu 13, Ólafsfirði. Guðbjartur Herjólfsson, Torfufelli 18, Reykjavík. 75 ára Halldór Jóhann Guðmundsson, Haðalandi 10, Reykjavík. Pétur K. Pétursson, Álftahólum 6, Reykjavík. Konráð Guðmundsson, Viðigrund 7, Kópavogi. Sigurbjörg F. Jónsdóttir, Langholtsvegi 99, Reykjavík. Jón Dahlmann, Torfufelli 6, Reykjavík. Guðrún J. Guðlaugsdóttir, Bræöraborgarstíg 13, Reykjavík. Jóhanna Guðjónsdóttir, Skarðsbraut 11, Akranesi. Friðieifur Sigurðsson, Karlsrauðatorgi 14, Dalvík. Laufey Kristjánsdóttir, Vitastig 4, Hafnarfirði. 40 ára 70 ára íris Sigurðardóttir, Miöbraut 10, Seltjarnamesi. Arndís Þorsteinsdóttir, Ystu-Görðum, Kolbeinsstaðahreppi. Ingibjörg Sæmundsdóttir, Hraunstíg 5, Hafnarfirði. Þórdis Jeremiasdóttir, Grundargötu 55,-Grundarfirði. Bergþór Ragnarsson, Reykási 25, Reykjavík. Gunnar Guðmundsson, Njálsgötu 7, Reykjavík. Jónína Þórdis Bjartmarsdóttir, Álfabrekku, Öngulstaðahreppi. Þórlaug Þorleifsdóttir, Traðarstíg 7, Bolungarvík. Stefán Einarsson, Boðagranda 6, Reykjavík. Ólöf Hilmarsdóttir, Fögrubrekku 33, Kópavogi. Matthildur Sverrisdóttir, Lindarseli 2, Reykjavík. 60 ára Sigriður Kristjánsdóttir, Lyngbrekku 13, Kópavogi. Þórólfur Þorgrímsson, Móabarði 24B, Hafnarfirði. Ólafur Guðmundsson, Miðvangi 14, Hafnarfirði. Kristín Sigurðardóttir Kristín Sigurðardóttir, húsmóðir í Stykkishólmi, meö aðsetur að Rauðalæk 9, Reykjavík, er sextug í dag. Kristín er fædd á Selsundi á Rangárvöllum og ólst upp á Rangár- völlum fram að fermingaraldri en flutti þá til Rvíkur. Hún lauk gagn- fræðaprófi frá Ingimarsskólanum - Gagnfræðaskóla Rvíkur -1946 og vann því næst á bæjarskrifstofun- um í Rvík en var í lýðháskólanámi í Danmörku 1948. Kristín bjó í Búö- ardal 1955-1965 en hefur átt heima í Stykkishólmi síðan 1965. Kristín giftist 28. október 1950 Friðjóni Þóröarsyni, f. 5. febrúar 1923, sýslumanni og alþingismanni. Foreldrar Friöjóns voru Þórður Kristjánsson, b. á Breiðabólstað á Fellsströnd, og kona hans, Steinunn Þorgilsdóttir. Börn Kristínar og Friðjóns eru Sigurður Rúnar, f. 5. júní 1950, mjólkursamlagsstjóri í Búðardal, kvæntur Guðborgu Tryggvadóttur, og eigaþau þrjú börn; Þórður, f. 2. janúar 1952, þjóð- hagsstjóri, kvæntur Þrúði Guðrúnu Haraldsdóttur og eiga þau fiögur börn; Helgi Þorgils, f. 7. mars 1953, myndlistarmaður og kennari, kvæntur Margréti Lísu Steingríms- dóttur og eiga þau tvö börn; Lýður Árni, f. 24. mars 1956, framkvæmda- stjóri, kvæntur Ástu Pétursdóttur og eiga þau þrjú börn; og Steinunn Kristín, f. 29. apríl 1960, háskóla- nemiogflugfreyja. Bræður Kristínar eru: Kristján, f. 24. apríl 1924, rafvirki og eftirhts- maöur hjá Rafmagnsveitu Rvíkur, kvæntur Elísabetu Rósinkarsdótt- ur; börn þeirra eru: Guðrún, b. á Daðastöðum í N-Þingeyjarsýslu; Kolbeinn. lögreglumaður í Rvík og Jakob, framkvæmdastjóri í Rvík; Árni, f. 9. maí 1927, bifreiðastjóri á BSR, kvæntur Önnu Guömunds- dóttur, börn þeirra eru: Una, gjald- keri; Sigrún, ritari; og Guðmunda, snyrtifræðingur. Foreldrar Kristínar voru Sigurður Lýðsson, b. í Selsundi og á Geldinga- læk á Rangárvöllum og síðar vakt- maður í Rvík, og kona hans, Guðrún Bárðardóttir. Sigurður var sonur Lýðs, b. í Hjallanesi á Landi, Árna- sonar, b. í Tungu, Árnasonar, b. á Galtalæk, Finnbogasonar. Móðir Árna Árnasonar var Margrét Jóns- dóttir, smiðs í Háagarði í Vest- mannaeyjum, Jónssonar. Móðir Jóns var Guðrún Brandsdóttir, b. í Rimhúsum undir Eyjafiöllum, Bjarnasonar, b. á Víkingslæk, Hall- dórssonar, ættföður Víkingslækjar- ættarinnar. Móðir Lýðs var Ingiríð- ur Guðmundsdóttir, b. á Keldum, Brynjólfssonar, b. á Vestri- Kirkjubæ, Stefánssonar, b. í Árbæ, Bjarnasonar, bróður Brands. Guörún er dóttir Bárðar, b. í Norð- ur-Móeiðarhvolshjáleigu, Eyjólfs- sonar, og konu hans, Guðbjargar Jónsdóttur, b. á Stóra-Hofi, Árna- sonar, b. á Stóra-Hofi, Jónssonar. Móðir Árna var Guörún Erlends- Kristín Sigurðardóttir. dóttir, b. og skálds á Sandhólaferju, Árnasonar, og konu hans, Guðrún- ar Þórðardóttur, Skálholtsráðs- manns, Þórðarsonar. Móðir Guð- bjargar var Kristín Einarsdóttir, b. á Reyðarvatni, Gunnarssonar. Móð- ir Einars var Kristín Jónsdóttir, b. á Vindási, Bjarnasonar, bróður Brands í Rimhúsum. Móðir Kristín- ar Einarsdóttur var Guðbjörg Þor- steinsdóttir, húsmanns í Þorláks- höfn, Þórðarsonar, b. í Þorlákshöfn, Gunnarssonar. Móðir Þorsteins var Guöríöur Pétursdóttir, systir Sig- urðar, föður Bjarna Sívertsen ridd- ara. Móðir Guðbjargar var Ingibjörg Halldórsdóttir, b. í Þorlákshöfn, Jónssonar, og konu hans, Guðbjarg- ar Sigurðardóttur, systur Jóns, afa Jóns forseta. Systir Guðbjargar var Salvör, amma Tómasar Sæmunds- sonar Fjölnismanns. Frosti Bergsson Frosti Bergsson, framkvæmda- stjóri Hewlet Packard á íslandi, Frostaskjóli 43, Reykjavík, er fer- tugur í dag. Frosti fæddist í Reykja- vík en flutti ungur í Kópavoginn þar sem hann sleit barnsskónum. Að loknu gagnfræðaprófi 1965 hélt hann til Englands þar sem hann lagði stund á ensku í einn vetur. Hann innritaðist síðan í Símvirkja- skólann og lauk þar námi 1969. Síð- an lá leiðin í Tækniskóla íslands og þaðan í framhaldsnám i Árósum í Danmörku þar sem Frosti útskrif- aðist sem veikstraumstæknifræð- ingur með fiarskipti sem sérgrein 1974. Frosti var sama ár ráðinn til aö veita forstööu nýstofnaðri tölvu- deild hjá Kristjáni Ó. Skagfiörð en þeirri stöðu gegndi hann í tíu ár eða þar til hann tók við framkvæmda- stjórastöðu hjá Hewlett Packard 1984. Frosti keppti í frjálsíþróttum á sínum yngri árum og náði góðum árangri í hlaupum og hástökki. Hann hefur verið virkur félagi í Round Table, Spörtu og situr í stjóm Gufubaðstofu Jónasar hf. Frosti kvæntist 7. september 1970 Elínu Guðmundsdóttur, f. 20.janúar 1949, lögfræðinema. Foreldrar Elín- ar eru Guðmundur Valur Sigurðs- son klæöskeri og Halldóra Guð- laugsdóttir. Frosti og Elín eiga tvö börn. Þau eru: Freyr, f. 17. apríl 1970, menntaskólanemi; og Anna Dóra, f. 7.júlí 1975, nemi. Bróðir Frosta er Valdimar bakara- meistari, kvæntur Helenu Gunnars- dóttur, þau eiga þrjú börn: Kristínu Berglindi, f. ll.júlí 1974, Katrínu Brynju, f. 29. mars 1977, og Sigríði Regínu, f. 16. september 1986. Systir Frosta er Anna Rós kennari, gift Haraldi Guðfinnssyni í Bolungar- vík, börn þeirra eru María Kristín, f. 1984, og Ingibjörg Huld, f. 1987. Foreldrar Frosta eru þau Bergur Haraldsson, framkværrtdasstjóri í Kópavogi, og kona hans, Kristín Valdimarsdóttir sjúkraliöi. Bergur er sonur Haralds, b. á Bakka í Við- víkurhreppi í Skagafirði, Jóhannes- son, b. í Grundarkoti í Blönduhlíð, Bjarnasonar. Móðir Bergs var Anna Margrét Bergsdóttir, b. á Hofsá í Frosti Bergsson. Svarfaðardal, Jónssonar, og konu hans, Óskar Rögnvaldsdóttur. Kristín er dóttir Valdimars, b. á Blá- mýrum í Ögurhreppi við ísafiarðar- djúp, Sigvaldasonar, b. á Fremri- Brekku í Saurbæ, Sigvaldasonar, b. í Koti í Vatnsdal, Haraldssonar. Móðir Kristínar var Ingibjörg Felix- dóttir, b. á Máskeldu í Saurbæ, Ei- ríkssonar, og konu hans, Helgu Markúsdóttur. Hrönn Steingrímsdóttir Hrönn Steingrímsdóttir leikkona, til heimilis að Njálsgötu 6, Reykja- vík, verður fertug á nýársdag. Hrönn fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Leiklistarskóla Leikfélags Reykja- víkur en þaðan útskrifaðist hún 1969. Hún lék síðan á fiölunum í Iðnó frá 1970-78 en hefur auk þess leikið í sjónvarpsmyndum og síðast í kvikmyndinni Skytturnar. Maður Hrannar er Sigurður Krist- insson, f. 6.3.1938, en hann rekur ásamt öðrum eigið fyrirtæki í Reykjavík. Foreldrar Siguröar: Kristinn Jónsson, fyrrv. forstjóri Flugfélags íslands á Akureyri, og Ástþrúður Sveinsdóttir. Dóttir Hrannar er Steinunn Fjóla Jónsdóttir menntaskólanemi, f. 1970. Bróðir Hrannar er Þórir E. Stein- grímsson, f. 5.6.1952, markaðsstjóri hjá Vífilfelli í Reykjavík.' Foreldrar Hrannar eru Steingrím- ur Karl Guðmundsson, f. 22.5.1923, lengst af sjómaður í Reykjavík og síðar starfsmaður hjá Trésmíöa- verkstæöinu Víði, og kona hans, Fjóla Sigurðardóttir frá Þingeyri viö Dýrafiörð, f. 12.6.1925. Þau bjuggu lengst af í Reykjavík en fluttu síðan til Hafnarfiarðar. Fööurforeldrar Hrannar: Guð- mundur Ágúst Jónsson, b. á Vífils- mýrum í Önundarfirði, og kona hans, Guðjóna B.N. Jónsdóttir ljós- móöir. Guðmundur var sonur Jóns á Hrafnatóftum Jónssonar og Önnu Eiríksdóttur frá Grindavík. Guð- jóna var dóttir Jóns, b. á Vífilsmýr- Hrönn Steingrímsdóttir. um, Jónssonar, b. á Sæbóli, Ebenes- erssonar. Kona Jóns á Sæbóli var Helga Jónsdóttir frá Alviöru í Dýra- firði. Móðir Guðjónu var Ólöf Jón- ína, dóttir Jóns, b. á Brekku á Ingj- aldssandi, Nikulássonar og Batho- níu Árnadóttur, b. í Dalshúsum í Valþjófsdal, Jónssonar, b. í Dals- húsum, Árnasonar, b. í Dalshúsum, Bárðarsonar, b. í Arnardal, Illuga- sonar, ættfööur Arnardalsættarinn- ar. Móðir Jóns í Dalshúsum var Margrét Björnsdóttir, b. á Núpi í Dýrafirði, Jónssonar, prests á Breiðabólstað í Fljótshlíð, Torfason- ar, prests í Gaulverjabæ, Jónssonar, silfursmiðs og lögréttumanns á Núpi, Gissurarsonar, hálfbróður Brynjólfs biskups Sveinssonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.