Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1988, Side 9
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988.
Útlönd
Frönsku syst-
urnar frjálsar
Systurnar komnar heim til föður sins í Frakklandi. Móðirin er enn í haldi.
Frönsku systurnar Marie Laure og
Virginie Valente sluppu úr prísund
palestínskra skæruliða í gær.
Stúlkurnar eru sex og sjö ára og
sátu á annað ár í haldi mannræn-
ingja. Samtök skæruliðaforingjans
Abu Nidal tilkynntu á mánudag að
þeim yröi sleppt en það var ekki fyrr
en í gær að systurnar komust heim
til Frakklands.
Systurnar voru ásamt móður sinni
numdar á brott af skemmtisnekkju,
sem palestínskir skæruhðar réöust
á, í nóvember fyrir rúmu ári undan
strönd ísraels .
Móðir stúlknanna er enn í haldi en
skæruliðar sökuðu hana um að vera
ísraelskan njósnara.
Talsmaður skæruliða sagði stúlk-
urnar fá frelsi fyrir orð GadafEis
Líbýuleiðtoga. Reuter
Kontrar skila föngum
Kjarnorku-
vopnahneyksli
Gizur í. Helgason, DV, Reersnæs:
Enn eitt hneyksiismálið skýtur
upp kollinum í vestur-þýska
kjarnorkuiðnaðinum. Um er að
ræða brot á samningum um dreif-
ingu kjamorkunnar.
Fyrirtækið NTG í Gelnhausen
í Hessen sem nýlega var ákært
fyrir að hafa selt pakistönskum
yfirvöldum kjamorkuleyndar-
mál og þar með sennilega gert
Pakistan kleift að smíða eigin
kjamorkuvopn.
Rikisstjómin í Bonn skipaði
nefnd til að rannsaka brot verk-
smiðjunnar. Nefndin hefur kraf-
ist fullrar samvinnu Pakistana
við að upplýsa málið.
Kynlíff unglinga
breytist ekki
Þrátt fvrir hættuna á eyðni-
smiti slá bandarískir únglingar
ekki slöku við í kynlífmu.
„Unglingar hlusta ekki á aðvar-
anir okkar um hættuna á eyðn-
ismiti,“ segir landlæknir þeirra
Bandaríkjamanna, Everett Koop.
Þrír af hveijum þúsund há-
skólastúdentum i Bandaríkjun-
um eru smitaðir eyðni. Flestir
smitast áður en þeir koma í há-
skólann.
Tæplega 50 þúsund Bandaríkja-
menn hafalátist vegna eyðnism-
ÍtS. Reuter
Kontraskæruliöar skiluðu í gær
yfirvöldum í Nicaragua 44 fóngum
sem þeir héldu í nágrannaríkinu
Hondúras.
Afhending fanganna fór fram með
aðstoð Rauða krossins og sagði tals-
maöur hjálparstofnunarinnar að alls
yrðu 104 fangar kontraskæruliða
sendir yfir landamærin til Nic-
aragua.
Meðal fanganna, sem fóru yíir
landamærin í gær, var fyrmm
kontraliði sem sagður er vera út-
sendari sandinista í Nicaragua.
Fangarnir voru margir hverjir
búnir að sitja í varðhaldi í tvö ár í
búðum kontramanna í E1 Paraiso í
Hondúras. Þar halda kontraskæru-
liðar 12.000 manna liði og fá til þess
aðstoð frá Bandaríkjunum.
Að sögn talsmanns Rauöa krossins
vilja einir 60 fangar kontraskærulið-
anna ekki fara til baka til Nicaragua
og hafa ýmist sótt um hæli í Hondúr-
as eða leyfi til að flytja til annarra
landa. Reuter
Forsætisráðherra
Jugoslaviu
segir af sér
í morgun sagði Branko Mikulic,
forsætisráöherra Júgóslavíu, af sér
embætti, hefur fréttastofa Reuters
eftir útvarpinu í Belgrad.
Mikulic hefur undanfarið haft
mótbyr í þinginu og stærstu sam-
bandsrikin, Serbía og Króatía,
felldu fjárlög ríkisstjórnar hans.
Erjur milli ólíkra þjóða Jugóslaviu
hafá einnig gert stjóminni erfitt
um vik.
Mikulic mun í dag halda þing-
ræðu þar sem hann greinir frá af-
sögni sinni og ástæðum hennar.
Mikulic tók við embætti forsætis-
ráðherra í maí 1986.
Reuter
2.
j anúar
verða
allar
verslanir
okkar
lokaðar
vegna
vörutalningar
HAGKAUP
Reykjavík Akureyri Njarðvík
GERÐIR
E
ALLAR
VERÐ OG^ÆÐI VIÐkA^RA HÆFI
Framheimilinu, Safamýri 28 Opið fimmtudag 10-22
Kringlunni föS&' Föstudag 10 -22
Suðurlandsbraut 30 Laugardag 10-16
VISA/EURO AVISANIR GEYMDAR