Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1988, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1988, Blaðsíða 32
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988. 52 LífsstOl Sovéski tiskuhönnuðurinn Slava er að ná vinsældum víða um heim. Fatnaður hans þykir í dýrara lagi fyrir sovéska almúgann. Sovéskar konur aldrei betur klæddar - allir geta gert viðskiptasamninga við Bjöminn Þegar Raisa Gorbatsjov fylgdi manni sínum til New York á dög- unum, rétt áður en hörmungamar í Armeníu dundu yfir, vakti klæða- burður hennar enn og aftur at- hygli og flestir urðu sammála um að þama hefði verið mjög glæsileg- ur fulltrúi Sovétríkjanna á ferð. Eins og annað í stefnu Gor- batsjovs - ný og betri veröld - breytist tískan í Sovétríkjunum og erlendar tískustefnur fá að flæða inn fyrir landamærin. Frú Gor- batsjov hefur vegna síns nýja opin- bera stíls orðið tákn og fyrirmynd sovéskra kvenna. Rebecca Matlock, eiginkona bandaríska ambassadorsins í Moskvu, hefur haft á orði að Raisa sé orðin fyrir- mynd allra kvenna í innsta hring Moskvu. Skilaboð hennar em skýr: að bægja burtu stíl Nínu Krústsjov; rússneskar konur geta einnig verið fallegar. Dæmi um þær miklu breytingar sem hafa orðið í tíð Gorbatsjovs - Þar til nýlega hefur Viyac- heslav Zatisev, betur þekktur undir nafninu Slava, sem er uppáhalds- hönnuður Raisu, ekki fengið að kenna hönnun sína við nafn sitt. Nú hefur hann ásamt fleiri sovésk- um hönnuöum fengið að setja á stofn sína eigin umboðsskrifstofu. Auk þess er hann kominn í sam- band við Evrópska umboðsaðila sem nú fá að hanna undir hans merki. - Fyrr á árinu var ungfrú Moskva kjörin með pompi og pragt. Og það sem meira var, fegurðardís- imar komu fram í enskum sund- bolum þar sem áletrað var „Some like it wet“. - Hið heimsþekkta fyrirtæki Benetton, sem framleiöir og selur litríkar prjónavömr, er um það bil að fara opna nokkrar verslanir í Sovétríkjunum. - Þrjátíu og tvær sovéskar verk- smiðjur em farnar að framleiða fatnað undir merkjum Pierre Card- in. Fatnaðurinn er rússneskur og seldur í stærstu ríkisreknu versl- unarkeðju Sovétríkjanna er nefnist GUM. Svo er sagt að kollegi hans, Yves Saint Laurent, sé einnig að ná undirtökum á þessum slóðum. Bandaríkjamenn = hugvit Sovétmenn = vinnuafl og efni Bandarísk fyrirtæki hafa farið mjög varlega með sín viðskipti við Bjöminn. Fyrsta bandaríska tísku- sýningin var haldin í Moskvu á síð- asta ári og önnur aftur í síðasta mánuði. Tiskusýningin var á veg- um Owen-Breslin & Associates og þar voru sýnd fót frá ekki minni hönnuðum en Annie Klein og Donnu Karan. Samt sem áður var þetta ekki sölusýning. Oven-Bresl- in vonast þó til að eitthvað verði úr samvinnu USA og USSR í þess- Tíska um efnUm, til að mynda með þeim hætti að Bandríkjamenn útvegi hugvitið og Sovétmenn efni og vinnuafl. Eitt fyrirtæki, Wolverine World Wide, sem framleiðir tísku- skófatnað, hefur nú þegar gert slík- an samning við Búlgaríu. Þar sem það samstarf hefur gengið vonum framar er ekki ólíklegt að þeir taki einnig upp slíka samvinnu við Sov- étmenn. Allir sem áhuga hafa á samning- um verða sér úti um samninga við Sovétmenn í einu og öðru, þar með talið verslun með tískufatnað. Biss- nesmenn hafa enn og aftur komist á óplægðan akur. En nú er það svo að Sovétmenn vilja einnig fá eitthvað fyrir sinn snúð. Það er að vaxa upp stór stétt viðskiptamanna í Sovétríkjunum sem eru að verða vandlátir á samn- inga. Hátískan og for- réttindastéttin Frú Gorbatsjov er nú orðin drottning tískunnar í Moskvu sem þýðir að sjálfsögðu að fatahönnuð- ur hennar, Slava, er konungur tís- kunnar þar í borg. Þau hafa óneit- anlega leitt til þess í sameiningu að meira frjálsræöi ríkir í tísku Moskvuborgar. Og það sem meira er, fatastíll hennar hefur heillað marga í Washington. Diana McLellan, ritstjóri tímarits í Washington, sagðist hafa verið í boði í sovéska sendiráðinu fyrir um það bil tveimur mánuðum og.aldrei hafa séð eins huggulega klæddar sovéskar konur fyrr. En hún hefur verið þar meira og minna síðan á sjöunda áratugnum. Því fer þó íjarri að tískan hafi náð til alls þorra fólks. Enn er það svo aö konur sem karlar standa í bið- röðum í bomsunum sínum að kaupa vörur. Slava getur selt ull- arkápumar sínar á 250 rúblur, sem samsvarar 18 þúsund íslenskum krónum, á meðan venjulegur so- véskur verkamaður hefur ekki Frú Gorbatsjov boðar með tisku sinni: aldrei aftur stíl frú Krústsjov. nema 200 rúblur á mánuði. Þetta hlýtur að gefa það í skyn aö stéttaskipting hafi skapast í stéttlausu þjóðfélagi Sovétríkj- anna. Það er víst rétt sem sagt er að hátískan hfir hvergi þar sem engin forréttindastétt er til staðar. Þeir sem til þekkja segja hana til staðar í Sovétríkjunum. (Heimildir m.a. Newsweek) -GKr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.