Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1989, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1989, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1989. Sviðsljós Ólyginn sagði Meryl Streep hefur fallist á aö taka aö sér hlutverk í mynd sem fyrir- hugaö er aö gera um ævi Christ- inu sálugu Onassis. En til þess aö Meryl geti leikið hlutverkiö á trúverðugan hátt hefur henni verið fyrirskipað aö fara í strangan matarkúr. Þaö ætti að gleðja þá sem berjast við aukak- ílóin að Streep á ekki að grenna sig heldur á hún að bæta á sig nokkrum tugum kílóa. linda Grey er sögð hafa logið til um aldur sinn í mörg ár. Ástæðan ku vera sú að hún telur sér trú um að hún fái ekki nein hlutverk segi hún satt og rétt til um aldur sinn. Illar tungur vestan hafs segja að Linda sé kominn á sex- tugsaldurinn og benda því til sönnunar á að hún sé að verða verulega hrukkótt í framan. Svo er bara hveijum á að trúa. John Denver hefur trúlega náð á toppinn sem söngvari. Stærsti draumur hans í lífinu er að fá að bregða sér út í geiminn um borð í geim- fari. Hann hefur lagt inn beiðni tál NASA en þeir hafa hafnað málaleitan hans alfarið. Rúss- amir hafa hins vegar boðið Jóni að koma í ferð með þeim borgi hann 70 þúsund dali fyrir farið. Svo Jón þarf sennilega að fara að telja peningana sína. Rainier fursti hefur ákveðið sig. Albert prins á að taka við af honum en ekki fyrr en hann hefur öðlast meiri reynsiu. 65 ára og segir að fjölskylda sín hafl aldrei verið eins samheldin og eftir dauða Grace, eiginkonu hans. „Fjöl- skylda mín er það sem hefur hjálpað mér að yfirbuga sorgina eftir lát hennar, sérstaklega þó barnabörnin. Við verðum stundum ósammála en aldrei svo að það komi niður á sam- heldninni." Mónakóbúar segja stoltir að Karó- lína prinsessi hkist móður sinni æ meir. Þeim finnst hún hafa hafa stað- ið sig með sóma við opinber tækifæri á síðustu árum. Auk þess hefur hún lagt fram ríkan skerf við að fjölga í fjölskyldunni. Af þeim sökum hafa margir gert því skóna að hún sé hæfari til þess að stjóma ríkinu held- ur en bróðir hennar sem þekktur er íyrir að lifa hinu ljúfa M. En nú er bara að bíöa og sjá hvern- ig fer þegar Albert verður búinn að öðlast nægilega reynslu og jafnvel að festa ráð sitt. Albert prins mun Rainier fursti hefur ákveðið að sitja áfram í embætti sínu - um sinn a.m.k. En það er ákveðið hver það verður sem tekur við af honum. Það verður Albert prins. ítalska dagblaðið Oggi hefur það eftir Rainier að Albert þurfi samt að öðlast meiri reynslu áður en hann fær að taka við sem fursti af Món- akó. Rainier er ósáttur við þær vangaveltur sem hafa verið uppi um að Albert og Karólína séu í einhverri samkeppni um furstaembættiö. „Þessar sögusagnir eru ekki á rökum reistar. Við tölum oft um það í fjöl- skyldunni hvemig það verður þegar Albert tekur við af mér,“ segir hann. taka Rainier hefur nú setið við stjórn- völin í ríki sínu í 40 ár sem mun vera mettími í Evrópuríki. Hann er orðinn Göngum við I kringum. Jóladans DV-mynd Jóna Imsland. Höfn: í Heppuskóla Júlia Imsland, DV, Hötrv Að venju var haldin jólatrésskemmtun fyrir bömin á Höfn milli jóla og nýárs og að þessu sinni í rúmgóðum íþróttasal Heppuskóla. Lionessur og kvenfélagskonur buðu öllum upp á heitt súkkulaði og kökur. Þama voru að sjálfsögðu nokkrir galvaskir jólasveinar sem skemmtu sér og bömunum og að venju áttu þeir góðgæti í pokahorninu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.