Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1989, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1989, Síða 27
I T FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1989. Ólafur Runólfsson Ólafur Runólfsson bifreiðarstjóri, Þykkvabæ 11, Reykjavík, er sextug- ur í dag. Ólafur er fæddur á Beru- stöðum í Ásahreppi í Rangárvalla- sýslu. Hann lærði ungur bifvéla- virkjun og er meistari í þeirri iðn- grein. Ólafur hefur lengst af starfað sem bifreiðarstjóri og auk þess stundaði hann ökukennslu um tíu ára skeið. Ólafur kvæntist 24. des- ember 1977 Kristbjörgu Stefánsdótt- ur, f. 22. janúar 1932. Foreldrar Kristbjargar voru Stefán b. í Hallg- ilsstöðum í Fnjóskadal, Tryggvason, b. í Arndísarstöðum í Bárðardal, Jónssonar, og konu hans, Hólm- fríður Sigurðardóttur, b. og alþing- ismanns á Ystafelli, Jónssonar. Systkini Ólafs eru Irigigerður, f. 11. október 1922, gift Jóni Ölafssyni, búa í Rvík, Stefán, f. 7. apríl 1924, b. á Berustöðum, kvæntur Fanneyju Jóhannsdóttur, Margrét, f. 5. janúar 1926, húsmóðir í Rvík, Þorsteinn, f. 19. september 1927, bifreiðarstjóri á Rauðalæk, Steinþór, f. 14. mars 1932, ráðunautur á Hellu, kvæntur Guð- rúnu Pálsdóttur, og Trausti, f. 28. júni 1933, bifreiðarstjóri á Hellu, kvæntur Dýrfmnu Guðmundsdótt- ur. Foreldrar Ólafs voru Runólfur Þorsteinsson, b. á Berustöðum, og kona hans, Anna Stefánsdóttir. Föð- ursystkini Ólafs voru Jónína, gift Jóni Jónssyní, b. í Sumarliðabæ, Þorsteinn, b. á Ásmundarstöðum, Guðjón, b. á Brekkum, Arndís, gift Ástgeiri Gíslasyni, b. á Syðri- Hömrum (foreldrar Ingveldar, konu Ágústar á Brúnastöðum), Helga, gift Oddi Oddssyni, b. á Heiði á Rangár- völlum, Guðmundur, b. á Hrafntóft- um, Ingigerður, gift Oddi Magnús- syni, b. á Skaftafelli í Öræfum, Jó- hann, faðir Kjartans alþingismanns, og Óskar, b. á Berustöðum. Runólfur var sonur Þorsteins, b. á Berustöðum, Þorsteinssonar, b. á Berustöðum, Jónssonar. Móðir Þor- steins var Guðlaug Helgadóttir, systir Guðmundar, afa Nínu Sæ- mundsson listmálara. Bróðir Guð- laugar var Bjarni, langafi Guð- bjarna, fóður Sigmundar háskóla- rektors. Móðir Þorsteins Þorsteins- sonar var Arndís Helgadóttir, b. á Litlaparti í Þykkvabæ, Einarssonar, og konu hans, Önnu Magnúsdóttur. Móðir Önnu var Ragnhildur Árna- dóttir, b. í Hábæ, Þórðarsonar, Skál- holtsráðsmanns, b. í Háfi, Þórðar- sonar. Móðir Árna var Kristín Tóm- asdóttir, b. í Glerárskógum í Hvammssveit, Jónssonar, og konu hans, Guðrúnar Hafliðadóttur. Móðir Guðrúnar var Sólveig Jóns- dóttir, b. í Sælingsdalstungu, Arn- grímssonar lærða, vígslubiskups á Melstað, Jónssonar. Móðir Runólfs var Ingigerður, systir Árna, afa Jóns Dalbús Hró- bjartssonar, prests í Laugarnes- prestakalh. Ingigerður var dóttir Runólfs, b. í Áshóli, bróður Sigurð- ar, langafa Sigþórs, föður Guð- mundar, skrifstofustjóra í Land- búnaðarráðuneytinu. Runólfur var sonur Runólfs, b. á Brekkum í Holt- um, Nikulássonar, b. í Narfakoti í Njarðvík, Snorrasonar. Móðir Run- ólfs á Brekkum var Margrét Run- ólfsdóttir, b. í Sandgerði, Runólfs- sonar, föður Þorgerðar, langömmu Ólafs Friðrikssonar og Haraldar Níelssonar prófessors. Runólfur var einnig faðir Guðrúnar, ömmu Björns Olsens rektors, og langafa Auðar, fyrrv ráðherra, og Jóns Auð- uns, fyrrv dómprófasts. Móðir Run- ólfs í Áshóli var Sigríður Halldórs- dóttir, b. í Marteinstungu, Sigurðs- sonar. Móðir Halldórs var Salvör Bárðardóttir, prests í Guttorms- haga, Jónssonar. Móðurbræður Ólafs voru Ólafur, sjómaður í Sandgerði, og Þórður, yfirverkstjóri hjá Slippfélaginu í Rvík. Anna var dóttir Stefáns, bak- ara í Rvík, Þórðarsonar, b. í Króki í Holtum, Þórðarsonar. Móðir Stef- áns var Steinunn Stefánsdóttir, b. í Eystri-Kirkjubæ, Brynjólfssonar, b. í Vestri-Kirkjubæ, Stefánssonar, b. Afmæli Ólafur Runóifsson. í Árbæ, Bjarnasonar, b. í Víkings- læk, Halldórssonar, ættföður Vík- ingslækj arættarinnar. Móðir Önnu var Margrét Ólafs- dóttir, b. í Vetleifsholtsparti, Jóns- sonar, b. í Vetleifsholtshelli, Ólafs- sonar, b. í Vetleifsholtshelh, Sig- urðssonar, b. í Borgartúni, Hafliða- sonar, b. í Syðsta-Bakka, Þórðarson- ar, bróður Arna í Hábæ. Móðir Ól- afs Jónssonar var Salvör Sigurðar- dóttir, b. í Háfshóli, Sigurðssonar, bróður Ólafs í Vetleifsholtshelli. Móðir Salvarar var Vilborg Þor- geirsdóttir, b. í Háfi, Hannessonar, bróður Jóns, langafa Elínar, móður Hannibals Valdimarssonar, fóður Jóns Baldvins. Ólafur er að heiman ídag. Sigurbjörg Lárusdóttir Sigurbjörg Lárusdóttir húsmóðir, Baldursgötu 9, Reykjavík, er áttræð ídag. Sigurbjörg fæddist á Breiðaból- stað á Skógarströnd og ólst upp þar og í Reykjavík. Hún stundaði teikni- nám í skóla Muggs en eftir fermingu fór hún í hárgreiðslunám og tók aukatíma í ensku, þýsku og frönsku. Hún starfaði hjá Pósti og síma í þrjú ár, var við nám og störf í San Diego í Californiu í önnur þrjú ár og starfaði á skrifstofum eftir heim- komuna. Sigurbjörg giftist 1937 Braga Kristþór Borg Kristþór Borg skipasmiður, Esju- grund 28, Kjalarnesi, er sextugur í dag. Foreldrar Kristþórs eru Þorsteina Helgadóttir og Ástvaldur Helgi Ás- geirsson sem er látinn. Kona Kristþórs er Kristín Ingi- björg Benediktsdóttir og eiga þau þrjú börn. Kristþór verður að heiman í dag. 80 ára Oddný Halldórsdóttir, Lokastíg 16, Reykjavík. 70 ára Þórhildur Gunnþórsdóttir, Gaukshólum 2, Reykjavík. Dóra J. Halldórsdóttir, Ásenda 14, Reykjavík. 50 ára Anna Þorleifsdóttir, Mosgerði 6, Reykjavík. Sigmundur Þorsteinsson, Strandaseli 6, Reykjavfk. Bjöm Tryggvi Guðmundsson, Teigaseh 3, Reykjavík. Skúli Jóhannsson, Smáragrund 10, Sauðárkróki. 40 ára________________________ Haraldur Árnason, Ásabyggð 8, Akureyri. Þorsteinn Sigfússon, Skálafelli I, Borgarhafnarhreppi. Gústaf Adolf Ólafsson, Austurbraut 8, Hafnarhreppi. Jósep Kristjánsson, Suðurhólum 20, Reykjavík. Gyða Einarsdóttir, Flúðaseli 22, Reykjavik. Maria Pálsdóttir, Núpi, Núpsskóla, Mýrahreppi. Magnús Magnússon, pjaröarási 4, Reykjavík. Gunnar Alexandersson, Hlíðarvegi 65, Ólafsfiröi. Steingrímssyni dýralækni, f. á Ak- ureyri, 3.8.1907, d. 1971. Þau bjuggu á ís.afirði frá 1939-41, austur á Fljóts- dalshéraði frá 1941-58 og í Biskups- tungum frá 1958-63 en þá fluttu þau til Reykjavíkur. Sigurbjörg stundaði nám við öld- ungadeild MH frá 1972-78, en auk þess hefur hún sótt nokkur nám- skeið við Myndlistaskóla Reykja- víkur, námskeið í meðferð vatnslita viö Fort Collins í Colorado og verið í tréskurðarskóla Hannesar Flosa- sonar. Sigurbjörg sýnir myndir og tréskurðarmyndir á Mokka á af- mæiisdaginn. Sigurbjörg var formaður Kvenfé- lagsins í Biskupstungum um skeið, fyrsti formaður Sjálfstæðiskvenfé- lags Árnessýslu og kjörin heiðurs- félagi þess 1983. Þá hefur hún verið Hermann Ragnarsson blikk- smíðameistari, Brekkuseh 27, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Her- mann fæddist á Fossvöllum í Jök- ulsárhlíð og ólst þar upp. Hann lærði blikksmíði í Breiðfjörðsblikk- smiðju og lauk sveinsprófi 1960. Hermann stofnaði Blikksmiðjuna Höfða 1982 ásamt Lárusi Lárussyni og hafa þeir rekið hana síðan. Hann hefur um árabil verið í stjórn Taflfé- lags Reykjavíkur, Skáksambands íslands ogFélags blikksmiöa. Her- mann kvæntist 1960 Sjöfn Berg- mann Danelíusdóttur, f. 6. septemb- er 1937, starfsmanni í Seljahlíð. For- eldrar Sjafnar voru Danelíus Sig- urðsson, skipstjóri á Hellissandi, og kona hans, Ingigerður Hansdóttir. Börn Hermanns og Sjafnar eru Ragnar, f. 28. desember 1961, sjúkra- þjálfari, sambýhskona hans er Emelía Rafnsdóttir og eiga þau einn son, Hermann, f. 22. nóvember 1987; Sveindís, f. 24. ágúst 1963, meina- tæknir, sambýhsmaður hennar er Ragnar Gunnarsson námsmaður, og Anna Dögg, f. 1. júní 1976. Systk- ini Hermanns eru Eiður, f. 1934, b. á Fossvöllum í Jökulsárhlíð, Gunn- ar, f. 15. apríl 1940, d. 30. september 1970, og þríburasystur, f. 18. júlí 1943, Guðný, gift Antoni Gunnars- syni, b. á Deildarfelh í Vopnafirði, Kristbjörg, gift Valgeiri Magnús- syni, b. á Smáragrund í Jökuldal, og Ragnheiður, gift Birgi Ásgeirs- syni, b. á Fossvöllum. Foreldrar Hermanns voru Ragnar Gunnarsson, b., vegaverkstjóri og símstöðvarstjóri á Fossvöllum, og kona hans, Anna Björg Einarsdótt- ir. Ragnar var sonur Gunnars, b. á Fossvöllum, Jónssonar, b. á Háreks- stöðum, Benjamínssonar. Móðir Jóns var Guðrún Gísladóttir, b. á Hvanná, bróður Þorsteins, langafa fulltrúi Kvenréttindafélags Islands á heimsmótum á Ítalíu, írlandi, í Þýskalandi og víðar. Dóttir Sigurbjargar frá því fyrir hjónaband er Angela Baldvins, f. 1931, tækniteiknari og starfsmaður hjá Pósti og síma, gift Stefáni Páls- syni loftskeytamanni, en þau eiga þrjár dætur. Angela er dóttir Bald- vins Einarssonar, fulltrúa hjá Eim- skip. Börn Sigurbjargar og Braga eru: Grímhildur, f. 1937, bókasafnsfræð- ingur, gift Hauki Guðlaugssyni, söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar, en þau eiga tvo syni; Baldur Bárður, f. 1939, tannlæknir á Sauðárkróki, en hann á þrjá syni með fyrri konu sinni, Önnu Maggí Pálsdóttur sjúkraliða, og er seinni kona hans Esmat Paimani, skrifari frá íran; Jóns Magnússonar forsætisráð- herra. Gísli var sonur Jóns, b. í Bót, Sigurðssonar og konu hans, Ragnhildar Guðmundsdóttur. Móð- . ir Gunnars var Guðrún Jónsdóttir, b. í Breiðuvík í Borgarfirði, Bjama- sonar. Móðir Jóns var Guðný Pét- ursdóttir, b. á Breiðavaði, Nikulás- sonar og konu hans, Snjófríðar Jónsdóttur pamfíls, b. á Mýrum í Skriðdal, Jónssonar. Móðir Ragnars var Ragnheiður Stefánsdóttir, b. í Teigaseli, bróður Bjargar, móður ísaks Jónssonar skólastjóra. Stefán var sonur Bjarna, b. í Blöndugerði, Stefánssonar, b. á Egilsstöðum í Vopnafirði, Þorsteinssonar. Móðir Stefáns var Guðrún Jónsdóttir, pr ests á Hjaltastað, Oddssonar sem ritaði um Hjaltastaðaijandann. Móðir Ragnheiðar var Björg, systir Björns, langafa Geirs Hallgrímsson- ar. Ragnheiður var dóttir Þorleifs, b. á Karlsstöðum, Péturssonar, bróður Guðlaugar, móður Eiríks Björnssonar á Karlsskála. Anna Björg var dóttir Einars, b. á Hrjót, Guðmundssönar, b. í Kálfs- nesgerði, Oddssonar, b. á Ekkjufelli, Árnasonar. Móðir Odds var Stein- unn Oddsdóttir, b. á Þrándarstöð- um, Ásmundssonar og konu hans, Vilborgar Nikulásdóttur, systur Péturs á Breiðavaði. Móðir Önnu var Kristbjörg Kristjánsdóttir, bú- fræðings á Tókastöðum, Jónssonar. Móðir Kristjáns var Kristín Jóns- dóttir, b. áEgilsstöðum, Stefánsson- ar, bróður Bjarna í Blöndugerði. Móðir Kristbjargar var Sesselja Oddsdóttir, b. á Hreiðarsstöðum, Jónssonar, b. í Meðalnesi, Oddsson- ar, bróður Ólafar, langömmu Pét- urs, afa Vals Arnþórssonar. Móðir Jóns var Ingunn Davíðsdóttir, systir Árna, fóður Hannesar prestaskóla- kennara. Hahdór, f. 1941, bankastarfsmaður í Osló, var kvæntur Helku Hilmarí Frich píanóleikara, en þau eignuð- ust þrjár dætur og einn son; Stein- grímur Lárus, f. 8.10.1942, BA og kennari á Akranesi, kvæntur Sess- elju Kristínu, fulltrúa hjá Sements- verksmiðjum ríkisins, en þau eiga tvær dætur og tvo syni; Kormákur, f. 27.3.1944, pípulagningameistari í Reykjavik, kvæntur Guðrúnu Nellý Sigurðardóttur, bankagjaldkera og háskólanema, en þau eiga tvo syni og eina dóttur; Matthías, f. 8.8.1945, pípulagningameistari í Ólafsvík, kvæntur Ragnheiði Sigurlaugu Helgadóttur fóstru, en þau eiga tvær dætur; Þorvaldur, f. 1.1.1948, sagn- fræðingur, kvæntur Ólöfu Sighvats- dóttur, fulltrúa í menntamálaráðu- neytinu, en þau eiga tvo syni; Krist- ín, f. 16.12.1949, var gift Hallgrími Tómasi Sveinsyni verslunarmanni. Sonur Braga frá því fyrir hjónaband er Eiríkur, f. 24.2.1928, verkamaður á Selfossi, kvæntur Halldóru Jóns- dóttur. Sigurbjörg Lárusdóttir. Sigurbjörg átti flmm systkini en á nú einn bróður á lífi. Systkini Sigur- bjargar: Bárður, f. 7.5.1902, sjómað- ur í Reykjavík, fórst með togaranum Ólafi 1938; Rósa, f. 3.2.1904, húsmóð- ir og hanny rðakona, en hún er látin; Einar, f. 11.9.1910, verkamaður, lát- inn; Halldór, f. 9.10.1911, vélstjóri, fórst með togaranum Ólafi 1938; og Svanur, f. 28.5.1913, verkamaður í Reykjavík. Foreldrar Sigurbjargar voru Lár- usHalldórsson, f. 19.8.1875, d. 17.11. 1918, sóknarprestur á Breiðabólstað á Skógarströnd, og kona hans, Arn- björgEinarsdóttir, f. 11.7.1879, d. 30.11.1945. TIL SÖLU notaðar vinnuvélar TRAKTORSGRÖFUR: JCB ÁRG. '81 JCB ÁRG. '82 MF 50HX ÁRG. '85 CASE 680 ÁRG. '79 CASE 580F ÁRG. '82 CASE 580F ÁRG. '81 CASE 580G ÁRG. '86 CASE 580G ÁRG. '87 CAT. 428 ÁRG. '87 JARÐÝTA: D4D ÁRG. '81 ALLAR UPPLÝSINGAR HJÁ SÖLUMANNI HEKLAHF . “ í Laugavegi 170 -172 Simi 695500 Hermann Ragnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.