Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1989, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989.
3
Fréttir
Rauðasandshreppur:
Ibúar vilja vita um
stöðu sveitarsjóðs
- auðvitað er óánægja - segir sveitarstjómarmaður
„Viö viljum fá að vita hver staða
sveitarsjóðs er. Það eina sem ég hef
heyrt er að löggiltir endurskoðend-
ur hafa verið að fara yfir reikninga
sjóðsins. Við höfum ekki fengið að
sjá ársreikninga síðan 1985. Þetta
er óhæft og við höfum þrýst á að
úr þessu verði bætt. Sveitarsjóður
hefur verið vel stæður til þessa,
enda litlar framkvæmdir á vegum
hans. Þaö eru nær einungis skóla-
og heilbrigðismál," sagði einn íbúi
í Rauðasandshréppi.
Innan hreppsins er mikil óán-
ægja efhr að fyrrverandi spari-
sjóösstjóri Sparisjóðs Rauðasands-
hrepps var kærður fyrir meint íjár-
svik. Sami maður er nú sveitar-
stjóri Rauðasandshrepps. Grunur
er um að hann hafi dregið sér allt
að 2,7 milljónir króna, þegar hann
var sparisjóðsstjóri, en framreikn-
uð til dagsins í dag er sú fjárhæð
vel á sjöttu milljón króna. Þess ber
að geta, aö sparisjóösstjórinn fyrr-
verandi hefur lagt fram gagnkröf-
ur. Sparisjóðurinn hefur verið
sameinaður Eyrarsparisjóði á Pat-
reksfirði.
Ársreikningar sveitarsjóðs fyrir
árin 1986 og 1987 eru nýkomnir í
löggiltri endurskoðun. Félags-
kjömir endurskoðendur hafa ekki
lokið sínum störfum. Sveitar-
stjórnarmaður, sem BV ræddi við,
sagði að það yrði væntanlega
næstu daga sem íbúum hreppsins
gæfist kostur á að kynna sér reikn-
ingana og sjá þá hver staða sveitar-
sjóðs er.
Sami sveitarstjórnarmaður sagði
að þrátt fyrir hvernig farið hefði í
sparisjóönum hefði ekkert komið
fram hjá sveitasjóði sem gæfi
ástæðu til að ætla að um sakhæft
athæfi gæti verið að ræða. Ýmsar
ástæður eru sagðar fyrir því hvers
vegna ársreikningar hafa ekki ver-
ið lagðir fram. Svo sem oddvita-
skipti, breyting á sveitarstjómar-
lögum og að félagskjömir endur-
skoðendur stóðu í þeirri trú að
þeim bæri ekki að endurskoða árs-
reikningána.
„Auðvitað er óánægja. En máhn
verða leyst hér heima - en ekki í
dagblöðum. Það sem gerðist hjá
sparisjóðnum gefur fólki tilefni til
að halda eitthvað. En ég endurtek
að það hefur ekkert komið fram
sem rennir stoöum undir að eitt-
hvað saknæmt hafi átt sér stað,“
sagði sveitarstjómarmaðurinn.
„Það er sérstaklega sárt fyrir
okkur að vita hvernig Sparisjóður-
inn okkar fór. Söknuðurinn er
mestur yfir því hvernig endalok
hann fékk,“ sagði einn heima-
manna sem vildi ekki láta nafns
síns getið frekar en aðrir sem rætt
var við. Þessi mál eru afar við-
kvæm heimafyrir. íbúar í Rauða-
sandshreppi eru aðeins á milli sjö-
tíu og áttatíu.
-sme
LADA eigendur athugið.
Höfum flutt verkstæði okkar í nýtt húsnæði sem gjörbreytir allri aðstöðu til þjónustu.
Tökum að okkur allar almennar viðgerðir og einnig reglulegar 10 þúsund km. skoðanir
á LADA bílum.
Einnig önnumst við réttingar og sprautun.
Verkstæðið er opið frá 8 - 1730 mánudaga - fimmtudaga
8-1630föstudaga.
JLADA BIFREIÐAR &
JÆ UMBOÐIÐ LANDBÚNAÐARVÉLAR hf.
Suðurlandsbraut 14 - S 681200 • bein lína á verkstæði 39760
TVÖFALDUR
1. VENMNGUR
á laugardag
handa þér, ef þú híttír
á réttu tölumar.
Láttu þínar tölur ekki
vanta í þetta sinn!
vfS/vovr