Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1989, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1989, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989. Fréttir Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins: Tími til að ríkisstjórnin snúi sér að alvörumálum - og hætti þessum uppásnúningi sem er að fara með folk og fyrirtæki „Þaö er eina hlutverk ríkis- stjómarinnar aö sjá til þess aö að gengið sé rétt skráö og að verð- bólgan sé innan skynsamlegra marka. Þaö er kominn tími til að ríkisstjómin hætti að hugsa um einhver smáatriði,“ sagði Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins, á spástefnu Stjómunarfélagsins í gær. „Ég gleymi þvi aidrei þegar ég einhveiju sinni var að keyra frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur að sagt var frá því í útvarpinu að á löngum fundi ríkisstjórnarinnar í gær hefði verið ákveðið lágmarks- verð á fiski. Síðan voru taldar upp einar tíu eða tólf tegundir. Núna heyrir maður dramatískar fréttir af því að fj ármálaráðherrann er að rembast við að ákveða hvort það eigi að vera sjö eða átta tegundir af bjór í hillum áfengisverslana. Þaö er kominn tími til að menn hætti svona vitleysu og fari að tala um alvömmál. Ég held að menn átti sig ekki á því hvað þetta kerfi okkar er þungt og þrúgandi fyrr en þeir fá að kynn- ast því að vinna í öðra andrúms- lofti en því sem við þurfum að búa við. Ég get þama talað út frá minni persónulegu reynslu þar sem ég hef starfað í Bandaríkjunum í tólf ár. Ég fuliyrði að ég eyði að minnsta kosti helmingi meiri tíma í starf mitt hér og hamingjan hjálpi mér að ég næ ekki tíunda hluta af þeim árangri sem ég náði erlendis. Ekki fyrir það að ég hafi versnað eða mín vinnubrögð breyst heldur vegna þess að hér rær maður í þannig sjó að maður verður bæði sjóveikur og raglaður. Mál málanna er að í eitt skipti fyrir öll þarf að gera þær ráðstafan- ir í þjóðfélaginu sem duga. Það þarf að ná niður verðbólgunni og síðan þarf að skrá gengið rétt. Samspil okkar við önnur lönd er aö verða nánara með hveijum mánuði sem líður og við höfum ekkert efni á því að halda að efna- hagslögmál gildi ekki á okkar kletti. Þetta er algjör blekking. Það þarf að leiðrétta þessa vit- leysu sem við hljótum að vera sam- mála um að er bókstaflega að fara með fólk og fyrirtæki. Þessi enda- lausi uppásnúningur sem tekur mikinn tíma og mikið erfiði úr þjóðinni. Þó það sé sjokkerendi þá þarf bara að hafa hugrekki til þess að leiðrétta þessa vitleysu. Það þarf að einbeita sér aö því að ná fram- leiðslugetu þjóðfélagsins í hámark og halda henni þar. Síðan getum viö leikið okkur að því að skipta því sem kakan bíður upp á eftir þeim reglum sem menn sætta sig við,“ sagði Guðjón. -gse Steingrimur Hermannsson forsætisráðherra boðaði langa fundi rikisstjórnarinnar um fjölþættar aðgerðir í efnahags- mólum á spástefnu Stjórnunarfélagsins i gær. Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins, sagði það hins vegar eina hlutverk rikisstjórnarinnar að halda verðbólgu innan skynsamlegra marka og að skrá gengið rétt. Hún ætti að snúa sér að því en hætta allri vitleysu. DV-mynd GVA Spa fyrirtækja: Bjartsýnni en Þjódhagsstofnun Forsvarsmenn fyrirtækjanna í landinu era bjartsýnni um þróun hagvaxtar á næsta ári en Þjóðhags- stofnun. Þeir búast hins vegar við lægra verði á útflutningsafurðum. Þetta má lesa af spám sjö fyrir- tækja um þróun helstu hagstærða á þessu ári sem birtar vora á spástefnu Stjómunarfélagsins. Ef meðalútkoma úr þessum spám er borin saman viö spár Þjóðhags- stofnunar kemur í ljós að fyrirtækin spá 0,5 prósent samdrætti í lands- framleiðslu á sama tíma og Þjóð- hagsstofnun spáir 1,5 prósent sam- drætti. Vilhjálmur Egilsson spáði hins vegar 3 til 5 prósent samdrætti. Fyrirtækin spá 14 prósent hækkun launa, 20 prósent verðbólgu og 19 prósent lægra gengi krónunnar. Spá Þjóðhagsstofnunar um þessi atriöi hljóðar upp á 7 prósent launahækk- un, 11 prósent verðbólgu og 5 prósent lækkun á gengi krónunnar. Fyrirtækin telja íslendinga fá um 2 prósent betra verð fyrir útflutn- ingsvörar sínar á þessu ári en því síðasta. Þjóöhagsstofnun er bjart- sýnni og spair um 4 prósent hækkun. Fyrirtækin spáðu fyrir um ýmnis- legt sem Þjóðhagsstofnun gerir vana- lega ekki. Spá þeirra um vaxtaþróun var misjöfh; allt frá 7 og upp í 9,5 prósent. Fyrirtækin spáðu einnig misjafnlega um atvinnuieysi á árinu eða frá 1 prósenti upp í 2,5 prósent. Þau fyrirtæki sem tóku þátt í spánni era Eimskip, Flugleiðir, Hampiðjan, Sambandið, Hekla, Nói, Hreinn og Síríus og Johan Rönning. -gse Breyting á lánskjaravisitölimni: Skuldugir og lágt launaðir koma verst út Eftir aö ríklsstjómin hefur breytt þijú ár aö vinna upp hækkun láns- grunni lánskjaravísitölunnar ins. koma'launahækkanirmun verrvið Launþegi, sem hefur 100 þúsund þá skuldugu launþega sem hafa lág krónur á mánuði, fengi hins vegar laun en þá sem hafa hærri laun. 120 þúsund króna launahækkun á Ef samið væri um 10 prósent einu ári. Þriggja miHjóna skuld launahækkun fengi launþegi, sem hans hækkaöi hins vegar jafnmikiö hefur 50 þúsund krónur á mánuði, og skuld þess sem hefur 50 þúsund um 60 þúsund krónum meira i laun krónur á raánuði. Mismunurinn á á einu ári. Efhann skuidaði 3 millj- launahækkun 100 þúsund króna ónir í Húsnæðisstofnun hækkaði mannsins og hækkun á skuidinni það lán um 165 þúsund krónur hans yrði því 45 þúsund krónur. vegna áhrifa launahækkunarmnar Það jafegildir um 3,7 prósentum af á lánskjaravísitöluna. Mismunur- árslaunum hans. innerl05þúsundkrónursemjafn- Þeir sem skulda um 3 milljónir gildir um 17,5 prósentum af laun- þurfa því aö hafa um 140 þúsund um mannsins. króna mánaðarlaun ef 10 prósent Það tekur þennan launþega tæp launahækkun á að skila einhveiju. Launþegi með þau laun fengi um 168 þúsund krónum hærri árslaun. Lánið hans hækkaði hins vegar um 165 þúsund krónur. Mismunurinn er 3 þúsund. Það jafhgildir um 0,2 prósentum af árslaunum manns- ins. Eftir þvi sem launin verða hærri en 140 þúsund krónur því betur kemur 10 prósent launahækkun við þá sem skulda 3 milljónir. Þessi launahækkun hækkar þó ekki árs- laun þess sem hefur 200 þúsund krónur á mánuði nema um 75 þús- und krónur umfram það sem þriggja milijóna lániö hans hækk- ar. Það ja&igildir um 3,1 prósent hækkun á árslaununum. -gse Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra: Gengisfellingin er afgangsstærð - handstýring verðlags og Qármagnsmarkaðar „Vitanlega verðum við að skra gengið rétt. Ég er alls ekki að segja aö gengisfelling komi ekki til greina. En við verðum þá að hafa það tryggt aö gengisbreyting hafi þau áhrif sem við ætlum okkur á öllum sviöum þjóðfélagsins en ekki bara sem til- færsla frá launafólki tii atvinnuveg- anna,“ sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra meðal annars á spástefnu Stjómunarfélags- ins í gær. „Ég heyri tillögur um allt frá 12 og upp í 17 af hundraði gengisfellingu. Mér finnst afar óráðlegt að ákveða slíka gengisfellingu án þess að hafa ákveðið fyrirfram fjölmargar hliðar- ráðstafanir. Ég get ekki fallist á að leiðrétta eigi stöðu atvinnuveganna með því að færa til þeirra einungis frá launþegum. Gengisfelhng er ekk- ert annað en tilflutningur á tekjum frá launþegum til atvinnuveganna. Við eigum að flytja fjármagn til und- irstöðuatvinnuveganna frá mörgum öðram aðilum. Ég get ekki hugsað mér að hér séu fyrirtæki sem ekki herða mittisólina þegar þetta verður gert. Það verður Landsvirkjun að gera og þaö verða opinber fyrirtæki og bankamir að gera. Ég held að ástandið sé svo alvarlegt að það verði allir að herða mittisólina en ekki launþegar einir,“ sagöi Steingrímur. Steingrímur fór nokkram orðum um hveijar væra ástæðumar fyrir því hversu illa væri komið í íslensku efnahagslífi. Hann tók sök á sig fyrir hallarekstur á ríkissjóði á undan- fomum áram og fyrir ranga stefnu siðustu ríkisstjóma í peningamálum sem hefði ýtt undir þenslu. Atvinnu- vegina skammaði hann fyrir allt of mikla fjárfestingu á undanfómum árum. Afleiðing af þessu væri verð- bólga sem aftur er ein af meginá- stæðunum fyrir því hversu illa væri komið. Steingrímur vildi að atvinnurek- enduir tækju til hjá sér. Hann nefndi að 70 fyrirtækjum hefði verið hafnað hjá Atvinnutryggingarsjóði og fjöl- mörgum þeirra yrði ekki bjargað. Hann tók einnig sérstaklega fram að losna þyrfti algjörlega við þær yfir- borganir sem hér væra svo algengar. Varöandi hlut rikisstjómarinnar sagði hann að rætt yrði á næstu dög- um um ráðstafanir í efnahagsmálum. „Ég geri mér vonir um að sam- komulag náist í ríkisstjórninni um að vinna okkur smám saman út úr þeim þrengingum sem við erum í. Mín persónulega skoðun er sú að eitthvert verðlagseftirlit þurfi að vera á næstu mánuðum. Ég lýsi einn- ig þeirri persónulegu skoðun minni að skynsamlegra sé að handstýra fjármagnsmarkaðinum í gegnum brotsjóinn. Það þarf einnig að koma fram ýmsum sértækum aðgerðum í sjávarútvegi. Þaö þurfa að koma fram ýmsar aðgerðir til að styrkja samkepppnisiðnaðinn. Það þalrf einnig að mynda launastefnu í sam- ráði við launaþegasamtökin. Afgang- urinn af þessu veröur að finna það rétta gengi sem við getum búiö við,“ sagði Steingrímur. -gse Bankamenn munu sjá við handaf linu - segir Vilhjálmur Egilsson „Lykilatriðið til að ná niður vöxt- unum er ekki handafl heldur að fyr- irtækin fái að bera sig og fái tæk- ifæri til að borga niður skuldirnar. Það er alveg sama hvemig menn snúa hlutunum núna. Það verður bara meira um skammtímafyrir- greiðslu í bönkunum ef sett verður þak á vextina eða eitthvað slíkt. Það verður bara meira um að menn velti sömu peningunum aftur og aftur og greiði iántökugjald tíu til tólf sinnum á ári. Bankamir munu grípa til slíkra aðgerða til aö ná í þær tekjur sem þeir þurfa. Bankamenn kunna að reka sína banka,“ sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Versl- unarráðsins, meðal annars á spá- stefnu Stjórnunarfélagsins. „Ég ætla ekkert að draga úr því aö vextir era háir hér á landi. Ávöxtun bankakerfisins umfram verðbólgu á hlaupareikningslánum og viðskipta- víxlum var á bihnu 16 til 19 prósent á síðasta ári. Það er ljóst að ekkert atvinnulíf þohr slíka vexti. En það sem skiptir mestu máli til að ná nið- ur vöxtunum er að breyta eftirspurn- arástandinu á íjármagnsmarkaðin- um. Þaö er ekki hægt að ná niður vöxtunum á meðan sjávarútveginum og samkeppnisgreinunum er haldið svo niðri að þær era sífeht að æpa á meira og meira lánsfé til að halda sér gangandi," sagði Vilhjálmur. -gse

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.