Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1989, Side 5
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989.
5
dv______________________________________Fréttir
Tvær fjölskyldur fengu mjUIjónasamning vegna sorphirðu fyrir Vamarliðið:
Vekur furðu Suðurnesjamanna
segir sveitarstjóri Gerðahrepps
Tvenn íslensk hjón stofnuðu árið
1984 lítið hlutafélag sem þau kölluðu
Suðurvirki hf. Hlutafé var aðeins 100
þúsund krónur en rétt eftir stofnun
fékk Suðurvirki milljónasamning við
Varnarliðið um rekstur á sorphaug-
um á Stafnesi.
, Hjónin Guðmundur Sigþórsson og
Herborg Árnádóttir eru skráð fyrir
tæpum helmingi hlutaijár Suður-
virkis. Guðmundur er skrifstofu-
stjóri landbúnaðarráðuneytisins og
Herborg er framkvæmdastjóri Suð-
urvirkis. Á móti Guðmundi og Her-
borgu eiga hjónin Gústaf Sigjónsson
og Guðbjörg H. Einarsdóttir tæpan
helming hlutaíjár Suðurvirkis. Eini
Suðumesjamaðurinn, sem á hlutafé
í Suðurvirki, er Jón Einarsson, bróð-
ir Guðbjargar, en hann á 8% á móti
hjónunum tvennu þegar fyrirtækið
er skráð í Hlutafélagaskrá í nóvemb-
er 1984.
Jón Einarsson er titlaður stjómar-
formaður Suðurvirkis og þegar hann
var beðinn að svara spumingum um
tildrög að stofnun fyrirtækisins vildi
hann ekki ræða við blaðamann. „Ég
gef þér ekki einar eða neinar upplýs-
ingar um þetta og óska ekki eftir því
að um Suðurvirki verði skrifað,"
sagði Jón.
Herborg Árnadóttir, framkvæmda-
stjóri Suðurvirkis, vill ekki ræða við
fjölmiöla um tilurð samningsins við
Varnarliðið. Hún neitar einnig að
gefa upp hverjir sömdu við Varnar-
hðið fyrir hönd Suðurvirkis. „Ég er
með mann til að semja við Vamarlið-
ið og það skiptir fjölmiðla ekki máli
hver sá maður er,“ segir Herborg.
„Þetta mál bar skjótt að og það var
ekki um að ræða að annað fyrirtæki
en Suðurvirki fengi verkið,“ segir
Eiríkur Alexandersson, bankastjóri
Útvegsbankans í Keflavík og fyrrver-
andi framkvæmdastjóri Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum. Eirík-
ur segir að skrifstofur Vamarliðsins
hafi alfarið séð um þetta mál og ekki
hafi verið haft samband við sveitar-
félögin á Suðurnesjum áður en samið
var við Suðurvirki.
Ellert Eiríksson, sveitarstjóri
Gerðahrepps og varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins, tekur í sama
streng og segir framgang málsins
hafa vakið furðu Suðurnesjamanna.
„Það kom öllum hér á óvart hvernig
staðið var að þessu máli frá upphafi
til enda,“ segir Ellert.
Sveitarfélögin á Suðumesjum reka
sameiginiega Sorpeyðingarstöð Suð-
Guömundur Sigþórsson:
„Mín hlutabréf
eru aðeins
formsatriði“
„Það er fjölskylda konunnar sem
er í þessum málum, ég er bara eins
og hver annar hluthafi í Suður-
virki,“ segir Guðmundur Sigþórsson,
skrifstofustjóri landbúnaðarráðu-
neytisins, en hann á samkvæmt
Hlutafélagaskrá 46% prósent hluta-
fjár í Suðurvirki ásamt eiginkonu
sinni, Herborgu Árnadóttur.
- Komst þú nálægt samningum Suð-
urvirkis sem leiddu til þess að fyrir-
tækið fékk verksamning við varnar-
liðið um rekstur sorphauga á Staf-
nesi?
„Nei.“
- Það er svolítið óvenjulegt að ráðu-
neytismaður stofni fyrirtæki til að
reka sorphauga fyrir vamarliðið.
„Það er konan mín sem kemur inn
í þessi mál og bara formsatriði að ég
var skráður fyrir 23 prósentum
hlutafjár."
- Beittir þú ekki áhrifum þínum í
stjómkerfmu til að Suðurvirki fengi
þennan samning?
„Nei, það geröi ég ekki,“ segir Guð-
mundur. -pv
urnesja og það var vegna viðgerða á
stöðinni árið 1985 að Vamarliðið setti
upp sorphauga fyrir grófgert rusl á
Stafnesi skammt frá Sandgerði.
„Ég neita því ekki að það hefði ver-
ið eðlilegt að Sorpeyðingarstöðin
myndi sjá um rekstur sorphauganna
á Stafnesi. Við fengum bara ekki
tækifæri til að semja við Vamarlið-
ið,“ segir Jón Norðfjörð, stjórnar-
formaður Sorpeyðingarstöðvarinn-
ar.
DV hefur heimildir fyrir því að
nokkrum mánuðum áður en Varnar-
hðið gekk th samninga við Suður-
virki hafi fyrirtækið verið búið að
kaupa hjólskóflu sem stóð á hafnar-
bakkanum í Keflavík og beiö þess að
forsvarsmenn Suðurvirkis næðu
samningum við Varnarliðið.
Þeir sem þekkja til fullyrða að Suð-
urvirki hafi náð mjög hagstæðum
samningum viö Vamarliðið. Hvorki
forsvarsmenn Suðurvirkis né tals-
menn Varnarliðsins vilja gefa upp
þær peningaupphæðir sem um ræð-
ir. Friðþór Eydal, blaðafulltrúi Varn-
arliðsins, vhdi það eitt segja um Suð-
urvirki að samningur heföi verið
gerður við fyrirtækið árið 1985. Að
sögn Friðþórs tíðkast það ekki að
Varnarhðið gefi upplýsingar um
samningstilhögun við verktaka.
Það er th marks um ábatann af
rekstri sorphauganna að þrem ámm
eftir að Suðurvirki var stofnað með
100 þúsund króna framlagi hluthafa
var hlutaféð aukið um þijár mhljón-
ir, samkvæmt Hlutáfélagaskrá. Eng-
in breytin var thkynnt á skiptingu
hlutafjár mhh hluthafa.
-pv
Vélskófla Suðurvirkis urðar sorp fyrir Varnarliðið á Stafnesi. Starfsmenn Suðurvirkis kölluðu á herlögregluna eftir
að þessi mynd var tekin og lögðu vélskóflunni í veg fyrir bíl Ijósmyndarans. DV-mynd Ægir Már Kárason
Hvað er eiginlega Silfurfarrými?
Sætabiliö ívélum Arnarflugs er jafn mikið og á "Business Class" hjá
öörum flugfélögum. Ekki aðeins á Gullfarrými heldur í allri vélinni.
Þess vegna tölum við um að þar sem Gullfarrými sleppir, taki við
Silfurfarrými. Á Silfurfarrýminu fá farþegar einstaka þjónustu, og
fyrsta flokks veitingar. Okkar metnaður er að veita öllum okkar
farþegum persónulega og góða þjónustu.
ARNARFLUG HF.
-Amsterdam sjö sinnum í viku
Söluskrifstofa Arnarflugs og KLM Austurstræti 22, sími 623060. Söluskrifstofa Amarflugs Lágmúla 7, sími 84477.