Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1989, Page 8
8
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989.
Útlönd
KHiQ«P»ÍjggÍ
Einn meðlimur bandarisku „Vemdarenglanna“ sem hafa aðsetur í New
York, sést hér um borð í neðanjarðarlest i London, en þar ætla Vemd-
arenglarnir að stofna útibú.
Simamynd Reuler
Um miðjan febrúar eiga síðustu sovésku hermennirnir að vera farnir frá hinu striðshrjáða Afganistan.
Símamynd Reuter
„Verndarenglarnir“ frá New York eru nu komnir til London þar sem
þeir ætla aö þjállia innfædda til aö bregðast viö hvers kyns giæpum.
Þeir voru handteknir við komvma til London en sleppt eftir sex tíma
yfirheyrslur. Svo virðist sem yfirvöldum í Bretlandi sé jafnilla við Vemd-
arenglanna og lögregluyfirvöldum í New York. Yfirvöld telja þá vera að
fara inn á sitt valdsvið. Almenningur Rann hins vegar vel að meta fram-
tak ungu mannanna sem eru oft til staðar þar sem ekki sést til lögreglu-
manns.
Vemdarengiarnir höfðu ekki veriö lengi í London þegar þeir komu í
veg fyrir rán í neðanjarðarlest
Motzfeldt í Hvíta húsið
Jonathan Motzfeldt, formaður grænlensku landstjómarinnar, mun
ásamt Lars Chemnitz, forseta landsþingsins, heimsækja George Bush,
forseta Bandaríkjanna, í Hvita húsiö næstkomandi fimmtudag.
Heimsóknin verður kurteisisheimsókn og mun Motzfeldt skýra Banda-
ríkjaforseta frá afstööu Grænlands gagnvart Bandaríkjunum.
Að auki mun Motzfeldt hitta bandaríska þingmenn og danska sendiherr-
ann í Washington.
: . • ■ • mm ■
Fjor i þinginu i Taiwan
Þingmaður á Taiwanþingi fellur aftur á bak í stól eftir að þingmönnum
hafði hilnað heldur betur í hamsi viö umræður um tvö umbótafrum-
vörp. Eftir miklar og harkalegar deilur samþykkti þingið frumvörpin sem
Þjóðernissinnallokkurinn, sem stjórnar landinu, segir að muni færa
Taiwan inn á nýtt skeið lýðræðis.
Simamynd Reuter
Texas býður hormónalaust kjöt
Texasbúar era tilbúnir til aö útvega hormónalaust kjöt fyrir Evrópu-
bandalagið og munu vera tilbúnir til aö senda þaö án þess aö fa sam-
þykki alríkisstjómarinnar, að sögn Jim Hightower, landbúnaöarstjóra
Texasríkis.
Embættismepn í Texas hvöttu einnig Evrópubandalagið til að tvöfalda
innflutningskvóta sinn fyrir hágæðakjöt til að bæta fyrir tapið sem banda-
rískir kjötframleiðendur verða fyrir vegna bannsins á hormónakjötinu.
Evrópskri eldflaug skotið á loft
Ariane-2 eldflaug var skotiö á loft í gærkvöldi frá geimstöð evrópsku
geimferðastofnunarinnar í Kourou í Frönsku Guiana, að sögn ráðamanna
þar.
Eidflauginni, sem ber tveggja tonna Intelsat-V fjarskiptagervihnött, var
skotið á loft laust fyrir klukkan háiftvö í nótt að íslenskum tíma í útj-
aðri suður-ameríska frumskógarins.
Þetta var tíunda vel heppnaöa eldflaugaskotiö á Ariane eidflaug frá því
að geimskot hófust aflur í september 1987 eftir sextán mánaða hlé sem
varð vegna misheppnaös geimskots.
Geimskotið í gærkvöldi fór fram nærri einni klukkustund síðar en
áætlað haiöi veriö vegna þess að eldsneytisleiðsia reyndist biluö.
Nokkrar vikur munu líða þar til vitað veröur hvort gervihnötturinn
hefur þolað fhigtakið.
Reuter
Búast við
blóðbaði
þegar árásir voru gerðar á skæru-
liða sem sitja um aðalveginn milli
Kabúi og Sovétríkjanna. Að sögn
vitna var heilum þorpum gjöreytt.
Najibullah, forseti Afganistans,
hefur boðið framkvæmdastjóra Sam-
einuðu þjóðanna, Javier Perez de
Cuellar, í heimsókn til Kabúl. Þar
búast menn við blóðbaði þegar síð-
ustu sovésku hermennirnir verða
farnir um miðjan febrúar.
Vestrænir stjómarerindrekar
túlkuðu í gær boð Najibullahs sem
tilraun til að fá stjórnina í Kabúl við-
urkennda. Talsmaður-Cuellars gat
ekki greint frá því í gær hvort af
heimsókn yrði.
Nokkrar stjómir hafa þegar kallað
heim erindreka sína frá Kabúl af ótta
við blóðbað milli stríöandi fylkinga
Afgana eftir 15. febrúar. Utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, James Ba-
ker, fyrirskipaði í gær að sendiráði
Bandaríkjanna í Afganistan yrði lok-
að vegna ástandsins í landinu. Þetta
er haft eftir embættismanni sem ekki
vill láta nafns síns getið.
Stjórnarerindrekar í Isiamabad til-
kynntu í gær um harða bardaga.
Haft er eftir vitnum að hundruð
óbreyttra borgara hafi fallið í stór-
skotaliðshríð sovéskra og afgangskra
hermanna á mánudaginn þegar þeir
reyndu að opna aðalveginn milli
Kabúl og Sovétríkjanna. Segja vitni
að heilu þorpin hafi þurrkast út.
Skæruliðar Ahmad Shah Masoods
hafa setið um veginn og torveldað
alla flutninga um hann. Mikill mat-
arskortur er nú í Kabúl og einnig
ríkir skortur á eldsneyti. Er óttast
um líf nokkur hundruð þúsund
manna en miklir kuldar hafa verið í
Afganistanívetur. Reuter
Bílasprengja við höll Duartes
Lögreglan í San Salvador gerði í
gær óvirka bílasprengju sem komið
hafði verið fyrir nálægt forsetahöll-
inni. í pallbíl, sem lagt hafði verið í
um þrjú hundruð metra fjarlægð frá
hliðum hallarinnar, fannst fuUt af
sprengiefnum.
Verið getur að ætlunin hafi verið
að sprengja herbækistöð sem er við
höilina. Embættismenn stjórnarinn-
ar vinna í hölhnni en ekki er vitað
hvort forsetinn, Jose Napoleon Du-
arte, sem býr í öðru húsnæði, var í
höllinni á þessum tíma.
Duarte hafnaði á miðvikudaginn
friðaráætlun skæruhða en sam-
kvæmt henni lofuðu þeir að trufla
ekki forsetakosningarnar ef þeim
yrði frestað.
Reuter
Þúsundir manna
eru heimilislausar
Þúsundir manna eru nú heimil-
islausar eftir jarðskjálftann sem reið
yfir sovéska lýðveldið Tajikistan á
mánudaginn. Samkvæmt opinberum
tölum fórust tvö hundruö sjötíu og
fjórir í jarðskjálftanum.
Sovéskir embættismenn greindu
frá því að í gær heföi aftur komið
harður jarðskjálftakippur á svæðinu
en ekki var tilkynnt um meiðsl á fólki
né eignatjón.
Björgunarmenn hættu leit að fórn-
arlömbum tveimur dögum eftir jarö-
skjálftann þar sem útilokað var talið
að nokkrir fyndust á lifi undir aum-
um. Aðeins einum var bjargaö lifandi
úr aurskriðunni eftir jarðskjálftann.
Margir íbúanna eru sagðir hafa geta
flúið heimih sín áður en aurskriðan
foryfirþau. Reuter
Leitinni að fórnarlömbum jarðskjálftans í Tajikistan hefur nú verið hætt.
Símamynd Reuter