Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1989, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989.
9
UtLönd
Hækkandi verðbréfa-
markaður í New York
Það hefur verið nóg að gera í kauphöllinni í Wall Street I New York
undanfarna daga. Þrjá daga I röð hefur hlutabréfavisitalan sett ný met.
Simamynd Reuter
Kapphlaup kaupahéðna um að
komast inn á hækkandi verðbréfa-
markað í kauphöllinni í New York
varð til þess að Dow Jones hluta-
bréfavísitalan náði nýju hámarki,
eftir hrunið 1987, og komst nær
2.300 stigum í gær á meðan líkur á
hækkuðum vöxtum ollu hækkun á
dollamum.'
Jafnvel vangaveltur um að hag-
tölur fjórða ársíjórðungs 1988, sem
birtar verða í dag, muni sýna geysi-
legan vöxt í hagkerfinu og þar með
benda til þess að mikil hætta sé á
að verðbólga fari af stað náðu ekki
að hræöa kaupsýslumenn í gær.
Olíuverð féU hins vegar mikið
eftir að viðræður í London milli
OPEC samtakanna og oliufram-
leiðenda utan þeirra urðu miður
árangursríkar. Ekki tókst að ná
samkomulagi um takmörkun á
framleiðslu. Verðfalhð á olíu, sem
hefur áhrif til að lækka verðbólgu,
varð til þess að gullverð lækkaði
líka.
Enn nýtt met
Augu allra beindust að kauphöll-
inni í Wall Street þar sem Dow
Jones vísitalan hækkaði um 25,18
stig. Þar með náði vísitalan nýju
meti eftir hrunið í október 1987,
þriðja daginn í röð. Þessi hækkun
stjómaðist fyrst og fremst af eftir-
spurn eftir hlutabréfum í hátækni-
fyrirtækjum auk þess sem kaup-
sýslumenn óttuðust að þeir væm
að missa af hækkandi markaði.
Dow Jones vísitalan, sem mælir
meðaltal verðs á hlutabréfum í
ýmsum traustustu fyrirtækjunum
sem verslað er með í kauphöllinni,
hefur nú hækkað um meira en 120
stig frá áramótum. Eftir daginn í
gær var hún komin upp í 2.291,07
eftir að hafa farið yfir 2.300 stiga
markið fyrr um daginn.
Óvissa breytist í bjartsýni
Það var óvissa þegar kauphöllin
í Wall Street var opnuð í gærmorg-
un vegna þess að viðskiptaráðu-
neyti Bandaríkjanna hafði tilkynnt
að pantanir á varanlegum vömm
hefðu farið upp um heil 6,4 prósent
í desember eftir að hafa staðið nær
í stað í nóvember. En ótti við verð-
bólguhvetjandi áhrif þessarar
hækkunar gleymdist þegar þeir
sem fjárfesta sáu þetta sem merki
um gott gengi fyrirtækja sem
versla með og framleiða varanlegar
vörur, eins og tölvuframleiðendur.
Dollarinn styrkist
Dollarinn endaði í 1,8465 vestur-
þýskum mörkum en hafði á mið-
vikudag endað í 1,8395. Fyrr í gær-
dag var hann kominn í 1,8485 mörk
en lækkaði aðeins fyrir lokun, eftir
að bandaríski seðlabankinn seldi
dollara til að stöðva hækkun hans.
Gagnvart jeninu græddi dollar-
inn líka. Hann kostaði við lokun í
gær 128,35 jen og haíði hækkað úr
127,30. Pundið lækkaði gagnvart
dollar í 1,7680 dollara, úr 1,7710
dollurum.
Hækkunin, sem undanfarið hef-
ur verið á olíuverði, stöðvaðist í
gær vegna vonbrigða með að fund-
ur í London milli OPEC og annarra
olíuframleiðenda skilaði ekki
neinni niðurstöðu um minnkun
olíuframleiðslu.
Olía og gull lækka
Báðir aðilar sögðu að annar fund-
ur yrði haldinn fljótlega en kaup-
sýslumenn höfðu vonást eftir sam-
komulagi strax. Þegar engar tillög-
ur voru lagðar fram eftir fundinn
seldu þeir og þar með lækkaði olíu-
verð.
Þegar ohan lækkaði hlaut gull að
fylgja í kjölfarið. Á vörumarkaðin-
um í New York lækkaði gullúnsan
um 3,20 dollara, í 403,20 dollara.
Reuter
Tower verður
samþykktur
sem vamar-
málaráðherra
John Tower, sem George Bush hef-
ur tilnefnt sem varnarmálaráð-
herra í ríkisstjóm sinni, fékk mjög
vingjamlegar móttökur hjá varn-
armálanefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings er hann var yfir-
heyröur þar í gær.
Tower fullvissaði þingraenn um
að fyrri tengsl hans við hergagna-
iðnaðinn m>Tidu á engan hátt hafa
áhrif á starf hans sem vamarmála-
ráðherra.
Nýi ráðherrann hefur á undan-
fórnum þremur árum fengið raeira
en eina milljón dollara í laun frá
fyrirtækjran í hergagnaiðnaðinum
fyrir ráögjöf og lobbíisma.
Ýrasir hafa oröið til að lýsa yfir Tower, næsti varnarmálaráðherra
áliyggjum sínum af að náin tangsl Bandaríkjanna, fékk hlýjar mótfök-
Towers viö hergagnaiðnaðinn og ur hjá vamarmálanefnd öldunga-
einnig sú staðreynd að hann hefur delldarinnar. Fullvíst er talið að
verið mikill fylgismaður uppbygg- hann verði samþykktur i embættið
ingarheraflansvekiuppspuming- án vandræða. Simamynd Reuter
ar um það hvort hagsmunaárekstr-
ar muni ekki koma upp hjá Tower ingum frá nefhdarmönnum, allt frá
og hvort hann sé hreiniega hæfur spumingura um geiravamaráætl-
til að stjóma hemaðarbákni unina til spurninga um læknis-
Bandaríkjanna á tímum niður- þjónustu við hermenn. Hann lofaði
skuröar. að taka mörg mál tU athugunar
Tower var hins vegar hrósað fyr- eftir að hann tekur við embætti.
ir hreinskilni og nefndin lýsti því Vamannálaráðherrann væntan-
yfir að hún teldi hann hafa klippt legi er fyrrverandi öldungadeildar-
algerlega á öll sambönd sín við þingmaður frá Texas. Hann sat í
fyrriim launagreiðendur. vamarmálanefitd öldungadeildar-
„Ég veit aö þú og ég vitum aö þú innar í tuttugu ár og var formaður
munt verða heiðarlegur," sagði hennar 1981-84 og var þar með einn
Sam Nunn, formaður nefhdarinn- helsti maðurinn á bak við hemað-
ar, demókrati frá Géorgiu, í eitt af arappbyggingu Reagans. Árið 1984
þeim skiptum sem hann hrósaði dró hann sig í hlé frá sljómmálran
Tower. og sneri sér að hinu arðbæra ráð
Tower, sem er sextíu og þriggja gjafarstarfi.
ára, þurfti að svara flóði af 9pum- Reuter
Skotárás í menntaskóla
Fjögur ungmenni voru særð
skotsárum í gær í skotárás við
menntaskóla í Washington-borg, að
sögn lögreglu.
Vitni sögðu við sjónvarpsstöð í
borginni að skothríðin hefði brotist
út við Woodrow Wilson menntaskól-
ann, sem er í millistéttarhverfi, þeg-
ar stúdentar vora að yfirgefa skólann
síðdegis í gær.
Lögreglan sagðist leita tveggja
manna sem era báðir taidir vera
vopnaðir hálfsjálfvirkum vopnum.
Ekki var ljóst hvort annar eða báðir
mennimir skutu inn í hópinn.
Stúdentamir fjórir sem særðust
vora fluttir á sjúkrahús í nágrenn-
inu. Einn þeirra var alvarlega særð-
ur, hafði fengið byssukúiu í andlitið.
Hinir þrír vora ekki í lífshættu.
Nokkrir stúdentar sögðu að atvikið
kynni að vera komið til vegna deilna
í kaffiteríu skólans fyrr um daginn.
Útvarpsfréttamaður sagði að atvik-
ið kunni að hafa orðið vegna eitur-
lyfja sem hafa verið stórkostlegt
vandamál í skólum í borginni.
Á síðasta ári vora framin þijú
hundrað sjötíu og tvö morð í Kól-
umbíu-umdæmi, langflest tengd eit-
urlyfjum. Reuter
Björgunarmenn hlaupa til hjálpar einu ungmennanna sem tveir byssumenn
skutu á i gær. Simamynd Reuter
ClgtW SKÍÐADEILD
1 /jrl Árskort i allar skíðalyfturnar í Bláfjöllum
V fY/ fást á eftirtöldum stöðum:
Bikarnum, Skólavörðustíg
^ Bykó, Hafnarfirði
Bykó, Kópavogi
wgm Byggt og búið, Kringlunni Fálkanum, Suðurlandsbraut
Markinu, Ármúla
Sportvali, Kringlunni
Sportvali við Hlemm
Skíðaleigunni við Umferðarmiðstöðina.
KORTIÐ KOSTAR kr. 6.300,- fyrir fullorðna.
kr. 3.100,- fyrir börn.
% SKÍÐADEILD FRAM