Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1989, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1989, Blaðsíða 24
40 FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 1989. Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11 ■ Bátar Smábátaeigendur! Höfum fyrirliggj- andi dýptarmæla, ratsjár, lóran C og sjálfstýringar í trillur. Friðrik A. Jónsson hf., Fiskislóð 90, símar 14135 og 14340. Ti! sölu þessi 21 fets bátur frá Trefjum með 75 ha. Evinrude, talstöð, eldavél, 2 handfærarúllur o.fl. Verð 680 þús. Uppl. í síma 28916 og 34916. NY FRAMLEIÐSLA: 3,8 rúmlesta fiskibátar til sölu hjá Bátasmiðju Guðmundar. Aflið nánari upplýsingar í símum 50818 og 651088. ■ Bílar til sölu Cadillac Seville ’83 til sölu, einn með öllu. Af sérstökum ástæðum er þessi glæsilega bifreið til sölu. Verð 1450 þús. Skipti á ódýrari eða skuldabréf. Uppl. í síma 91-83820. Peugeot 405 GR '88 til sölu, útvarp, segulband, 4 sumardekk, 2 vetrar- dekk. Verð 830 þus. Uppl. í síma 41089. FRÁ BORGARSKIPULAGI REYKJAVÍKUR Stóragerði Á Borgarskipulagi er verið að vinna tillögur að breyt- ingum Stóragerðis. ibúum Stóragerðis og öðrum sem áhuga hafa á bættu umferðaröryggi í götunni er bent á að kynna sér tillögurnar og greinargerð á Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, 105 Reykjavík, alla virka daga milli kl. 8.30 og 16.00 frá föstudegi 14. apríl til föstudags 28. apríl 1989. Athugasemdum eða ábendingum skal skila skriflega á sama stað innan tilskilins frests. Borgarskipulag Reykjavíkur. Range Rover ®84 til sölu, 4ra dyra, 5 gíra, vökvast., miðstýrðar læsingar, sóllúga, höfuðpúðar á fram- og aftur- sætum, álfelgur, Michelin dekk, litur: ljósblár, gott lakk, ekinn 79.000, út- varp og segulband, tengi og loftnet fyrir síma. Verð 1.200 þús. Skipti möguleg á ódýrari, nýlegum japönsk- um bíl. Uppl. í síma 91-624205. Cherokee Pioneer 1987 til sölu, verð 1450 þús., ekinn 38 þús. km, innfluttur nýr, til greina kemur að taka ódýrari bíl eða bíl á sama verði t.d. Benz 190 E. Uppl. í síma 91-686477 til kl. 19 og 686168 eftir kl. 19. Dodge Shadow ES 2.2i Turbo '88 til sölu, svartur, ekinn 3.400 mílur, sjálf- skiptur, vökvastýri, aflbremsur, rafin. í rúðum, speglum, centrallæsingar, sumar- og vetrardekk. Aðeins bein sala. Verð 1100-1150 þús. Uppl. í síma 91-25952 um helgina og á kvöldin. Toyota pickup 4x4 Extra Cab ’85 er til sölu. Bíllinn er upphækkaður með veltigrind og ótal aukahlutum, þ. á m. talstöð. Glæsilegur bíll. Uppl. í síma 17678 frá kl. 16-20. Toyota Corolla ’87 til sölu, ekinn 25 þús. km. Verð 530 þús., staðgreitt 470 þús. Uppl. í síma 37276. Brynja. ■ Ymislegt Nýinnfluttir notaðir sleðar frá USA. Polaris Indy 400 86/87, verð 300 þús. Polaris Indy trail 87/88, verð 300 þús. Arctic Cat Wildcat 1988, verð 410 þús. Arctic Cat E1 Tigre EXT ’89, v. 420 þús. Ski-doo Formula MXLT ’87, v. 350 þús. Sleðamir eru sérstaklega fallegir og vel með famir. Nánari uppl. í síma 91-17678 frá kl. 16-20. SKÍTA- MÓRALL Ert þú með slæma samvisku gagnvart garðinum þínum og því lífi sem þar þrífst? Við ökum skít (hrossataði af bestu gerð) i garðinn þinn og dreifum ef þú vilt eins og þú vilt. Símapantan- ir í síma 17514 og 35316 (í Rvík) kl. 20-22 alla daga. Því fyiT því betra fyr- ir garðinn. Mundu mig, ég man þig. Geymið auglýsinguna. ■ Þjónusta NÝJUNG tfm/ , ^BERGVIK Bergvík, Eddufelli 4, Reykjavik, kynnir nýjung í markaðstækni með aukinni notkun myndbanda. Hér á Islandi sem og annars staðar færist það í vöxt að fyrirtæki notfæri sér myndbandið til kynningar á vörum og þjónustu ýmiss konar. Við hjá Bergvík höfum fúll- komnustu tæki sem völ er á til fjölföld- unar og framleiðslu myndbanda á fs- landi. Við hvetjum ykkur, lesendur góðir, til að hafa samband við okkur og við munum kappkosta að veita ykkur allar upplýsingar varðandi fjöl- földun og gerð slíkra myndbanda. Við hjá Bergvik höfum bæði reynslu og þekkingu á þessu sviði og okkar markmið er að veita sem fjölþættasta þjónustu á sviði myndbanda. Bergvík, Eddufelli 4,111 Reykjavík, s. 91-79966. Við smíðum stigana. Stigamaðurinn, Sandgerði, s. 92-37631/37779. r Notaðu endurskinsmerki og komdu heil/l heim. niæsERosR Ginsana og Gericomplex í DV 23.2. skrifar Páll Ásgeirsson grein um ginseng af greinilegri vanþekkingu. Bæði er hallað réttu máli og fullyrðingar eru villandi. Fróðlegt væri að vita hvaða hvatir liggja að baki þegar menn leggja sig niður við að rægja ákveðnar vörutegundir. Hér skulu nú aðeins hraktar nokkrar viilandi og rangar staðhæfingar. Blaðamaður birtir einungis myndir af þeim tveimur ginsengaf- urðum sem Heilsuhúsið dreifir, og lætur að því Uggja í myndatexta að verðið sé allt að 60.000 kr. kílóið af ginsana vökva. Þetta er mjög fiarri lagi. Flaska, 250 ml, kostar 723 kr„ kílóið kostar því tæpar 2900 kr. Sé keypt tvöföld pakkning er verðið enn lægra. Ginsana eykur starfsþrek Blaðamaður segir fátt sannað um hollustu ginsengs. Þetta er rangt. Þvert á móti er staðfest með ótal prófunum að ginseng er styrkjandi og eykur andlega og líkamlega af- kastagetu. í sænska læknablaðinu (Lakartidningen nr. 51, 1987) eru birtar niðurstöður tvöfalds blind- prófs sem framkvæmt var af dósent Per A. Tesch, við Karolinska instit- utet, Stokkhólmi, Hans Johanns- son, framkvæmdasfióra íþrótta- mála hjá LM Eriksson, og dr. med. Peter Kaiser, við lífeðlisfræðistofn- im Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi. Eftir 8 vikna neyslu á Geri- complex urðu niöurstööur rann- sóknarinnar eftirfarandi: Viö há- marksálag á þrekhjóli er hjartslátt- KjaUariim örn Svavarsson framkvæmdastjóri Heilsuhússins ur hægari, minni mjólkursýra í blóði (minni þreyta) og lægri áreynsluþröskuldur. Viö upphaf rannsóknarinnar hafði sá hópur, sem fékk Gericomplex hylkin, sama þrek og jafnstór hópur sem fékk placebo hylkin, en eftir rann- sóknina var þrekið meira en hjá samanburðarhópnum. Þessar nið- urstöður benda til að neysla á Ger- icomplex auki starisþrek og úthald við líkamlega áreynslu. Margar prófanir hafa verið gerðar með Ginsana GU5 og Gericomlex sem staðfesta aukið starfsþrek, einkum við mikla einbeitingu. Of langt mál væri að rekja þessar rannsóknir hér en vilji einhver fá sérprentun af niðurstöðum þeirra eða annarra rannsókna, sem hér eru nefndar, má senda beiðni þar um, merkt G115, í pósthólf 43,121 Reykjavík. í greininni segir að niðurstöðum tilrauna beri helst Scunan þegar um er aö ræða áhrif sem ekki er hægt að meta hlutlægt. Þetta er rangt þvi dýr eru notuð viö margar rann- sóknir og þar eru niðurstöður óyggjandi. Sama má segja um þol- prófanir t.d. á íþróttamönnum þar sem niðurstöður eru lesnar beint af mælitækjum. Nægir að benda á sundþolspróf sem Consultox Laboratories í Lon- don framkvæmdi á músum. Þetta var tvöfalt blindpróf þar sem 2 hóp- ar músa fengu nákvæmlega sömu meðhöndlun, sama fæði o.s.frv., nema annar hópurinn fékk Gins- ana G115. Eftir 4 vikur voru allar mýsnar settar í sundþolspróf þar sem þær voru látnar synda þar til þær gáfust upp. Þá eru þær teknar úr vatninu. Sá hópur sem fékk Ginsana G115 synti að meðaltah 51,8% lengur en hinar. Látið er að því hggja að ekki séu notuð tvöfold bhndpróf við tilraun- imar. Hér er enn farið með rangt mál því leiðbeiningar um notkun á Ginsana GU5 og Gericomplex byggjast á niðurstöðum tvöfaldra bhndprófa. Hér hefur þegar verið bent á rxokkrar, en yfir 50 vísinda- legar rannsóknir hggja að baki Ginsana G115, bæði khnískar, lyfiafræðhegar, eiturefnafræðileg- ar og anahtískar. Staðhæft er að ýmsir hafi ofnæmi fyrir ginseng. Ég leyfi mér að benda á að bestu næringarefni geta valdið ofnæmi hjá einstaka manni. Ætlar greinarhöfundur að vara við notk- un mjólkur vegna þess að um 1-2% smábama hafa ofnæmi fyrir mjólk? Með tilliti til hve öflugt næringarefni Ginsana er er ánægjuleg staðreynd að mjög sjald- an koma upp ofnæmistilfelh af þess völdum. Ginseng er hættulaust Fuhyrt er að nyög stórir skammt- ar geti reynst banvænir. Margar eiturefnafræðilegar prófanir, m.a. hjá fæðu- og lyfiafræðistofnun Bandaríkjanna, hafa sannað að Ginsana G115 er algerlega óskaö- legt efni. Þessi fuhyrðing er því röng. Próf. Emilio Trabucchi, við lyfia- fræðideild Háskólans í Mílanó, rannsakaði 60 rottur og 60 mýs með tilliti til eitrunar. í ljós kom aö efn- ið var ekki mælanlegt í blóðinu þó gefnir væra stórir skammtar (10 hylki á hvert kg/hkamsþyngd) því síður að nokkurt dýr hafi drepist. Dýrin þoldu þessa stóm skammta mjög vel og án nokkurra eitmnar- merkja. Ginsana GU5 og Gericomplex er mikið notað af íþróttafólki, skák- fólki, leikuram og öðra fólki í störf- um sem gera miklar kröfur til huga og handa. Þar sem sífeht fleira íþróttafólk notar þessi efni með frábærum ár- angri vora þau prófuð með tilhti th svonefndra doping (lyfia) áhrifa. Niðurstaðá þeirrar rannsóknar var að engin lyfiaáhrif mældust. Ágæti Ginsana GU5 fyrir íþróttafólk var hins vegar rækhega staðfest með bhndprófi á toppþjálfuðum íþrótta- mönnum á aldrinum 18-31 árs í 9 vikur. Súrefnisupptökuhæfnin jókst um rúm 16%. Mjókursýruúr- fehing minnkaöi verulega (minni þreyta), og hjartsláttur var hægari en þjá viðmiðunarhópnum við sömu áreynslu. Ahar rannsóknir og prófanir sem gerðar hafa verið með Gericomplex og Ginsana GU5, sem og reynsla fiölda fólks út um ahan heim stað- festa ágæti þessara efna th að auka líkamlegt og andlegt starfsþrek og viðhalda góðu hehsufari. öm Svavarsson „Margar prófanir hafa veriö gerðar meö Ginsana G115 og Gericomplex sem staðfesta aukiö starfsþrek, einkum við mikla einbeitingu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.