Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1989, Page 4
4
MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 1989
r /rVi -i Cn ^ - 'i r i
Fréttir dv
Mikil stemmning þegar páfi kom í Kristskirkju:
Ógleymanleg stund
fyrir söfnuðinn
„Söfnuðurinn var mjög hrifmn.
Hápunkturinn hjá mörgum var þeg-
ar páfi kom í kirkjuna á laugardag-
inn. Stemmningin var mjög mikil í
kirkjunni og páfi heilsaði mjög mörg-
um. Þessi stund verður ógleymanleg
í minningu safnaðarfólks og mun
örugglega eíla safnaðarstarfið mik-
ið.“ sagði séra Jakob Loland, prestur
í Kristskirkju, í samtali við DV.
Mikil eftirvænting var meðal fólks,
bæði fvrir utan Kristskirkju og með-
al safnaðarmeðlima. nunna og presta
Auður Laxness:
Yndisleg samkoma
„Þetta var yndisleg samkoma og
við erum þakklát fyrir að hafa fengið
að vera viðstödd," sagði Auður Lax-
ness, eiginkona Halldórs Laxness, í
samtali við DV. Þau hjón voru ásamt
börnum sínum og barnabömum við-
stödd i Landakotskirkju á laugardag
þegar Jóhannes Páll páfi H átti stutta
stund með söfnuði katólskra á ís-
landi.
Halldór Laxness lét ungur skírast
til katólskrar trúar og hefur trúin
mótað skrif skáldsins á margvíslegan
hátt.
Fjölskyldan á Gljúfrasteini stóð svo
úti á hlaði og veifaði til páfa þegar
hann ók framhjá á leið til Þingvalla.
-Pá
Halldór og Auður Laxness á Gljúfra-
steini eftir samverustund með páfa.
DV-mynd KAE
inni í kirkjunni, áður en páfi kom
akandi að Landakoti á laugardag.
Um leið og bílalest páfa hafði stöðv-
ast gekk hann að fólksmergðinni sem
komin var að sjá hann. Heilsaði hann
íjölmörgum, sagði nokkur orð, lagði
lófa á höfuð barnanna og kyssti þau.
Fólk var hrifið af því hvernig páfi
blandaði óhikað geði við það. Örygg-
isverðir voru hins vegar á nálum og
voru um allt. írafár þeirra snerti
páfa hins vegar ekki hið minnsta
frekar en við önnur tækifæri í heim-
„Hið kalda veður varð að umtals-
efni þegar við ræddum við páfa í
safnaðarheimilinu á laugardags-
kvöld. Páfi hafði þá á orði að honum
hefði þótt mun kaldara í Japan þegar
hann var þar í heimsókn í febrúar
1981,“ sagði séra Jakob, prestur í
kaþólska söfnuðinum, við DV.
sókninni.
Þá gekk páfi að skreyttri tröðinni
sem liggur að kirkjunni. Þar biðu
biskup kaþólsku kirkjunnar, prestar,
fulltrúar leikmanna og fleiri. Heils-
aði páfi þeim og gekk með þeim inn
í kirkjuna til fundar við um 400 safn-
aðarmeðlimi og nunnumar.
Páfi gekk inn efir miðju kirkjugólf-
inu að altarinu og heilsaði gestum á
leiðinni. Þegar upp að altarinu kom
fögnuðu nunnumar honum með
fagnaðarhrópum meðan söfnuður-
„Vegna kuldans gekk messan á
sunnudagsmorgun hraðar fyrir sig
en gert var ráð fyrir í upphafi. Hin
þögla bæn páfa varð mun styttri en
venjulega. En þetta hefði verið miklu
verra hefði farið að rigna. Við vorum
lánsöm að ekki skyldi rigna.“
Kuldinn varð mönnum mjög að
inn klappaði. Blessaði páfi söfnuð-
inn, fór með hljóða bæn og flutti síð-
an ræðu þar sem hann ávarpaði
presta, nunnur og safnaðarfólk. Þá
tók páfi við blómum og blessaði síðan
gullkórónu sem hann setti á höfuð
tréstyttu af Maríu sem verið hefur í
kirkjunni frá vígslu hennar.
Fundur páfa með söfnuöinum
varði Lum klukkustund.
-hlh
umræðuefni þessa helgi, ekki síst
útlendingunum. Útlendir blaða- og
fréttamenn, þéir fáu sem mættu,
skulfu bókstaflega af kulda og þeir
innlendu virtust ekki hafa það allt
of gott heldur.
-hlh
Jóhannes Páll páfi II. gengur niður
landganginn á Frónfara.
DV-mynd KAE
Við fögnum
góðum gesti
„Yðar heilagleiki, á tungu feðra
vorra býð ég yður velkominn fyrir
hönd ríkisstjórnar íslands. Við fógn-
um góðum gesti.“ Þannig fórust
Steingrími Hermannssyni forsætis-
ráðherra orð þegar hann tók á móti
Jóhannesi Páh páfa II. á Keflavíkur-
flugvelli kl. 13.00 á laugardag.
Klukkan var nákvæmlega 13.00
þegar Frónfari, flugvél Flugleiða,
nam staðar við enda rauða dregilsins
og móttökuathöfnin hófst.
Þegar páfi haföi kropið og kysst
íslenska jörð lék lúðrasveit þjóð-
söngva Vatíkansins og íslands. Því
næst flutti Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra stutt ávarp og
bauð páfa velkominn og sagði meðal
annars að íslendingar styddu hann
heils hugar í baráttu hans fyrir friði
og bættum lífskjörum.
Síðan ávarpaði Jóhannes Páll páfi
E. viðstadda og kvaðst hingað kom-
inn vegna sérstaks áhuga síns á ís-
landi og jafnframt til þess að blessa
söfnuð sinn hér. Hann hvatti íslend-
inga til þess að halda fast í þau
kristnu viðhorf sem mótað heföu
þjóðina fram á þennan dag og varð-
veita þau menningarverðmæti sem
þjóðin heföi erft frá stórhuga forfeð-
rum sínum.
Geysilegur viðbúnaður lögreglu og
öryggisvarða var við komu páfa
hingað til lands og fylgdust vopnaðir
burstaklipptir lifverðir með hverri
hreyfmgu hans. Fjórir lögreglubOar
og 5 mótorhjól fylgdu bílalest páfa
sem í voru 10 bifreiðir alls.
-Pá
Páfi gaf sig sérstaklega að börnunum þegar hann gekk meðal fólks og heilsaði því. Brosti hann góðlátlega til
barnanna, sagði nokkur orð og strauk þeim bliðlega. Þessi litla stúlka hlaut blessun páfa og virtist líka vel að
hitta þennan vinalega, gamla mann. DV-mynd Hanna
Fannst kaldara í Japan
í dag mælir Dagfari________________
Flokkur í flokki
Þeir eru sniðugir í Alþýðubanda-
laginu. Samkvæmt reglum flokks-
ins geta ílokksfélagar myndað
mörg félög innan flokksins og búið
jafnvel til nýja flokka í flokknum.
Þetta kemur sér vel þegar deilur
spretta upp í aðalflokknum. Þá geta
menn rottað sig saman og stofnað
nýjan flokk í stað þess að vera að
rífast í hinum flokknum. í hvert
skipti sem einhver hópur innan
Alþýðubandalagsins lendir í
minnihluta getur hann sagt skilið
við flokkinn og stofnað nýjan flokk.
Þetta ætla þeir að gera í Alþýðu-
bandalagsfélagi Reykjavíkur. Þar
var haldinn aðalfundur um daginn
og ný stjóm kjörin. Eitthvað var
minnihlutinn á fundinum óánægð-
ur með úrslitin og nú hefur þessi
minnihluti ákveðið að stofna annað
Alþýðubandalagsfélag í Reykjavík.
Þar fá menn væntanlega að vera í
friði fyrir meirihlutanum og þar
geta þeir væntanleg haldið saman
þangað til einhver meirihluti í fé-
laginu kýs menn í stjóm sem
minnihlutinn er á móti. Þá er ekk-
ert annað að gera en að stofna enn
aftur nýtt félag og svo koll af kolli.
Einhver kynni að segja að þetta
sé lítUl félagsþroski og muni skaða
Alþýðubandalagið þegar fjölmörg
félög era stofnuð á sama svæðinu,
eftir því hvort meirihlutinn er
minnihluti eða minnihlutinn
meirihluti. En félagsþroski sósíal-
ista er einmitt hin sterka hlið þessa
máls vegna þess að félagsþroski er
ekki fólginn í því að sætta sig við
að vera í minnihluta heldur í hinu
að geta stofnað félög og flokka án
þesss áð ganga úr gamla flokknum.
Enda segir formaður flokksins,
Ólafur Ragnar Grímsson, að þetta
muni styrkja Alþýðubandalagið.
Ef formaðurinn er þeirrar skoðun-
ar að flokkurinn batni við að klofn-
ingurinn verði alvarlegri og ný fé-
lög séu stofnuð til höfuðs þeim
gömlu þá getur maður ekki betur
séð en að það eigi að verða eitt
helsta verkefni formannsins að
kynda undir klofning og hatur inn-
an Alþýðubandalagsins svo flokk-
urinn eflist sem mest.
Hingað til hefur það verið land-
læg skoðun í pólitík að flokksmenn
þurfi.að standa saman í blíöu sem
stríðu og það hafa verið lýðræðis-
legar leikreglur að minnihlutar
sætti sig við meirihlutaákvarðanir,
eins og til dæmis þegar kosið er til
stjómar. Alþýðubandalagsmenn í
Reykjavík hafa hins vegar varpað
þessari keningu fyrir róða og
hyggjast nú efla flokksstarfið með
því að kljúfa flokkinn. Og þessi
hópur áhugasamra félaga hefur
formanninn með sér í slagnum
vegna þess að formaðurinn vill að
sem flestir kljúfi og fari og búi til
ný félög. Þá veröi starfsemi Al-
þýðubandalagsins með meiri og
betri blæ og nýtt líf færist í alla-
balla.
Ólafur Ragnar hefur haldið því
fram í ræðu og riti að Alþýðu-
bandalagið sé jafnaöarmanna-
flokkur. Samkvæmt fréttum frá
Alþýðubandalagi Reykjavikur er
ekki lengur pláss fyrir jafnaðar-
menn 1 þessu stærsta félagi flokks-
ins. Jafnaðarmennirnir í flokknum
þurfa að stofna nýtt félag til að
komast að fyrir trotskyistum og
maóistum og gömlu klíkunni. Mun
það vera einsdæmi að fólkið, sem
á að vera í flokknum og flokkurinn
er fyrir, skuli ekki komast að í sín-
um eigin flokki og þurfi að stofna
með sér félag til að fá að vera með.
En það er hugsanlega eftir öðru í
nýstárlegu flokksstarfí Alþýðu-
bandalagsins að láta allt aðra menn
stjórna flokknum heldur en þá sem
flokkurinn er fyrir. Jafnvel for-
maðurinn í Alþýðubandalaginu er
haföur utangátta og á énga samleið
með fólkinu sem kosið er í stjóm í
Alþýðubandalagsfélagi Reykjavík-
ur.
En hvað gera menn ekki til að
stækka flokka sína? Það er enda
ólíkt þægilegra að hafa flokksfélag-
ana í sitt hvoram hópnum í stað
þess að hafa þá alla saman þar sem
hver rífst upp í annan. Ef menn
dreifa sér nóg ríkir sátt og sam-
lyndi í hópi alþýðubandalags-
manna. Aðalatriðið er að þetta fólk
hittist ekki, sjái ekki hvert annað
né tali saman. Þá getur Alþýðu-
bandalagið með réttu hrósað sér
af einingu og eflingu og lýðræðis-
legum flokki. Ólafur Ragnar er
greinilega að vinna mikið og gott
starf í Alþýðubandalaginu. Klofn-
ingurinn eykst með hverjum fund-
inum. Hver höndin er uppi á móti
annarri. Svona eiga almennilegir
flokkar að vera.
Dagfari