Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1989, Page 12
12
MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 1989.
Útlönd__________
Þjóðarsorg
í Teheran
Þúsundir irana þyrptust út á götur Teheran í gær í kjölfar frétta um lát
ayatollah Khomeinis, andlegs leiötoga þjóðarinnar. Allt fór að mestu frið-
samlega fram. Fimmtíu milljónir írana syrgja nú hinn fallna leiðtoga sinn
og hefur þjóðarsorg verið lýst yfir. Simamynd Reuter
Þúsundir írana þyrptust út á götur
Teheran í gær til aö syrgja ayatollah
Khomeini, andlegan leiötoga lands-
manna, en hann lést að kvöldi laug-
ardags, 86 ára að aldri. Khomeini var
hjartveikur og gekkst undir upp-
skurö nýlega. Hann var talinn á bata-
vegi í síöustu \dku.
Þjóðarsorg ríkir nú í landinu og
hópuðust margir. flestir klæddir
sorgarbúningi, til heimilis leiötogans
sáluga þrátt fyrir tilmæli stjórnvalda
um að láta það vera. Margir syrgj-
enda lágu á jörðinni og börðu höfð-
inu í hart undirlagið. Svartir sorgarf-
ánar blaka víða í borginni og ræðum
hins látna leiðtoga var útvarpað á
götum úti. Ráðamenn í íran hvöttu
til stilhngar og virðist scm flestir
hafi hlýtt þeirri hvatningu. Lýst hef-
ur verið yfir fjörutíu daga þjóðarsorg
í íran.
Khamenei tekur við
í gær var tilkynnt að samkunda
trúarleiðtoga írana hefði valið Ali
Khamenei forseta til að taka við af
Khomeini. Khamenei, sem er 49 ára
að aldri, hefur látið lítið á sér bera í
íran og var að öllu jöfnu ekki nefnd-
ur þegar rætt var um hugsanlegan
arftaka Khomeinis. Margir telja aö
kosning hans hafi verið málamiðlun-
arkosning til aö brúa biliö milli rót-
tækra og íhaldssamra hópa í stjórn
landsins.
Khamenei er öllu hófsamari en fyr-
irrennari hans i flestöllum málum.
Hann hefur unnið náið með Rafsanj-
ani, forseta íranska þingsins, en
margir vestrænir leiðtogar bundu
vonir við Rafsanjani. Segjafréttaský-
rendur að ef samstarf Khameneis og
Rafsanjanis haldist geti svo farið að
minna verði úr valdabaráttu þeirri
er margir óttuðust í kjölfar láts Kho-
meinis en búist hafði verið við.
Útnefning Khameneis kom á óvart
vegna þess hversu lágt settur hann
var í valdastiga leiðtoga shita mú-
hameðstrúarmanna í íran. Ayatollah
Hossein Ah Montazeri var löngum
talinn sá er taka myndi við af Khom-
eini en var rekinn frá völdum í mars-
mánuði vegna gagnrýni á mannrétt-
indabrot í Iran.
Sonur Khomeinis við völd?
Fréttaskýrendur búast ekki við að
mikilla breytinga sé aö vænta í
stefnu írans næstu mánuði. Banda-
rískir embættismenn óttast að í kjöl-
far láts Khomeinis muni hryðju-
verkaárásir á Vesturlöndum aukast
frekar en hitt en telja þó litla hættu
á að pólitískt jafnvægi í þessum
heimshluta raskist.
Flestir fréttaskýrendur búast við
hatrammri valdabaráttu innan írans
áöur en ljóst verði hver muni halda
um stjórnartaumana. Sonur Kho-
meinis, Ahmad, var talinn líklegur
til að taka við af fóður sínum og telja
margir aö hann muni tryggja stöðu
sína á næstu mánuðum. I haust fara
fram kosningar um forseta og flestir
búast viö að Rafsanjani muni sigra.
Þá veröur einiiig kosið um breyting-
ar á stjórnarskránni sem fréttaský-
rendur telja að geti haft í fór með sér
breytingar á valdajafnvægi í íran.
Gæti þá svo fariö að Ahmad eða Rafs-
anjani gætu tekið völdin.
Reuter
Þrír íranskir karlmenn tyrir utan bústað Khomeinis í útjaðri Teheran í
gær. Khomeini lést seint á laugardagskvöld. Simamynd Reuter
Stormasamur
valdatími
Áriö 1979, eftir fimmtán ára útlegð,
tók ayatollah Ruhollah Khomeini
völdin í íran i öldu trúarbyltingar
sem skók bæði hinn vestræna heim
sem og önnur ríki múhameöstrúar.
Hann umbylti írönsku þjóðfélagi
og setti á stofn herskátt trúarþjóð-
félag er storkaöi báðum stórveld-
um.
Þúsundir íranskra þegna trúir
hinum faUna keisara voru teknir
af lífi og herinn, sem og aörar stofh-
anir í íran, var beygður undir vilja
hins andlega leiötoga. Khomeini
hafði brotið á bak aftur 2.500 ára
hefð keisaraveldisins í fran.
Trúarþjóðfélag
Khomeini var staðráðinn í að
byggja upp strangtrúarlegt þjóð-
félag. Með valdatöku hans voru
margir strangir siðir múhameðs-
trúarinnar teknir upp á nýjan leik
í þessu landi sem orðið hafði æ
vestrænna.
Undir stjórnKhomeinis háði íran
átta ára blóðuga baráttu við ná-
grannaríki sitt, írak. Áður en yfir
lauk höfðu að minnsta kosti 120
þúsund íranir fallið, sumir vest-
rænir stjómarerindrekar segja
fómarlömb striðsins vera nærri
hálfri milljón, og efnahagur lands-
ins lagður í rúst. Stríðsskaðinn er
áætlaður um 350 milljarðar dollara.
Verðhrun á olíu árið 1986 bætti
ekki úr efnahagsvanda þjóðarinnar
og i ágúst í fyrra féllst Khomeini á
vopnahlé. Líkti- hann því við að
drekka eitur,
Efnahagsiega náði íran sér ekki
á strik undir stjóm Khomeinis og
segja fréttaskýrendur það vera
vegna togstreitu hans nánustu
samstarfsmanna um bestu leiðina
til fullkomins þjoðfélags. Stríðið
við írak setti og strik í reikninginn
og tafði mikið fyrir uppbyggingu.
Afstaða Khomeinis gagnvart
stórveldunum og barátta hans fyrir
málstað fatæka mannsins höfðaði
til margra múhameðstrúarmanna.
En andstæðingar hans kveða hann
hafa stjórnað landinu harðri hendi
og dregið íran aftur í fornaldir.
Einangrunarstefna var tekin upp
og í utanríkismálum fordæmdi
Khomeini vestræn ríki. Hann sagði
Bandaríkin vera „hinn mikla Sat-
an“ og Sovétríkin trúarlaust land.
Samskipti írans og hins vestræna
Ayatollah Ruhollah Khomeini,
andlegur leiðtogi irans, lést á
sjúkrahúsi í Teheran aðfaranótt
sunnudags. Símamynd Reuter
heims fóru eilítið batnandi á síð-
asta áratug en versnuðu til muna
í febrúar á þessu ári þegar Kho-
meini hvatti múhameöstrúarmenn
víös vegar um heiminn til að myrða
bresk-indverska rithöfundinn Sal-
man Rushdie. Hvatningin kom til
vegna meintrar móðgunar við spá-
manninn Múhameð í bók Rush-
dies, Sálmar Satans.
Guöfræðinemi
Khomeini fæddist í septeraber
árið 1902. Fyrstu 60 ár ævi sinnar
nam hann og kenndi guðfræði.
Árið 1930 kvæntist hann og eignuð-
ust þau hjón fimm börn, þrjár dæt-
ur og tvo syni. Yngsti sonur hans,
Ahmad, starfaði náiö með honum.
Árið 1964 var Khomeini sendur í
útlegð vegna andstööu hans við
keisarann. Hann hélt baráttu sinni
áfram og var í forsvari shita múha-
meðstrúarmanna í íran. Árið 1978
var Ijóst að íran átti við mikla efna-
hagslega örðugleika aö stríða. Alda
mótmæla og verkfalla gekk yfir
landið og óstjórn tók við. Þann 16.
janúar 1979 yfirgaf Reza Pahlavi
keisari íran og l. febrúar sama ár
sneri Khomeini heim. Blóöugt
götustríð varð síðustu ríkisstjórn
keisarans að falli, fjöldaaflökur á
stuðningsmönnum keisaradæmis-
ins fylgdu á eftir og Khomeini tók
við völdum.
Reuter
Tölvu-
og prentaraborð frá
3210
3217
3240
3230
Tölvuborðin frá SIS eru létt
og meðfærileg á sérlega
hagstæðu verði. Borðin
henta jafnt til fyrirtækja,
stofnana og heimila.
Hringið eftir myndalista,
eða skoðið borðin í
sýningarsal okkar að
Hesthálsi 2-4,110 Reykjavík.
Við póstsendum samdægurs.
KRISUÁN SIGGEIRSSON
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Hesthálsi 2-4 • sími 672110
REPRÓ