Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1989, Síða 23
MÁNUÐAGUR 5, JÚNÍ ip,
23
pv fþróttir
Frétta-
stúfar
Er Eli Ohana á
förum frá Mechelen?
Knstján Bemburg, DV, Belgúr
Nær öruggt er að
hinn snjalli ísraelski
knattspymumaður,
Eli Ohana, yfírgefur
belgísku meistarana KV Mec-
helen og spilar í Frakklandi á
næsta tímabili. Strasbourg og
Paris St. Germain viija bæði fá
hann tii sín og Mechelen hefur
lækkað kaupverö hans til
muna en fyrr í vetur viidi félag-
ið fá um 80 milijónir króna fyr-
ir hann.
Ohana vill ólmur komast í
burt frá Mechelen því þrátt fyr-
ir ótvíræða snffli hans hefur
hann mátt þola aö sitja lengur
á varamannabekk iiðsins I vet-
ur en nokkur annar leikmaður
belgísku meistaranna.
Faer Lippens að fara?
Anderlecht reynir nú
af ölliun mætti að
halda í aðstoðar-
þjálfarann Martin
Lippens þrátt fyrir að nýi þjálf-
arinn, Aad De Mos, hafi lýst
því yör að hann vilji ekki nota
hann. Stjóm Anderlecht vill að
Lippens vinni áfram fyrir fé-
lagið sem unglingaþjálfari eða
skrifstofumaður en hann hefur
starfað hjá því á annanáratug.
Lippens vill hins vegar ógilda
samning sinn við félagið en
hann á tvö ár eftir af honum.
Fráfarandi þjálfari Anderlecht,
Raymond Goethals, er á forum
tU Bordeaux í Frakklandi og
vill endilega fá Lippens með sér
þangað.
Kemur Demol aftur?
Forráðamenn And-
erlecht eru enn meö
veskið opiö og reyna
nú að fá fyrrum leik-
mann sinn, Stephan Demol,
Ieigðan frá Bologna á Ítalíu.
Paris St. Germain hefur líka
mikinn áhuga á að krækja í
þennan snjaila vamarmann.
Anderlecht hefur nú eytt um
200 milljónum íslenskra króna
í kaupin á Van der Linden,
Degreyse og Stojic á undan-
fömum vikum. Félagið er enn
að kanna möguleika á að fá
Enzo Scifo tíl sín á ný en þaö
mun véra mjög erfitt. And-
erlecht þarf að semja við tvö
félög, Inter MUano, sem ,,á“
Scifo, og Bordeaux sem er meö
hann á leigu.
hlupu til
Reykjavíkur
Jóhannes Sigurjánason, DV, Húsavflc
Um þessar mundir dvelur hóp-
ur fijálsíþróttafólks frá Héraðs-
sambandi S-Þingeyinga í æfinga-
búðum í Móseldaínum í Þýska-
landi. Þama eru eingöngu ungl-
ingar á ferö og hafa þeir staöið
fyrir ýmiss konar fjáröflunar-
starfsemi í vetur til þess að afla
farareyris til utanlandsferðar.
Lokaátakiö í fjáröflun byggðist
á þvi aö hópurinn brá undir sig
betri fætinum og hljóp frá Laug-
um í Reykjadal og sem leið lá
suöur til Reykjavíkur. Áheitin
fyrir þetta mUda hlaup nægði til
þess aö greiöa Eæði og húsnæði á
erlendri grundu.
KR-VOLLURIKVOLD KL. 20.00
KR-FYLKIR
í íslandsmótinu - Hörpudeild
Skólahljómsveit Kópavogs leikur
frá kl. 19.40 og í leikhléi í boði:
ÍSBÚÐAR VESTURBÆJAR
HAGAMEL 67
tJTSÝN
llll FORMPRENT
Hveriisgotu /8. simar 259bU 25506
Creiðslur almennings
fyrír læknishjálp og lyf
(skv. reglugerð útg. 26. maí 1989)
1. Greiöslur hjá heimilislækni og heilsugæslulækn
190 kr. - Fyrir viðtal á stofu læknis. Innifalin er ritun lyfseðils.
350 kr. - Fyrir vitjun læknis til sjúklings.
Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir, og má læknir ekki krefja sjúkling um viðbótargjald, nema
vegna lyfja eða umbúða, sem sjúklingur kynni að þurfa að fara með burt með sér.
2- Greiðslur fyrir sérfræðilæknishjálp, rannsóknir
og röntgengreiningu
630 kr. - Fyrir hverja komu til sérfræðings.
215 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrstu 12 skiptin hjá sérfræðingi á hverju almanaksári, síðan ekkert.
(Sjá nánar hér að neðan).
Aldrei má krefja sjúkling um nema eina greiðslu fyrir hverja komu ásamt rannsókn/röntgengreiningu í
framhaldi af henni. Til nánari skýringar er eftirfarandi tafla:
Greiðslur almennings fyrlr sórfræðilæknishjálp, nokkur dæmi.
TAFLA Heimilis- læknir Sérfræð- ingur Ranns./ Röntg.gr. Sérfræð- ingur Aðgerð hjá Svæfing/deyfing sérfræðingi hjá sérfræðingi
Dæmi 1 190 630
Dæmi 2 190 440
Dæmi 3 190 630 630
Dæmi 4 190 630' 0
Dæmi 5 190 630 0 630
Dæmi 6 '190 630 0 630 0 630
Skýringar: Talfan lesist frá vinstri
til hægri og sýnir samskipti við
a.m.k. tvo lækna. Dæmi 4: Sjúkl-
ingur leitar til heimilislæknis og
greiðir þar 190 kr. Heimilislæknir
vísar síðan sjúklingi til sérfræðings
og þar greiðir sjúklingur 630 kr.
Þessi sérfræðingur sendir sjúkling
í röntgengreiningu og þarf sjúkl-
ingur ekki að greiða sérstaklega
fyrir hana þar sem hún er í beinu
framhaldi af komu til sérfræðings.
Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir og má læknir ekki krefja sjúkling um viðbótargjald, nema
vegna lyfja eða umbúða sem sjúklingur kynni að þurfa að fara með burt með sér.
Allir eiga að fá kvittanir fyrir greiðslum sínum hjá sérfræðingum.
Elli- og örorkulífeyrisþegar, sem leggja fram hjá sjúkrasamlegi sínu kvittun fyrir 12 greiðslum á sérfræði-
læknishjálp á sama ári, fá skírteini sem veitir þeim rétt á þessari þjónustu ókeypis það sem eftir er ársins.
3. Greiðslur fyrir lyf
550 kr. - Fyrir lyf greidd af sjúkrasamlagi.
170 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrir lyf greidd af sjúkrasamlagi.
Eitt gjald greiðist fyrir hvern 100 daga lyfjaskammt eða brot úr honum.
Gegn framvísun sérstaks lyfjaskírteinis í lyfjabúð fást ákveðin lyf,
við tilteknum langvarandi sjúkdómum, ókeypis.
Læknar gefa vottorð til sjúkrasamlags í þeim tilvikum
sem réttur á skírteini kann að vera fyrir hendi.
Greiðslur þessar gilda frá og með 1. júní 1989.
JQ TRYGGINGASTOFNUN
JÍI RÍKISINS