Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1989, Blaðsíða 26
26
MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 1989.
íþróttir
Sig. Grétarsson:
Vona
að ég
komist
„Ég er aö vona að ég komist í
leikinn gegn Austurríkismönn-
um,“ sagði Sigurður Grétarsson
í samtali við DV í gær en hann
býr sig nú undir lokaáfanga úr-
slitakeppninnar í Sviss meö liði
sfnu, Luzern.
„Við eigum tvo leiki eftir og
þurfum stig úr þeim til að tryggja
okkur raeistaratitilinn. Fyrri
leikurinn er á laugardag en sá
seinni á miðvikudag í vikunni á
eftir, sama dag og við mætum
Austurríkismönnura í Reykja-
vík,“ sagði landsliðsfraraheijinn.
Sigurður var mjög ánægður
með stigið sera vannst í Moskvu
en var hins vegar varkár er hann
leit til næstu riðureigna. Kvað
Sigurður leikina fram undan
mjög erfiöa:
„Við verðum að ná stigi gegn
Austuríkismönnum heiraa og ef
við leikum eins gegn þeira og viö
gerðum í Moskvu þá er þetta stig
inni í myndinni. Það má hins
vegar ekki horfa fram hjá því að
þó aö stig hafi unnist gegn Rúss-
um þá er ekki þar með sagt að
við vinnum Austurríkismenn
heima,“ sagði Sigurður sem hefur
gert eitt mark fyrir ísiand í for-
keppni heimsmeistaramótsins.
JÖG
í kvöld:
KR mætir
Pjflki
Einn leikur er i L deiid karla í
knattspyrnu í kvöld. Þá eigast við
lið KR-inga og Fylkisraanna og
fer viðureign þeirra fram á velli
vesturbæinganna við Frosta-
skjóL
Leikurinn hefst klukkan 20.
• Erlingur Kristjánsson stekkur allra hæst í leik KA og Þórs á laugardaginn. Ekkert mark var skorað í viðureign liðanna. DV-mynd Gylfi
Jafht í nágraxmaslag norðan heiða:
Þaðsamaogtap
- sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari KA, eftir 0-0 jafntefli KA og Þórs
Sóknarsigur
hjá Víkingum
- unnu Skagamenn, 2-0, á Akranesi
Stguiður Svernaaan, DV, AkranesL
Víkingar gáfu ekki neinar af-
mælisgjafir á Akranesi á laugardag
er þeir sóttu Skagamenn heim á 24.
afinælisdegi Siguröar B. Jónsson-
ar, miðvarðar Akranessliðsins.
Þeir fognuðu hins vegar 100.
meistaraflokksleik Björns Bjart-
marz með 2-0 sigri sem hefði allt
eins getað orðiö helmingi stærri ef
ekki hefði komið til stórgóð mar-
kvarsla Ólafs Gottskálkssonar.
Þessi sigur Víkinganna var að-
eins sá fiórði á Akranesi á síðustu
20 árum en fyllilega verðskuldaður.
Á meðan heimamenn verkuðu
þungir og staöir börðust gestimir
eins og ljón og uppskáru eftir því.
Með þessum sigri skutust þeir
upp fyrir Skagamenn á stigatöfi-
unni og ef þeir leika áfram af sama
krafti þuifa þeir ekki aö óttast
framhaldið.
Sigurði Lárussyni, þjálíara
Skagamanna, er hins vegar nokkur
vandi á höndum. Eftir góöan sigur
á KR-ingum hafa tveir taplelkir
fylgt í kjölfarið. Skagaliöið verkaði
áhugalítið 1 þessum leik og gekk
illa að skapa sér færi. Af þeim var
hins vegar nóg við hinn enda vall-
arins.
Besti kafli Akumesinga í leikn-
um var síðari hluti fyrri hálfleiks.
Þeir gerðu þá haröa hríð að marki
gestanna. Með heppni hefðu Aöal-
8teinn Víglundsson, Stefán Viðars-
son og Haraldur Ingólfsson allir
getaö skoraö en sömu sögu má
segja um þá Atla Einarsson, Andra
Marteinsson og Goran Micic þar á
undan.
Effir markalausan fyrri hálfleik
þar sem Víkingar léku undan gol-
unni áttu vallargestir von á aö
Skagamenn létu tíl skarar skríða.
Ekkert varð úr því en Andri Mar-
teinsson skoraði hins vegar glæsi-
legt mark á 52. mínútu. Þrumu9kot
hans utan vítateigs sigldi yfir Ólaf
í markinu, rétt undir þverslá, 1-0.
Bjöm Bjartmarz fékk síðan kjör-
ið færi til að tryggja stígin þrjú um
miðjan síðari hálfleikinn en Ölafúr
varði þá meistaralega af stuttu
færi.
Báðum varamönnum Akumes-
inga var skipt inn á í kjöJfarið.
Viö það færðist aukið líf í lið
heimamanna en vöm Víkíngs gaf
fá færi á 9ér. Þó skoraði Karl Þórð-
arson á 75. mínútu en markiö var
réttilega dæmt af vegna rangstöðu.
Gestimir gerðu svo út um leikinn
á 81. mínútu. Alexander Högnason
missti þá boltann á vallarmiðjunni,
Atli Einarsson braust í gegnum
vöm heimamanna og renndi á Gor-
an Micic sem skoraði af stuttu £æri.
Skagamenn reyndu að herða
sóknina enn frekar í lokin en á
kostnað vamarinnar. Micic komst
til að mynda einn 1 gegn en Ólafur
bægði skoti hans í þverslá og á
lokamínútunni skaut Atli framhjá
úr dauöafæri.
Þess má geta að leikurinn var
spilaður á grasi.
Maður leiksins: Ólafur Gott-
skálksson.
Bragi Bergmann **
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
„Þessi úrslit eru nánast það sama
og tap fyrir okkur. Ef við ætium okk-
ur að sigra verðum við að nýta þau
færi sem við fáum en þaö gerðum
við ekki núna,“ sagði Guðjón Þórðar-
son, þjálfari KA, eftir 0-0 jafntefli
Akureyrarliðanna á laugardag. Guð-
jón var óhress en Milan Duricic,
þjálfari Þórsara, var ekki eins óá-
nægöur: „Eitt stig til Þórs er mjög
gott,“ sagöi hann á leið til búnings-
klefans eftir leikinn.
Hefði réttlætinu verið fullnægt
hefði KA hirt stigin þrjú sem í boði
voru með því að gera út um leikinn
í fyrri hálfleik. Jón Grétar Jónsson,
Antony Karl Gregory og Gauti Lax-
dal fengu til að mynda allir góö færi
til að koma KA á blað en ekkert gekk.
KA var yfirburðalið í hálfleiknum
og hefði átt að hafa tveggja til þriggja
marka fomstu í hálfleik.
En það em ekki ónotuð marktæki-
færi sem telja heldur þau sem em
nýtt og gefa mörk. KA náði ekki að
halda yfirburðum sínum á miðju
vallarins í síðari hálfleik og einum
daprasta leik liðanna í íslandsmóti
hin síðari ár lauk því með marka-
lausu jafntefli. Það var ekki sá bar-
áttuandi ríkjandi í þessum leik sem
oftast einkennir leiki Akureyrarlið-
anna, hvað sem olli því.
Miðvörðurinn Luca Kostic var
besti maður Þórs, batt vömina vel
saman og er liðinu greinilega geysi-
lega mikiivægur. Þá átti Birgir Karls-
son mjög góðan leik og einnig Þor-
steinn Jónsson. Erlingur Kristjáns-
son var að venju burðarás í liði KA,
geysilega sterkur og sömu sögu má
segja um Bjama Jónsson.
Dómari var Ólafur Lárasson,
dæmdi vel og fær tvær stjörnur af
þremur mögulegum.
Maöur leiksins: Luca Kostic.
Hvers vegna á möl?
- Akureyrarliðum neitað um frestun
Gylfi Kristjánssan, DV, Akuxeyri:
Leikur Þórs og KA í 1. deildinni um helgina var leikinn á malarvelli Þórs.
Sótt hafði verið um frestun á leiknum svo að liðin gætu leikið á grasi og
hafði leikdagur verið ákveðinn 21. júní.
En mótanefnd KSÍ í Reykjavík sagði nei og heimilaöi ekki frestun. Leikur-
inn skyldi leikinn á mölinni og heyrðust þær skýringar helstar að liöin í
deildinni skyldu sitja við sama borð.
Ekki er gott að sjá í fljótu bragði hvað það kemur öðram liðum í deiidinni
viö hvort Akureyrarliðin leiki innbyrðisleiki sína við þau bestu skilyrði sem
hægt er að finna fyrir norðan. Þetta eru stórleikir á Akureyri og óþolandi
að misvitrir mótanefndarmenn í Reykjavík stjómi á þennan hátt. Þeir mega
vita að á Akureyri ríkir mikil óánægja með það að leik liðanna var ekki
frestað þar til grasvellimir væra tilbúnir.