Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1989, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 7Í JÚNl 1989.
27
LífsstOl
Greiddi nær tvöfalt
kaupverð steinanna
fyrir sögun
- og 500 krónur aukalega fyrir nótuna
Langtfram yfir
kauptaxta
Á tímabilinu frá desember 1988
og til maíloka 1989 hefur fjöldi
vörutegunda hækkaö margfalt
fram yfir hækkanir kauptaxta.
Þetta kemur fram í upplýsingum
frá hagdeild Alþýðusambands fs-
lands.
Þannig hefur súpukjöt hækkað
á þessum tíma um 14,4%, kjúkl-
ingar um 9,1%, mjólk ura 7,4%,
srajðr um 10,6%, sykur um 56,3%,
kaffi um 7,9%, barnaheirailistaxt-
ar um 25,8% og fargjöld strætis-
vagna um 25,9%.
A sama tíma hafa lægstu laun
ASÍ hækkað um 5,6% og hæstu
taxtar járnsmiða hafa hækkað
um 3,5%.
Miðstjómir ASÍ ogBSRB hvetja
fólk til mótmæla gegn hækkun-
um með þvi að sniðganga mjólk
og mj ólkurvörur í þrj á daga. Gerð
er krafa ura að rikisstjómin dragi
verðhækkanimar til baka og
standi við þau íyrirhiet sem hún
gaf við samningsgerðina fyrir
skemmstu. -Pá
Garðeigandi nokkur hafði sam-
band við neytendasíðuna og sagði
farir sínar ekki sléttar. Hann hafði
keypt steinhellur í garðinn hjá B.M.
Vallá og að auki nokkkra tröppu-
steina sem þurfti að saga í tvennt svo
þeir pössuðu nákvæmlega.
Steinamir eru 17,5 cm á þykkt og
kosta 349 kr. stykkið. Ekki var ekki
hægt að saga steinana hjá B.M. Vallá
því þar er ekki til nógu stór sög fyir
þessa stærð en vísað var á Mosaik
h/f við Hamarshöfða sem er stein-
smíðaverkstæði. Þangað fór kaup-
andinn með steinana og vildi fá þá
sagaða. Ekki fékkst það gert þegar í
stað og fór kaupandinn heim við svo
búið. Að lokum kom hann tæpri viku
síðar og fékk þá afgreiðslu.
Kostnaöur við að saga fjóra steina
í tvennt var alls 2.000 krónur eða 500
kr. á stein. Þegar kaupandinn baö
um nótu var hann rukkaður um 500
krónur aukalega því seljandi sagðist
þá verða að borga söluskatt af þjón-
ustunni. Heildarkostnaður varð því
2.500 krónur eða 625 krónur á hvern
stein. Það lætur nærri að vera tvö-
falt kaupverð steinsins. Þess ber að
geta að hjá B.M. Vallá kostar sögun
á gangstéttarhellum 90 krónur
stykkið.
Hjá Mosaik fengust þau svör að um
mjög sérhæft verk væri að ræða og
sögin, sem notuð væri, kostaði mikið
í rekstri. Þar vildi enginn kannast
við að ekki væri tekinn söluskattur
af allri vinnu.
MOSAIK bf
Kostnaður við að saga sundur fjóra tröppusteina nam nærri tvöföldu kaup-
verði á hvern stein.
Hjá S. Helgason steinsmiðju í
Kópavogi fengust þær upplýsingar
að fyrirtækiö myndi taka ca. 500
krónur aiis fyrir að saga fjóra steina
af þeirri stærð sem um ræðir eða um
124 kr. fyrir hvem stein. .pá
Fleiri hafa
opið á
laugardögum
Fleiri matvöruverslanir virðast
ætla að hafa opið á laugardögum í
sumar en oft áður. Þannig verður
opið í Hagkaupi í Kringlunni á laug-
ardögum frá kl. 10-14 eins og í flest-
um öðrum verslunum í Kringlunni.
Mikligarður við Sund verður opinn
á laugardögum í sumar og er það í
fyrsta skipti sem shkt er gert.
Þórður Sigurðsson, verslunarstjóri
í Miklagarði, sagði í samtali við DV
að það væri fyrst og fremst sam-
keppnin sem neyddi þá til þess að
hafa opið. Stórmarkaðir á borð við
Miklagarð vestur í bæ, Kaupstað í
Mjódd og Hagkaup í Skeifunni, verða
ekki opnir á laugardögum í sumar.
Hins vegar munu flestar minni mat-
vöruverslanir ætla að hafa opiö enda
munu eigendur að mestu annast af-
greiðslu.
Samkvæmt heimildum DV er tals-
verð óánægja meðal verslunarfólks
sem heldur því fram að verslunareig-
endur notfæri sér atvinnuleysið til
þess að knýja fólk til vinnu á laugar-
dögum. Mikillar óánægju gætir í
garð forystu Verslunarmannafélags
Reykjavíkur sem ekki er talin hafa
beitt sér í þágu félagsmanna í þessu
máli.
Einnig er fullyrt að skólafólk, sem
ráðiö hefur verið til vinnu í verslun-
um í sumar, hafi ekki fengið vinnu
nema með því skilyrði að vinna á
laugardögum.
Þorsteinn Pálsson, verslunarstjóri
í Hagkaupi, sagði í samtali við DV
að enginn væri neyddur til að vinna
en sagði jafnframt að nægt framboð
væri á vinnuafli sem tilbúið væri til
mikillar vinnu. Hann sagði að sam-
keppni í matvöruverslun væri nú
meiri en hann hefði áður kynnst og
það réði úrslitum um opnun á laug-
ardögum.
Ekki náðist í Magnús L. Sveinsson,
formann VR, vegna þessa máls.
-Pá
LATTU ANÆGJUNA
TAKA VID AF ERFIÐINU
ÍSUMAR!
Verið velkomin í Sláttuvélamarkaðinn. Athugið að fyrirtækið er
flutt úr Kópavogi í Nútíðina, Faxafeni 14, Skeifunni.
ZENOAH vélorfin eru
hentug við alla gróður-
snyrtingu, en njóta sín
samt best í órækt og
annars staðar sem
sláttuvélar ná ekki til að
vinna vel. Tilvalin við
sumarbústaðinn.
CúP
Það er kjörið
fyrir íþrótta- og
sveitarfélög að sameinast um
WESTWOOD traktorr
WESTWOOD eru með aflúrtaki og
þess vegna hægt að nýta þá
með margvíslegum fylgihlutum,
eins og driftengdum grassafnara, o.fl.
FLYMO sláttuvélarnar eru frægar
fyrir dugnað. Þær standa sig best
brekkum og við erfiðar aðstæð-
ur. FLYMO svíkur engan.
Þjónustudeildin okkar er alltaf viðbúin. Hún sér
þér fyrir viðhaldsþjónustu, öllum varahlutum, og
hvers konar viðgerðum. Þjónustudeildin gefur þér
góð ráð og sér um að vélin þín sé alltaf í góðu lagi.
Hafðu samband. Við sendum þér litmynda-
bækling um hæl!
G.Á. Pétursson hf. Sláttuvéla- og snjókeðjumarkaðurinn Nútíðinni Faxafeni 14, sími 68 55 80