Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1989, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1989, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1989. Fréttir Olísmálið: Fógeti tók sér frest Valtýr Sigurðsson borgarfógeti tók sér frest fram á þriðjudag til aö úrskurða gildi 860 nnUjóna króna tryggingar sem Olísmenn lögðu fram í fógetarétti 1 gær sem vöm i kyrrsetningarmáli Lands- bankans á hendur félaginu. Af þessari 860 milijóna króna tryggingu koma fyrst 660 milljón- ir í fasteignum Olís, húseignir, bensínstöðvar og svo framvegis og síðan um 200 milijónir í lausafé, eins og bílum og innstæð- um. Það sem borgarfógeti mun úr- skurða á þriðjudag er hvort félag- iö geti lagt fasteignimar fram sem aðaltryggingu og lausaféð til vara og ennfremur hvort meta þurfi fasteignimar eða ekki. Lög- menn Landsbankans krefjast þess aö alltlausafé félagsins komi á undan sem trygging og benda á fjámámslögin. Lögmenn Olis benda á kyrrsetningarlögin og segja að félagiö sjálft ráöi því í hvaöa forgangsröö þaö setji tryggingar fram. -JGH Tómötum hent á öskuhaugana „Þetta er óumflýjanlegt því það falla til i hverri viku 2-2,5 tonn af tómötum sem fara i úrkast við flokkun og við þá er ekkert hægt að gera nema henda þeim,“ sagði Reynir Pálsson hjá Sölufélagi garðyrkjumanna í samtali við DV. Við þetta bætist svo eitthvert magn í viku hverri sem ofþrosk- ast eða selst ekki þannig að um 3 tonn af tómötum í viku hverri enda á haugunum. Reynir sagði að nokkm magni af gúrkum hefði einnig verið hent í siöustu viku vegna gaila. Það er alla jafna ekki gert þvi annars flokks gúrkur fara í vinnslu. „Viö vildum gjaman selja þetta frekar en aö henda því,“ sagöi Reynir, „en því er erfitt að koma við vegna þess aö markaðurinn er þaö lengi að taka við sér.“ Efiiagerðin Valur tók áður við tómötum tii vinnslu en því hefur nú verið hætt Þaö er því sýnt að viö núverandi aðstæður enda um 3 tonn af tómötum í hverri viku á öskuhaugunura. Þessir hafa líka opið á laugardögum Á kortíð sem DV birtí í gær og sýndi matvöruverslanir sem hafa opið á laugardögum vantaði eftir- taldar verslanir: Breiðholtskjör, sem er viö Am- arbakka 4-6 í Breiðholti, hefur opið frá kl. 10.00-14.00 á laugar- dögum. Síminn í Breiöholtskjöri er 74700. Gerðukaup á Tunguvegi 19 er opið á laugardögum frá kl. 10.00- 13.00. Síminn þar er 37360. Kjötstöðin í Giæsibæ er opin á laugardögum frá kl. 09.00-18.00. Síminn er 685168. Matvöraverslunin, Njálsgötu 26, er ávallt opin á laugardögum frá kl. 10.00 til 12.00. -Pá Kæra, ekki áksra Þau mistök urðu blaöinu 1 gær þar sem sagt var frá kæra leigu- bílstjóra á hendur sákadómara að kæra varð aö ákæru og kæru- mál varð að ákærumáli. Hiö rétta er að leigubílstjórinn kærði saka- dómarann og að kærumálið var látið niður falla hjá ríkissaksókn- ara -hlh 9 Ók oft f ullur og próflaus - dæmdur í íjögurra mánaða fangelsi „Aðfaranóttina 11. desember sl. kl. 03:36 stöðvuðu lögreglumenn bifreið- inaR-. . . við Skólabrú í Reykjavík, en þeir höföu skömmu áður veitt bif- reiðinni athygli, þar sem henni var ekiö með óeðlilegum hætti suður Lækjargötu. Er haft var tal af öku- manni, ákærða í máli þessu, fundu lögreglumennimir sterkan áfengis- þef leggja frá vitum hans. Ákærði var færður til skýrslutöku á lögreglu- stöðinni við Hverfisgötu. Að því búnu var farið með hann á slysadeild Borgarspítalans, þar sem læknir tók honum blóð til alkóhólákvörðunar kl. 04:15. Samkvæmt niöurstöðum þeirrar rannsóknar, reyndist magn alkóhóls í blóði ákærða vera 2,76%.“ Þannig segir meðal annars í dómi Sakadóms Reykjavíkur í máli ákæruvaldsins gegn manni sem oft áður hefur verið dæmdur fyrir að aka undir áhrifum áfengis og án þess aö hafa ökuréttindi. i sama dómi var maðurinn dæmdur fyrir að hafa ekið réttindalaus. Það var lögreglan í Borgarnesi sem stöðvaði manninn - er hann var á leið til Ólafsvíkur. Maðurinn var dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisvistar. Þá var hann sviptur ökuréttindum ævilangt og til að greiða allan sakarkostnað. Jónas Jóhannsson, fulltrúi í Sakadómi, kvað upp dóminn. -sme Heimavarnarliðið fjarlægt Birna Þórðardóttir tekin með valdi og færð inn á lögreglustöð. Að sögn Þorgeirs Þorsteinssonar, lögreglustjóra á Keflavíkurflugvelli, var Birna eini félagi Heimavarnarliðsins sem fjarlægja varð með valdi. Þorgeir telur að 40 til 50 manns hafi ruðst inn fyrir girðingu á Keflavíkurflugvelli í gær- kvöldi. Þorgeir vildi ekkert gef upp um hversu margir lögreglumenn voru á vakt eða verða á vakt á meðan á heræfingunni stendur. Hann sagði lög- regluna tilbúna að mæta því sem kemur upp. DV-mynd GVA/-sme Stúdentar viö Háskólann: Meirihlutinn vill færa haustprófin - samkvæmt skoðanakönnun stúdentaráðs Mikill meirihluti stúdenta við Há- skóla íslands vill að haustmisseris- próf verði færð frá janúar fram í desember. 1831 tók þátt í skoðana- könnuninni. 77 prósent aðspurðra sögðust vilja færa prófin. 16,7 prósent vildu ekki breytingar og 6,7 prósent svöraðu ekki eða voru óákveðin. Af þeim sem tóku afstöðu vildu 82,3 pró- sent færa prófin en 17,7 prósent sögðu nei. Mesti stuðnigur við breytingamar var í læknadefid. Þar vildi 91 prósent stúdenta færa prófin. í viðskiptadeild svöruðu 88 prósent spurningunni ját- andi. Minnstur stuðningur fékkst í raunvisindadeild. Þar vildu 72 pró- sent færa prófin. Til að af breyting- unum geti orðið þarf meðal annars að koma til lagabreyting. „Ég er mjög ánægður með þessar niðurstöður og mun taka þetta mál upp á fundi háskólaráðs á morgun. Við munum fylgja þessum vilja stúd- enta eftir,“ sagði Jónas Fr. Jónsson, formaður stúdentaráðs. -sme Óku hratt Lögreglan í Borgarnesi tók tvo ökumenn í gærkvöldi - fyrir að aka mun hraðar en lög leyfa. Báðir óku í Hvalfirði þeir á um 140 kílómetra hraða á Hvalfiarðarströnd. Ökumennimir vora sviptir ökuleyfum. -sme Umferðarröskun við Miklatorg Búast má viö talsverðri umferðar- röskun við Miklatorg í dag og næstu daga. Búið er að loka Skógarhlíð við Miklatorg. Líklega verður Snorra- braut einnig lokað við torgið. Enginn gatnamót verða þá á torginu - þar verður aðeins tenging á milli Miklu- brautar og Hringbrautar. Vatns- mýrarvegur verður opinn fyrir um- ferð í báðar áttir. -sme Margar sóknir með nýja presta: Páfaheirnsóknin: Kostnaðaruppgjör um mánaðamótin Ríkissjóður og Reykjavikurborg vita ekki enn hversu mikið þessir aðilar koma til með aö greiöa fyrir komu og móttöku Jóhannesar Páls annars páfa fyrr í þessum mánuði. Reiknað er með að endanlegar tölur liggi fyrir um næstu mánaðamót. Guðmundur Benediktsson, ráðu- neytisstjóri í forsætisráðuneytinu, segist ekki getað svarað til um hvað koma páfa kostaði ríkið. Gísh Árni Eggertsson hjá Reykjavíkurborg sagði að hann ætti ekki von á að vita hver kostnaðinn væri fyrr enn um mánaðamót þar sem sum þeirra fyr- irtækja, sem skipt var viö, senda ekki reikninga frá sér nema einu sinni í mánuöi. Eftir þeim reikning- um er nú beðið. -sme Fundur íramkvæmdastjómar miðjuflokka haldinn hér: Soares og David Steel meðal fundarmanna Framkvæmdastjóm alþjóðlegra samtaka miðjuflokka mun koma saman til fundar í Reykjavík um næstu helgi. Fund þennan munu sækja um fjörutíu af leiðtogum miðjuílokka víös vegar að úr heimin- um. Meðal fundargesta verða Soares, fyrrum forsætisráðherra Spánar, David Steel, formaður breska frjáls- lynda ílokksins, formaður vestur- þýskra miðjudemókrata og fleiri þekktirstjómmálamenn. HV Mikil hreyfing á prestum í ár Mikil hreyfmg hefur verið á prest- um milli prestakalla að undanförnu og er ekki seð fyrir endann á henni ennþá. Eftir aö séra Ólafur Skúlason hafði veriö kosinn biskup losnaði staða prests í Bústaðaprestakalli. Sóknar- nefnd ákvað þá að kalla til sín prest, séra Pálma Matthíasson frá Glerár- sókn á Akureyri. Séra Pétur Þórar- insson á Möðravöllum var síðan val- inn til að taka viö af Pálma fyrir norðan. Möðravallaprestakall er því laust til umsóknar ef ekki verður kallaður til prestur eins og algengt er að verða. Séra Jakob Hjálmarsson frá ísafirði var valinn dómkirkjuprestur fyrir skömmu og séra Láras Þ. Guð- mundsson í Holtsprestakalli fékk stöðu sendiráðsprests í Kaupmanna- höfn. Þar með losna tvö prestaköll á Vestfjörðum. Hefur því verið fleygt að prestur verði kallaöur til ísafjarð- ar. Séra Ágúst Sigurðsson, sem var sendiráðsprestur í Kaupmannahöfn, var kallaöur að Prestbakka í Hrúta- firöi en þar var þá laust prestakall. Séra Robert Jack hefur látið af störfum í Breiðabólsstaðarpresta- kalli í Húnavatnsprófastsdæmi. í hans stað kemur Kristján Björnsson sem starfaö hefur sem blaðamaður á Tímanum. Þó er viku frestur til að óska eftir kosningu um prest þar. Þá voru Skeggjastaðaprestakall í Múlasýslu og Bólstaðarhlíðarpresta- kall í Húnavatnssýslu auglýst laus til umsóknar. Er einn umsækjandi að Skeggjastöðum, Gunnar Sigur- jónsson, sem kallaöur var þangað til starfa fyrir ári. Umsækjandi um Ból- staðarhlíð er Stína Gísladóttir, far- prestur þjóðkirkjunnar. Þá var Guðmundur Þorsteinsson tilnefndur dómprófastur um síðustu helgi en hann þjónar í Árbæjar- prestakalli. Von er á aö nýtt prestakall verði bráðlega til, Grafarvogsprestakall, sem verður þá auglýst laust til um- sóknar. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.