Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1989, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1989, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1989. Fréttir Snorri Olsen um söluskattsaðgerðimar: Þeir sem reyna að komast undan eiga von á kæru - upphafið að nýjum og breyttum timum „Þessar aðgerðir eru vonandi upp- hafið að nýjum og breyttum tímum í þessum málum. Það verður vonandi hægt að breyta siðferðinu í þessum málum,“ sagði Snorri Olsen hjá fjár- málaráðuneytinu. Snorri sagði að á morgun væri hugsanlega hægt að birta tölur um hversu mikið hefði innheimst af van- goldnum söluskatti, hversu mörgum fyrirtækjum hefur verið lokað í þess- ari viku og eins hversu mörg fyrir- tæki hafa verið opnuð aftur. Eftir að' aðgerðirnar hófust, síðastliðipn mánudag, hefur fjöldi manna skilað gögnum sem vantað hafa og mál þeirra aðila hafa því skýrst frá því sem áður var. Listar þeir sem farið var eftir við lokanir fyrirtækja voru unnir af fjár- málaráðuneytinu og skattayfirvöld- um. Snorri sagði að listamir hefðu verið unnir eins vel og hægt var. Hann sagöi að vissulega heföu komið upp einstaka ágreiningsefni í þeim mörghundruð tilfellum sem tekin voru fyrir. Allt að sex ára fangelsi „Ég vil vekja athygh á því að það er refsivert að hlaupa frá söluskatti. Þyngsta refsing við þeim brotiun er allt að sex ára fangelsi. Ef við verðum varir við gróf brot munum við kæra viðkomandi. Þessum ákvæðum hef- ur ekki verið beitt til þessa, svo mér sé kunnugt, en við munum láta reyna á þau ef ástæður þykja til.“ Snorri sagði að ráðuneytið myndi taka hart á fleiri vangoldnum gjöld- um en söluskattinum. Hann sagði að aðeins eitt atriði væri tekið fyrir í einu - nú er það söluskatturinn - annað mun fylgja á eftir. Snorri sagði að ýtt hefði verið við þeim sem skulda staðgreiðsluskatta. Talsvert hefur skilað sér og ógreidd stað- greiðsla fyrir 1988 er nú mun lægri en var áður en ýtt var við mönnum. Einstaklingum, sem skulduöu önnur Þessi verslun var innsigluö á mánudag. Eigandinn greip til þess ráðs að líma miða yfir innsiglið. Hvaða breytingar er átt við geta forráðamenn verslunarinnar einir svarað. DV-mynd JAK eldri gjöld, hefur verið gefmn kostur á skuldbreytingum. Þeirri skuld- breytingu er að ljúka og þeir sem hafa ekki tekið við sér mega eiga von á innheimtuaðgerðum." Allir við sama borð Það sitja allir viö sama borð. Ef viö semjum við einn - þá væru öll okkar rök búin. Það er töluvert um að menn komi hingað og reyni samningaleið- ir. Það er ekkert samið þar sem eitt á yfir alla að ganga. Ég tel að þessi aðgerð hafi verið vel heppnuð enda var ekki við öðru að búast og þaö hefur verið minna um þras en ég átti von á. Við höfum þurft að taka tillit til aðstæðna í einstaka tilfellum, til dæmis á hótelum. Þar hefur ekki verið hægt að loka en við höfum bannað að teknir yrðu inn fleiri gest- ir. Sama hefur verið þar sem hráefni hefur legið undir skemmdum. Þar höfum við leyft að vinna það hráefni sem er til en ekki leyft að bætt yrði við nýju,“ sagði Snorri Olsen. -sme Þýsk-íslenska og söluskattsaögerðimar: Tollstjórinn vildi ekki úrskurð dómara - segir Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Þýsk-íslenska Önnur kæra á Svavar. Jafnrétt- islög brotin í Hafnar- Jafnréttisráði hefur borist kæra á hendur Svavari Gestssyni menntamálaráðherra vegna veit- ingar stöðu yfirkennara við Víði- staðaskóla í Hafnarfirði. Kæran er borin fram af Vénýju Lúövíksdóttur. Tveir urasækjendur voru um yfirkennarastöðuna, þau Véný Lúövíksdóttir og Magnús Jón Árnason. Menntamálaráðherra veitti Magnúsi Jóni stöðuna. Véný telur jafnréttislög hafa verið brotin með veitingunni og tiltekur meðal annars að hún hafi gegnt þessarri stöðu í forfóll- um undanfarið. Búast má vlð að kæra þessi verði tekin fyrir á fundi Jafnrétt- isráös í næstu viku um leið og kæra Valgerðar Selmu Guðna- dóttur á hendur menntamálaráö- herra vegna veitíngar stöðu skólasljóra ölduselsskóla í Breið- holtí. HV „Ég lagði fyrir kröfu frá Þýsk- íslenska um að fá umráð hússins. Lokunin var ólögleg þar sem það var enginn skattur í gildi að okkar áhti. Það eru miklir hagsmunir sem fyrir- tækið hefur af því að hafa opið. Það getur tekið allt að viku að reka máhð fyrir fógetaréttí. Ég lagði fram bankatékka meö ahri þeirri upphæð sem krafist var og öskaði eftir því að til bráðabirgða, þar til úrskurður. lægi fyrir, fengi umbjóðandi minn umráð eignarinnar og tékkinn yrði lagður inn sem trygging. Ef fógeti félhst á sjónarmið tohstjóra um að hann hafi mátt loka fyrirtækinu þá fengi tohstjóri tékkann. Tohstjóri mótmælti þessu. Af hverju veit ég ekki. Allir hans hagsmunir voru tryggðir. Fógetinn taldi sig ekki hafa lagaheimild tíl að verða við kröfu um bráöabirgðaumráð eignarinnar. Þeg- ar þannig var komið tók ég tékkann og rétti fuhtrúa tohstjóra. Umbjóð- andi minn þolir ekki lengri lokun á fyrirtækinu. Með öðrum orðum - það tókst hjá tohstjóra að koma í veg fyr- ir að úrlausn dómara fengist um það hvort lokunin var lögmæt eða ekki,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugsson, lög- maður Þýsk-íslenska. Eftir að niðurstaða fógetaréttar var kunn varð Þýsk-íslenska að greiða rúmar átta milhónir króna th þess aö aflétta innsiglum sem verið hafa á fyrirtækinu frá því á mánudags- morgun. Þegar Jón Steinar greiddi með umræddum tékka gerði hann eftirfarandi bókun: „Greiðsla þessi er eingöngu innt af hendi til aö aflétta þeirri ólögmætu þvingun sem umbjóðandi minn hefur orðið að sæta við það að húsakynni hans að Lynghálsi 10 hafa verið inn- sigluð af lögreglu. Þohr hann ekki þá gríðarlegu tímabundnu röskun sem leiöir af því að fyrirtækið sé lok- að meðan fengin er úrlausn hlutlauss dómara um lögmæti þvingunarað- gerðarinnar. Er gerður fyrirvari um endurkröfu þegar í stað auk dráttar- vaxta, samkvæmt þriðja kafla vaxta- laga, frá deginum í dag að telja. Þá er tekið fram að umbjóðandi minn mun gera ríkissjóð ábyrgan fyrir öhu því tjóni sem hann hefur orðið fyrir og kann að verða fyrir vegna þessar- ar ólögmætu valdbeytingar." „Th aö ná þessum peningum aftur er hægt að fara í bæjarþingsmál. Það verður ekki gert fyrr enn í haust þegar réttarhléi lýkur. Það getur tek- ið nokkur ár. Ég fæ ekki að spyrja dómara um réttmæti þessara að- gerða.“ Ríkisskattanefnd hefur nýveriö úrskurðað í tveimur kærumálum vegna skatta Þýsk-íslenska. Jón Steinar skhaði greinargerðum vegna þeirra mála á þriðjudag. „Ég skhaði greinargerðum hjá gjaldheimtudómaranum - þeim sem gerir lögtök fyrir Gjaldheimtuna. Ég krafðist þess að hann viki sæti þar sem ég tel óeðhlegt aö Gjaldheimtan hafi einkadómara fyrir sig. Ég skilaði einnig greinargerð um efni málsins. í því máh reynir á hvort ég hafi rétt fyrir mér eða einhver annar um það hvort rikisskattanefnd hafi tahð þessa skatta lagða á á ólöglegan hátt og því séu engir skattar í ghdi,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugsson lögmað- ur. Jón Stelnar segir að Þýsk-íslenska hafi greitt staðfastlega aha aðra skatta en þá sem deht var um. -sme Sandkom Kríumar og Nato Kitangetur veriðhinn mesti vargiu- þaðvitunnáö Islendingar. Húnvirðist ekkihafahug- myndumNato ognauösyn Miðnesheiði. Kilanmunþeg- arhaí'askemmt hluta heræfinganna - annaöhvort af tillitsleysi eöa þá vanþekkingu. Einn Uður æfinganna gekk út á það að hermennimir voru i nokkurs konar feluleik. Þeir skriðu með hólum og í lautum og reyndu allttilað félagar þeirra yrðu þein-a ekkl varir. Það var satna hvernig dátamir skriðu allir urðu ferða þeirra varir. Það var ekki hægt að kenna dátagreyj unum um. Þeir skriðu etos og þeim hafði verið kennt. Þaö var déskotans krían sem kom upp um þá. Kríuger Qaug yfir hverj um og einum hermaimi og gerði vel skipulagðar loftárásir. Bæði hátt- settir sem aðrir hermetm munu liafa bölvað kríunni hástöfum. Þaö hafði engin álirif á fuglinn sem hélt áfram sinnifyrriiðju. Hvaðertilráða? Yfinnennæf- hafaveltþessu vandamáli mikiðfyrirsér enda erfitt að leysa þetta ntál ogeitthvað rðuraðgera tilaðlosnavið knuna. Iiúið varað auglýsa aðumferöum vamarsvæðið væri takmörkuð. Samt fiaug fuglinn eins og ekkert hefði í skorist. Eto hugmyndanna, sem fiam komu, var nokkuð djörf. Hún átti þó að duga fullkomlega til að losna frá þesstun íslenska höfuðóvini Nato, þaðer kríunnl Hugmyndin gekk tit á það að svæfa helvítis kriuna og gefa henni duglegan skammt. Þessi hugmynd, eins góö og hún þótti í fyrslu, kom aldrei til framkvæmda og þ ví verða dátarnir að búa við óþægindin sem fylgja kríunni. Með hríslur á hausnum I’.'ið tu’fur vakiöóskipla athvgliaðdat- arnireiu klæddirímikla felubúnmgaog aðáhjálmun- utn eru hríslur miklar. Að sjálfsögðu mun þaöverahern- aðarleyndar- málhvei hann- ,'jði húnmpaiia og því verður það ekki upplýsi hér. : Éittér nokkúð víst að ef Rússamir alræmdu væm á þeim buxunum aö hertaka okkar ástkæra land er full- ijóst að amerísku dátamir yrðu þeim auðvelt skotmark - skríöandi á fjór- um fótum með hríslur á hausnum. Etos og kunnugt er varla stmgandi strá að fmna á Miðnesheiöi og því auðvelt aðsjá hvar skríðandi dátar fara - með heilu runnanna á hausn- um. Takmörkuná umferöum vamar-ogæf- mgasvæðiðer talsverö. Her- mennstöðvuðu meöalannars viidu hefta ibr lagannaþjóna. Eölilegabrá vörðumlag- annaillilega. 1>cirgátucftir dátanumiskiln- ingumaðþeirvæninögregluliði frá hveijum öörum kettilngum. Umtjóo: Sigutfón Egilsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.