Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1989, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1989, Page 13
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1989. 13 DV Lesendur Guömundur J. og Ásmundur: Við hverju bjuggust þeir? Reiður Dagsbrúnarmaður skrifar: Við hverju bjuggust Guðmundur J. Guðmundsson og Ásmundur Stef- ánsson þegar þeir skrifuðu undir kjarasamninga til handa þegnum sínum? Bjuggust þeir virkilega við einhverju nýju í hegðunarmynstri ríkisstjórna á íslandi? Þeim hefur hingað til tekist að ná öllu af okkur áður en það kemur í launaumslagið. Þetta er ekkert nýtt, nákvæmlega eins og alltaf. Ég er alveg gáttaður á Guðmundi J. og Ásmundi að gera svona klaufa- legan samning. En ef til vill er þetta ekkert skrýtið þegar maður tekur hliðsjón af því að Alþýðubandalagið er í stjórn. Það er heldur ekki ný ráðgáta verkamanna á íslandi að verstu kjarasamningarnir eru gerðir þegar vinstri stjórnir eru við stjórn- völinn enda ekki viðeigandi að styggja flokksbræður sína í stjórn landsins. Ólafur Ragnar Grímsson, maður sem oft mótmælti skattpíningu síð- ustu ríkisstjórnar, virðist hafa sann- færst af fyrri ríkisstjórn að skatt- píning væri það eina sem dygði á þessa þjóð, enda búinn að sitja í tvo mánuði þegar tekjuskattur á íslandi var hækkaður um 2,5%. Forystu- menn ASÍ og verkalýðsfélaganna verða að gera upp hug sinn hvort þeir styðja félagsmenn sína eða bræður sína í Alþýðubandalaginu. Mér pg fleirum finnst sem Guð- mundur J. hafi svikið okkur. Guð- mundur fór fram á að við samþykkt- um þennan samning, 341 samþykkti vegna trausts á orð Guðmundar en á móti voru 221 sem töldu að 80.000 væru það sem ætti að semja um enda verkfallsheimild samþykkt til að knýja það fram. Samninganefndin passaði sig að nefna þetta ekki á nafn, hvað þá að ræða þetta, því miður. Guðmundur J. gerði margt gott fyr- ir Dagsbrún en nú er hann orðinn áhugalaus um bætt kjör fyrir Dags- brún og verkamenn í Reykjavík. Hann var harður og duglegur hér áður fyrr og er það þakkarvert, en við ungu mennirnir þurfum líka að lifa og framfleyta fjölskyldum og ekki síst að koma yfir okkur þaki, en með þessum samningi gerist ekkert. Eftir þennan hrikcdega skell ætla Ásmundur . og Guðmundur J. að reyna að bjarga andlitinu með því að biðja fólk að hætta að kaupa hitt og þetta og byrja á mjólkinni. Ég skil ekki svona áróður því þetta bitn- ar ekki á ríkisstjórninni heldur á bændum og þeim verkamönnum sem vinna við landbúnað. Ég vona að Guðmundur J. og hans menn átti sig á þessu og bjóði okkur ekki aftur upp á svona svikasamninga. Svona vinnubrögð eru eingöngu lykill að hjaðnandi Alþýðubandalagi og stór spurning hvernig fer við næstu kosn- ingar. Dagsbrún þarfnast manna sem þora og þannig forystumann viljum við. Við viljum ekki mann sem verð- ur að beygja sig að þörfum flokks- forystunnar. Stjórnmál og íhlutun þeirra krefst fórna sem verkamenn geta ekki og eiga ekki að sætta sig við. Sameinaðir stöndum vér og sundr- aðir fóilum vér. Áfram Dagsbrúnar- menn, komum sterkir út í næstu samningum. Troðið á Ásta hringdi: Ekki alls fyrir löngu voru sett niður sumarblóm í beð við Lækjargötuna. Voru blómin til mikillar prýði og minntu á sumarið. Að kvöldi 17. júní blasti þó heldur sorgleg sjón við vegfarendum. í troðningnum um daginn höfðu blóm- in troðist undir fótum fjöldans og var nú heldur lítið eftir af þeim. Það er undarlegt að fólk skuli ekki geta borið virðingu fyrir neinu eða geta látið hluti í friði. Á stuttum tíma var vinna þeirra, sem blómin settu niður, til einskis og að engu gerð. Það er vonandi að vegfarendur fái aftur htið litríkt blómahaf og að þessu sinni fái blómin að standa til hausts. sumarblómunum Víða er búið að setja niður sumarblóm en brenna vill við að þau lendi undir fótum manna. Umhverfi Kópavogshælis til skammar Anna Magnúsdóttir hringdi: Ég vil benda á það að umhverfi Kópavogshælis er til hreinustu skammar. Það hefur verið hörmulegt ástand í þessum málum í tvo tugi ára en ekkert gert í málinu. Allar stéttir eru rammskakkar og vegir illfærir. Á vorin er með öllu ófært. Fólk hefur því oft mátt ganga niður eftir. Þetta er auðvitað mjög slæmt bæði fyrir vistmenn, sem þurfa að nota hjólastjóla eða göngu- grindur, og gesti þeirra. í haust stóð til að byrja á fram- kvæmdum og var gatan grafin upp. Kom bíll og henti grófri möl ofan í holurnar en síðan hefur ekkert gerst. Þetta gengur ekki svona lengiu-, það verður aö leggja almennilegan veg Aðkevrslan að KÓDavoashæli verður ófær á vorin. og laga gangstéttimar. TIL LEIGU skrifstofuhúsnæði að Langhoitsvegi 111. Uppl. í síma 687970, 687971, 22816. Vfn Kátir krakkar hoppa í Lottó skóm ...líka fullorðnir LOTTÓ SKÓRNIR FÁST ( EFTIRTÖLDUM VERSLUNUM: Útilíf, Glæsibæ Sportval, Laugavegi/Kringlunni Sportbúðin, Völvufelli/Laugavegi Fell, Mosfellsbæ H búðin, Garðabæ Sportbær, Hraunbæ Litlibær, Stykkishólmi Músík og sport, Hafnarfirði Akr*bsport, Akranesi Sportbúðin, Akureyiji Sportbúð Óskars, Keflavík Blómsturvellir, Hellissandi Hólasport, Hólagarði Kaupfélag Borgfirðinga E.G. heildverslun, sími 68 76 85. CHEVROLET CHEVROLET CREWCAB Getum aftur boðið þessa vinsælu og ódýru vinnuþjarka á mjög hagstæðu verði. mmri Fáanlegir með bensíneða dísel vél. Góð greiðslukjör. BíLVANGURsfr HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 Umboðsmenn: Borgarnesi, Bílasala Vesturlands- Isafirði, Vélsmiðj- an Pór hf. - Sauðárkróki, Nýja Bílasalan - Akureyri, Véladeild KEA - Reyðarfirði, Lykill - Vestmannaeyjum, Garöar Arason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.