Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1989, Side 9
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1989.
9
Útlönd
Gorbatsjov Sovétforseti og Raisa, kona hans, fyrir hádegisverðarboö er haldið var þeim til heiðurs í Frakklandi.
Á myndinni má einnig sjá Michel Rocard, franska forsætisráðherrann. Simamynd Reuter
Gorbatsjov ávarpar
þing Evrópuráðsins
Mikhail Gorbatsjov Sovétforseti
mun í dag ávarpa fulltrúa hinna tutt-
ugu og þriggja aðUdarnkjá Evrópu-
ráðsins í Strasbourg. Ávarp forset-
ans, sem kemur í kjölfar opinberrar
heimsóknar hans til Frakklands,
markar viss tímamót í 40 ára sögu
Evrópuráðsins; það verður fyrsta
ávarp leiðtoga austantjaldsríkis á
þingi þess.
Andres Björck, sem situr í forsæti
þings Evrópuráðsins, kvaðst telja að
Sovétleiðtoginn mundi fjalla um
mannréttindi í ræðu sinni í dag en
baráttan fyrir auknum mannréttind-
um er ein grundvallarhugmynda
ráðsins. Fulltrúum Sovétríkjanna,
Ungverjalands, Póllands og Júgó-
slavíu hefur verið boðin sérstök
áheymaraðild að Evrópuráðinu með
þeim fyrirvara þó að ráðið fjalli ár-
lega um stöðu mannréttindamála í
þessum löndum.
Fréttaskýrendur búast við að Gor-
batsjov muni leggja fyrir þing ráðs-
ins hugmyndir sínar um sameigin-
lega Evrópu undir eitt þak en forset-
inn hefur hvatt til aukinnar sam-
vinnu austurs og vesturs á megin-
landi Evrópu. Hann hefur lagt til
stofnunar „evrópsks samfélags" er
nái frá Atlantshafi til Úralfialla.
Heimsókn Gorbatsjovs til Frakk-
lands var um margt ólík fyrri heim-
sóknum Sovétleiðtogans til Vestur-
landa. Þegar hann sótti Kohl, kansl-
ara V-Þýskalands, heim eigi alls fýrir
löngu myndaðist nokkurs konar
„Gorbaæði“ meðal V-Þjóðveija.
Minna hefur verið um slíkt í Frakk-
landi og segja fréttaskýrendur að
Sovétleiðtoginn hafi ekki náð til
fransks almennings.
Markmið ferðar Gorba'tsjovs var
að afla umbótatilraunum sínum í
Sovétríkjunum stuðnings meðal leið-
toga Vesturlanda og leita eftir hag-
stæðum viðskiptasamningum. Leið-
togamir tveir, Gorbatsjov og Mitter-
rand, undirrituðu níu samninga á
sviði efnahagsmála á fyrsta degi
heimsóknarinnar og er því óhætt að
segja að á því sviði hafi heimsóknin
tekÍStvel. Reuter
Knörr á Akranesi kynnir:
Höfum hafið framleiðslu á 9,9 tonna yfirbyggðum fiskibátum.
Stefnt er að:
• auknu öryggi
• betri aðbúnaói
• betri meðferð afla
• betri vinnuaðstöðu
• meiri hagkvæmni
Helstu kostir
bátsins eru:
• Öll vinna á sjó fer fram undir þiljum. Lúgur eru aðeins opnaðar á
meðan veiðarfæri eru lögð eða dregin.
• Allur afli er ísaður í einangruð kör á sama vinnudekki.
• Öll veiðarfæri eru undir þiljum á stíminu. Það er ómetanlegur kostur
í snjókomu, ísingu eða ágjöf.
• Beitingarvélar, sem henta í þessa bátastærð, eru nú komnar á mark-
aðinn. Ef nota á slík tæki er yfirbygging nánast skilyrði.
• Á handfæraveiðum fer afli beint í kör og sólarhiti veldur ekki vanda.
• Á þorskanetum er aðbúnaður mjög góður þótt veður séu rysjótt
og hættan þegar menn eru á ferli á dekki með netatrossur eða afla
er úr sögunni.
Einn bátur til afhendingar strax, kvóti fylgir.
Leitið upplýsinga 17tlX1.1. SSSJ
J\11U1 M. Sími 93-12367
93-12251
KENNARAR!
LAUSAR STÖÐUR VIÐ GRUNNSKÓLA
VESTMANNAEYJA
Um er að ræða almenna kennslu, sérkennslu, raun-
greinar og dönsku. Upplýsingar hjá skólafulltrúa e.h.
í síma 98-11088.
Frá Æfingaskóla
Kennaraháskólans
Tvo kennara vantar að skólanum skólaárið
1989-1990.
Um er að ræða umsjónarkennara í sjöunda bekk með
áherslu á stærðfræði og líffræði og stöðu tónmennta-
kennara.
Uppl. í símum 91-31781 og 92-46519.
Skólastjóri.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ:
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Framlengdur umsóknarfrestur:
Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki eru lausar til um-
sóknar kennarastöður í stærðfræði og eðlisfræði.
Stundakennara í íslensku vantar að Menntaskólanum
við Sund.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 14. júlí nk.
Menntamálaráðuneytið
Hafírðu
1! smakkað vín
- láttu þér þá ALDREI
detta í hug /d^
að keyra!
Þú gefur okkur upp:
Nafn þitt og heimilisfang,
slma, nafnnúmer og
gildistíma og númer
greiðslukorts.
•
Hámark kortaúttektar
í síma kr. 5.000,-
•
1. $111111 SMÁAUGLÝSINGADEILD
' ÞVERHOLTI 11
SÍMI 27022