Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1989, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1989, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Ás íkrift - Dreifing: Simi 27022 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1989. Vinnuskóli Hafharfjarðar: Engin laun útborguð Um 400 unglingar, flokksstjórar og forstöðumaður í unglingavinnunni í Hafnarfirði fengu ekki greidd laun um mánaðamótin. Útlit er fyrir að launin verði greidd eftir hádegi í dag, 6. júlí. „Það er rétt, við gátum ekki greitt laun um mánaðamótin. Það munu vera tæknilegar skýringar á þessu en ekki að það séu engir peningar til. Útreikningar töfðust þar sem við erum aukadæmi ofan á launakerfi bæjarins," sagði Sverrir Kristinsson, forstöðumaður Vinnuskóla Hafnar- fiarðar, í morgun. Unglingarnir hófu störf í unglinga- vinnunni 5. og 12. júni. Þeir fá greitt mánaðarlega og áttu að fá sína fyrstu ■■'útborgun í um mánaðamótin. -JGH Sjómenn: „Ég vona að menn Séu að setjast niður til þess aö klára þetta en það getur reyndar brugðið til beggja vona,“ sagði Guðmundur Hallvarðs- son, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur. ** Fundur verður í dag með undir- mönnum á kaupskipum og viðsemj- endum þeirra. Að sögn Guðmundar kom „örlíttll neisti“ í umræður um hækkun grunnkaups í gærkvöldi semgefurtilefnitilbjartsýni. -gse Uppgröftur írskabrunns gengur vel - talið að verkinu ljúki í dag Hrefna Magnúsdóttir, DV, Hellissandi: Þjóðminjasafnið sýnir mikinn áhuga á rannsókn írskabrunns, sem Sæmundur Magnússon fann á dög- unum utan við Gufuskála. Guð- mundur Ólafsson fomleifafræðingur mætti hér á staðinn í fyrradag og skoðaði aðstæður og var byrjað að grafa brunninn upp í gær. Nokkrir sjálfboðaliðar héðan frá Heflissandi aðstoða hann við uppgröftinn. Búið er að fiarlægja um það bfl 18 rúmmetra af sandi úr brunninum og talið að eftir séu aö minnsta kosti fiórir tfl sex rúmmetrar. í ljós eru komin sjö þrep. Reynt verður að fiúka uppgreftrinum í dag. írskibrunnur er af mjög svipaðri ^gerð og og brunnur sem er á Önd- verðamesi og heitir sá brunnur Fáiki. Guðmundur Óiafsson fornleifafræðingur og Hallgrímur Guðmundsson, einn af sjálfboðaliöunum, við uppgröftinn. DV-mynd Hrefna Bústjórar Ávöxtunar sf.: ■ ■■■ ja jk wm w Hofða mal a hanHiir vartI. Bústjórar þrotabús Ávöxtunar mæta þessum lántökum voru eign- bréfa. Var áður talið aö eigendur sf.ætlaaðhöfðamáláhendurverð- ir fluttar yfir í verðbréfasjóðina og bréfanna rayndu tapa þrera af bréfasjóðum Ávöxtunar. Verða teljabúsijórarÁvöxtunaraöþrota- hverjum fiórum krónum sera þeir verðbréfasjóöimir og hlutafélagið búiö eigi aö fá þessar eignir til höfðu lagt í sjóöina, auk þess sem endurkrafin ura eignir sem miili- baka. Hér er aðallega um að ræða þeir tapa vöxtum. færðar vom til þeirra. fasteignir pg kröfur sem vora Sjóöimir höfðu áöur gert vera- Að sögn Hákonar Árnasonar, skráðar á Ávöxtun sf. legar kröfur í þrotabú Avöxtunar annars bústjóra Ávöxtunar sf., þá Sagöi Hákon að í haust yrði höfð- sf. þannig að hér er uin að ræða er málið tilkomið vegna eignayfir- að riftunarmál á hendur skilanefhd kröfur sem veröur skuldajafnað ef færslu yfir í verðbréfasjóðina á síð- verðbréfasjóðanna og þeir krafðir Ávöxtun sf. vinnur málið. Ekki ustu raánuðunum fyrir gjaldþrot. uro 25-30 railfiónirkróna.EfÁvöxt- veitir búinu af en lýstar kröfur í Ávöxtun sf„ sem var sameignarfé- un sf. vinnur þetta mál eykst það Ávöxtun sf. vora 228 milfiónir og lag þeirra Péturs Bjömssonar og sem verður til skiptanna úr þrota- auk þess voru gerðar verulegar Ármanns Reynissonar, tók vera- búi fyrirtækisins en að sama skapi kröfur í þrotabú þeirra Péturs og legt fé aö láni út úr veröbréfasjóð- minnkar það sem skilanefnd verð- Ármanns og ýmissa hliðarfyrir- unum sem reknir voru sem sérstök bréfasjóðanna getur greitt út til eig- tækja. Var talið að kröfumar væru hlutafélög innan Ávöxtunar. Til að enda Avöxtunarbréfa og Rekstrar- háttíhálfurmilfiarður. -SMJ hvof oci aHi mi iim WTw flw|W«l U EM f bridge: Taj» og sigur Igá Islendingum -Svíar með góða forystu Sjöunda og áttunda umferð Evr- ópumótsins í bridge vom spilaðar í Finnlandi í gær. íslendingar léku gegn Belgíu í fyrri leiknum og vom yfir í fyrri háifleik, 47-42. í síðari hálfleik rúfluðu Belgarnir yfir ís- lensku strákana og skoraðu 60 impa gegn 1. Leikurinn fór því 24-6 fyrir Belga. í áttundu umferð var leikur gegn Bretum en Bretar hafa jafnan verið taldir stórveldi í bridge. Sá leik- ur vannst, frekar óvænt, 22-8. Gengið hefur verið mjög brösótt hjá liðinu fram að þessu og hefur ísland verið meöal neðstu þjóða en alls keppa 25 þjóðir á Evrópumótinu. Svíar hafa náð góðri forystu að átta umferðum loknum en síðan koma nokkrar þjóðir í hnapp. Svíar hafa 165 stig, Austurríkismenn 154‘A, Pól- land 152, ítalir 148, Vestur-Þjóðveijar 143 og Hollendingar 135 stig í sjötta sæti. íslendingar eiga erfiða leiki fram- undan, í níundu umferð eiga þeir í höggi viö Norðmenn, mæta Austur- ríkismönnum í þeirri tíundu og síðan koma Ungverjar og Finnar í elleftu og tólftu umferð. ÍS Drottningar* kafti í Kringlunni Sofíía Spánardrottning notfærði sér eyðu í annars skipulagðri dag- skrá konungsheimsóknar þeirra hjóna til íslands og brá sér „í bæ- inn“. fór hún ásamt fylgdarliði, um 20 manns, inn í Kringlu og dvaldi þar í um hálfa aðra klukkustund, frá hálffimm til um sex. Drottning leit meðal annars inn í Rammagerðina, þar sem hún dvaldi nokkuð lengi, og keypti eitthvað af uflarvörum. Þá keypti drottning eitt- hvaö af gufli og silfri. Eftir að hafa spásserað um og skoð- að í verslunarglugga settist drottning á kaffihúsið Mylluna. Sat hún þar við borð ásamt nokkrum úr fylgdar- liðinu, drakk expressókaffi, bragðaði á súkkulaðiköku, virti fyrir sér mannlífið og rabbaði. Spænsk stúlka sem vinnur á kaffihúsinu sá um að þjóna drottningu tfl borðs. Heimsókn drottningar í Kringluna vakti óskipta athygli Kringlugesta og kom mjög flatt upp á starfsfólk þar sem enginn átti von á svo tigin- bornum gesti. Allt fór þó mjög vel fram og var að sögn starfsmanna afar afslappaö og þægilegt. -hlh LOKI Þetta heitir að vera tæknilega blankur. Veðrið á morgun: Hlýjast á Austurlandi Ótíðin á höfuðborgarsvæðinu ætlar engan enda að taka. Á morg- un verður suðvestan gola og smáskúrir suðvestan til á landinu. Um landið austanvert verður aftur á móti léttskýjað að vanda. Hitinn verður 10-15 stig, hlýjast austan- lands. GÆÐI - GLÆSILEIKI •* ... .. 09 ... ÚPID OIL KVOLD _______________ SKlÐASKÁOIlll

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.