Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1989, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1989.
Úflönd
Beindi þotunni
til Eystrasalts
Áöur en flugmaður sovésku MIG-
23 orrustuþotunnar, sem hrapaði á
hús í Belgíu í fyrradag, varpaði sér
út í fallhlíf yfir Póllandi beindi hann
henni í átt að Eystrasalti. Hélt flug-
maðurinn að þotan myndi brotlenda
þar, að því er foringi í sovéska flug-
hemum sagði í gær.
Segja Sovétmenn að flugmaðurinn
hafi orðið var við bilun skömmu eft-
ir flugtak í Kolobrzeg í Póllandi sem
er á norðurströnd landsins. Hefði
þotan, sem var í æfingaflugi, lækkað
ört flugið og hann því varpað sér út.
í stað þess aö fara í átt til Eystra-
saltsins flaug þotan á sjálfstýringu í
nær þúsund kílómetra yfir Pólland,
Austur- og Vestur-Þýskaland og
Holland áður en hún varð eldsneytis-
laus í Belgíu og brotlenti á húsi með
þeim afleiðingum að einn maður beið
bana. Sovétríkin hafa harmað at-
burðinn og boðist til að greiða Belg-
um fullar bætur.
Sovéskar sveitir eru sagðar hafa
fylgst með flugvélinni þar til hún
hvarf úr augsýn. Flugvélar eru einn-
ig sagöar hafa svipast um eftir henni
á Eystrasalti.
Vamarmálaráðherra Sovétríkj-
anna, Dmitry Yazov, sagði í viðtali
við sovésku fréttastofuna Tass í gær
að þotan hefði ekki komið fram á
ratsjám í Póllandi og Austur-Þýska-
landi. Sagði hann þaö með öllu óskilj-
anlegt og atvikið kalla á ítarlega
rannsókn.
Vestrænir hemiálasérfræöingar
segja atvikið vandræðalegt fyrir Var-
sjárbandalagsríkin en ekki væri
hægt að draga ályktanir um loftvam-
ir þeirra af því.
Þykir atburðurinn minna á flug
Vestur-Þjóðverjans Matthíasar Rust
sem árið 1987 komst óséður um sjö
hundmð og fimmtíu kílómetra leið
yfir sovésku yfirráðasvæði og lenti á
Rauða torginu í Moskvu. Rust flaug
frá Finnlandi á lítilli eins hreyfils
flugvél.
í sovésku MIG-23 þotunni var sjálf-
virkur flugriti sem geymir upplýs-
ingar um starfsemi hennar og stjóm-
kerfi. Rannsókn á honum gæti leitt
í ljós hvað fór úrskeiðis. Hafa Belgar
fallist á beiðni Sovétmanna um aö fá
að hirða flak flugvélarinnar.
Reuter
Flak sovésku orrustuþotunnar fjarlægt úr rústum húss sem hún hrapaði á
í Belgíu á þriðjudaginn. Simamynd Reuter
■ Helgarmarkaður DV ■ Helgarmarkaður ■ Helgarmark
Verslunin Gæðakjör
Seljabraut 54 og Leirubakka 36
OPtÐ 10-14
LAUGARADAGA
Allt á grillið
★ Heimsendingarþjónusta ★
WEIBA FYRIR MINNA tfERÐ
PÚ ÞARFT EKKI
AÐ LEITA LENGRA
Velkomin í Grundarkjör
alla virka daga frá kl. 9.00-20.00
lauqardaqa frá kl. 10.00-14.00
38121
1fr~ rniii—m
6RUNDARKJÖR
Opií
jCjj) Stakkahlíð 17 Sími
Furugrund 3 Síwi
KJOTVAL
Iðufelli 14, s. 74550
MV°9
V)íið
OPIÐ 9.00 - 20.00
alla daga vikunnar nema sunnudaga
Mikið vöruúrval - lágt verð
SELJAKAUP 1
- Kleifarseli 18, s. 75644 -
Opið laugardaga
10-16
Mikið vöruúrval
- Góð þjónusta -
SVEINSBÚÐ
Bræðraborgarstíg 43 - sími 14879
ADIA> Föstudaga til kl. 19.
Laugardaga kl. 10-14.
Nautakjöt - svínakjöt - folaldakjöt í úrvali
Fransmann franskar, kr. 138 Nautahakk, 1. fl„ kr. 650 kg
Mjólk, 1 I, kr. 61_Nautahakk, 2. fl„ kr. 520 kg