Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1989, Blaðsíða 15
||||pg|
'
'
BBhmmhBhHBhHhBHhBÍ
Stúfar af
Króknum
KR-ingar komust heim
Ján Öm Guðbjaitssan, DV, Sauðárkráki:
Það var rætt um það á Króknum í
gær að KR-ingar hygðust setjast þar
að ef þeim tækist ekki að hafa betur
gegn Tmdastóh.
Liðin mættust þá í annað sinn á
tveimur árum í mjólkurbikarnum.
Einn spaugsamur þar nyrðra hafði á
orði í kjölfar leiksins að Tindastóls-
menn hefðu tekið á það ráð að bíða
lægri hlut í vítakeppni svo að bærinn
fylltist ekki af þeim svartröndóttu.
______Gríðarlegur fjöldi
Gríðarlegur fjöldi
manna lagði leið sína á
völlinn á Króknum enda
voru heimamenn stað-
ráðnir í að leggja KR-inga að velh
í annað sinn á tveimur árum.
Það tókst að vísu ekki en það
blés byrlega um hríð í framleng-
ingunni.
En það voru ekki aðeins heima-
menn sem sóttu þennan merkis-
leik því fjöldi stuðningsmanna
vesturbæjarveldisins var mættur
á Krókinn til að hvetja sína menn
til sigurs.
Nýtt met var sett en ríflega sjö
hundruð manns voru í brekk-
unum. Var eins og regnhlífahaf að
hta þar sem stuðningsmenn hð-
anna stóðu í dynjandi regni.
KR aftur í gulu
KR-ingar léku í sínum
nýja búningi í gær en í
honum leysir meðal
annars gult hvíta htinn
af hólmi í skyrtunum. Þessi bún-
ingur hefur reynst vesturbæing-
um vel því þeir unnu í gær og
lögðu líka FH-inga að velli á dög-
imum er þeir reyndu þennan sér-
stæða búning í fyrsta sinn.
Mikil stemning í bænum
Mikil stemning var á Sauðárkróki
fyrir leik þessara erkifénda og skal
engan undra.
Þegar hðin mættust í fyrra áttu
fæstir von á sigri Tindastóls en hð
Sauðkrækinga kom heldur betur á
óvart og sló þá KR úr keppni.
í gær var bersýnilegt að heima-
menn vildu endurtekið efni.
Pétur og áhorfendurnir
Nokkra athygli vakti í
gær með hvaða hætti
rr • Pétur Pétursson úr KR
fagnaði marki sínu er
hann jafnaði leikinn á eheftu
stundu.
Hann hljóp að áhorfendum og
hafði hnefann á lofti. Þetta lék
hann síðan aftur að hluta er hann
skoraöi út vítaspymu sinni í víta-
keppninni.
Er Pétur var spurður hvort hann
og heimamenn hefðu eldað grátt
silfur með þessum hætti kvað
hann þvert nei við.
„Áhorfendur eru hluti af leikn-
um og maður skemmtir sér með
þeim,“ sagði Pétur og bætti við:
„Við hittumst vonandi aftur á
næsta ári.“
Tindarnir með sterkt lið
„Tindastóh er með verulega sterkt
hð,“ sagði Pétur einnig í spjalhnu við
DV eftir leikinn í gær.
„Leikmenn hðsins eiga hrós skihð
fyrir þennan leik en þeir börðust eins
og grenjandi ]jón ahan tímann.
Við bárum virðingu fyrir þessu
hðihélt þessi skæði markahrókur
áfram, „en í bikamum verða ahtaf
einhveijir að tapa.“
Hjartað
hætti
að slá
Þessar hnátur á Króknum studdu ákaft lið sitt í baráttunni i gærkvöldi. Þá átti Tindastóll í höggi við KR. Síðartalda
liðið hafði betur eftir erfiðan og tvisýnan slag, framlengingu og síðan vítakeppni. DV-mynd Jón Örn
Ján öm Guöbjarlssan, DV, Sauöárkróki:
Willum Þórsson:
„Þegar þeir komust í 2-1 þá hætti
hjartað að slá í smástund. Við trúð-
um hins vegar ekki að við myndum
tapa hér öðru sinni og neituðum því
að hætta,“ sagði Wihum Þór Þórsson
úr KR eftir leikinn á Sauðárkróki.
„Það var mjög gott að koma fram
hefndum og sigra í kvöld. Það var
einmitt það sem maður þráði eftir
ófarimar í fyrra,“ sagði Willum.
Ólafur Adolfsson:
„Við erum á margan hátt sáttir þó
það hafi vitanlega verið synd að
halda ekki forystunni út leikinn,"
sagði Ólafur Adolfsson sem lék vel í
vörn Tindastóls í gærkvöldi.
„Þetta er á vissan hátt sárabót fyr-
ir slakt gengi okkar í deildinni í sum-
ar. Við fórum til leiksins með það
hugarfar að gera okkar besta og ég
vona að það hafi tekist,“ sagði Ólafur.
Pétur Pétursson tryggði KR vítakeppni á elleftu stundu:
Stólar féllu með sæmd
- KR-banar af Króknum féllu úr keppni eftir framlengingu og vítakeppni
KR-ingar fagna hér fyrra marki liðsins. Jóhann Lapaz hleypur stoltur yfir
marki sínu til Sæbjarnar Guðmundssonar. DV-mynd Jón Örn
ÞórhaHur Asmundasan, DV, Sauðárkróki:
Það er ekki hægt að segja annað
en að áhorfendur hafi fengið mikið
fyrir peninginn sinn á Sauðárkróki
í gærkvöldi. Þeir fengu aukabónus á
bráðskemmtilegiun leik, framleng-
ingu og síðan vítaspymukeppni þar
sem vesturbæjarhðinu tókst loks að
knýja fram sigur.
Þegar á heildina er htið vom
Tindastólsmenn síst lakari aðilinn í
leiknum. Þó byrjuðu KR-ingar betur
og eftir aðeins 3. mínútur voru þeir
búnir að skora. Jóhann Lapas hamr-
aði þá boltann í netið. Skömmu síðar
gerðu KR-ingar hríð að marki heima-
manna en smám saman jafnaðist
leikurinn. Heimamenn jöfnuðu síðan
með marki Guðbrands Guðbrands-
sonar. KR-ingar sóttu nokkuð eftir
markið og fengu víti á síðustu mín-
útu hálfleiksins. Pétur tók spymuna
en Gísh Sigurðsson gerði sér htið
fyrir og varði.
í síðari hálfleik var baráttan í al-
gleymingi, leikurinn var þá opinn og
skemmtilegur en minna um færi. í
framlengingu var síðan hart barist.
Guðbjartur Haraldsson skoraði þá
mark fyrir Tindastól en Pétur Pét-
ursson jafnaði fyrir KR skömmu síð-
ar. Bæði hð voru þá þrotin að kröft-
lun í kjölfar marksins og vítaspymu-
keppni blasti við. Þar kom Pétur KR
í 3-2, Þorfinnur varði frá Eyjólfi
Sverrissyni og Sæbjöm skoraði 4-2.
Bjöm Bjömsson skoraði fyrir Tinda-
stól og Gunnar Oddsson bætti við
5-3. Guðbjartur skaut síðan í stöng
og þegar Sigurður Björgvinsson
tryggði Reykvíkingum framhald í
bikamum.
Tindastóh féh með sæmd úr bik-
amum og getur nú einbeitt sér að 2.
deildinni. AUt hðið átti góðan leik og
baráttan var mjög góð. Gísh var frá-
bær í markinu, Olafur Adólfsson og
Marteinn Guðgeirssson sterkir. Hjá
KR vom Gylfi Dahlmann og Gunnar
Oddsson bestu menn. Pétur var
hættulegur að vanda.
Formaður knattspyrnurdeildar KR hafði oft ástæðu til að hnykla brýrnar í
gær. Hann brosti þó að lokum gleitt undir KR-regnhlífinni.
DV-mynd Jón örn
NMunglinga:
Island hreppti silfrið
- tapaöi fyrir Noregi 1 úrslitum
íslenska unghngalandshðið, skip-
að leikmönnum 18 ára og yngri, mátti
sætta sig við eins marks tap gegn
Norðmönnum í úrshtaleik opna
Nprðurlandamótsins í gærkvöldi.
íslendingar höfðu fyrr um daginn
sigrað Dani í hörkuleik, 22-21. Sigur-
mark íslenska Uðsins gerði þá Gunn-
ar Andrésson fyrirhði þegar 2 sek-
úndur vom til leiksloka.
íslendingar höfðu öh ráð framan
af gegn Norðmönnum í úrshtum.
Höfðu sex marka forskot, 14-8, í
seinni hálfleik en þá sagði norski
markvörðinn Olaf Södal hingað og
ekki lengra. Norðmenn jöfnuðu þá,
14-14, og leiddu síðan út leikinn. ís-
lendingar áttu færi á að jafna úr víta-
kasti í lokin en norski markvörður-
inn varði frá Gunnari Andréssyni.
Norðmenn urðu því Norðurlanda-
meistarar.
Markahæstir í hði íslendinga vom
Gunnar Andrésson með 7 mörk og
Björgvin Rúnarsson með 4 mörk. Að
sögn Lárusar Lárussonar, farar-
stjóra íslenska hðsins, geta Norð-
menn þakkað markverði sínum sig-
urinn. Láms sagði að úrshtin væm
mikh vonbrigði en að lenda í öðm
sæti af tólf liðum yrði þó að teljast
góður árangur. Á mótinu dæmdu
tveir íslenskir dómarar þeir Guðjón
Sigurðsson og Hákon Siguijónsson
og stóðu þeir sig með mikilli prýði.
BS/HR