Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1989, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1989.
3
Fréttir
Að loknum landsfundi Sjálfstæðisflokksins:
Þorsteinn með gult spjald
- rætt um að Davíð Oddsson taki við formennskunni eftir tvö ár
„Það má segja að Þorsteinn Páls-
son hafi fengið að sjá gula spjaldið
með þessari kosningu Davíðs Odds-
sonar í embætti varaformanns
fiokksins," sagði framámaður í Sjálf-
stæðisflokknum um þann viðburð
sem vakti mesta athygli á nýliðnum
landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem
lauk um síðustu helgi.
Það fór ekki leynt að fyrir lands-
fundinn voru uppi háværar kröfur
um að skipt yrði um forystusveit
flokksins en þegar leið að fundinum
virtist ekkert ætla að gerast í þeim
málum - mest vegna þess að Davíð
sjálfur sýndi ekki mikið frumkvæði
í þá átt.
Það mun mörgum áhrifamönnum
í flokknum ekki hafa líkað og rétt
fyrir fundinn var sett upp mikil
pressa á Davíð og þá Þorstein og
Friðrik með aðstoð Morgunblaðsins.
Niðurstaða þess var að fórna Friðriki
enda treystu menn sér ekki til að
ráðast í formannsslag með svo stutt-
um fyrirvara.
„Það hefði komið alltof miklu róti
á landsfundinn ef hann hefði allt í
einu staðið frammi fyrir því að kjósa
um formann - menn voru komnir
hér tii að taka þátt í skemmti- og
skrautsýningu og vildu ekki raska
því,“ sagði einn landsfundarfulltrúi
og bætti við: „Það vakti hins vegar
ánægjutilfinningu hjá landsfundar-
fulltrúum aö eitthvað skyldi hafa
verið gert og eftir frábæra ræðu Dav-
íðs á sunnudeginum efaðist enginn
um að þetta hefði verið það eina
rétta."
Þá hlýtur öllum að vera ljóst að
staða Davíðs er feikisterk í flokknum
og sést það auðvitað best í því hve
auðveldlega hann hrifsaði til sín
varaformannssætið, nánast um leið
og hann sýndi því áhuga. Það hlýtur
að vekja upp spurningar um hver
staða Þorsteins Pálssonar verður við
hlið Davíðs. Það mátti greinilega
heyra á mörgum landsfundarfulltrú-
um að eftir tvö ár biði Þorsteins sama
hlutskipti og Friðriks - hann verði
að víkja fyrir Davíð. Þorsteinn tekur
sjálfur undir þetta að nokkru en í
DV í gær sagðist hann sjá framtíðar-
formann í Davíð.
Staða Friðriks óljós
Bæði Davíð og Þorsteinn hafa gert
sér sérstakt far um að halda því á
lofti að Friðrik Sophusson verði
áfram í forystusveit flokksins. Þeir
hafa þó allir þrír neitað því að ein-
hverjir samningar hafi verið gerðir
Næstu tvö árin munu þeir Þorsteinn Pálsson og Davið Oddsson standa i
fylkingarbrjósti sjálfstæðismanna. Hvað þá verður er hins vegar erfiðara
að spá en væntanlega munu þeir báðir reyna að sýna forystuhæfileika
sína þangað til. DV-mynd GVA
bak við tjöldin. Því hefur þó verið
haldið fram að það sé bamaskapur
að ætla annað en að Friðrik hafi feng-
ið einhver vilyrði fyrir ráðherradómi
ef sú staða kemur upp.
Þá hefur því verið haldið fram að
Friörik hafi sjálfur vakið upp efa-
semdir um varaformennsku sína.
Með því að vekja upp ágreining við
formanninn út af auðlindaskatti og
með óvenjuharðorðri yflrlýsingu
sinni um landbúnaðinn á SUS-þingi
hafi hann veikt sig, einmitt þegar
hann hefði þurft að tengja sig sem
mest við formanninn.
Einn þingmanna flokksins sagði að
hann heíði skynjað öldu gegn Friö-
riki upp úr þessu og óánægjan með
forystu flokksins hefði því beinst að
honum síðustu dagana fyrir lands-
fund.
Með því að vera orðinn varafor-
maöur flokksins kemst Davíð í miklu
nánari snertingu við landsmálapólit-
íkina en hann verður t.d. í meiri
tengslum við þingflokkinn. Þótt hon-
um hafi verið frjálst að sækja þing-
flokksfundi hingað til hefur hann
ekki gert mikið af því. Þingflokkur
sjálfstæðismánna er margslungið afl
og ekki vonum seinna að Davíð
kynnistþví. -SMJ
Stjómmálaályktun landsfundar:
Gengisskráning
verði tengd
markaðsaðstæðum
í stjórnmálaályktun Sjálfstæðis-
flokksins, sem samþykkt var á 28.
landsfundi flokksins, voru eftirfar-
andi áhersluatriði:
1. Gengisskráning krónunnar verði
tengd markaösaðstæðum. Viðskipta-
bankar og sparisjóðir fái fulla heim-
ild til að versla með erlendan gjald-
eyri og gjaldeyrisviðskipti verði gefin
frjáls.
2. Eiginfjármyndun í atvinnulífinu
verði örvuð með ráðstöfunum í
skattamálum. Geraþarffyrirtækjum
kleift að mynda sveiflujöfnunarsjóði,
en starfsemi verðjöfnunarsjóðs fisk-
iðnaðarins hætt. Fiskverð verði á
ábyrgð sjávarútvegsins.
3. Ný vinnubrögð verði tekin upp
við íjárlagagerð og heimildir til
aukafjárveitinga úr ríkissjóði stór-
lega skertar. Hætt verði óhóflegri
skattlagningu á fyrirtæki og heimili,
m.a. með því að lækka skatta á mat-
vælum, lækka eignarskatta, og af-
nema hin óréttiáta ekknaskatt.
Skattar verði aldrei afturvirkir og
sparifé ekki skattlagt.
4. Ríkisbankar verði hlutafélög.
Ríkisábyrgð á starfsemi lánasjóða
atvinnuveganna verði afnumin.
5. Aðlaga verður íslenskt atvinnu-
og efnahagslíf breytingum vegna til-
komu sameinaðs Evrópumarkaðar.
6. Setja þarf almenn lög um um-
hverfismál og fela sameiningu þeirra
einu ráðuneyti án þess að stofnað
verði nýtt ráðuneyti um þessi mál.
7. Með markvissum samgöngubót-
um og endurreisn atvinnulífsins
verði lagður grundvöllur að vaxta-
svæðum á landsbyggðinni.
8. Sjálfstæöi sveitarfélaga aukið og
til þeirra fluttir tekjustofnar og verk-
efni, m.a. rekstur heilsugæslu og
grunnskóla.
9. Flokkurinn leggur áherslu á að
sem flestir búi í eigin húsnæði. Þá
telur hann að fara verði fram heild-
arendurskoðun á hinu opinbera hús-
næðislánakerfi sem miði að því að
færa verulegan hluta þess yfir í
bankakerfið og tryggja að opinber
fyrirgreiðsla gagnist mest þeim sem
þurfa á henni að halda.
9. Vegna fjölskyldunnar vill flokk-
urinn að eftirfarandi verði tekið til
athugunar: Sveigjanlegur vinnutími,
ijarvistir foreldra frá vinnu vegna
veikinda barna, framkvæmd fæðing-
arorlofs, dagvist barna, samfelldur
skóladagur og lengri fyrir yngri nem-
endur, réttindi fatlaðra, endurbætur
á tryggingakerfi og jöfn foreldra-
ábyrgð.
10. Við endurskoðun stjórnar-
skrárinnar ber að leggja áherslu á
skarpari skil á milli framkvæmda-
valds og löggjafarvalds, tryggingu
mannréttinda í breyttri kjördæma-
skipun sem miöi aö því að jafna at-
kvæðisréttinn og auka stöðugleika í
stjórnmálum. -SMJ
Skemmdu átta bíla
Eigendur átta bíla sem voru á bíla-
stæðum við Hraunbraut í Kópavogi
uppgötvuðu í fyrradag að bílar þeirra
höfðu verið skemmdir. Bílarnir eru
flestir dældaðir og allir rispaðir
þannig að um talsvert eignatjón er
að ræða. Skemmdimar eru allar á
vinstri hlið bílanna og greinilegt að
skemmdarvargarnir hafa gengiö eft-
ir hægri vegarhelmingi og sparkað í
bílana.
Ekki er ljóst hvenær skemmdar-
verkin voru unnin. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um grunsamlegar
mannaferðir við Ásbraut og Hraun-
braut aðfaranótt sunnudags eða í
fyrradag eru beðnir aö hafa samband
við lögregluna í Kópavogi.
-ÓTT
Kynnum í dag og nœstu daga 1990 árgerðina af
PEUGEOT 205
Komið og kynnist af eigin rann þessum skemmtilega bíl
sem kosinn liefur verið,,BES7I BÍLL í HEIME
ár eftir ár.*
íTij Verð 3 dvra kr. 565.700,-
«|g Verð 5 d\ra kr. 589.500. -
Auto Motor und Sport