Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1989, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1989, Qupperneq 17
16 ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1989. ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1989. 17 Iþróttir íþróttir Bréf frá Ellert B. Schram, formanni KSÍ, til íþróttasíðu DV: Forgangsmál að íslendingar geti gegnt skyldu sinni og hlutverki - ef íslenskir knattspymumenn eiga að vera hlutgengir í alþjóðakeppni á næstu árum Aö undanförnu hafa átt sér stað nokkrar umræöur um byggingu íþróttamannvirkja og húsnæðis fyrir íþróttahreyfinguna. Nægir í því sam- bandi aö nefna þá byggingu í Laugar- dalnum í Reykjavík sem er fyrir- huguð undir starfsemi íslenskrar getspár og tengist skrifstofuaöstööu ISÍ og ýmissa sérsambanda. Enn- fremur eru uppi ráðagerðir um bygg- ingu nýrrar íþróttahallar, sömuleiöis í Laugardalnum, vegna væntanlegr- ar heimsmeistarakeppni í hand- knattleik árið 1995. Af þessu tilefni er óhjákvæmilegt og tímabært aö vekja athygh yfir- valda og almennings á þeirri staö- reynd að umfangsmiklar endurbæt- ur á íþróttaleikvanginum í Laugar- dal eru aðkallandi ef íslenskir knatt- spymumenn eiga aö vera hlutgengir í alþjóöakeppni á næstu ámm. Þann 26. júlí í sumar var gerð svo- hljóðandi samþykkt í aðalstjóm Al- þjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA): „Frá og með undankeppni næstu heimsmeistarakeppni í knattspymu, sem hefst árið 1992, er það grundvall- arskilyrði að aðeins verði leikið á leikvöngum sem bjóða upp á sæti fyrir áhorfendur. Þar sem um bæði sæti og stæði er að ræða má ekki selja stæðismiða." Þessi regla er ófrávíkjanleg og eng- ar undanþágur veittar. Knattspyrnu- samband Evrópu (UEFA) hefur brugðist við í samræmi við ákvörðun FIFA og undirritaður tók þátt í fundi svokallaðrar undirbúningsnefndar vegna öryggis á knattspyrnuvöllum í síðastliðnum mánuði þar sem með- al annars var ákveðið að UEFA mundi fylgja fordæmi FIFA, þó þannig að stæðismiðum verði fækk- að reglulega um tíu af hundraði frá og með næsta ári og fram til áramóta í öllum leikjum sem fram fara á veg- um UEFA. Þetta þýðir í raun að strax næsta haust geta þau íslensk knatt- spyrnufélög, sem þátt taka í Evrópu- keppni félagsliða, ekki sett í sölu þann miðafjölda sem viðkomandi völlur rúmar. Sá skaði verður þó væntanlega óverulegur þar sem sjaldnast er uppselt á þá leiki. Stærsta vandamálið, sem blasir við KSÍ og knattspyrnuhreyfingunni, er hins vegar í bih aö útilokað er að til- kynna þátttöku í næstu heimsmeist- arakeppni við óbreyttar aðstæður á Laugardalsleikvanginum. Undan- keppni HM hefst væntanlega vorið 1992 og tilkynna þarf þátttöku á miðju sumri 1991. Eins og nú standa sakir rúmar völl- urinn 3600 manns í sæti. Algengt er, og reyndar nokkuð víst, að aðsókn að slíkum landsleikjum er á bihnu 7 til 15 þúsund manns. Ef áhorfendaað- staða verður óbreytt jafngildir það því að KSÍ getur ekki selt miða ann- ars staðar en í stúku eða rétt rúm- lega 3000 miða. Við slík skilyrði mundi KSÍ reynast ókleift að taka þátt í heimsmeistarakeppninni. Að- gangseyrir að landsleikjum er ein aðaltekjuhnd Knattspyrnusam- bandsins. Þær tekjur standa ekki einasta undir rekstri landshðsins heldur að verulegu leyti undir ann- arri starfsemi KSÍ. Ef ekkert er að gert er fótunum kippt undan rekstr- argrundvelh KSÍ sem mundi að sjálf- sögðu ekki aðeins bitna á þátttöku okkar í HM heldur og á öðrum lands- liðum, kvenna og karla, sem og því þjónustuhlutverki sem KSÍ gegnir gagnvart hreyfingunni allri. Það er eindregin skoðun undirrit- aðs aö það sé vilji yfirvalda sem al- mennings að ísland geti teflt fram landsliði í nafni þjóðarinnar. Lands- leikir eru snar þáttur í þjóðlífinu, mikilvægir leikir draga fleira fólk að sér en flestir aðrir atburðir hér á landi. Þeir gefa íþróttunum lit og líf og eru höfuðprýði í þeirri starfsemi allri sem fram fer í þágu æskulýðs- og íþróttamála. Laugardalsleikvangurinn er í eigu Reykjavíkurborgar. Borgaryfirvöld hafa alla tíð sýnt íþróttamálum skilning og hlúð að byggingu íþrótta- mannvirkja. Enn sem komið er hefur Laugardalsleikvangurinn yfirburði yfir aðra íþróttavelh í gerð og að- búnaði og knattspymuhreyfingin verður að setja traust sitt á að Reykjavíkurborg hafi metnað til að leggja knattspyrnumönnum til þá aðstöðu sem boðleg er í alþjóða- keppni. Það hlýtur og að vera metn- aður Reykjavíkur sem höfuðborgar. Takmarkið og draumurinn er að fá yfirbyggðan knattspyrnuvöh sem rúmar 15 þúsund manns í sæti. Ef einhvers staðar er þörf á slíkum velh þá er það hér á íslandi þar sem veður er rysjótt og hefur tvímælalaust dregið úr aðsókn og þá um leið tekj- um leigutaka og leigusala. Ekki er raunsætt að gera ráð fyrir að shk framkvæmd eigi sér stað á næstu misserum. Þó má th fróðleiks 'geta þess að ahar frændþjóðir okkar á Norðurlöndum eru ýmist byrjaðar eða eru með í burðarhðnum nýja íþróttaleikvanga sem bjóða upp á nútímaþægindi og þjónustu, sæti fyr- ir alla áhorfendur og yfirbyggðar stúkur. íslendingar hljóta að fylgjast með þeirri þróun. Frumskhyrðið og aðalkrafan er sú að nú þegar verði gerðar áætlanir um endurbætur á Laugardalsvelli þannig að áhorfendastæðum verði breytt í sæti fyrir ahs 10.000 manns. Þessu verki þarf að vera lokið fyrir vorið 1992. Heiður Reykjavíkur og KSÍ er í veði svo og þátttaka okkar í næstu heimsmeistarakeppni. Knattspymusambandið vill á engan hátt gera htið úr þörf íþróttahreyf- ingarinnar fyrir skrifstofuhúsnæði eða metnaði annarra íþróttagreina til að efna til stórmóta hér á landi. En það hlýtur að vera forgangsmál að búa svo um hnútana að íslending- ar geti áfram gegnt þeirri skyldu sinni og hlutverki að taka þátt í al- þjóðamótum án þess að skilyrði eða aðstæður komi í veg fyrir það. Reykjavík 2. október 1989 Ellert B. Schram, formaður KSÍ ■ B ■ g § HfiyiyFiflf wi JCi hafa anfla. nara auga- Á TAitl viClV CB I d vi Ægir Már Kárasom, DV, Suðomesjum: ' Teitur örlygsson er orðinn einn afbesti körfuknattieiksmaöur landsins og ungverskt lið hefur nú áhuga á að ló hann til sín. Ungverskt 1. deildar hð í körfuknatt- leik hefur að undanförnu spurst fyr- ir um islenska leikmenn og sam- kvæmt heimildum DV er Njarðvík- ingurinn snjahi, Teitur Örlygsson, efstur á blaði lýá forráðamönnum félagsins. . Teitur, sem er 22 ára gamall, er Íykilmaður í íslenska landshðinu og hefur tekið stórstígum framförum síðustu misseri. Hann er orðinn einn albesti körfuknattleiksmaður lands- ins og því ekki óeðlilegt að erlend félög séu farin að gefa honum auga.. Teitur hefur leikið mjög vel í tveimur fyrstu leikjum Njarðvíkinga í úrvals- ' deildiinni og verið maðuriim á bak við tvo góða sigra. DV náði ekki tah af Teiti í gærkvöldi. Helgi Rafnsson, miöheijinn hávaxni meðNjarðvik í Njarðvíkurhðinu, er hættur að leika með bikarmeisturunum. Hann var með í leikjunum við Hauka og Tindastól S úrvalsdehdimxi en ákvað síðan aö taka sér hvhd frá íþróttinni á ný. Helgi byijaði að æfa skömmu áður en íslandsmótið hófst en í fyrra- vor hafði hann tilkynnt að væri hætt- ur. „Ég ætlaði að byrja að æfa á ný og sjá hvort ég heföi sama áliuga og áður. Ég fann mig engan vegnm og haföi ekki nógu gaman af æfingum. Þegar Mike Clark var rekinn ákvað ég aö haida aðeins áfram en nú er kominn góður leikmaður í staðinn, Patríck Releford, og þá fannst mér í lagi að draga mig aftur í hlé. Þegar áhuginn er ekki fyrir hendi er best fyrir alla aöha að hætta,“ sagði Helgi í samtah við DV í gærkvöldi. Islandsmótið í blaki: Þróttur N. fór tómhentur heim - eftir leikina gegn Þrótti R. og ÍS Islandsmótið í blaki hófst um helgina með fimm léikjum. Á föstudag léku nafnamir Þróttur Reykjavík og Þróttur Neskaup- stað í kvenna- og karlaflokki. Daginn eftir mættuNeskaupstaö- armenn svo ÍS-ingum og loks kepptu kvennalið Víkings og HK á sunnudag. Austfirðingar fóru tómhentir beim, töpuöu öllum sínum leikjum. Þróttur R, - Þróttur N.: 3-1 Fyrstu hrinuna unnu ^eykvík- ingar nokkuð auðveldlega, 15-6, og voru á góðri leið með að vinna þá næstu (14-11) en fóru illa að ráði sínu í móttöku og töpuðu, 14-16. Þriðja hrinan var jöfn og lauk með 16-14-sigri höfuöborg- arbúa, sem einnig unnu fjórðu hrinuna og nú léttílegas 15-6. Hjá Þrótti N. var ívar Sæ- mundsson sterkastur en hjá Reykvíkingum sýndu Hahur Jónsson og Einar Þór Ásgeirs9on góða takta í lágvöm og uppgjöf- um. Þróttur R. - Þróttur N.: 3-1 Kvennahðin áttust síðan viö. Þetta var mikih baráttuleikur en reykvísku Þróttaramir reyndust sterkari með þær Lindu Jóns- dóttur og Snjólaugu Bjamadóttur í fararbroddi og unnu leikinn, 3-1, á 70 mínútum. Hjá Þrótti N. var Jóna Harpa Viggósdótör langsterkust. í Uð Austfiröinga vantaði Petr- únu Jóhannsdóttur, sterkan miöjusmassara, og Guörúnu Jón- ínu Sveinsdóttur, sem ekki er oröin lögleg með sínu félagj vegna einhverra leiðindamis- taka. Báða ofangreinda leiki dæmdu Gunnar Ámason og Mar- teinn Guögeirsson og fórst það þokkalega úr hendi. ÍS - Þróttur N.: 3-0 Karla- og kvennalið þessara fé- laga kepptu á laugardeginum. Skemmst er frá því að segja að leikimir vora ansi keinhikir, lokatölur þær sömu (3-0) og leik- tíminn svipaður eða einungis um 40 mínútur hvor leikur. ÍS-ingar áttu ekki í neinum vandræðum með að sigra í þess- um leikjum og fengu þama tvö stig, hvort hö, með hthli fyrir- höfn. Þessa leiki dæmdu Leifur Harð- arson og Guðmundur Elías Páls- son, fyrri leikinn frekar slælega en þann seinni ágætiega. Víklngur-HK:3-1 Á sunnudeginum léku svo kvennalið Víkings og HK. Kópa- vogsstúlkur léku mjög vel th að byija með og gáfu ekkert eftir. Svolítið fum og fát var á Víking- um og HK-stúlkum tókst að sigra fyrstu hrinuna, 15-13, með góðri baráttu. í næstu hrinum tóku Víkingar sig á en HK-ingar gerðu sig seka 15-5, 15-8, og klykktu svo út með því að vinna flórðu og síðustu hrinuna. 15-0. ur af þeim og Bjama Þorvaldi Sigurössyni Þórhahssyni. -gje • Jakob Sigurðsson, fyrirliði Vals, skoraði fjögur mörk í gærkvöldi Nú var hugarfar- ið í lagi hjá Val - og Kyndill sigraöur með 15 marka mun Valsmenn tóku sig heldur betur saman í andhtinu í gærkvöldi þegar þeir sigraðu færeysku meistarana Kyndh, 29-14, í síðari leik Uðanna í Evrópukeppni meistaraliða á Hhðar- enda. Staðan í hálfleik var 13-8 en Valsmenn stungu af þegar þeir breyttu stöðunni úr 15-11 í 21-11 í síðari hálfleiknum. Miðað við þann mun, sem var á liðunum í gærkvöldi, er tap Vals gegn Kyndh á sunnudaginn, 26-27, óskiljanlegt. Færeyingamir fengju ekki mörg stíg í íslensku 1. deild- inni, þeir era með 3-4 frambærilega leikmenn, en ekki svo að þeir eigi aö geta sigrað íslandsmeistarana. Línu- maðurinn Andréas Mortensen er duglegur og útsjónarsamur og skytt- an Andréas Midjord nokkuð ógn- andi. Hjá Val var liðsheildin ágæt, Einar Þorvarðarson varði vel og Brynjar Harðarson og Valdimar Grímsson vom mest 1 sviðsljósinu í sókninni. Vamarleikur liðsins var allur annar og betri en í fyrri leiknum. „Með allri virðingu fyrir Færeying- unum, sem em í stööugri framför, urðum við okkur til skammar á sunnudaginn. En leikimir sýna aö ef hugarfarið er ekki rétt er ekki við góðu að búast. Nú lékum við af okk- ar getu og með þessu áframhaldi gæti framhaldið hjá okkur orðið gott,“ sagði Jakob Sigurðsson, fyrir- Uði Vals, við DV eftir leikinn. Mörk Vals: Brynjar Harðarson 8/3, Valdimar Grímsson 6, Júlíus Gunn- arsson 5, Jakob Sigurðsson 4, Jón Kristjánsson 2, Finnur Jóhannesson 2, Svanur Valgeirsson 1 og Gísh Óskarsson 1. Mörk Kyndils: Andréas Martínsen 7, Andréas Midjord 4, Jonleif Sólsker 2 og Hannes Wardum 1. Krister Bromann og Kent Blademo frá Svíþjóð dæmdu af öryggi en sá fyrmefndi var í sinni 17. íslandsför semdómari! -VS Knattspyma: Ómar þjálfar á Ólafsfirði - hlakka til starfsins, segir Ómar Torfason „Ég Ut björtum augum til nýja starfsins og er bjartsýnn á góðan árangur á næsta keppnistíma • Ómar Torfason í leik með Fram gegn Leiftri sumarið 1988. Nú mun Ómar hins vegar leika og þjálfa liðið. bih. Ég er harður á því að leika með liðinu samhhða þjálfuninni,1' sagði Ómar Torfason, í samtali við DV í gær. Eins og DV skýrði frá í síðustu viku ákvað Ómar að hætta að leika með Fram og í framhaldi myndi hann snúa sér að þjálfun. Ómar, sem er 30 ára að aldri, lék með Fram í tæplega þrjú ár og hefur að baki 39 landsleiki. Ómar lék um þriggja ára skeið í Sviss með Luz- ern og Olten. „Þetta er nýtt og spennandi verk- efni sem ég hlakka til að takst á við. Ég mun strax hefja störf hjá félaginu en stór hluti hðsins dvelst á vetuma við nám hér í Reykjavík þannig að við getum haldið okkur við efniö í vetur. Við munum halda sama mannskap og lék með hðinu í sumar. í maí mun ég síðan halda norður tíl Ólafsfjarðarsagði Óm- ar Torfason ennfremur í spjalhnu viðDV. Leiftur mun á næsta sumri taka í notkun nýjan grasvöll með hita- lögnum og er vonast eftir að hægt verði að taka hann í gagnið seinni hluta sumars ef tíöin verður hag- stæð. -JKS Urvalsdeilaiii í kvold Þrír lelkir veröa í úrvalsdehdinni í körfuknattleik 1 kvöld. Stórleikur kvöldsins verður án efa viðureign KR og Hauka á Seltjamamesi. Grindvíkingar leika gegn Keflvíkingum í Grindavík og í Sandgerði taka Reynismenn á móti Valsmönnum, hvorugt liðið hefur unniö leik á mótinu. Allir leikirair hefiast kl. 20. -JKS Þjálfar Ögmundur Kristlnsson Víking? „Málin hafa verið rædd“ - skýrist fljótlega hvort af verður • Ögmundur Kristinsson í leik með Víkingum fyrir nokkrum árum. Nú getur farið svo að hann þjálfi lið Víkings á næsta keppnistímabili. Víkingar hafa rætt við Ögmund Kristinsson, fyrrum markvörð sinn, um að þjálfa hð þeirra í 1. deildinni í knattspymu á næsta keppnistíma- bili. „Málin hafa verið rædd og það skýrist fljótlega hvort af þessu verð- ur. Það væri freistandi verkefni að taka við Víkingsliðinu, sem ég tel að búi meira í en það hefur náð að sýna. Þar eru margir ungir og efnilegir strákar í 2. og 3. flokki sem eiga fram- tíðina fyrir sér,“ sagði Ögmundur i samtali við DV í gærkvöldi. Ögmundur hefur þjálfað í neðri dehdunum síðustu árin, var með Hauka í 3. deild 1987 og Hveragerði í 4. og 3. deild undanfarin tvö keppn- istímabil. Tvö fyrri tímabhin lék hann jafnframt í marki sinna hða en í sumar lét hann sér nægja að spha einn leik með Hvergerðingum í 3. deildinni. -VS Beveren fylgist með Rúnari og Eyjólfi - meö tvo útsendara á 21-árs leiknum 1 Rotterdam í kvöld Kristján Bemburg, DV, Belgíu: Tveir fuhtrúar frá belgiska 1. deildar félaginu Beveren verða meðal áhorf- enda á leik Hohands og íslands í Evrópukeppni 21 árs landshða í knattspymu sem fram fer í Rotter- dam í kvöld. Annar þeirra er Eddy Ronald, unglingaþjálfari félagsins og „njósn- ari“, og hinn er „innkaupastjóri" Beveren. Þeir verða sérstaklega með tvo íslenska leikmenn í sigtinu, Ey- jólf Sverrisson, sóknarmanninn skæða úr Tindastóli, og Rúnar Krist- insson, miðjumanninn úr KR. Ron- ald sagði í spjalh við DV að þeir væru þó opnir fyrir öhum möguleik- um og myndu fylgjast grannt með öðrum leikmönnum íslenska Uðsins. „Við erum fyrst og fremst að leita að framlínumanni, hann þarf að vera sterkur persónuleiki sem vinnur vel fyrir liðið og skorar mörk. Þannig leikmaður er vandfundinn, en við höfum mestan áhuga á knattspymu- mönnum frá Norðurlöndum. Við höfum fengið okkur fuhsadda á afrí- könskum leikmönnum, þeir em flinkir en húðlatir og hugsa aðeins um sjálfa sig, ekki um liðsheildina," sagði Eddy Ronald. Mikhl uppgangur er hjá Beveren um þessar mundir og félagið hefur fengið mikið íjármagn frá borgar- stjórn Beverenborgar th uppbygg- ingar. Ætlunin er að byggja „við- skiptastúku“ við vöhinn en þar kaupa fyrirtæki sér sæti á þægheg- um, yfirbyggðum stað á vehinum og greiða fyrir það háar fjárhæðir. Be- veren er sem stendur í 12. sætí 1. deildar en stjóm félagsins hyggst láta einskis ófreistað til að koma því í hóp efstu höa. Atíetico Madrid er nú í efsta sæti í 1. deild- inni á Spáni eftir leiki helgarinnar. Real Madrid tapaöi í Barcelona og tyrir vikið féll liðið niður í þriöja sætið. Úrsht í 1. dehd og staðan að loknum sex umferöum er þessi: Barcelona-Real Madrid....3-1 Rayo VaIlecano-MaUorca....0-0 Real Sociedad-Castellon..2-0 Tenerife-Real Oviedo.....2-1 Celta-Osasuna......... 1-1 Logrones-Real Valladolid....l-0 Atletico Madrid-Zaragoza ...2-1 Sporting Gijon-Bhbao.....0-1 Valencia-Sevilla........1-1 Cadiz-Malaga.............0-2 Atletico...6 4 2 0 8-3 10 Sevilla.....6 4 117-39 Real Madride 3 2 1 13-6 8 Bilbao......6 3 2 1 6-3 8 Logrones....6 4 0 2 5-4 8 Rauða stjarnan og Zagreb efst í Júgóslavíu Rauða stjaman og Dynamo Zagreb eru efst jöfn í 1. deild í Júgóslavíu. Tíu um- ferðir hafa verið leiknar og hafa framangreint félög hlotið fjórtán stig. Urslit í 1. deild imi helgina urðu þessi: Partizan Belgrade-Tuzla..1-0 VelezMostar-Sarajevo.....5-1 Osijek-Vardar Skopje.....1-0 Banjaluka-Dinamo Zagreb.. 1-0 Hajduk Spht-Novi Sad.....6-0 Radnicki-Spartak Subotica .1-0 Rijeka- Rauða stjarnan...1-4 Sarajevo-Rad Belgrade....1-0 Titograd-Ljubljana.......OrO Snæfellefstí l.deild karla Snæfell úr Stykkis- hólmi er í efsta sæti 1. deildar karla í körfuknattleik eftir góðan sigur á Breiöabliki í Kópavogi á sunnudaginn, 73-84. Hólmarar eru komnir með 4 stig en þeir sigruöu Bol- víkinga, einnig á útivehi, 67-74, í fyrsta leik. Breiöablik mátti þola tvö töp um helgina því á fostudags- kvöld tapaði liöið fyrir UMSB í Borgarnesi, 74-60. ÍS vann Létti létt, 75-35, og á Eghsstöð- um beið UÍA óvænt lægri hlut gegn Akumesingum, 53-66. UÍA var í baráttu um urvals- deildarsæti í fyrra en Akumes- ingar era nú meö á ný eftir nokkurt lilé. Reykjavikurliðin töpuðu öil Haukastúlkur unnu stórsigur á KR, 66-38, í 1. deild kvenna í körfuknattleik um helgina. Önnur úrslit í fyrstu umferð urðu þau aö Keflavík sigraði ÍR, 78-56, og Njarðvík lagði ÍS að velli, 47-45. Liðin úr Reykjaneskjördæmi sigmðu því Reykjavikurliöin i öhum leikjum! Grindavík sat hjá í fyrstu umferð. Arnórfrábærí stöðu miðvarðar Kiistján Bemburg, DV, Belgíu: „Ég er ekki séri með sóknarmennir okkar var frábær ega ánægður ra, en vörnin með Arnór Guðjohnsen sem 1 iesta mann,“ ÍKÍgUl 1/6 MOS, erlecht, eftir 2-0 Beerschot í belgísk pjauan /vnu’ sigurinn á u 1. deildinni í knattspyrau um 1 Arnór var í nýr íelgina. ri stöðu sem miðvöröur hjá ^ leiknum og sá um 2 Vnderlecht í ð taka Simon Tahamata, fyrrum lenska landsliösins Hann gerði það svo l|| .S >0 ata komst aldrei í s leikinn, og samt aldrei að brjóta á h kotfæri allan tiurfti Arnór onum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.