Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1989, Qupperneq 4
4
E>RIÐjÍTDAGUR ,10. OKTÓBER 1989.
Fréttir
Opinberir staifsmenn:
Þriðjungur
sioppið við
kjararýrnun
Samkvæmt útreikningum, sem
launadeild flármálaráðuneyttsins
hefur gert fyrir Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja, hefur þriðj-
ungur af félögum bandalagsins í
störfum hjá ríkinu fengið meiri
kauphækkanir en sem nemur
hækkun framfersluvísitölu frá
því samningar voru gerðir. Þetta
eru þeir félagar sem laegst hafa
launin. Aðrir, tveir þriðju hlutar
féiaga bandalagsins, hafa hins
vegar orðið aö þola kjaraskerð-
ingu upp á um 4 til 5 prósent.
Eins og fram kom í DV á laugar-
daginn hefur tæpur fimmtungur
ríkisstarfsmanna í bandalaginu
fengið meiri hækkanir en sem
nemur hækkun á búvöru. En við
gerð kjarasamninga lofaði ríkis-
stjórnin að verð á búvöru yrði
ekki umfram launahækkanir til
lágtekjufólks. Miöaö við þetta er
lágtekjufólk tæplega 3 þúsund
manns af um 17 þúsund félögum
Bandaiags starfsmanna ríkis og
bæja. -gse
Akureyri:
Jeppinn
fólksbflnum
Gyifi Kristjánason, DV, Akureyii
Ökumenn tveggja bifreiða voru
fluttir á sjúkrahús á Akureyri á
laugardagskvöld eftir mjög harð-
an árekstur á gatnamótum Hörg-
árbrautar og Hiiðarbrautar.
Lada fólksbifreið var ekið af
Hlíðarbraut inn á Hörgárbraut,
fram með annarri bifreið sem
hafði numið staðar við gatnamót-
in. Range Rover jeppabifreið, sem
var á leið inn í bæinn, skall á
fólksbifreiöinni og velti henni á
undan sér áður en fólksbifreiðin
lenti undir jeppanum.
ökumennirnir voru einir í bif-
reiöunum. Ungur maður, sem var
í fólksbifreiðinni, slasaðist aivar-
lega á höfði og var fluttur meðvit-
undarlaus á sjúkrahús en kona,
sem ók jeppanum, slasaöist
minna. Fólksbifreiðin er gjörónýt
eftir áreksturinn en jeppinn
minna skemmdur.
Suðureyri við Súgandaflörð:
Kögurás kaupir
eignir Bylgjunnar
- kúfiskskipið Villi Magg fylgir þó ekki með í kaupunum
Undirritaöur verður í dag kaup-
samningur milli fiskvinnslufyrir-
tækisins Köguráss á Suðureyri og
Landsbankans um aö Kögurás kaupi
eignir Bylgjunnar á Suöureyri.
Landsbankinn keypti eignirnar fyrir
12,5 milljónir króna á nauöungar-
uppboöi fyrr á þessu ári. Kúfiskskip-
ið Villi Magg er ekki inni í kaupum
Köguráss þar eð Byggðasjóður keypti
hann á uppboðinu.
Sveinbjöm Jónsson, aðaleigandi
Köguráss, sagöi í samtali við DV að
þeir væru fyrst og fremst að kaupa
fiskvinnsluhús Bylgjunnar með öll-
um búnaði. Þar eru tæki til frysting-
ar og aðstaða til hausaþurrkunar.
Sveinbjörn' sagði aö Kögurás væri í
360 fermetra húsnæði og það væri
orðið nokkuð þröngt um starfsem-
ina. Þess vegna hefði verið ráöist í
þessi kaup. Hjá fyrirtækinu starfa 20
til 25 manns að jafnaði og sagðist
Sveinbjörn búast við að þeim fjölgaði
á næstunni.
Kögurás rekur venjulegt frystihús
og verkar afla smábátanna á staön-
um. Fyrirtækið hefur gert mikið að
því að frysta steinbít fyrir Frakk-
landsmarkað og hefur sú verkun
gengiö vel.
Sveinbjörn var spuröur hvort hann
hefði áhuga á að kaupa kúfiskskipið
Villa Magg. Hann sagðist hafa áhuga
á kúfiskvinnslu. Skipið hefði sannað
veiðigetu sína en það væri ekki
rekstrargrundvöllur fyrir það ef kú-
fiskurinn færi að mestu leyti í beitu.
Hann sagðist viss um að markaður
fyrir kúfisk væri fyrir hendi erlend-
is. Þaö kostaði hins vegar mikla
vinnu og peninga að komast inn á
markaðinn. Ef það tækist væri kú-
fiskurinn gullnáma.
-S.dór
Komnir til byggða á ný. F.v.: Magnús Jósefsson, Steinnesi, Magnús Olafsson, Sveinsstöðum, Reynir Steingrims-
son, Hvammi, og Jón Pálmason, Hnausum.
Flogið til fjárleita
Magnús Ólafssan, DV, Húnaþingi:
Litlar flugvélar eru til margra hluta
nytsamlegar, m.a. hefur fjögurra
sæta flugvélin, sem ég á hiut í, kom-
ið sér vel við eftirleitir á afréttum
okkar undanfarin ár. Nýlega fórum
við fjórir bændur á henni til þess að
huga aö fé á Grímstungu- og Haukag-
ilsheiði. Samtímis voru 12 gangna-
menn ríðandi á afréttinni í seinni leit.
Þegar við sáum kindur sendum við
næsta gangnamanni orðsendingu í
plastpoka og varð þetta í sumum til-
fellum til þess að ldndur náðust sem
annars hefðu orðið eftir. Stundum
sparaði þetta líka ríðandi mönnum
för yfir ógreiðfært land þegar við
gátum kannað það úr lofti og séð að
þar var engin kind.
Skyggni var afburðagott þegar við
vorum á ferö og höfum.við ríka
ástæðu til að ætla að þessi samhæföa
leit ríðandi og fljúgandi manna hafi
tekist mjög vel og vonum að engin
kind sé nú eftir á okkar afrétti.
Heynir Traustasœi, DV, nateyri:
Mjög góð karfaveiöi hefúr veriö
að undanfömu suður af Reykja-
neshrygg f Skerjadýpi og hafa
togarar fenglö allt að 30 tonnum
í hoii, Aflinn hefúr þó verið mjög
misjafn híá skipunum, frá hálfu
tonni á klukkustund að meðaltali
upp í rúm tvö tonn á klukku-
stund.
Ásteöan fyrir hinum misjafna
árangri er sú að veitt er í flot-
troll og hafa þau skip, sem eru
með þær vörpur senx notaðar
vom í úthafskarfanum fyrr á ár-
inu, náð afgerandi bestum ár-
angri. Þess má geta aö hæðin í
opi þeirra er 72 metrar en sam-
svarandi hæð í hefðbundinni flot-
vörpu er 25-35 metrar. Hugsan-
legt er að tilkoma þessa veiöar-
færis valdi byltingu í árangri við
karfaveiðar á einstökum svæð-
um.
Ægri Kriatinssan, DV, Fáskxúöafirði:
Fyrsta síldin á Austflarðamið-
um í haust barst til Fáskrúös-
fjarðar um áttaleytið í gærmorg-
un. Þá lagöist Guðmundur Krist-
inn SU að bryggju með 50 tonn
af failegri síld sem báturinn
veiddi við Papey.
Síldin var söltuð í gær hjá Pól-
arsfld hf.
bílútaf
Kind hijóp í veg fyrir bfl á móts
við bæinn Ytri-Tungu á Tjömesi
með þeim afleiðingum að öku-
maður missti stjóm á bflnum.
BÍUinn fór út af veginum og valt.
Ökumaður var einn í bílnum.
Hann var fluttur á sjúkrahús og
fékk að fara heim aö lokinni skoö-
im. Hann kvartaði þó undan
eymslum í baki. Bíliinn er jap-
anskur og er talinn ónýtur.
í dag mælir Dagfari
Þorsteinn, Davíð, Friðrík
Dagfari hélt því fram í gær að Dav-
íð heföi bjargað Sjálfstæðisflokkn-
um. Það var Davíð sem kom og lag-
aði forystuímyndina með því aö
gefa kost á sér til varaformanns.
Hann heföi sömuleiðis gefið kost á
sér til formennsku ef hann heföi
mátt vera að því. Davíð ætlar að
vera borgarstjóri til aldamóta, en
lætur samt tilleiðast að taka að sér
varaformennsku, til aö bjarga
Sjálfstæðisflokknum. Þetta er allt
göfugmannlega gert af Davíö Odds-
syni og hann hefur vissulega fórn-
aö sér í þágu flokksins.
En þaö em fleiri heldur en Davíð
sem hafa fómað sér. Friðrik Sop-
husson á einnig sérstakar þakkir
skfldar fyrir að hafa dregið sig í
hié. Friðrik var ákveðinn í því aö
halda áfram sem varaformaður í
upphafi landsfundar enda búinn
aö vera lengi varaformaður og
þekkir starflð vel. Hann sagði sjálf-
ur svo frá í ræðu á landsfundinum
að hann heföi haft það að leiðar-
ljósi í varaformennskunni aö gera
aldrei ágreining við formanninn til
að halda friðinn og skapa einingu.
Þessi maður, sem hafði lagt sig í
iíma við að skapa flokkseiningu og
bræðraþel í Sjálfstæðisflokknum,
var hins vegar orðinn slíkt vanda-
mál í Sjálfstæöisflokknum, aö stór-
ir hópar landsfundarfulltrúa komu
til Davíðs Oddssonar og báðu hann
um að gefa kost á sér í stað Friö-
riks. Og Davíð sá að þetta var rétt
hjá landsfundarfulltrúum og lét til-
leiðast til að losna við Friðrik.
x Það var þá sem Friðrik Sophus-
son varð loksins stór í augum
landsfundarfulltrúa. Hann dró sig
í hlé. Hann sagðist vera hættur sem
varaformaður. Landsfundarfull-
trúar voru svo glaðir að þeir stóðu
alhr upp og hylltu þennan nýja
Ágústínus, sem játaði á sig synd-
imar og viðurkenndi að hann væri
stærsta vandamálið í Sjálfstæðis-
flokknum. Allt í þágu flokkseining-
arinnar. Þorsteinn formaður sagði
að svona ákvarðanir tækju aðeins
stórir og stórhuga menn og grét af
gleði eins og allir hinir.
En svo má heldur ekki gleyma
Þorsteini sjálfum þegar flokksein-
ingin er annars vegar. Sumir vildu
að hann færi frá. Þeir vom margir
sem vildu aö Davíð tæki við for-
mennskunni. En Davíð er góðhjart-
aður og göfugur og vildi ekki
stugga við Þorsteini til að stugga
ekki við flokkseiningunni. Hann
vildi skapa einingu um Þorstein.
Og Þorsteinn sá að hann gat ekki
hætt þvert ofan í alla flokkseiningu
og gaf kost á sér. Þetta var stór-
huga ákvörðun og einhver minni
maður heföi sjáifsagt dregiö sig í
hlé, þegar hann sá að það átti að
fóma varaformanninum, sem allt-
af haföi staðið vörð um flokksein-
inguna. En Þorsteinn Pálsson tek-
ur flokkseininguna fram yflr sjálf-
an sig og bauð sig fram sem for-
maður og landsfundurinn kaus
hann meö öllum þorra atkvæða til
að sýna eininguna út á við.
Þannig vora þeir hver um annan
þveran, Davíð, Friðrik og Þor-
steinn, að hugsa um flokkseining-
una, þegar þeir ýmist gáfu kost á
sér eða gáfu ekki kost á sér. Maður
veit eiginlega ekki hvemig Sjálf-
stæðisflokkurinn færi að ef hann
hefði ekki svona göfuga menn í
framboði, sem ýmist fara í framboö
eða fara ekki í framboð í þágu
þeirrar flokkseiningar, sem kemur
fram í því hjá Sjálfstæðisflokknum
að afstýra kosningum og fóma
mönnum sem hafa staðið í því að
efla flokkseininguna.
Hvaö hefði til dæmis gerst á
landsfundi ef Davíð heföi ekki fal-
list á að fara í varaformanninn?
Þá heföi Sjálfstæðisflokkurinn se-
tið uppi með Friðrik sem varaform-
ann og mátt una því 1 tvö ár í viö-
bót að varaformaðurinn hefði hald-
ið áfram að stuðla að flokkseiningu
og enginn landsfundarfulltrúi heföi
uppgötvað hvað' hann var stór
maður á stómm stundum. Og eng-
inn hefði áttað sig á því hvað Davíð
var stór maður að gefa kost á sér
í varaformennsku í þágu flokksein-
ingarinnar, ef hann heföi neitað aö
fella fyrrverandi varaformann til
að skapa flokkseiningu. Síðast en
ekki síst heföi Sjálfstæðisflokkur-
inn setið uppi með Þorstein sem
formann, án þess að gera sér grein
fyrir því hvað hann er mikilvægur
í þágu flokkseiningarinnar.
Dagfari