Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1989, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1989.
7
Viðskipti
Hræðsla 1 gangi vegna alþjóðlegra tölvuvírusa:
Þrír vírusar verða
virkir á föstudaginn
Föstudagurinn 13. október næst-
komandi veröur enginn venjulegur
föstudagur í tölvuheiminum. Þá
verða /þrír alþjóölegir tölvuvírusar
virkir. Þetta eru vírusarnir Jerúsai-
em, Data Crime og sá þriðji sem ætt-
aður er frá Suður-Afríku. Þeir eiga
það sameiginlegt að herja á PC-tölv-
ur. Jerúsalem-vírusinn er langal-
gengasti tölvuvírusinn í Bandaríkj-
unum og einn af þremur algengustu
í Englandi. Hann hefur einnig fund-
ist á íslandi en er mjög sjaldgæfur.
„Ég tel enga ástæðu til óþarfa
taugaveiklunar hér á landi á föstu-
daginn. þessi dagur ætti þó að minna
menn á að gæta sín vegna tölvuvír-
usa,“ segir Friðrik Skúlason tölvun-
arfræðingur en hann hefur smíðað
hið þekkta forrit, Lykla-Pétur, sem
vinnur gegn vírusum; finnur þá, eyð-
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 8-11 Úb,V- b,S- b.Ab.Sp
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 8,0-13 Úb.Vb
6mán. uppsögn 9-15 Vb
12mán.uppsögn 9-13 Úb.Ab
18mán.uppsögn 25 Ib
Tékkareikningar, alm. 2-5 Sp
Sértékkareikningar • 4-11 Vb.Sb,-
Innlán verðtryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 0,75-2 Vb
6mán. uppsögn Inrrián með sérkjörum Innlángengfetryggð 2,5-3,5 Ib
10-21 Vb
©
Bandaríkjadalir 7,25-8 Ab.Sb
Sterlingspund 12,5-13 Sb,
Vestur-þýsk mörk 5,75-6,25 Ib.Ab
Danskar krónur 8-8,75 Bb.lb,- Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 26-29 • Ib.V- b.Sb.Ab
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 28-32,25 Vb
Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(vfirdr.) 30-35
Utlán verðtryggö
Skuldabréf 7,25-8,25 Ib.V-
b.Ab
Utlántilframleíðslu
Isl.krónur 25-31,75 Vb
SDR 10,25 Allir
Bandaríkjadalir 10,5-10,75 Úb
Sterlingspund 15,5 Allir
Vestur-þýsk mörk 8.25-8,75 Úb.S-
.b.Sp
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 40,8
MEÐALVEXTIR
óverðtr. okt 89 27,5
Verðtr. okt. 89 7.4
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala okt. 2640 stig
Byggingavísitala okt. 492 stig
Byggingavísitala okt. 153,7 stig
Húsaleiguvisitala 3,5% hækkaði 1. okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,265
Einingabréf 2 2,359
Einingabréf 3 2,798
Skammtimabréf 1,463
Lifeyrisbréf 2,144
Gengisbréf 1.898
Kjarabréf 4.240
Markbréf 2,244
Tekjubréf 1,794
Skyndibréf 1.279
Fjölþjóðabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 2,053
Sjóðsbréf 2 1,610
Sjóðsbréf 3 1,445
Sjóðsbréf 4 1.210
Vaxtasjóðsbréf 1.4500
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv :
Sjóvá-Almennar hf. 302 kr.
Eimskip 383 kr
Flugleiðir 170 kr.
Hampiðjan 167 kr.
Hlutabréfasjóður 140 Rr.
Iðnaðarbankinn 166 kr.
Skagstrendingur hf. 216 kr.
Útvegsbankinn hf. 142 kr.
Verslunarbankinn 148 kr.
Tollvörugeymslan hf. 110 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavixlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
Friðrik Skúlason tölvunarfræðingur. Hann er höfundur forritsins Lykla-
Péturs sem þetar uppi tölvuvírusa, útrýmir þeim og bólusetur torrit gegn
frekari ásókn tölvuvírusa.
ir þeim og bólusetur loks forrit gegn
öðrum vírusum.
Mikil föstudagsspenna
Þegar hefur gripið um sig nokkur
spenna á meðal eigenda tölva vegna
föstudagsins. í frétt frá Reuter segir
frá vamarforriti hollensku lögregl-
unnar og Erasmus háskólans í Rott-
erdam sem hefur verið gefið út og
selt vegna vírussins Data Crime II
en hann er upprunninn í Hollandi
og afbrigði af þýska vírusnum Data
Crime.
„Data Crime hefur fundist á mjög
fáum stöðum. í mínum huga er hann
meira eins konar íjölmiölavírus. Ég
tel of mikið vera gert úr honum í fjöl-
miðlurn," segir Friðrik Skúlason.
Jerúsalem sá algengasti
Að sögn Friðriks er Jerúsalem-
vírusinn langalgengasti vírusinn af
þeim þrem alþjóðlegu virasum sem
verða virkir á föstudaginn. „Þetta er
vírus sem kom fyrst upp í ísrael.
Hann er þannig að sérhvern föstudag
sem her upp á 13. dag mánaðar verð-
ur hann virkur og fer í gang í smituð-
■um forritum, sem eru keyrð þennan
dag, og eyðir þeim.“
Friðrik segir ennfremur Jerúsal-
em-vírusinn hafi borist hingað til
lands í gegnum forrit erlendis frá.
„Fyrst í stað bárust vírusar hingaö
fyrst og fremst með leikjaforritum.
Nú herst þetta með hveiju sem er.
Þetta er eins og með Aids-veiruna.
Áður tengdist hún ákveðnum
áhættuhópum en síðan breiddist hún
út til allra þjóðfélagshópa."
Sá frá Suður-Afríku
Annar vírus, sem verður virkur á
föstudaginn, er ættaður frá Suður-
Afríku. „Þetta er mjög sjaldgæfur
vírus og hefur ekki fundist ennþá
hérlendis,“ segir Friðrik.
Um þriðja vírusinn, Data Crime,
sem verður virkur á föstudaginn,
segir Friðrik að honum hafi verið
sleppt lausum í mars síðastliðnum.
„Data Crime eyðileggur öll gögn á
hörðum diskum. PC-tölvur sem ekki
eru með harða diska eru því ekki í
hættu. Það er engin ástæða til að
ætla að þessi vírus sé til hérlendis
en það er þó hugsanlegt. Það er vitað
um 7 tilfelli í Bandaríkjunum af Data
Crime og 50 í Evrópu. Þetta er því
ekki útbreiddur vírus."
Fyrstu tölvuwírusarnir komu til
sögunnar erlendis árið 1986. Síðan
hefur þeim fjölgað hægt og sígandi
og nú er svo komið að tölvuvírusar
eru orðnir algengir úti um allan
heim. Talið er að í Bandaríkjunum
smitist 500 tölvur af vírusum dag-
lega. Þar af áætla Bandaríkjamenn
að 200 nýjar tölvur smitist af Jerúsal-
em-vírusnum.
Fimm tölvuvírusar á íslandi
Á íslandi hefur orðið vart við fimm
tegundir tölvuvírusa. Þeir eru
Boltavírus, Haustvírus, Brain-vírus-
inn, Jerúsalem og íslenski vírusinn.
Sá síðastnefndi dregur nafn sitt af
því að hann er skrifaður á íslandi
og því ættaður hérlendis, sá eini ís-
lenski sem enn er vitað um.
Að sögn Friðriks hefur íslenski vír-
usinn borist út til ísraels. Þar hefur
hann veriö endurskrifaður að hluta
pg er nýja afbrigðið að gera usla í
ísrael þessa dagana.
Boltavírusinn og Haustvírusinn
eru algengustu tölvuvírusarnir hér-
lendis. Boltavírusinn var þannig að
skyndilega kom bolti inn á skjáinn
sem hoppaði og skoppaði eins og
tennisbolti fram og til baka, sem og
oút á kanta. Hbustvírusinn kom við
sögu á síðasta*ári en hann vann með
þeim hætti aðtef dagsetningar í okt-
óber, nóvember og desember árið
1988 komu fyrir þá byrjuðu stafir að
hrypja og loks hrundu þeir allir með
tölu.
Lykla-Pétur fluttur út
Loks má geta þess að varnarforrit
Friðriks, Lykla-Pétur, hefur selst vel
hérlendis. Sömuleiðis hefur Friðrik
hafið útflutning á því.
-JGH
NÓV S M » M F F V
T 2 3 4
5 • 7 3 9 10 H
12 13 M B 1« 17 18
» 20 21 22 23 24 2S
26 27 28 29 30
M Þ M F F L vika
2 3 4 5 6 7 40
9 lO H bQw 4i
16 17 18 19 20 21 42
23 24 25 26 27 28 43
30 31 44
Næstkomandi föstudags er beðið með mikilli spennu á meðal töivumanna
um allan heim. Þá verða þrír tölvuvírusar virkir.
Kúluhúsiö í Öskjuhlíð:
700 milljóna pakki
Tilboð í rekstur veitingahúss Hita-
veitunnar í Öskjuhlíð voru opnuð í
gær. Tfu veitingamenn sóttu um,
þeirra á meðal voru Skúli Þorvalds-
son, Hótel Holti, Bjarni Ámason,
Hótel Óðinsvéum, og Skúli Hansen,
Amarhóli. Veitingastaðurinn verður
tilbúinn um mitt ár 1991.
í tilboðunum kemur fram hve háa
leigu veitingamennirnir eru tilbúnir
að greiða fyrir veitingahúsið en ekki
fengust tölur um það upp gefnar í
gær.
Heildarkostnaðurinn við bygging-
una verður um 600 til 700 milljónir
króna þegar upp verður staðið, sam-
kvæmt áætlun.
Veitingastaðurinn verður á 5. hæð
hússins. Hann mun taka 200 manns
í sæti og er 75 metra yfir sjávarmáh.
Auk þess eru í byggingunni salir fyr-
ir ráðstefnur, fundi, konserta og sýn-
ingar.
-JGH
Kílóið af æðardún selst nú á yfir 23 þúsund krónur.
Hlutabréf í
Arnarflugi
á sérkjörum
Arnarflug er með skammtíma átak
í sölu hlutabréfa á sérkjörum í félag-
inu. í boði eru 50 þúsund króna
hlutabréf og fær handhafi hvers
bréfs tvo farseðla. Þá eru 100 þúsund
króna hlutabréf í boði og fær hand-
hafi fimm farseðla. Hægt er að greiða
hlutabréfin með greiðslukortum.
Þess má geta að hlutabréf að upphæð
100 þúsund veitir hjónum 37.700
króna skattaafslátt. í raun er því
verið að greiða 63.300 krónur fyrir
fimm farseðla fram og til baka.
Kúluhús Hitaveitunnar i Öskjuhlið.
Fresturinn til að senda inn tilboð i
veitingareksturinn rann út um helg-
ina.
Utlendir óðir í æðardún
- kílóiö á 23 þúsund krónur
Útlendingar eru vitlausir í íslensk-
ari æðardún og er hann mest seldi
æðardúnn í heimi. Ekki hefur verið
hægt að anna eftirspurn. Á síðasta
ári seldu íslenskir bændur út 3,1 tonn
af æðardún fyrir um 72 milljónir
króna en það gerir hvorki meira né
minna en 23.226 krónur fyrir kílóið.
Helstu útflutningslönd eru Vestur-
Þýskaland, Japan, Bretland og Taiw-
an. Ennfremur er flutt út nokkurt
magn til Kanada, Danmerkur, Nor-
egs og Bandaríkjanna.
Útflutningur á æðardún hefur auk-
ist ár frá ári. Árið 1986 voru flutt út
2,1 tonn fyrir um 35 milljónir króna
sem gerir tæplega 17 þúsund krónur
á kílóið. Árið 1987 voru flutt út 3,1
tonn fyrir um 54 milljónir króna. Það
gerir um 17.400 krónur fyrir kílóið.
Dúntekja fer enn vaxandi og nýting
dúns er góð. Að markaðsmálum
vinna fyrst og fremst þeir sem flytja
dúninn út. Auk þess hefur Æðar-
ræktarfélag íslands og æðarræktar-
ráðunautur Búnaðarfélags íslands
komið við sögu í að kynna æðardún-
inn. -JGH