Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1989, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Oreifing: Simi 27022
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1989.
Héldu á brott
með ýtfrandi
peningaskáp
„í peningaskápnum er svokallað
kvikasilfurskerfi sem á að ýlfra þeg-
ar skápurinn er hreyfður. Það er því
sennilegt aö þjófarnir hafi farið með
skápinn ýlfrandi út,“ sagði Steinar
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Múlalundar viö Hátún, í morgun.
Tiikynnt var um innbrot og stuld
á peningaskáp úr skrifstofu vinnu-
stofunnar Múlalundar við Hátún 10
á sunnudagsmorgun. Þjófarnir höfðu
peningaskápinn á brott með sér en í
honum voru ávísanir upp á mörg
hundruð þúsund krónur, ýmis skjöl
og 10-20 þúsund krónur í peningum.
Rannsóknarlögreglan hefur málið
til meðferðar en ekki er vitað hvort
þetta innbrot tengist á einhvern hátt
innbrotinu í Bónusverslunina við
Faxafen sömu nótt.
Steinar Gunnarsson sagði í samtali
við DV í morgun að ekkert öryggis-
kerfi heföi til þessa verið á þessum
vinnustað.
„Það verður sett upp núna,“ sagði
Steinar. htt
Foldu sig fynr
öryggisvörðum
Á meðan imibrotsþjófar voru að gang. Þeir urðu einskis varir. Aug- um þær tæpu tvö hundruð þúsund
athafna sig í Bónusversluninni við lýsingaskilti höfðu fallið niður og krónur í skiptimynt sem voru í
Faxafen aðfaranótt sunnudagsins töldu öryggisverðimir að að skiltin honum. Þeir létu peningakassa í
fór þjófavamarkerfið í gang. Ör- hefðu komið öryggiskerfinu í gang. búöinni eiga sig og hreyfðu heldur
yggisverðir komu á staðinn en Þegar þeir komu var ekkert grun- ekki við fjárhirslum í binum versl-
urðu ekki varir við þjófana sem samiegtaðsjáviðpeningaskápmn. ununum. Talið er að innbrotsþjó-
gátu haldiö áfram iðju sinni og Talið er að þjófarnir hafi skriðið famir hafi komið vel undirbúnir
haft með sér um tvö hundrað þús- í gegnum gat á þilinu sem er á til verksins.
und krónur. milli Bónusverslunarinnar og Árni Guðmundsson, aðstoðar-
Þjófarnir tóku sér góðan tíma til versiunarinnar Z-brautir og falið framkvæmdastjóri Securitas, sagði
að athaftia sig og brutu gat á veggi sig þar eftir að þjófavarnakerfið fór við DV að hann vildi ekki tjá sig
í tveimur aðliggjandi verslunum til í gang. Gatið á veggnum var fyrir um innbrotiö að sinni. „Málið er í
að komast á leiðarenda - að pen- neðan vask Bónusmegin og drógu rannsókn og viö getum í rauninni
ingaskápnum. þjófamir skúringavagn fyrir svo ekkert sagt á meðan hlutirnir hafa
Oryggisverðir frá Securitas gatið sæist ekki. ekki skýrst betur“ sagði Ámi.
komu að kanna aðstæður á meðan Þegar öryggisverðirnir vom -ÓTT
innbrotsþjófamir vom á staðnum, famir fóm þjófarnir aftur á stjá -
en þjófavamakerfið haföi íariö í brutu upp skápinn og tóku úr hon-
Eldsvoði eystra:
„Drengurinn
bjargaði
blokkinni“
„Ég er heppin að eiga svona dugleg-
an strák. Hann vakti mig þegar reyk-
urinn barst inn í herbergið hans og
svo hijóp hann strax yfir í næstu íbúð
eftir hjálp. Hann er sjö ára og bar sig
að eins og hann hefði aldrei gert neitt
annað. Eg hefði örugglega aldrei
vaknað aftur ef hann hefði ekki vak-
ið mig. Reykurinn var orðinn svo
þéttur að það sást ekki í gegnum
hann enda kviknaði meðal annars í
plastmöppum sem eru í hillunum -
það var niðamyrkur,“ sagði Hrafn-
hildur Borgþórsdóttir sem býr í
blokkaríbúð á Seyðisfirði sem eldur
kom upp í í fyrrinótt.
„Ég gleymdi að slökkva á kerti og
sofnaði út frá því. Stubburinn hefur
dottið á blöð á gólfmu og parketið
brann. Síðan tókst mér og nágrönn-
unum að slökkva eldinn eftir að
strákurinn hafði gert viðvart. Það fór
því ekki eins illa og hefði getað farið.
Ég sagði viö strákinn að hann hefði
bjargað blokkinni enda er mikið til
í því. Það kom aldrei fát á hann í
þessu öllu saman. Ég ældi hins vegar
á eftir og hef haft sviða í öndunarfær-
unum. En strákurinn bjargaði lífi
mínu“.
-ÓTT
Þessi myndarlega hrygna verður kynmóðir margra laxa sem veiðast í Vatnsdalsá á komandi árum.
DV-mynd Magnús
LOKI
Dugar nú hvorki ýlfur
né öryggisverðir?
Veðrið á morgun:
Suðlægir
vindar
Á morgun leikur suðlæg vind-
átt um landiö, víðast 5-6 vindstig.
Skýjað verður um allt land og
víðast einhver úrkoma. Hitinn
verður 4-8 stig.
Varðstjóri nefbrotinn:
Eigum alltaf
von á þessu
„Það kom mjög drukkinn maður á
stöðina og sagðist hafa verið rændur.
Það var mjög erfitt að ræða við
manninn og eftir að ég og fangavörð-
ur hötöum róað hann niður kom í
ljós að hann sagðist hafa verið rænd-
ur veski sínu á Hlemmi. Skömmu
síðar var hringt og sagt að á Hlemmi
væri maður sem hefði séð árásina.
Ég labbaði yfir á Hlemm til að ræða
við vitnið. Þegar þangað kom var
mér sagt að vitnið hefði labbað upp
með Búnaðarbankanum," sagði
Grétar Norðfjörð, varðstjóri í lög-
reglunni í Reykjavík.
„Skömmu síðar komu tveir menn
gangandi í átt að Hlemmi og var ann-
• ar þeirra sá sem átti að hafa séð rán-
ið. Þeir gengu fram hjá Hlemmi og
ég kallaði til þeirra. Mennirnir voru
að drekka en voru ekki áberandi ölv-
aðir. Þegar ég fór að ræða við þá
svöruðu þeir því til hvort þeim væri
ekki fijálst að drekka sitt vin. Ég bað
þá að koma með mér inn á stöð þar
sem ég þyrfti að ræða frekar við þá.
Þá hljóp annar þeirra og ég elti hann.
Ég taldi hugsanlegt að .hann væri
með veskið.
Ég náði honum eftir um hundrað
metra. Þegar ég hélt honum fór hann
að slá mig í andlitið. Hann kom
nokkrum höggum á mig. Vegfarend-
ur létu lögreglu vita og mér barst
fljótlega hjálp,“ sagði Grétar Norð-
fjörð.
Við læknisskoðun kom í ljós að
Grétar hafði nefbrotnað.
„Þetta er það sem við eigum alltaf
von á. Þessi maður er okkur vel
kunnur þar sem við höfum oft þurft
að hafa afskipti af honum. Ég veit
ekki til þess að hann hafi áður slasað
eða meitt lögreglumann." -sme
Sækja klak-
fisk í árnar
Magnús Ólafsson, DV, Húnaþingi:
Þegar laxveiðitíma er lokið ár hvert
eru hrygnur teknar úr mörgum ám
til þess að nota í klak. Þetta er gert
með sérstöku leyfi landbúnaðar-
ráðuneytis og samkvæmt umsögn
Veiðimálastofnunar.
í haust voru teknar fjórar hrygnur
og nokkrir hængar úr Vatnsdalsá en
fyrr í sumar höfðu sjö hrygnur, sem
veiðimenn veiddu á flugu, verið
teknar í búr. Það vakti athygli
manna þegar klakfiskur var tekinn
úr Víðidalsá að þaö virtist vera mik-
ið um lax í ánni, mun meira en menn
höfðu átt von á miðað við hvernig
veiðin var í sumar.
Lax úr húnvetnsku ánum er fluttur
í eldisstöðina að Hólum í Hjaltadal
en þar fer klakið fram.
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
GÓÐIR BÍLAR
ÁGÆTIR BÍLSTJORAR
Kentucky
Fried
Chicken
Hjallahrauni //, Hafnarfirði
Kjúklingarsem bragð erað.
Opið alla daga frá 11—22.