Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1989, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR & NÓVEMBER 1989.
7
dv Sandkom
Vestfirska
fréttablaðiö
birtirvikulega
aflafréttirfrá
öllumútgcrð-
arstöðum á
Vesttjörðum.
Oftasterþar
hváupptalning
á liindunum ng
!S afla i'instakra
bátaogskipa.
Nýlega mátti lcsa góða tilbrey tingu
þará. Á Flateyri hafði heimildarmað-
ur Vestfirska fréttablaösíns glænýjar
upplýsingar um hvernig Jesús fór að
þvíaðmetta íimm þúsund manns
raeö tveimur smáflskura. Flateyring-
urinn telur að smáfiskarnir tveir
hafi verið það sem Jesús gaf upp á
kvótaskýrslum - en ekki er vitaö
hversu marga flska hatm raunveru-
lega hafðí. Ef þessi kenning Flateyr-
ingsins er rétt - þá er kvóti nn mun
cldri en mcnn hafa talið til þessa og
alls ekki sköpunai'verk Ilalldórs As-
grímssonar heldur allt annars og
ekki síðri kraftaverkamanns.
Vestfirðingur
■Ritstjóri Vest-
fu-skafrétta-
blaðsinsbauð
sjálfumsérog
barni sínu í
leikhús í
Reykjavík. í
blaði ritstjór-
anssegiraðþað
séísjálfusér
ekkiífrásögur
færandi-enda
rétttilgetið. Hvaö kemurfólki við
þó ritstjóri bregði sér i leikhús? Rit-
stjóm Vestfirska fréttabiaðsins þótti
þó ástæöa tíl að segja frá leikhús-
; ferðinní. Hér kemur ástæðan. Rit-
stjórinn hegðaði sér undarlega. Og
eftir að fólk var sest og beið þess að
sýningin hæfist var mikiö brölt á rit-
stjóranura í sætinu og hann lét eins
og hann heíði týnt einhvei-ju. Sessu-
nauturritstjóranshorfði áhann
undrandi nokkra stund og spurði síð-
anhvað gengieiginlegaá. „Eg furn
ekkihannsettar sætisólarnarA var
svar ritstjórans. Þetta er sannarlega
skemmtileg saga, ha, ha, ha.
Jónferekki
JonFriögeir
Einars-on,
byggingameist-
ari í Bolungar-
vík.hefurverið
mikiö í frcttum.
Allirvita hvers
vegna.ÍBol-
ungarvíkerlít-
iðgertúrhót-
unum Jónsum
aðhannætlíað
flvtja burt frá staðnum. Helsta rök-
semd þeirra sem fullyrða að Jón fari
ekki er nafit hans. Skammstafað er
nafnið J.F.E. Það útleggst Jón fer
ekki. Svo eru víst tU menn sem hafa
ekki miklar áliyggjur af því hvort Jón
fer eða fer ekkí. Þeir lesa annað út
Úr skammstöfuninni. hað er: Jón
farðu eitthvað, eða Jón farðu endi-
lega, eða Jón fer endanlega. Spenn-
andi hlutir að gerast í Bolmtgarvik.
Sérframboð
óánægðra
sjálfstæðismanna
Vestfirska
fréttablaðið
segn aöheyrst
hafiaðvanga-
veiturséuum
aðbjóðafram
lislaóáuægðra
sjálfsta ói--
mannaiBol-
ungarvík. Slíkt
framboðmun
veráhugsaðtil
heiöurs Jóni Friðgeiri Einarssyni -
sem með sannier hægt að segja að
sé óánægður sjálfstæðísmaður. Og
greinilega ekki sá eini. Jón er senni-
lega sá óánægðasti þar sem hann
hefur hreinlega haft í hótunum. Vest-
firska fréttablaðið segir að þessi
megna óánægja meðal bolvískra
sjálfstæðismamia gefi allaböllum
fullgott tækifæri á að halda þ ví fylgi
sem þeir fengu í síðustu kosningum.
Umíjón: Sigurjón M. Egilsson
Fréttir
Farmanna- og fiskimannasamband íslands:
Klofningur vofir
yfir sambandinu
Klofningur voflr yfir Farmanna-
og fiskimannasambandi íslands.
Vélstjórafélag íslands, sem er lang-
stærsta aðildarfélag sambandsins,
hefur verið uppi með -hótanir um
að ganga úr sambandinu og stofna
Vélstjórasamband íslands.
Það er einkum tvennt sem þeir
vélsfjórar, sem vilja úr samband-
inu, setja fyrir sig. I fyrsta lagi telja
þeir að vélstjórar til sjós séu ekki
metnk til jafns við aðra yfirmenn
um borð í skipum.
í annan stað telja þeir sig ekki
hafa þau áhrif innan Farmanna-
sambandsins, sem þeim beri, miðað
við félagafjölda. Benda þeir á að á
þeim 52 árum, sem Farmanna- og
fiskimannasambandið hefur starf-
að, hafi vélstjórar aðeins átt forseta
þess í 8 ár. Öll hin árin hafi forset-
inn verið úr röðum skipstjórnar-
manna. Kostnaður við að vera í
sambandinu spilar hér inn í líka.
Á þingi Farmanna- og fiski-
mannasambandsins, sem hófst í
gær, verður þetta mál mjög til
umræðu.
Samkvæmt heimildum DV er for-
maður Vélstjórafélagsins, Helgi
Laxdal, tilbúinn að draga í land
með þetta mál. Hann hefur mjög
hvatt til þess að vélstjórar gangi
úr sambandinu, nú í eitt ár. Þó má
vera að það sé of seint fyrir hann
að snúa við blaðinu núna vegna
þess að búið er að magna málið svo
upp við vélstjóra. Sem dæmi má
nefna að einn kjörinn fulltrúi vél-
stjóra á þingið nú mætti ekki í
mótmælaskyni við þá hugmynd
forystu vélstjóra að hætta við að
hætta.
-S.dór
Þessir ungu Akureyringar eru eflaust sáttir við það að vetur sé kominn í höfuðstað Norðurlands. Þeir skemmta
sér greinilega hið besta i ísknattleiknum. Annars þurfa þeir á Akureyri ekki frost til skautaiþrótta þar sem þeir
hafa vélfryst skautasvell. DV-mynd KAE
Guðjón A. Kristjánsson um minnkun þorskkvótans um 10 prósent:
Þýðir 15 prósent launa-
skerðingu hjá sjómönnum
Guðjón A. Kristjánsson, formaður
Farmanna- og fiskimannasambands
íslands, sagði við setningu þings
sambandsins í gær að sú 10 prósent
skerðing á þorskafla, sem stefnt er
að á næsta ári, myndi rýra kjör ís-
lenskra sjómanna um 15 prósent.
Hann sagði jafnframt að líklegt væri
að þær skerðingar, sem sjávarút-
vegsráðherra vill beita við útflutning
á ferskum fiski, komi í veg fyrir að
sjómenn og útgerðarmenn geti mætt
þeim tekjumissi með því að nýta þau
háu verð sem í boði eru fyrir ferskan
fisk erlendis.
Guðjón sagði einnig að tryggja
Hvorugur
vildi víkja
Ökumaður og farþegi í fólksbíl
slösuðust í árekstri við stóran vöru- ■
ílutningabíl á Fjarðarheiði í fyrra-
dag. Áreksturinn varð með þeim
hætti að bílamir voru að mætast við
brú og báðir ökumennirnir héldu að
hinn ætlaði að víkja. Áreksturinn
var mjög harður og er fólksbílhnn
ónýtur. Snjór og hálka voru á þess-
um slóðum. Meiðsl mannanna, sem
voru í fólksbílnum, eru ekki talin
alvarleg. _ÓTT
þyrfti að atvinna drægist ekki of
mikið saman í landi. Því markmiði
sagði hann best náð með því að koma
á fót aflamiðlun sem sjómenn, út-
gerðarmenn og fiskvinnslan stæðu
að sameiginlega. Með því móti yrði
vinnslunni ævinlega gefinn kostur á
að kaupa þann fisk, sem ef til vill
stæði til að flytja út, til sölu á erlend-
um markaði.
Þá benti Guðjón á að sjávarútvegs-
menn hefðu til þessa aúarið hafnað
auðlindaskatti'sem æskilegri framtíð
við stjórnun fiskveiða. Ef menn vilja
koma í veg fyrir að auðlindaskattur
verði tekinn upp hér á landi verði
að móta stefnu til tveggja eða þriggja
ára, sem kemur í veg fyrir- sölu á
óveiddum flski í sjónum milli ein-
staklinga í útgerð. Síðan sagöi Guð-
jón, orðrétt:
„Að öðrum kosti mun ekki verða
komið í veg fyrir að útlendingar eigi
aðgang að fiskimiðum landsmanna
með flármagni sem þess vegna gæti
verið eign, til dæmis, japansks stór-
fyrirtækis. Viðhorf okkar til fisk-
veiðistjórnunar á næstu árum þarf
að taka mið af þessari framtíð.“
-S.dór
Svartolían
gæti sparað
300 milljónir
króna á ári
Guðjón A. Kristjánsson, formaður
Farmanna- og fiskimannasambands-
ins, fullyrðir að hægt sé að spara 200
til 300 milljónir króna á ári ef allur
togaraflotinn notaði svartolíu í stað
gasolíu. Aðeins 20 togarar nota nú
svartolíu. Þeir hafa gert það allar
götur síðan Ólafur Eiríksson vél-
stjóri benti mönnum á þennan spam-
að fyrir nokkrum árum og breytti
brennurum skipanna.
Guðjón leiddi að því getum í ræðu
sinni á þingi Farmanna- og fiski-
mannasambandsins í gær að ástæð-
an fyrir því að útgerðarmenn hefðu
engan áhuga á að spara í olíukostn-
aði væri sú að fiskimenn sömdu um
olíuverðsviðmiðun í skiptaverði til
sjómanna á sínum tíma. Sú stað-
reynd kæmi án efa koma upp á yfir-
borðið við næstu kjarasamninga.
Guðjón, sem sjálfur er skipstjóri á
Páh Pálssyni ÍS, sagði að togari í full-
um rekstri mundi spara 6 milljónir
króna á ári með notkun svartolíu.
Ólafur Eiríksson vélstjóri, sagði í
samtali við DV í gær að það mundi
ekki kosta útgerðarmenn krónu að
skiptayfirísvartolíu. -S.dór
Vilja stofna
aflakaupabanka
Fyrr á þessu ári stofnaði sjávarút-
vegsráðuneytið nefnd sem kölluð er
„aflanýtingarnefnd“. Hún hefur nú
unnið að gerð flögurra ára fram-
kvæmdaáætlunar um markmiðin að
bæta aðferðir í fiskverkun, nýta fisk-
úrgang, nýta aukaafla og skipuleggja
veiðar á nýjum fisktegundum.
í þessu skyni hefur nefndin lagt til
að komið verði upp aflakaupabanka.
Á hann að kaupa þær fisktegundir
sem annars er hent fyrir borð af
frystiskipunum. Aflakaupabankinn
mun kaupa þessar afurðir á föstu
verði og annast sölu hans til þeirra
semviljanýtahann. -S.dór
THAILAND
Verð frá
kr. 69.700
PATTAYA baðstrandarbærinn og BANGKOK
Brottför alla miðvikudaga.
íslenskur fararstjóri í allan vetur.
ÓTRÚLEGT EN SATT -
Nú getum við boðið slíkar
ævintýraferðir á Kanarí-
eyjaverði.
Takmarkað sætaframboð.
= FUJGFERÐIR
= SOLRRFLUC
Vesturgötu 12 - Símar 15331 og 22100.