Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1989, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1989. Fréttir Fyrirgreiösla opinberra sjóða við loðdýrarækt: 2,2 milljarðar á rúm um f jórum árum lán og styrkir upp á flórfaldar árstekjur 1 •; i \ # | • I ' í ffz ; % - s J 1 ; ' * ; "%L>T 5 f ( , Það eru um 40 þúsund refahvolpar í landinu. Það mun leiða til tapreksturs upp á 110 milljónir að ala þá til skinnatöku. DV-mynd: KAE A arunum 1985 til 1986 lánaði Stofnlánadeild landbúnaðarins og Byggöasjóður um 1.520 milljónir á núvirði til loðdýraræktarinnar. Auk þessa styrkti Framleiðnisjóöur greinina um 375 milljónir. Heildar- framlög þessara opinberu sjóða var því rétt tæplega 1.900 milljónir á þessum fjórum árum. Á sama tíma námu samanlagðar útflutningstekjur greinarinnar um 810 milljónum eða rétt rúmum helm- ingi af lána- og styrkjafyrirgreiðsl- unni. Rúmir 2,2 milljarðar á rúmum fjórum árum Á þessu ári mun ríkissjóður bæta við um 128 milljónum í styrki til loð- dýraræktarinnar. Þá gerir Fram- leiðnisjóður ráð fyrir að verja um 206 milljónum af ráðstöfunarfé sínu til styrktar loðdýrum. Samanlagt munu þessir tveir aðilar því styrkja grein- ina um 334 milljónir á þessu ári. Til samanburðar var útflutnings- verðmæti greinarinnar í fyrra 221 milljón á núvirði. Fyrir liggur því aö frá 1985 og fram á þetta ár hefur loðdýraræktin fengið aðstoð upp á um 2.225 milljónir króna. Ofan á styrkveitingar ríkissjóðs og Framleiðnisjóðs eiga eftir að bætast lánveitingar úr Stofnlánadeild land- búnaðarins og lán og styrkir úr Byggðasjóði. í fyrra námu lánveit- ingar þessara tveggja aðila 475 millj- ónum króna. Ef loðdýrin fá jafnmikið í ár og þá nemur samanlagður styrkur ríkis- sjóðs og Framleiðnisjóðs og lánveit- ingar Stofnlánadeildar og lán og styrkir Byggðasjóðs um 810 milljón- um. Það er álíka há upphæö og heild- arútflutningsverðmæti loðskinna ár- in 1985 til 1988. Stuðningur opinberra aöila stefnir því í aö verða um fjór- faldar árstekjur loðdýraræktarinn- ar. 2 milljarða styrkur strax og 500 milljónir á ári Eins og fram hefur komið í DV taldi Byggðastofnun litlar líkur til að loð- dýraræktin gæti staðið undir sér í náinni framtíð í skýrslu sinni frá í sumar. Af skýrslunni mátti ráða að það þyrfi að afskrifa um helming af skuldum greinarinnar, eða um 1.350 til 1.500 milljónir, og auk þess að styrkja hana beint með um 270 millj- ónum á ári og er þá ekki tekið tUlit til launa- eða fjármagnskostnaöar. Ef greinin ætti að standa undir þeim helmingi af skuldunum sem ekki yrði afskrifaður og meðallaunum á þau 206 ársverk sem eru í greininni þyrfti styrkurinn að verða um 520 milljónir. „Ef við Jón hefðum verið uppi á söguöld þá væri líklega búið að drepa okkur,“ segir Bryndís Schram, eigin- kona Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra, í viðtali í nýút- komnu Mannlífi. í viðtalinu eru forsætisráðherra og fjármálaráðherra ekki vandaöar kveðjumar: „Aðalvandi núverandi ríkisstjóm- ar er sá að hún á sér engan mál- svara. Með fullri virðingu fyrir for- Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson Samkvæmt þessu þyrfti að afskrifa um 1.350 til 1.500 milljónir í ár og styrkja greinina um 520 milljónir. Hún þyrfti því 1.870 til 2.020 milljón króna aðstoð strax og síðan 520 millj- ónir á ári. Refurinn éturfyrir meira en skinnaverðið Ástæðan fyrir þessu kemur vel í ljós þegar skýrsla Félags íslenskra loðdýraræktenda frá sama tíma er skoöuð. Þar kemur fram að refur étur fóður fyrir hærri upphæðir en nokkur von er til að fá fyrir skinnið á honum. Ef tekið er tillit til fóður-, verkun- ar- og sölukostnaðar og auk þess launa og fjármagnskostnaðar lætur nærri að það kosti um 4.244 krónur að ala refahvolp þar til hann getur gefið af sér skinn. Markaðsverð er hins vegar ekki nema 1.510 krónur. Mismunurinn 2.734 krónur. sætisráðherra vorum, þá finnst mér hann á stundum hafa brugöist þess- ari skyldu sinni... Hann á að standa meö sínum mönnum og treysta þannig samstarfið og árangurinn. Steingrímur hefur ekki staðið upp til að verja ráðherra sína og þetta er einn hluti skýringarinnar á því af hverju stjómin hefur glatað tiltrú almennings í landinu." „Það er frekar nöturlegt til þess aö hugsa að þegar jafnerfið mál og Það eru um 40 þúsund refahvolpar í landinu. Það mun leiða til taprekst- urs upp á 110 milljómr að ala þá til skinnatöku. Það er minna tap á því að ala minka. Mismunur á kostnaði við ræktun þeirra og verös á skinnum er 862 krónur. Hins vegar eru um 300 áfengiskaupamálin komu upp, þá birtist einn samráðherra Jóns Bald- vins í fjölmiðlum og lét hafa það eft- ir sér að áfengiskaupamálin rýrðu álit þjóðarinnar á stjómmálamönn- um. Og af því að sláturtíðin er rétt gengin um garð þá minnist ég þess að lifrarbandalagið svonefnda var stofnaö hér í eldhúsinu hjá mér fyrir rétt rúmu ári. Ólafur Ragnar Gríms- son væri kannski ekki ráðherra í dag ef það hefði ekki verið Jón Baldvin þúsund minkahvoplpar í Jandinu. Tap af minkaræktinni er því nálægt 259 milljónum króna. Hreint tap af loðdýraræktinni er því nálægt 370 milljónum króna. Þá er ekki reiknað með neinum vanskil- um sem safnast hafa upp meö til- heyrandi fjármagnskostnaði. sem hálfpartinn lyfti honum í þá stöðu. Samt var hann ekki maður til að standa með Jóni þegar öll spjót stóðu á honum. Við erum öll mann- leg en fá stórmannleg. Ég verð aö segja að mér finnst lágkúrulegt að standa ekki meö félögum sínum. Hver var það sem varði Ólaf þegar hann fór í það óvinsæla verkefni að innheimta söluskattinn í vor? Þar stóð Jón Baldvin með honum, einn manna," segir Bryndís. -hlh Þorskaflinn á næsta ári 10% minni Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra lýsti því yfir við upphaf þings Farmanna- og fiski- mannasambandsins í gær að þorskafiinn á næsta ári yrði um 300 þúsund lestir. Það er rúmlega 10 prósent skerðing frá því sem hann verður í ár. Fiskifræðingar Hafrannsókna- stofnunar höfðu lagt til að ekki yrði leyft að veiða nema 250 þús- und lestir. Þetta er þriðja árið í röð sem sjávarútvegsráðherra ákveður að mirrnka þorskaílann. Fyrir þetta ár var hann líka minnkaður um 10 prósent. Miðað var við að heildarþor- skaflirin í ár yrði 325 þúsund lest- ir en Ijóst er nú að hann fer yfir 330 þúsund lestir. Halldór Ásgrímsson sagði í gær að ekki væri mögulegt með tilliti til efnahagsmála að fara aö ósk- um fiskifræðinga og skera kvó- tann niður í 250 þúsund lestir. Þá sagði sjávarútvegsráðherra að á næsta ári yrði grálúðukvót- inn stórlega minnkaður. Grá- lúðuaflinn í ár er kominn í 56 þúsund Iestir sem er langt um- fram það sem Hafrannsókna- stoínun lagði til. Því sagði Halld- ór að fara yrði með grálúðuaflann niður í 40 til 45 þúsund lestir á næstaári. -S.dór - sjá einnig bls. 7 Óskar Vigfússon: Þolumekki meiri tekju- skerðingu „Þetta leiðir aö sjálfsögðu til tekjuskerðirtgar fýrir sjómenn og var vart á bætandi miðaö við af- komu þeirra í dag,“ sagöi Óskar Vigfússon, formaður Sjómanna- sambánd íslands, um 40 þúsund tonna skerðingu þorskkvóta á næsta ári. Öskar sagöi að þetta yrði þriðja árið í röð sem sjómenn þyrftu að þola 10 prósent samdrátt í tekjum án þess að fá það bætt 1 samning- um. „Það má frekar segja það hafi verið í hina áttina. Við hækkun oliuverðs hefur skiptaprósentatil sjómanna lækkað þessu til við- bótar. Það er þvi alveg ljóst að sjómenn munu ekki þola frekari skerðingu umfram aöra þjóðfé- lagshópa,“sagðiÓskar. -gse Jakob Jakobsson: Komið að skulda- dögum „Það hefur verið fariö fram úr okkar tillögum í mörg ár og það er augljóst aö ef ekki kemur Grænlandsganga þá er núna komið að skuldadögum. Þaö er greinilegt að 300 þúsund tonna veiði á næsta ári mun leiða til þess aö þorskaflinn mun minnka á næstu árum,“ sagði Jakob Ja- kobsson, forstjóri Hafrannsókna- stoftiunar, um ákvörðun stjóm- valda um 40 þúsund tonna skerö- ingu þorskafla á næsta ári. Haf- rannsóknastofnun lagöi til 90 þúsund tonna skerðlngu. Jakob sagði of sneramt að segja til um hvort Grænlandsgangan kæmi og hversu stór hún kynni aö verða. Úr því fengist ekki skor- iö fyrr en um áramótin 1990 til 1991 þó einhverjar vísbendingar ættu að fást fýrr. Flestir sem þessi mál þekktu byggjust þó við ein- hverri göngu á árunum 1991 og 1992. -gse Lánveitíngar tíl loðdýraræktarinnar Tekjur greinarinnar frá 1985 til 1988 í millj. kr. duu 500- Lán og I j/gt*** s,vrkir ' 400‘ 300" 200' ^}Tekjur 100’ U' i 1 1 i 1984 1985 1986 1987 1988 1989 Bryndís Schram sendir samráðherrum Jóns Baldvins kaldar kveðjur: Lágkúrulegt hjá ráðherrunum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.