Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990. Spumingin Hvert er uppáhaidssjón- varpsefnið þitt? Hólmfríður Bragadóttir hjúkrunar- fræðingur: Fréttirnar. en fátt annað. Blaðakonan og Derrick eru best af framhaldsþáttunum. Ásmundur Ólafsson sölustjóri: Hunt- er, hann er bráðfyndinn. Annars eru íþróttir trúlega næstar á vinsælda- listanum. Elsa Jóhannssdóttir húsmóðir: Frétt- irnar, en annars hef ég lítið horft á sjónvarpið undanfarið vegna anna. Daði Halldórsson nemkíþróttimar og þá helst fótboltinn. Ég horfi annars yfirleitt á allar íþróttir. Óskar Ársælsson framreiðslumaður: Fótboltinn og fréttimar. En ég vinn mikiö á kvöldin og horfi þvi lítið á sjónvarpið. Ólafur Brynjólfsson nemi: íþróttir og þá sérstaklega fótbolti og körfubolti. 90 á stöðinni er líka mjög skemmti- legur þáttur. Lesendur Niðurfærsluleiðina næst aðrir félagar hans hefur látið skyn- semina ráða þegar komið hefur verið að þeim mörkum sem hann taldi rétt- ast að hætta að þrýsta lengur á um frekari kauphækkanir og ganga til samninga en að lengja verkföll og illdeilur með gagnslausum barsmíð- um á báða bóga. Guðmundur hefur áður verið fylgj- andi niðurfærsluleiðinni sem ég minnist hér á. Hann hefur þó ekki alltaf getað fengið sitt fram vegna þess að margir sjá ekki annað í yfir- standandi samningutn en launa- hækkanir eða beinar kjarabætur með öðrum og svipuðum aðferðum. - Þetta er ekki til staðar í þessum samningum sem nú hafa fariö hæg- fara af stað. Það er nú að skapast hér allt annað ástand en áður. Fólk er orðið dauð- leitt á þessu sífellda samningaþófi sem engu skilar til launþeganna öðru en nýjum verðhækkunum og loks gengislækkunarlotu sem svo enn hækkar allt verðlag og leiðir til nýrra krafna og uppsögn kjarasamn- inga. Það er þó dálítið undarlegt að ekki skuli allir vera sammála um víötæka niðurfærsluleið, sem tekin er alvar- lega, í stað gömlu aöferðarinnar. Mér finnst þó fólk vera tilbúið núna til að standa með niðurfærsluleiðinni og Guðmundur J. á miklu fleiri fylgj- endur með henni núna en nokkru sinni fyrr. Það er því kominn tími til aö ráðamenn gefi þessari leið til úr- bóta meiri gaum en þeir hafa viljað gera hingaö til. Björn Guðmundsson skrifar: Ég er einn af þeim sem tek heils- hugar undir þá skoðun sem Guð- mundur J. Guðmundsson hefur á málum og stöðunni í væntanlegum kjarasamningum - að fara eigi niður- færsluleiðina. Ekkert annað er væn- legra til lausnar á þessum hrikalega vanda sem við blasir hvert sem litið er í þjóðlífinu um þessar mundir. Guðmundur J. Guðmundsson er eins og flestir vita gamalreyndur samningamaður og langreyndastur þeirra sem í verkalýðsforystunni starfa nú. Hann er sá sem oftar en Guðmundur J. Guðmundsson fundar ásamt öðrum félögum úr launþegahreyfingunni. - Hann á nú fleiri fylgjendur með niðfærsluleiðinni en áður, segir hér m.a. Fjármagnskostnaður? Kristjón Kolbeins skrifar: Af og til sjást furðuskrif um hinn svokallaöa fjármagnskostnað sem á að vera blóraböggull fyrir allt sem aflaga fer í þjóðfélaginu. Skilgetið afkvæmi hans er hinn mikh bölvald- ur, lánskjaravísitalan sem ýmsir vilja feiga en var ekki annað en mælikvarði á almennar verðbreyt- ingar uns hún var skæld. - Sannast hér hið fomkveðna að árinni kennir illur ræðari. Ekki er við haUamál að sakast þótt veggir reynist skakk- ir. Gert er ráð fyrir að þjóðarfram- leiðslan í ár verði 320 milljarðar króna, útlán lánakerfis 500 milljarð- ar og þjóðarauður 950 milljarðar. Nú gæti það gerst að stjórnvöld lofuðu launþegum 30% kauphækkun í árs- lok og fullri verðtryggingu, útflutn- ingsatvinnuvegunum yröi tryggður rekstrargrandvöUur með því að skrá gengið „rétt“ og sparifjáreigendur fengju fuUa verðtryggingu en enga vexti umfram það. Afleiðingarnar gætu orðið 21% verðbólga á mánuði, þannig að allar þessar stærðir tífölduöust á einu ári. Þjóðarframleiðslan yrði 3.200 millj- arðar, útlán lánakerfis 5.000 milljarð- ar, þ.a. verðbætur 4.500 milljarðar. - Haldi einhver að í dæminu sé fólginn fjármagnskostnaður þá þjáist sá sami af auraglýju. Þvi síður má bera saman verðbætur og þjóðarfram- leiðslu og halda fram að þjóðarfram- leiðslan fari öll í fjármagnskostnað og dugi ekki til. Staðreyndin er sú, eins og sumum stjórnmálamönnum er svo tamt að taka til orða, að þar eð kaupmáttur krónunnar hefur rýmað um 90% á milli ára er í raun veriö aö reikna þjóöarframleiðslu og útlán lánakerf- isins í tíeyringum seinna áriö, miðað við verðlag fyrra árs. - Allir ættu aö skilja að ef króna er dregin frá tíu tíueyringum á sambærilegu verö- lagi, fenginn mismunur sem kallaður væri fjármagnskostnaður, þá er rangt reiknað. Frítt „prógramm“ og allt í IK! G.L. hringdi: Ég var að koma af bíósýningu í Háskólabíói og sá þar myndina Dauðafljótið. Það sem kom mér skemmtilega á óvart var að mér var afhent eintak af fríu „pró- grammi" sem auk þess var prent- að i fjórum litum. - Þetta þykja mér nýmælí hér, hef satt að segja ekki séð svona áður i kvikmynda- húsum hér á landi. Mér finnst þetta vera til eftir- breytni fyrir önnur kvikmynda- hús en vil aö öðru leyti þakka Háskólabíói fyrir hugulsemina og góða þjónustu við sýningargesti þessar myndar - sem ég læt hjá liða að dæma. Þaö var heldur ekki erindið með upphringing- unni til DV heldur að benda á nýjungina meö „prógrammið". Mikið að gerast á Austfjörðum? Við höfnina á Eskifirði. - Hætt er við að ekki séu umsvifin mikil þarna þessa dagana. Austfirðingur hringdi: Ég gat nú ekki á mér setið að hringja til ykkar eftir að hafa heyrt í stjórnanda morgunútvarps rásar 2 í morgun (5. jan.) er hann var að fara yfir dagskrá þáttarins og sagði aö þar kæmu fram viðhorf frá Austfjöröum - „þar sem mikið væri að ske“. Ég get nú ekki samsinnt þessu. Hér á Austfjörðum er einfaldlega ekkert að ske, eða a.m.k. ekki í þeim skiln- ingi sem fréttamenn hljóta aö leggja í það hugtak að eitthvað mikið sé að ske. Hér er nefnilega ördeyða eins og hún getur mest orðið þegar skip liggja bundin við bryggjur og sjó- menn og verkamenn eiga í deilum við útgerðarfélög á mörgum stöðum í einu. Það er kannski það versta við þetta að hér er ekki um eiginlegt verkfall að ræða heldur ástand sem er okkur áður óþekkt og hefur ekki verið tíðk- að mikið hér á landi, aö stöðva vinnu við aðstæður þegar samningar eru ekki útrunnir eða réttara sagt um- samið fiskverð enn í fullu gildi. - Á meðan hér ríkir stöövun og óvissa um framtíðina er ekki hægt að slá því upp í Ríkisútvarpinu að „mikið sé að ske á Austfjörðum". Svoleiðis slagorð og auglýsingamennska er ekki fallin til aö vekja virðingu fyrir ríkisfjölmiðlinum. Allir vona að úr rætist, en samt er óhugur í fólki hér um slóðir, því allt eins getur verið að hér geti mál þró- ast til verri vegar, t.d. ef menn segja upp störfum, hætta að vinna - og jafnvel flytjast burt þangað sem trygga atvinnu er að hafa, hvort sem það er á Reykjavíkursvæðinu eða í öðrum löndum. Ef 'svo fer þá má senda hingað fréttamenn sem geta þá með sanni sagt að „mikið sé að ske á Austfjörðum".

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.