Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990. 13 Lesendur Á síðasta landsfundi Alþýðubandalagsins. - Þar skýrðust pólitískar liruir meira en maður gat búist við. Jafnaðarmenn, sameinumst! Alþýðubandalagsmaður hringdi: Ég er í þeim hópi alþýðubandalags- fólks sem fannst eitt það ánægjuleg- asta við landsfund okkar í nóvember sl. að þá skýrðust hinar pólitísku lín- ur míklu meira en maður gat búist við. - Það var eins og þarna kæmi fram sterk tilhneiging til að finna lausn á þeim vanda sem vinstri flokkar hér á landi hafa vissulega veriö í, einkanlega Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur. Sennilega hefur ekki enn gróið um heilt hjá sumum síðan þeir Ólafur Ragnar og Jón Baldvin efndu til hringferðalags um landið með það fyrir augum að kynna sjónarmið sín, hvernig vinstri menn gætu sameigin- lega tekið á sínum málum í framtíð- inni - og að reifa hugmyndir um sam- einingu þessara afla sem þeir éru formenn fyrir. Það er annars merkilegt að ekki skuli fyrir löngu hafa náðst samstaða um betri tengsl milli þessara tveggja flokka sem byggja á sömu skoðunum og lifsviðhorfum. Játað skal að Al- þýðubandalagið hefur verið talsvert strangtrúaðra og sýnt meiri hörku og ósveigjanleika í afstöðu til mála sem snerta íslenska hagsmuni í tengslum við erlenda aðila, t.d. í vamarmálum, atvinnuuppbyggingu með stóriðju og í utanríkismálum sem varða fjármagnsviðskipti. - En þetta er allt að breytast og menn þurfa ekkert að vera undrandi þótt ímynd stjórnmálaflokks breytist í rás tímans. Það ætti að vera einkenni þeirra, gagnstætt því að standa í stað eins og raunin er of oft. Ég sé að það fer fyrir brjóstiö á býsna mörgum í mínum flokki að formaðurinn skuli hafa gerst svo djarfur að þreifa fyrir sér um sam- vinnu og hugsanlega sameiningu allra íslenska jafnaðarmanna í einn flokk. Alhr sannir jafnaðarmenn ættu þó frekar að fagna svona frum- kvæði. Mér fmnst að við sem viljum játast undir jafnaðarstefnu eins og hún er framkvæmd f nálægum og jafnvel fjarlægum löndum ættum að leggja lið þeim forystumönnum okk- ar sem vilja taka höndum saman og sameinast. - Það verður okkur til framdráttar og styrkir stöðu ís- lenskra jafnaðarmanna. Höfum kaupanda að MMC Pajero, lengri gerð, 6 cyl., sjálfsk., árg. 1989. BORGARBILASALAN GRENSÁSVEGI 11, SÍMAR 83085 OG 83150 - SÆVARHÓFDA 2, SÍMI 575848 FRÖNSKUNÁMSKEIÐ ALLIANCE FRANCAISE 13 vikna vornámskeið hefst mánudaginn 22. janúar. Kennt verður á öllum stigum ásamt samtalshópum og í einkatímum. NÝTT: Námskeið í franskri listasögu, 16.-20. öld, hefst 7. febrúar. Innritum fer fram á bókasafni Alliance Francaise, Vesturgötu 2 (gengið inn bakdyramegin), alla virka daga frá 15 til 19 og hefst þriðjudaginn 9. janúar. Henni lýkur föstudaginn 19. janúar kl. 19.00. Allar nánari upplýsingar fást í síma 23870 á sama tíma. Greiðslukortaþjónusta. Fjármálaráðuneytið - eignadeild - Til sölu eru hlutabréf Ríkissjóðs íslands í hf. Raf- tækjaverksmiðjunni (RAFHA). Nafnverð hlutabréf- anna nemur kr. 10.800 þús. en það er sem næst 31 % hlutafjárins. Kauptilboðum skal skilað til fjármála- ráðuneytisins eigi síðar en 16. janúar 1990. Upplýsingar eru veittar í fjármálaráðuneytinu, eigna- deild. Neyðarkall ekkjunnar S.R.H. skrifar: Rétt fyrir jólin las ég um neyðar- kall einstæðrar 4 barna móður í DV og sendi henni þá strax 2000 krónur, sem mér fannst alveg lágmark. Ég var alveg viss um að aðrir myndu gera hið sama, en svo var ekki eins og fram kom í DV hinn 19. des. sl. Ég frétti það frá konunni sjálfri að Hjálparstofnun kirkjunnar heföi hafnað beiðni hennar um aðstoð og að Fíladelflu-söfnuðurinn hefði kom- ið til hennar en með tómar hendur. Sleipnisformanni skríkar fótur: Birgir Símonarson hringdi: í kjallaragrein Magnúsar Guð- mundssonar, formanns Sleipnis, félags langferðabílstjóra, í DV 4. þ.m. segir hann að engin reglu- gerð sé til um vinnutíma bílstjóra og að þess séu dæmi að þeir hafi sjálflr neyðst til að setja sér regl- ur og neitaö að aka lengur en 16 tíma á sólarhring. Málið er hins vegar það að i lögum er fyrirskipuð 10 tíma hvíid og gildir að sjálfsögðu um allar tegundir starfa. - Eg vinn t.d. þannig starf að ég vinn oft til kl. 22 að kvöldí en þá má ég held- ur ekki mæta til vinnu fyrr en kl. 8 að morgni. Þetta er ekkert sem er i „samn- ingum“ heldur eru þetta lög sem gilda hér í landi sem víða annars staöar. Þessu hefur formaður Sleipnis sennilega ekki áttað sig á. - Eða hvað? - Hún sagði mér að ég hefði verið eina manneskjan í Reykjavík sem sendi henni peninga, í borg sem er með yfir 90 þúsund íbúa! Hvers konar fólk býr í þessu landi sem getur ekki einu sinni aðstoðað bágstadda hér um jóhn - ekkjur og fóðurieysingja? - 200 milljónir upp í loftið á einum klukkutíma um ára- mótin, og hversu margar milljónir í áfengi á éinum degi? Sýnir þetta ekki að til eru nógir peningar? Og hvemig stendur á því að þetta neyðarkall ekkjunnar fór ekki fram hjá öllum þessum dónum sem hringdu í konuna til að bjóðast til að sofa hjá henni? Er fólk hér með steinhjarta í brjósti? - Ég hef ekki orð yfir þetta og læt því Biblíuna tala. - „Hrein og flekklaus guðrækni fyrir Guði og Föður er þetta; að vitja mun- aðarlausra og ekkna í þrengingu þeirra og varðveita sjálfan sig óflekk- aöan af heiminum." Athugasemd frá Tryggingaeftirlitinu: Tjónareynslan ræour Erlendur Lárusson, forstöðum. Tryggingaeftirlitsins, skrifar: Nokkurs misskilnings virðist gæta varðandi áhrif tilkomu virðisauka- skatts í stað söluskatts á iðgjöld vá- trygginga. - Klausa í DV 3. jan. sl. undir fyrirsögninni „Tryggingaið- gjöld hækka enn“ bendir m.a. í þá átt. Staöreyndin er sú að 25% sölu- skattur, sem áður var lagður ofan á iðgjöld velflestra greina vátrygginga, fellur nú alveg niður. - Á hinn bóg- inn kemur nú virðisaukaskattur á ýmsa þjónustu, sem innt er af hendi þegar tjón hefur átt sér staðr t.d. ýmsar viðgerðir sem áður voru án söluskatts. Þetta hefur óhjákvæmi- lega fyrr eða síðar áhrif á iðgjöld til hækkunar, því að það eru iðgjöldin, sem standa undir tjónakostnaði vá- tryggingafélaga. Einnig mun rekstrarkostnaður vá- tryggingafélaga hækka lítillega af þessum sökum, sem einnig hefur, mestu þegar fram í sækir, einhver áhrif á iðgjöld til hækkunar að öðru óbreyttu. Útgjöld vegna kaupa á vátrygging- um lækka þó verulega, þegar á heild- ina er litið, að öðru óbreyttu, það er áhrif virðisaukaskatts tfl hækkunar eru miklu minni en áhrif þeirrar lækkunar, sem niðurfelling sölu- skatts hefur í fór með sér. Ekki má þó gleyma verðbólgunni í þessu sambandi. Iðgjöld munu hækka að krónutölu í samræmi við verðlagsþróun, eins og venja er tfl. Það er forsenda þess að vátrygginga- félög geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart hinum vátryggðu, þar eð tjónakostnaður fylgir verðlagi. - Eins og ávallt er það tjónareynslan, sem mestu ræður um það hversu há iðgjöld þarf að greiða fyrir þá vá- tryggingarvernd, sem keypt er hjá vátryggingafélögum. 1. leikvika - 6.desember 1989 Vinningsröðin: X11-22X-X22-212 HVER VÁNN ? 831.258- kr. 0 voru með 12 rétta - og fær hver: 0- kr. á röð 5 voru með 11 rétta - og fær hver: 49.875- kr. á röð Tvöfaldur pottur - um næstu helgi!! MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ AUGLÝSING um styrki til leiklistarstarfsemi. I fjárlögum fyrir árið 1990 er gert ráð fyrir sér- stakri fjárveitingu sem ætluð er til styrktar leiklistar- starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu í fjárlögum. Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki af þessari fjárveitingu. Umsóknareýðublöð fást í ráðuneytinu. Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneyt- inu fyrir 25. janúar næstkomandi. Menntamálaráðuneytið, 29. desember 1989

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.