Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANCAIÍ 1990. DV Ólyginn sagði... Roseanne Barr - sem hefur einstakt lag á að vera í fréttum slúðurblaða vestanhafs - hefur hætt við að giftast gaman- leikaranum Tom Arnold sem er þungayiktarmaður eins og hún sjálf. Ástæðuna segir hún vera eiturfíkn heitmanns síns sem sé svo yfirgengileg að hún sjái sér ekki annað fært en að senda hann á hæli. Það sem hafði úrslit á ákvörðun hennar var þegar Arn- old kom yfírfullur af kókaíni í upptöku á Roseanne-þáttunum og sló hana niður í gólfið og hót- aði að lemja hvern þann í klessu sem kæmi nálægt henni. Eddie Murphy - sem sagt hefur að aldrei skuli hann láta plata sig í hjónabandið - gæti orðið að draga þessi orð sín til baka því sagan segir að hann hafi fært unnustu sinni, Nicole Mitchell, sem eignaðist barn með honum í nóvember, trúlofunarhring og lofað að gift- ast henni. Vinir hans segja að eftir að barnið fæddist hafi orðið snögg breyting á honum. Áður hafi hann hugsað um þaö eitt að skemmta sér og til að geta skemmt sér sem mest hafi hann keypt hús handa unnustu sinni og tilvonandi barni nokkuð langt frá leikvelli sínum í Hollywood. 5 Um leiö og hann og hann hafi lit- ið barniö aúgum hafi hann breyst og hafi nú ekki meiri ánægju af neinu fremur en að sitja fyrir framan vögguna og horfa á af- kvæmi sitt. Jack Nicholson er í skýjunum eftir mikla vel- gengni í Batman. Hann er nú ákveðinn í að láta draum sinn rætast og leika Napóleon í kvik- mynd. Ekkert virðist vera því til fyrirstöðu því allir sem hann hef- ur haft samband við vilja leggja í púkkið. Aðeins vantar sam- j. þykki „sambýliskonu hans“, Anjehcu Huston, um að leika Jó- sefinu. Nicolson vill enga leik- konu fremur en Huston er ekki á því að leika með honum í kvik- mynd, að minnsta kosti ekki þessa dagana. Hún er víst alveg brjáluð yfir því að Nicholson er nýlega búinn að geta bam við >, óþekktri smástjömu. Dóttir Pauls McCartney er þunglyndissjúklingur Dóttir Pauls McCartney liggur nú á einkasjúkrahúsi fyrir þunglyndis- sjúklinga. Hin 26 ára Heather, sem er dóttir Lindu, eiginkonu Pauls McCartney, af fyrsta hjónabandi, þjáist af mikilli vanmetakennd og á erfitt með aö sætta sig við að lifa í skugganum af hinum frægu foreldrum sínum. Hún hefur nú dvaliö á Ticehurst House, sjúkrahúsi sem er í um 20 mílna fjarlægð frá bóndabæ fjöl- skyldunnar í Sussex í Englandi, síð- astliðna sex mánuði. Paul hefur verið undanfarna mán- uði á hljómleikaferð um heiminn en mjög gott samband hefur verið milli hans og dóttur hans síöan hann ætt- leiddi hana fyrir 20 árum. Hann hef ur oft leigt þotu svo að hann geti flog- ið sem oftast heim eftir tónleika og heimsótt Heather á sjúkrahúsið. Hann bauð henni að aflýsa tónleik- um, sem fyrirhugaðir voru í Evrópu, svo að hann gæti verið sem oftast við hlið hennar. Heather neitaði boðinu og sagði honum að halda sínu striki. „Paul og Linda kona hans hafa leigt sér þotu hvar sem þau hafa verið í heiminum, sama hvort þau hafa ver- ið í Þýskalandi, Noregi eða Hollandi. Eftir tónleika hefur bíll iðulega beðið þeirra og þau hafa ekið rakleiðis út á flugvöll og flogiö beina leið heim svo að þau geti eytt eins miklum tíma með Heather og hægt er,“ segir vinur þeirra hjóna. „Svo hafa þau þotið af stað aftur á næstu tónleika. Þau gera allt sem þau geta til að styðja við bakið á dóttur sinni,“ segir þessi sami vinur þeirra. Þegar Paul giftist Lindu árið 1969 ættleiddi hann Heather og síðan hef- ur hún búið hjá McCartney fjölskyld- unni en saman eiga Paul og Linda þrjú börn. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Heather leggst í þunglyndi en þessi sjúkdómur er algengur í foðurætt hennar. Hinn raunverulegi faðir hennar, landfræðingurinn Melville See, hefur oft legið á sjúkrahúsi vegna sama sjúkdóms. Heather var fyrst lögö inn á sjúkra- hús árið 1987 og þá varð hún að dvelja þar næstum ár vegna þung- lyndis. Þegar hún útskrifaðist hóf hún nám viö háskóla í Arizona í Bandaríkjunum og lagði þar stund á listasögu og leirkeragerð. En sjúk- Ian Charleson: Heather McCartney þjáist af alvar- legu þunglyndi. Paul og Linda eru á stöðugum þönum um heiminn en reyna að heim- sækja Heather sem oftast á sjúkrahúsið. Stjarnan úr Chariots of Fire deyr úr eyðni Breski leikarinn Ian Charleson, sem þekktastur er fyrir leik sinn í óskarsverðlaunamyndinni Chariots of Fire lést um síöustu helgi úr eyðni. Er hann nýjasta fórnarlamb þessa hættulega sjúkdóms er hefur lagt að velli marga erlenda listamenn á síð- ustu misserum. Charleson, sem var fertugur þegar hann lést, hafði barist hetjulegri bar- áttu við sjúkdóminn og eru aðeins níu vikur síðan hann lék Hamlet í þjóðleikhúsi Breta við mikinn fögn- uð áhorfenda. Þá hafði að vísu verið talað um að hann liti illa út en eng- inn gerði sér grein fyrir hversu langt hann var leiddur. Charleson fæddist inn í fátæka skoska fjölskyldu í Edinborg. Hann tók fyrstu spor sín á leiksviði aöeins átta ára gamall. Hápunktur ferils hans var þegar hann lék skoska trú- boðann Eric Liddell í hinni frægu kvikmynd, Chariots of Fire. Þá má geta þess að hann lék hlutverk í ann- arri óskarsverðlaunamynd, Gandhi, en þar lék hann prestinn Charlie Andrews sem var um tima besti vin- ur Gandhis. Þá á Charleson að baki leik í nokkrum sjónvarpskvikmynd- um og sjónvarpsseríum og er skemmst að minnast leik hans í Bragðabruggi (Codename Kyril), -sjónvarpssseríu sem sýnd var í ríkis- sjónvarpinu rétt fyrir áramót. lan Charleson í hlutverki rússneska njósnarans Kyrils i sjónvarpsser- iunni Bragðabruggi sem nýlega var sýnd i ríkissjónvarpinu. Þekktasta hlutverk lans Charleson var hlutverk Erics Liddels í Chariots of Fire. Hér er hann borinn út sem sigurvegari i spretthlaupi á ólympíuleikum. Lengst til hægri er Ben Cross sem lék annað aðalhlutverkið i myndinni. Sviðsljós Paul gerir hvað hann getur til að hjálpa dóttur sinni. dómurinn tók sig fljótlega upp aftur. Að sögn vina Heather er hún yndis- leg manneskja og hæfileikarík og ætti að geta náð langt sem listamað- ur. En hún á erfitt með að gera sér grein fyrir því hvert hlutverk hennar í lífinu er. Vinir hennar segja að hún spyrji sjálfa sig í sífellu: Hver er ég? Móðir mín er gift einum frægasta manni heims og ég lifi í skugganum af þeim. Því er svo erfitt að gera sér grein fyrir því hvaða hlutverki mér er ætlað að gegna hér á jörð. Svo er bara að vona að heilsa stúlk- unnar fari batnandi en að sögn lækna hennar eru litlar líkur á að svo verði í bráð. íslendingar kunna vel að meta húm- or Eddie Skoller. Eddie Skoller til íslands Þegar hinn þekkti, danski skemmtikraftur og grínisti, Eddie Skoller, kom til landsins fyrir tveim- ur árum fór hann létt með að fylla íslensku óperuna þrisvar og er ekki ofsögum sagt að hann hafi sigrað landann. Skoller er nú væntanlegur aftur til landsins og mun halda tvenna tónleika í íslensku óperunni, 20. og 21. janúar. Eddie Skoller er danskur þótt það geti verið umdeilanlegt því faðir hans er rússneskur gyðingur og móðir hans sænsk og hann fæddist í Bandaríkjunum. En hann ólst upp í Danmörku og húmor hans er óve- fengjanlega danskur. Það er kannski uppruna hans að þakka hversu auð- velt hann á með að apa eftir fólki og þá sérstaklega auðvelt með mállýsk- ur ýmiss konar. Allt frá því hann hóf að skemmta fólki fyrir tuttugu árum í Tívolí hefur hann þeyst heimshomanna á milli og eru það ekki margir norrænir grínistar sem hafa getið sér betra orö en Eddie Skoller. Telja margir hann feta í fótspor hins fræga samlanda síns, Victors Borge.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.