Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990.
25
Sviðsljós
Hiö árlega jólaball, sem DV heldur
fyrir starfsmenn, börn þeirra og
blaðburðarbörn, var haldið í Þórs-
café-Danshöllinni á laugardaginn
var.
Mikill fjöldi barna mætti og tók
þátt í fjölbreyttri íjölskylduskemmt-
un sem þó einkum var ætluð bömun-
um. Um það bil sex hundruð börn
voru á staðnum og fengu þau að njóta
sín í tveimur sölum, bæði í diskói,
þar sem eldri bömin dönsuðu nýj-
ustu diskódansana, og í sal þar sem
jólatré var á miðju gólfi og dansað
var kringum það og sungið við undir-
leik hljómsveitar André Bachmann.
Með aðstoð hljómsveitarinnar skap-
aðist fljótlega jólastemning sem
bömin kunnu vel að meta.
Ekki minnkaöi ánægja barnanna
þegar Hurðaskeílir birtist í öllu sínu
veldi og hafði hann Stúf með sér.
Fengu þeir félagar börnin til aö
syngja jólalögin og var mikið hiegið
að Hurðaskelh þegar hann ruglaði
saman nokkrum velþekktum vísu-
brotum. Ekki minnkaði kætin þegar
Jói trúður mætti á hjólaskautunum
sínum og dreif börnin í Fugladansinn
og fleiri þekkta barnadansa.
Börnin fengu veitingar meðan á
skemmtuninni stóð og vom leyst út
með sælgætispoka þegar jólaballinu
lauk.
Hurðaskellir og Stúfur vöktu mikla kátínu barnanna sem hrúguðust að þeim,
• , m
■ , m ’JsaS
í ÆuBBBm - Á''
Jói trúður vakti mikinn fögnuð eldri barnanna þegar hann renndi sér niður
á diskógólfið á hjólaskautunum sinum, greip eina glæsidömuna og sveifl-
aði henni i kringum sig.
Hurðaskellir ræðir hér við ungan aðdáanda meðan Stúfur svarar spurning-
um forvitinna barna.
Það er gott að fá smáhjálp við erfitt verk og lögreglumenn borgarinnar
bregðast ávaflt vel við hjálparbeiðnum frá fólki sem lent hefur i vandræöum
eins og þessi kona sem átti í erfiðleikum með að skipta um sprungið dekk.
Lögreglumennirnir brugðu skjótt við og hjálpuðu konunni út úr ógöngunum
og sögðu þelr við Ijósmyndarann aö felgan hefði verið kirfilega föst við
bílinn og það tekið þá smástund að losa hana frá. DV-mynd S
Krakkarnir fylgjast vel með fimum hreyfingum Jóa trúðs sem sýndi rrtikla leikni, bæði í dansi og á hjólaskautum.
DV-myndir KAE
1
Akureyri:
Jólin kvödd á
þrettándagleði
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Fjölmargir Akureyringar tóku þátt
í þrettándagleði íþróttafélagsins Þórs
sem fram fór á svæði félagsins á síð-
asta degi jóla, sl. laugardag. ■
Þrettándagleði Þórs fór nú fram í
51. skipti en síðari ár hefur gleðin
Hér hefur jólasveinnmn fengið góð-
an fylgdarmann og traustan.
farið fram með hefðbundnum hætti.
Álfakóngur og drottning hans koma
með fóruneyti sínu sem skipað er
álfum, púkum og öðrum kynjaver-
um. Þjóðdansar voru sýndir, vegleg
brenna var, jólasveinarnir voru
kvaddír og ýmis önnur skemmtiat-
riði voru. Halli og Laddi skemmtu.
Bjartmar Guðlaugsson og Jóhann
Már Jóhannsson tóku lagið og í lokin
var vegleg flugeldasýning. Fjöldi
manns var á svæði Þórsara að þessu
Búningar skipta miklu máli á þrettándagleði og þau sem hér eru falin und- sinni og fór þrettándagleöin vel fram
ir grimum og klæðum geta verið ánægð með sitt framtag. að öllu leyti.