Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Side 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990.
Andlát
Ásta K. ímsland, lést 7. janúar í
Skjóli.
Guðjón B. Baldvinsson fv. deildar-
stjóri, Hagamel 27, lést á Landspítal-
„ anum laugardaginn 6. janúar.
Stefanía Guðjónsdóttir, Suðurgötu
4, andaðist í Landakotsspítala 6. jan-
úar.
Laufey Benediktsdóttir frá Akureyri
lést í sjúkrahúsi Akraness sunnu-
daginn 7. janúar.
Magnús Björnsson, Hrauntungu 83.
Kópavogi. lést í Landspítalanum
sunnudaginn 7. janúar.
Baldur Jónsson, Miðvangi 29. Hafn-
arfirði, lést í Borgarspítalanum laug-
ardaginn 6. janúar.
Jardarfarir
Sigríður L. Jóhannsdóttir lést 26.
desember. Hún fæddist 24. apríl 1893
í Árgerði, Svarfaðardal, en ólst upp
á Sauðanesi á Upsaströnd. Foreldrar
hennar voru hjónin Þóra Baldvins-
dóttir og Jóhann Gunnlaugsson. Sig-
i ríður giftist Jóhanni Bjarnasyni og
bjuggu þau á Siglufirði þar til Jóhann
lést. Þau eignuðust eina dóttur. Lára
var forstöðukona Gesta- og sjó-
mannaheimilisins á Siglufirði um
árabil. Hún starfaði einnig í stúkunni
Framsókn og var heiðursfélagi í
Stórstúku íslands. Eftir lát Jóhanns
fluttu þær mæðgur til Reykjavíkur.
Þar starfaði Lára í ísborg í Austur-
stræti meðan aldur og heilsa leyfði.
Útför hennar verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag kl. 13.30.
Sveinbjörn Helgason lést 26. desemb-
er. Hann var fæddur 26. desember
1908 á Húsavík. Foreldrar hans voru
hjónin Jóhanna Jóhannsdóttir og
Helgi Flóventsson. Sveinbjöm starf-
aði lengst af við sjómennsku. Eftir
að í land kom fór hann að vinna hjá
Vélsmiðju Hafnarijarðar og síðar um
tíma hjá Jósafat Hinrikssyni. Hann
giftist Fjólu Guðmundsdóttur en hún
lést árið 1978. Þau hjónin eignuðust
eina dóttur. Útfór Sveinbjörns verð-
ur gerð frá Fossvogskirkju í dag kl.
15.
Sigríður Helgadóttir, Grund, Garði,
lést 30. desember á vistheimilinu
Garðvangi. Útförin hefur fariö fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Vilborg Jónsdóttir Dam, lést 27. des-
ember. Jarðarförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Lára Magnúsdóttir lést í Borgar-
spítalanum 25. desember. Jaröarfór-
in fer fram í Dómkirkjunni á morg-
un, miðvikudaginn 10. janúar, kl.
13.30.
Útfararathöfn Friðriks Sigurjónsson-
ar, Fornustekkum, sem andaðist 4.
janúar, verður 11. janúar kl. 14 í
Bjarnastaðakirkju í Hornarfirði.
Kristmundur S. Snæbjörnsson,
Nökkvavogi 48, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudag-
inn 9. janúar kl. 13.30.
Þórdís Magnúsdóttir, Haðarstíg 18,
verður jarðsett frá Fossvogskirkju
miövikudaginn 10. janúar kl. 10.30.
Rögnvaldur Ingvar Helgason frá
Borðeyri verður jarðsunginn frá
Prestbakkakirkju laugardaginn 13.
janúar kl. 14.
Útför Jónfriðar Gísladóttur verður
gerð frá Fossvogskapellu miðviku-
daginn 10. janúar kl. 15.
Dagbjört Eiríksdóttir fóstra. Klepps-
vegi 120, Reykjavík, sem andaðist á
gjörgæsludeild Borgarspítalans að-
faranótt 31. desember. verður jarð-
sungin frá Áskirkju miðvikudaginn
10. janúar kl. 15.
Sigurlilja Pétursdóttir, áður til heim-
ilis á Hofsvallagötu 17. Reykjavík,
verður jarðsungin miðvikudaginn
10. janúar kl. 13.30 frá nýju Kapell-
unni í Fossvogi.
Útför Þrastar Leifssonar, Þórufelli
16. Reykjavik, fer fram frá Dómkirkj-
unni fimmtudaginn 11. janúar kl. 15.
Bálför fer fram síðar.
Guðrún Árnadóttir hjúkrunarkona,
Sólheimum 23, Reykjavík, verður
jarösungin frá Langhoitskirkju mið-
vikudaginn 10. janúar.
Valgerður Halldórsdóttir frá Hvann-
eyri, Selvogsgrunni 8, sem lést 1. jan-
úar sl„ verður jarðsungin fimmtu-
daginn 11. janúar kl. 13.30 frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík.
Námskeið
Ný ættfræðinámskeið
Hjá Ættfræðiþjónustunni heQast bráð-
lega ættfræðinámskeið, bæði fyrir byrj-
endur og lengra komna. Þar er veitt
fræösla um leitaraðferðir sem eru í senn
fljótvirkar og öruggar, gefið yfirlit um
helstu ættfræðiheimildir og leiðbeining-
ar veittar um gerð ættartölu o g niðjatals.
Þá fá þátttakendur tækifæri og aðstöðu
til að þjálfast í verki við að rekja eigin
ættir og frændgarö með afnotum af víð-
tæku gagnasafni, m.a. kirkjubókum um
land allt, manntölum, ættartöluhandrit-
um og útgefnum bókunt. Leiðbeinandi á
námskeiðunum er sem fyrr Jón Valur
Jensson. Innritun er hafin hjá Ættfræði-
þjónustunni í síma 27101.
Tapað fundið
Grárfressköttur
í óskilum
Tæplega ársgamall grár fressköttur með
ól um. hálsinn, en botn merkitunnunnar
týndur, fannst í Hlíðahjalla í Kópavogi
aö kvöldi 2. janúar. Upplýsngar í síma
45761 eftir kl. 18.
Þrílit læða, grá, hvít og brún, tapaðist frá
Hjarðarhaga 46 31. desember sl. Hún var
ómerkt. Ef einhver veit hvar hún er nið-
urkomin eða getur veitt upplýsingar um
hana þá vinsamlegast hringið í síma
10520.
Frakki gleymdist
í bíl
Sl. laugardagskvöld gleymdist ljós frakki
í hvítri tveggja dyra Subaru Justy bifreið
við Melabraut 33. Ökumaður er vinsam-
legast beöinn að hafa samband við
Bryndísi í síma 672406.
Fressköttur fannst
í Kópavogi
Tæplega ársgamall grár fressköttur með
ól um hálsinn, en botn merkitunnu týnt,
fannst í Hlíðahjalla, Kópavogi, að kvöldi
2. janúar. Upplýsingar í síma 45761 eftir
kl. 18.
Tilkyniiingar
Hallgrímssókn - starf
aldraðra
Leikfimin, undir stjórn Jóhönnu Sigríðar
Sigurðardóttur sjúkraþjálfara, hefst aft-
ur í dag og verður eftirleiðis á þriðjudög-
um kl. 12 og fóstudögum kl. 10. Sömu
Meiming___________pv
I Heimatil- I
búnar ýkjur
Myndmál Margrétar, það er innviðir málverkanna,
er að mestu í heimatilbúnum ýkjustíl. Þar ber mikið
á uppblásnum eða mjúklegum verum, misjafnlega
ummynduðum.
Þessar verur geta tekið á sig yfirbragð fornra skurð-
goða, eru þá vísast tákn fyrir staðnaða ímynd karl-
mennskunnar, þekki ég þankagang listakonunnar rétt.
Annars staðar eru kynjaverur, ef til vill ættaðar úr
skrímslafræðum miðalda, að minnsta kosti þykist ég
sjá vindguðinn Æólus endurborinn í másandi og blás-
andi ásjónunum í myndum hennar.
Kannski er hann líka fulltrúi fyrir belgingslega karl-
punga, hvað veit ég.
Loks málar Margrét hreinræktaðar teiknimyndaflg-
úrur, áþekkar þeim sem hún hefur notað til bóklýs-
inga, sem mótvægi viö blákalda alvöruna annars stað-
ar í myndunum.
„Mótvægi“ er hér lykilorð því Margrét nær fram
þeim áhrifum sem hún gerir fyrst og fremst með því
að tefla saman andstæðum, og þá helst andstæðum í
formi (liturinn virðist skipta hana minna máli), mýkt
gegn hörku, stærð gegn smæð, kímni gegn drunga,
stækka síðan atburði áfletinum, svo og fletina sjálfa,
upp úr öllu valdi, uns þeir verða bæði tilkomumiklir
og ægilegir, krefja okkur um skýlaus viðbrögð.
I ökkla eða eyra
Sjálfur hef ég aldrei haft viðbrögóin við þessum að-
sópsmiklu dúkum alveg á hreinu, þar sem áherslur í
þeim hafa ýmist verið í ökkla eða eyra: of almennar
eða of sérviskulegar. Jafnvel í einu og sama verkinu.
Með fullri virðingu fyrir því hugrekki listakonunnar
að vinna ótrauð úr eigin hugarórum.
Þetta er í stórum dráttum einkenni á yflrstandandi
sýningu Margrétar að Kjarvalsstöðum, nema hvaö
hún kemur nú einnig til móts viö okkur með hlutlæg-
ari myndum, til dæmis tröllslegum uppstillingum þar
sem hversdagslegir hlutir eru bæði stækkaðir og
skrumskældir.
Þarna er eitthvað að gerast sem ég átta mig ekki
alveg á, en lætur mig ekki í friöi. Sem segir vonandi
sitt um sérkennilegt seiðmagn þessara mynda.
Sýning Margrétar stendur til 21. janúar nk.
-ai
Málverk Margrétar Jónsdóttur, sem nú opnar fyrstu
sýningu ársins 1990 að Kjarvalsstöðum, eru ólík öllu
öðru sem hér er gert í nafni málaralistarinnar. Þar
að auki er sýningin boriir uppi af sjaldséðum metnaði
og nýtur sín vel í upphengingu.
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
Margrét Jónsdóttir ásamt einu verka sinna.
Fréttir
Skotvopnum og öðrum
verðmætum
stolið úr sumarhúsi
- eigandi heitir góöum launum fyrir upplýsingar
Brotist var inn og verðmætum
að andvirði hundraða þúsunda
stolið úr sumarhúsinu Sóleyjar-
bakka við Stóru-Laxá í Hreppum
um miðjan desember. Sneru þjó-
farnir í sundur keðju á hliði sumar-
bústaðarlandsins og spörkuð síðan
upp hurð þegar komið var að bú-
staðnum.
Það sem stolið var úr sumarbú-
staönum voru sjálfvirk Browning
haglabyssa með gikklæsingu, sex
skota 22«alibera Bakal riffill, skot-
færi, tveir sjónaukar, Blaupunkt
sjónvarpstæki, Saba myndbands-
tæki, þrír kassar af bjór, nokkrar
áfengisflöskur og ýmis handverk-
færi.
Guðmundur Kristinsson, sem er
eigandi sumarhússins, sagðist í
samtali við DV heita góðum laun-
um til þeirra sem veitt geta upplýs-
ingar um innbrotið. Guðmundur
telur að sá eða þeir sem stálu verð-
mætunum úr sumarbústaðnum
þekki eitthvað til hans haga. Þeir
sem veitt geta upplýsingar eru
beðnir um að hafa samband við
Rannsóknarlögreglu ríkisins í síma
44000. -ÓTT
daga verður einnig fótsnyrting og hár-
greiðsla. Panta skal sömu daga í síma
kirkjunnar, 10745.
Teiknaðu Hróa Hött
Leikfélag Hafnarflarðar hóf æfingar á
barnaleikriti um Hróa Hött þann 30. des.
sl. Höfundur leikgerðar og leikstjóri er
Guðjón Sigvaldason. í tengslum viö upp-
setninguna verður efnt til teiknisam-
keppni sem opin verður öllum börnum á
aldrinum 6-12 ára. Myndefnið veröur aö
sjálfsögðu Hrói og félagar hans. Blaöa-
stærð skal vera A-3 og greinilega merkt
nafni og heimilisfangi teiknara. Mynd-
irnar skulu sendast Leikfélagi Hafnar-
Qarðar, pósthólf 116, 220 Hafnarfjörður.
Vegleg verölaun eru í boði og hefur Lego
gengiö til samstarfs við leikfélagið um
framkvæmd keppninnar. Það verður 5
manna dómnefnd sem velur álitlegustu
myndirnar, sem síðan verða til sýnis
géstum og gangandi í leikhúsinu og víö-
ar. Gögn um keppnina veröa send öllum
grunnskólum landsins. Skilafrestur
rennur út 8. febrúar. Niöurstöður verða
kynntar 20. febrúar. Allar frekari upplýs-
ingar veitir Erlendur í síma 91-25194.
Styrkveiting úr minningar-
sjóði Gunnars Thoroddsen
29. désember sl. fór (ram í fjóröa sinn
styrkveiting úr Minningarsjóöi Gunnars
Thoroddsen. Sjóðurinn var stofnaður af
hjónunum Bentu og Valgarði Briem 29.
des. 1985, þegar liöin voru 75 ár frá fæö-
ingu Gunnars. Styrkþegi er aö þessu
sinni Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona.
Ólafia lauk prófi frá -Leiklistarskóla ís-
lands áriö 1987 og hefur síðan leikið með
ýmsum leikhópum. Frú Vala Thoroddsen
afhenti styrkinn sem aö þessu sinni var
að fjárhæð kr. 200.000. Athöfnin fór fram
í Höfða.