Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1990, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1990.
5
Linda Gunnarsdóttir, þriggja barna móðir, eiginkona Hálfdans Kristjánsson-
ar. Þau hjón beita 16 bala saman og hún gefur körlunum ekkert eftir ef
undanskildir eru meistarar greinarinnar. Linda er ein þeirra kvenna sem
ryðja brautina og fella hin hefðbundnu karlavígi. Til skamms tíma var beitn-
ing talin karlaverk en á síðustu árum hafa konur gert það gott á þeim vett-
vangi. DV-mynd Reynir
Beitningaskúrarnir mið-
stöð aíþýðumenningar
Reynir Traustason, DV, Flateyri:
Línuveiðar eru stundaðar af kappi
frá Vestfjörðum þrátt fyrir samdrátt
í þeim víða annars staðar. Nauðsyn-
legur þáttur í veiðunum er beitning-
in. Beitningarmennirnir annast
þessa hlið mála þó sums staðar hafl
vélar leyst þá af hólmi.
Beitningarskúramir eru nokkurs
konar miðstöð alþýðumenningar
víðast hvar og þar standa menn
hverjum meðalsaumaklúbbi framar
í fróðleik hvað varðar hina fjölbreyti-
legu flóru mannlífsins. DV leit inn í
skúrana hjá Jónínu ÍS og Vísi ÍS.
Hljóðið í mönnum var nokkuð gott
en þó bar skugga á því aðalmálið er
þar eins og annars staðar fiskverðið.
Allir eru sammála um að það sé allt-
of lágt. Sumir vildu taka upp teng-
ingu viö fiskmarkaði þannig að hinn
frjálsi markaður réði verðinu. Aðrir
vildu að verðlagsráðið hækkaði
verðið hressilega.
Hálfdan Kristjánsson vildi fá
Kristján Ragnarsson LÍÚ-formann í
heimsókn svo hann sæi með eigin
augum hvernig ástandið væri hjá
útgerðinni og gæti hagað baráttu
sinni í samræmi við það. Kristján er
gamall Flateyringur. Annars sögðust
þeir beitningarmenn lítt gefnir fyrir
að velta sér upp úr vandamálum og
tækju yfirleitt lífinu létt.
FaskrúðsQörður:
Samið við sjómenn
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúösfiröi:
Fiskverðsdeilu áhafna Fáskrúðs-
fjarðartogaranna Hoffells og Líósa-
fells við útgerö skipanna, sem staðið
hefur að undanfórnu, lauk með sam-
komulagi sl. sunnudagskvöld og létu
togararnir úr höfn síðar um nóttina.
Samkomulag varð um að útgerðin
greiddi 7,5% ofan á verðlagsráðsverð
þar til nýtt fiskverð tæki gildi. í sam-
komulaginu er ráðgert að tveir menn
úr áhöfnum hvors skips og tveir frá
útgerð skipanna vinni í sameimngu
að því að afla sér allra þeirra upplýs-
inga sem kostur er um yfirborganir
á fiskverði á Vestfjörðum, Norður-
landi og Austfjörðum og greiði út-
gerðin síðan meðalverð þeirra skipa
sem nefndin tekur til viðmiðunar.
Aflaverðmæti Hoffells og Ljósafells
var rúmlega 225,6 milljónir á sl. ári
og afli þeirra samtals 5.526 tonn.
Meðalskiptaverð 15 Austfjarð.atog-
ara fyrstu 8 mánuði sl. árs var 30,99
kr., samkvæmt skýrslu LÍÚ.
Fréttir
Tólftu Menningar-
verðlaun DV
Þann 22. febrúar næstkomandi
verða Menningarverðlaun DV afhent
í tólfta sinn. Samkvæmt venju fer
verðlaunaafhendingin fram í veislu-
sal Hótel Holts, Þingholti, að undan-
gengnum sérstökum málsverði sem
listakokkar hótelsins eru ábyrgir
fyrir.
Afhentar verða viðurkenningar
fyrir afrek ársins 1989 í bókmennt-
um, leiklist, myndlist, tónlist, kvik-
myndagerð, byggingarhst og hst-
hönnun og hafa þriggja manna dóm-
nefndir verið skipaðar til að velja
listafólk til verðlaunanna.
í dómnefndum eru fulltrúar DV,
venjulegast gagnrýnendur í um-
ræddum hstgreinum, fulltrúar lista-
manna, svp og áhugafólk um listir
úti í bæ. Á næstunni verða þessar
dómnefndir kynntar hér í blaðinu.
Listasmíðar
Menningarverðlaunin eru í formi
sérsmíðaðra skúlptúra eða hstmuna
sem margir helstu hstamenn og hst-
hönnuðir landsins hafa gert fyrir DV.
í þetta sinn er smíði verðlauna-
gripanna í höndum Péturs Bjarna-
sonar, ungs og margverðlaunaðs
listamanns, sem fyrstur íslendinga
hefur helgað sig bronssteypú.
Innan skamms verður nánar sagt
Nokkrir handhafar Menningarverðlauna DV í fyrra og fulltrúar þeirra á Tjarn-
arbakkanum: F.v. Þorsteinn Gunnarsson og Leifur Blumenstein, Sigríður
Þorvaldsdóttir (fulltrúi Róberts Arnfinnssonar), Björn Th. Björnsson, Rut
Ingólfsdóttir, Viðar Víkingsson og Sigurður Örlygsson. Á myndina vantar
Valgerði T orfadóttur fatahönnuð. DV mynd G VA
frá smíðinni og myndlist Péturs. lýsingar yfir þá aðila eða hstaverk
DV mun síðan leyfa lesendum að sem nefndirnar eru með til athugun-
fylgjast með störfum dómnefnda, til ar. -ai.
dæmis með því birta reglulega upp-
OPIÐ ALLAR HELGAR
TM * HUSGOGN
SIDUMULA 30 SIMI 686822
Eigum örfá
sófasett
á sérstöku
tUboðsverði
3ja sæta sófí og 2 stólar kr. 65.000,-
Sófaborð úr eik 80x140 kr. 11.000,-
Hornborð úr eik 70x70 kr. 8.000,-
Dökkt leðurlíki, svart og brúnt