Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1990, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1990, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1990. 11 Udönd Fleiri heima Vegna ákvöröunar yfirvalda um að stöðva áfengissölu í bæn- um Narssaq á Grænlandi í kjðlfar íjöldamorða þar aö morgni ný- ársdags hefur heimabrugg auk- ist Samkvæmt fréttum græn- lenska útvarpsins seldist á fjór- um dögum í síðustu viku jafn- mikið af þurrgeri í Narssaq og venjulega selst á tveimur vikum. Þurrger er mikilvægt efni við bruggunina. : Lagerinn tæmdist fljótlega en um helgina kom flutningaskip með nýjar birgðir af geri þannig að þyrstir Grænlendingar geta nú haldiö áfram að brugga. fiitzftu Sænsk kvennasamtök: UH Andersson verði sviptur lista- mannalaunum Kvennasamtök í Svíþjóð, Fred- rika Breraer samtökin, krefjast þess að skákmaðurinn Ulf And- ersson fái ekki lengur lista- mannalaun frá ríkinu vegna um- mæla hans í viötali í Svenska Dagbladet síðastliöið haust. í viðtaiinu sagöi Andersson að sér þætti það niðurlægjandi að tapa fyrir konum. Lýsti hann því yfir að hann vildi ekki teíla við konur og að hann myndi ekki taka þátt í skákmótum þar sem konur væru þátttakendur. Formanni Fredrika Bremer samtakanna, Ann Egefalk, þykir Andersson lélegur fulltrúi skák- íþróttarinnar. Egefalk tekur það reyndar fram aö vissulega ríki skoðanafrelsi í Svíþjóð en þar sem Andersson njóti listamanna- launa verði að vera hægt aö gera ákveðnar kröfur til hans. Hann sé fyrirmynd ungs fólks í íþrótt þar sem fólk eigi að geta mæst sem jafningjar. Þess vegna líti samtökin á ummælin hans sem móðgun við allar konur sem greiði skatt og þar með lista- mannalaun Anderssons. TT Skákmaðurinn Ulf Andersson viH ekki tefla við konur þar sem hon- um þykir niðuriægjandi að tapa fyrir þeim, Þingmenn þurfa að betrumbæta hegðun sina Baldnir þingmenn á Evrópu- þinginu í Strasbourg þurfa nú að fara haga sér eins og þingmönn- um sæmir. Meirihluti þingheims er sammála um aö breytinga sé þörf á háttalagi ýmissa fulltrúa þar. Á þinginu hafa menn ekki verið feimnir við að ausa úr sér skammarorðum hver á annan. Ekki er óalgengt að til handalög- mála komi og að borðum meö slagorðum sé sveiflaö. Nú á hins vegar að binda enda á slíkt Að því er segir í samþykkt meirihluta þingsheims á þingfor- seti að geta vísað óróaseggjunum frá í tvo til fimm daga og ef þeir vilja ekki yfirgefa salinn af fúsum og ftjálsum vilja munu starfs- menn öryggisgæslunnar á staðn- um sjá til þess að þeir hverfi. Ólátabelgirnir hafa fiestír verið úr rööum þeirra sem eru yst til hægri á væng stjórnmálanna. STAÐGREÐSIA 1990 STAÐGREIÐSLA AF HLUNNINDUM Ferðalög, fœðl, fcrinaður, húsnœði, orka. Dagpeningar til greiðslu á gistingu, fæði og fargjöldum (þó ekki milli landa) erlendis eru staðgreiðsluskyldir fyrir ofan eftirfarandi viðmiðunarmörk: Noregurog NewYork Annars Svíþjóð borg staðar Almennirdagpeningar 190SDR 180SDR 155SDR Dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftirtitsstarfa 120SDR 115SDR ÍOOSDR Dagpeningar innanlands eru staðgreiðsluskyldir fyrir ofan eftirfarandi viðmiðunarmörk: Gisting og fœði í einn sólarhring 6.090kr. Gisting íeinn sólarhring 3.01 Okr. Fœðihvem heilan dag, minnst lOklstferðalag 3.080kr. Fœði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag 1.540kr. Almennir dagpeningar vegna ferðalaga erlendis reiknast þannig, að 50% eru vegna gistingar, 35% vegna fæðis og 15% vegna annars kostnaðar. Hafi gisting erlendis verið greidd frá þriðja aðila reiknast staðgreiðsla af greiddri upphæð ferðafjár þegar 50% af fullri flárhæð dagpeninga hefur verið dregin frá. Auk þess er heimilt að draga fjárhæð sem samsvarar mati á gistingu í eina nótt frá slíku ferðafé. Fái launamaður greidda dagpeninga fyrir 30 daga eða fleiri á sama ári skulu viðmiðunarmörkin lækka um 635 kr. fyrir hvern dag umfram 30. FÆÐI Fæði sem launamanni (og fjölskyldu hans) er látið í té endurgjaldslaust er staðgreiðsluskylt og skal metið þannig til tekna: Fullt fœði fullorðins 635 kr. á dag Fullt fœði bams yngra en 12 ára 509kr.ádag Fœðiaðhluta 254kr.ádag Greiði launamaður laegri fjárhæð fyrir fæði hjá launagreiðanda hans en mat ríkisskattstjóra segir til um skal telja mismuninn til staðgreiðsluskyldra tekna launamanns. Fæðispeninga í stað fulls fæðis eða að hluta ber að telja til tekna að fullu. FATNAÐUR Fatnaður sem ekki telst til einkennisfatnaðar eða nauðsynlegs hlífðarfatnaðar skal talinn til tekna á kostnaðarverði og eru þœr tekjur staðgreiðsluskyldar. Ávalltskalreiknastaðgreiðslu afallrigreiðslu launagreiðanda til launamanns tilkaupa á fatnaði. HÚSNÆÐIOG ORKA Endurgjaldslaus afnot af íbúðarhúsnæði sem launagreiðandi lætur launamanni í té eru staðgreiðsluskyld og skulu þannig metin til tekna: Fyrir ársafnotreiknast2,7% affasteignamati húsnœðisins, þ.m.t. bílskúrs og lóðar. Sé endurgjaid greitt að hiuta skal reikna mismuninn til tekna upp að 2,7% af gildandi fasteignamati. __________________ Húsaleigustyrk ber að reikna að fullu til tekna.___________________ Ef búseta í húsnæði er kvöð sem fýlgir starfi launamanns er heimilt að lækka mat húsnæðishlunninda við álagningu á næsta ári eftir staðgreiðsluár. Orkukostnaður launamanns, greiddur af launagreiðanda, skal reiknast að fullu til tekna á kostnaðarverði. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.