Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Page 4
Fréttir DV Biðin eftir nýju fiskverði: Sjómenn víða um land að missa þolinmæðina getum ekki haldið aítur af þeim mikið lengur, segir Oskar Vigfússon „Ég veit aö það er mikill kurr í sjómönnum viða um land. Þeir vilja taka fiskverðsmálið í sínar hendur og þrýsta á um samninga heima í héraði eins og Austfirðingar gerðu í byijun ársins. Við höfum beðið þá að híða með aðgerðir í von um lausn í Verðlagsráði. Ég geri mér hins veg- ar fulla grein fyrir því að við höldum ekki aftur af þeim mikið lengur," sagði Óskar Vigfússon, formaður Sjómannasambands íslands, í sam- tali við DV í gær. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Farmanna-og fiskimannasambands- ins, sagði að sínir menn væru hka famir að ókyrrast og aldrei að vita hvenær þolinmæði þeirra þryti ef ákvörðun um nýtt fiskverð dregst mikið úr þessu. Nýtt fiskverð átti að hggja fyrir 1. febrúar síðastliðinn. Unnið hafði verið að því í ráðinu af hálfu sjó- manna að markaðstengja hluta aíla þeirra skipa sem eingöngu landa heima utan fiskmarkaða. Þetta hefur ekki tekist. Fundir í Verðlagsráði hafa ekki verið haldnir um þetta mál síðan í vikubyrjun og enginn fundur hefur verið boðaöur enn. Fiskkaupendur og útgerðarmenn hafa unnið að því á bak viö tjöldin aö finna einhverja lausn sem fulltrú- ar sjómanna í Verðlagsráði geta sætt sig við. Menn vilja allt til vinna að koma í veg fyrir að fiskverðsákvörð- unin fari til yfirnefndar Verðlags- ráðs vegna þess að þá ganga fulltrúar sjómanna út og Verölagsráð sjávar- útvegsins er þar með búið að vera eins og það er nú uppbyggt. Hitt er svo annað mál, eins og Sveinn Hjört- ur Hjartarson, formaður Verðlags- ráðs, sagði í samtali við DV. „Það er skylt, samkvæmt lögum, að vísa ákvörðuninni um nýtt fiskverð th yfirnefndar, náist ekki samkomulag í Verðlagsráði. Fulltrúar sjómanna í ráðinu halda fast við þá kröfu að markaðstengja hluta aflans eða að ákveðinn hónus verði greiddur ofan á verðlagsráðs- verð. Fiskkaupendur aftur á móti vilja að fiskverð hækki um 3 prósent í tveimur áfóngum á árinu. Fuhtrúar útgerðarmanna eru verr settir, vegna þess að á milh 75 og 80 prósent útgerðarmanna eru hka eigendur fiskvinnslustöðva og sitja því í raun beggja vegna borðsins. -S.dór Gifurlegt fannfergi hefur verið á isafirði síðustu vikurnar og enn snjóaði þár i gær. Snjómokstur hefur gengið vel og götur eru víðast færar bilum og fólki nema i Holtahverfinu. Fjölmargir vörubílar aka snjónum i sjóinn. Á mynd- inni er unnið að hreinsun á Hjallavegi, fyrir ofan Hnífsdalsveg. DV-mynd Vilborg Davíðsdóttir Elsta útgerðarfélag landsins: Búið að selja síðasta skipið - ekki þar með sagt að við séum hættir, segir Einar Þorgilsson „Svo gott boð er hægt að fá í skip að maður geti ekki hafnað því. Það var einmitt það sem gerðist hjá okk- ur ogþví seldum við Fífil GK tU Faxa- rpjöls hf. í Reykjavík. Þetta þýðir alls ekki aö við séum endilega hættir í útgerð, hvað þá rekstri fyrirtækis- ins,“ sagði Einar ÞorgUsson, forstjóri elsta útgerðarfyrirtækis landsins, Einar ÞorgUsson hf. í Hafnarfirði. FífiU GK er 670 tonna loðnuskip og var síðasta skipið sem þetta forn- fræga útgerðarfyrirtæki rak. Einar ÞorgUsson sagði að fyrirtækið ætti stórt og mikið verslunarhúsnæði í Hafnarfirði, þar sem það ræki enn verslun. Einnig á fyrirtækið stórt land, um það bU 2 hektara, sem það leigir út fyrir atvinnurekstur. „Það er því af og frá að við séum að leggja fyrirtækið niður og heldur er ekki víst að við séum hættir í út- gerð,“ sagði Einar ÞorgUsson. Faxamjöl hf„ sem keypti FífU GK, er fyrirtækið sem rekur loðnu- bræðsluverksmiðjurnar á Kletti og í Örfirisey í Reykjavík. Nú er unnið að algerum endurbótum á verk- smiðjunni í Örfirisey. Þegar þeim er lokið og verksmiðjan tekur til starfa er fyrirhugaö að verksmiðjunni á Kletti verði lokað. -S.dór íslenskt efdrlit meö NATO og Varsjárbandalagi? Eftirlitshlutverfc íslands stóreykst - segir Steingrímur Hermannsson forsætisráöherra „Ég hef áður sagt að ég telji að við getum tekið að okkur eftirhtshlut- verk fyrir bæði NATO og Varsjár- bandalagið. Mér sýnist það vera að rætast núna,“ sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra þeg- ar hann var spurður hvort hlutverk íslands væri að breytast í kjölfar af- vopnunarviðræðnanna. - En hvemig verður þetta eftirlits- hlutverk? „Það er nú erfitt að segja en það dylst engum að öll sambönd stórveld- anna eru að gjörbreytast og ég held að flestir hljóti að sjá að ef heill hug- ur fylgir þessu þá verður eftirlitið í framtíðinni hvað mikilvægast. - Og þá ekki hvað síst í Norður-Atlants- hafi. Mér sýnist alveg ljóst að ísland hlýtur að leika þar lykilhlutverk þótt ég sé nú ekki að segja aö Rússarnir komi hingað með herlið. Það er alveg ljóst að takmörkun á vigbúnaði á og í höfunum og í lofti kallar á eftirlit í Norður-Atlantshafi. Við erum nú þegar að byggja radarstöðvar sem gegna þar mikilvægu hiutverki og hljóta að vera notaðar í því sam- bandi.“ - En má búast við að hlutverk Kefla- víkurstöðvarinnar breytist? „Ég skal ekkert um það segja því ekkert hefur verið minnst á það enn- þá. Það er væntanlega nokkuð í land með það því hún er hlutfallslega fá- menn miðaö við herstöðvar NATO víða í Evrópu. Þar er í raun fyrst og fremst um þær flugvélar að ræða sem eru í eftirlitinu. Ég hef ekki séö neinar hugmyndir um að skera niður í Keflavíkurstöðinni í þessum áfanga en ég held að það hljóti að koma að því,“ sagði forsætisráðherra. -SMJ Niðurskurður flárlaga: Oánægjan mest hjá Svavari, Jóhönnu og Steingrími J. - næst ekki að skera niður um einn milljarð, segir forsætisráðherra Segja má að hver ráðherra berjist nú um á hæl og hnakka til að minnka sem mest niðurskurð í sínu ráðu- neyti. Samkvæmt heimildum DV er óánægjan langmest hjá Svavari Gestssyni menntamálaráðherra, Jó- hönnu Sigurðardóttur félagsmála- ráðherra og Steingrími J. Sigfússyni samgönguráðherra. Það er enda ekki nema von þar eð tillögur fjármála- ráðherra gera ráð fyrir mestum nið- urskurði hjá þeim. Lagt er til að skera niður 400 millj- ónir króna af fjárveitingum til vega- mála. Það gat ekki komið á verri tíma fyrir Steingrím J. sem er nýbúinn að fara vestur á firði og boða að hraöa framkvæmdum við jarðgangagerð. Lagt er til að skera niður 100 millj- ónir í Byggingasjóð ríkisins og eins er lagt til að dregið verði úr fjárveit- ingum til málefna fatlaðra í ár. Þessi mál heyra undir Jóhönnu Sigurðar- dóttur félagsmálaráðherra. Svavar Gestsson menntamálaráð- herra sagði í samtah viö DV á dögun- um að á meðan hann sæti í stól menntamálaráðherra yrði ekki hróflaö við því fé sem fara á í viðgerö- ir og endurbyggingu Þjóöleikhúss- ins. í tillögum íjármálaráðherra er einmitt gert ráð fyrir að skera þarna niður. Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra sagði í samtali við DV í gær að skoriö yrði niður fé til við- gerða á Bessastaðastofu um 50 millj- ónir í ár. Hann sagðist einnig vera að láta skoða hvort hægt væri að draga úr heildaráætlun um viðgerðir á Bessastöðum. Steingrímur sagöi einnig að hann hefði enga trú á að fjárlög yrðu skorin niður um 1200 milljónir króna, eins og nefnt hefur veriö. -S.dór/-SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.