Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Blaðsíða 5
LÁUGÁRDAGUR 10. FEBRfaÁR 1990.
5
Fréttir
Fjárfestingarfélagið krafið um skaðabætur:
Farið mannavillt þegar at-
hugað var um ábyrgðaraðila
seljandi bíls fékk ekki greiðslu vegna vanskila kaupanda
Ungur maður hefur krafið Fjár-
festingarfélag íslands um skaðabæt-
ur að upphæð um sex hundruð þús-
und krónur vegna mistaka sem hann
segir að hafi orðið hjá starfsmanni
þegar honum var lofað að skuldabréf
yrði keypt af honum vegna bílavið-
skipta. Maöurinn leitaði til Fjárfest-
ingarfélagsins í júlí 1988 vegna
skuldabréfs sem hann vildi útbúa og
selja hjá félaginu. Starfsmaður tjáði
honum að fyrirhugaðir ábyrgðar-
menn væru traustir eignamenn.
Maðurinn mætti ásamt öðrum sem
ætlaði að kaupa bílinn af honum og
vera greiðandi að bréfinu. Hugðust
þeir því ganga frá undirskrift og sölu
á bréfinu. Seljandanum var síðan
sagt að koma aftur að nokkrum dög-
um liðnum og sækja söluandvirði
bréfsins.
í trausti munnlegs loforös gekk
seljandinn frá sölunni á bílnum.
Hann fór svo nokkrum dögum seinna
til að vitja söluandvirðis bréfsins
sem átti að vera greiðsla fyrir bílinn.
En þá kom annað á daginn. Starfs-
maðurinn haföi ekki áttað sig á því
að alnöfnur voru skráðar við þá götu
þar sem fasteignagjöldin höfðu verið
greidd - önnur var „traust" og átti
nægilega miklar eignir en hin ekki.
Maðurinn segir að sér hafi þá verið
tjáð að bréfið væri verðlaust til við-
skipta. Starfsmaðurinn hafði farið
húsavillt í hók sem geymir nöfn
þeirra sem borga fasteignaskatt.
Maðurinn hafði nú samband við
kaupanda bílsins. Þá kom í ljós að
sá hafði selt bílinn - kaupin gátu því
ekki gengið til baka. Setti seljandinn
þá bréfið í innheimtu í banka og hjá
lögmanni en án árangurs. Lögmaður
mannsins gerði bótakröfu á hendur
Fjárfestingarfélaginu að andvirði um
sex hundruð þúsund króna.
í svarbréfi frá lögmanni Fjárfest-
ingarfélagsins segir meðal annars að
félagið annist ekki að útbúa skulda-
bréf fyrir aðila sem eiga í viðskiptum
nema því aðeins að félagið hafi kom-
ið þeim viðskiptum á. „Fjárfestingar-
félag íslands hefur ekkert með bif-
reiðaviðskipti umbjóðanda þíns og
kaupanda bílsins aö gera. Umbjóð-
andi þinn veröur því að bera tjón
sitt sjálfur... líkt og þeir sem ekki
geta sannað að tjónið megi rekja til
saknæmra og ólögmætra athafna eða
athafnaleysis þriðja manns,“ segir í
bréfinu.
Einar Sigurjónsson lögmaður, sem
starfar hjá Fiárfestingarfélaginu,
sagði í samtali við DV að umræddur
maöur hefði selt bíl sinn án þess að
vera búinn að ganga frá skuldabréf-
inu. „Við viljum að þetta mál fari í
réttan farveg. Maðurinn lét ekkert í
sér heyra í hálft annað ár en nú hef-
ur hann í hótunum. Við höfum ekki
kannað sannleiksgildi frásagnar
mannsins og vitum ekki hver átti í
hlut af okkar hálfu - málið er ekki á
því stigi. Ég get hins vegar sagt að
við erum tilbúnir til samninga ef
máhð fer í réttan farveg og bóta-
kröfur eru sanngjarnar," sagði Einar
Sigurjónsson.
-ÓTT
r..
Skíðasprengja
í Mýrdalnum
Páll Péturssan, DV, Vík í Mýrdal:
Það er engu líkara en þaö hafi fall-
ið skíðasprengja á Víkina því nú eru
allir sem vettlingi geta valdið farnir
að stunda skíðaiþróttina af kappi.
Kveikjan að þessu er sú að keypt var
skíðalyfta sl. sumar og hefur hún nú
verið sett upp í brekkunum inn af
Víkurkauptúni. Ungmennafélögin í
Mýrdalnum sjá um daglegan rekstur
lyftunnar, en hún var keypt fyrir
fjárframlög yfir eitt hundrað aðila
sem lögðu fram stofngjald í upphafi.
Þegar lyftan var opnuð í fyrsta
skipti í Vík laugardaginn 20. janúar
fóru milli 20 og 30 manns á skíði og
auk þess komu margir til að horfa.
Það er nægur snjór og gott færi á
þessum stað og hæfilegar brekkur
fyrir alla, jafnt vana sem óvana
skíðamenn. Lyftan hefur verið í
gangi svo til á hverjum einasta degi
frá opnun og núna um helgina voru
yfir 50 skíðamenn í brekkunum í Vík.
Aðstandendum lyftunnar barst
ánægjuleg gjöf þegar einn hrepps-
nefndarmaður Mýrdalshrepps kom
með ávísun að upphæð kr. 50.000 með
kveðju og þakklæti frá hreppsnefnd
fyrir gott framtak. Þetta er góö viður-
kenning fyrir það mikla starf sem
undirbúningshópurinn hefur staðið
í og hvetur menn til dáða.
Búið er aö setja lýsingu í hluta
Sauðárkrókur:
Jói á jörfagleði
Skagfirðinga
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauöárkxóki:
Lengi vel blés ekki byrlega fyrir
Leikfélagi Sauðárkróks að fá leik-
stjóra til að stjórna vetrarverkefni
félagsins. Leikstjórar virðast síður
en svo vera á lausu um þessar mund-
ir og stjóm félagsins var að komast
í standandi vandræði þegar loks sl.
þriðjudag tókst að fá leikstjómanda,
Árna Blandon.
Jói eftir Kjartan Ragnarsson varð
fyrir valinu sem sæluvikuleikrit, en
óðum styttist í þessa árlegu jörfagleði
Skagfirðinga sem að þessu sinni
hefst 24. mars. Á ráðningu Árna er
reyndar sá hængur aö hann kemur
eldd til starfa fyrr en um 20. feh*"1 ’.
Æfingatíminn verður því ekki nema
rétt rúmur mánuður. Leikhópurinn
verður því að halda vel á spöðunum,
en sex vikur er talinn lágmarks æf-
ingatími.
brekkunnar og með því móti lengist
notkunartími lyftunnar um helming
á hverjum degi. Fyrirhugað er að
halda skíðamót fljótlega og gefur
Búnaðarbankinn í Vík verðlaun.
Þetta er ánægjuleg þróun því að
skíðamennska var svo til óþekkt í
Mýrdalnum þar til núna. Þess má
geta að aðeins tekur tvo og hálfan
tíma að keyra frá Reykjavík til Víkur
ef færð er góð, því að vel getur verið
lokað á öðmm skíðasvæðum vegna
veðurs þegar opið er hér í Vík.
K Ai'-fWW
mm
Skíðalyftan í Vík.
DV-mynd Páll
- Qárfestíng sem skilar sér
í öryggí, ánægju og endursölu
3ja ára ábyrgð