Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Side 7
Pétur Einarsson flugmálastjóri um skoðun „ríkisþotunnar“:
.£
Fréttir
Kannast ekki við mistök
hjá skoðunarfyrirtækinu
- flugvirkjar segja að tæringin hefði átt að finnast fyrr
„Ég kannast ekki við að um hand-
vömm hjá skoðunarfyrirtækinu ytra
hafi verið að ræða. Þetta er eitt þeirra
fyrirtækja sem viö viðurkennum til
að skoða flugvélar og þaö er undir
ströngu eftirliti. Auðvitað geta þar
orðið mistök en veit ekki til að það
hafi orðið í þessu tilviki," sagði Pétur
Einarsson flugmálastjóri aöspurður
um hvort bandaríska fyrirtækinu,
sem skoöaði Boeingþotu Arngríms
Jóhannssonar, hafi orðið á mistök
við skoðunina.
Við skoðun ytra fannst ekki tæring
í þotunni en hún kom hins vegar í
ljós við skoðun hér heima á dögun-
um. Það kostar hálfs mánaðar vinnu
hjá flugvirkjum að gera við þotuna
og er ekki reiknað með að hún fari
í loftiö á ný fyrr en eftir helgi.
Flugvirkjar, sem unnið hafa við
þotuna, eru ekki á sama máli og Pét-
ur Einarsson. Þeir segia að í þaö
minnsta hluti tæringarinnar hefði
átt að koma í ljós við skoðunina ytra
og þá hefði átt að leita víðar að tær-
ingu. Niðurstaða í þessu máli skiptir
miklu um hver á að borga reikning-
inn fyrir viðgerðina, Arngrímur sem
á þotuna eða fyrirtækið ytra sem
skoðaði hana og fann ekkert að.
Lárus Atlason, starfsmaður flug-
rekstrardeildar Flugmálastjórnar,
fór út á vegum stofnunarinnar til að
fylgjast með skoðuninni. Hann fylgd-
ist þó ekki með nema á síðari hluta
skoðunartímans sem allt kostaði 9000
vinnustundir. Lárus þvertekur fyrir
að hann hafi átt ganga eftir að þau
svæði væru skoðuð þar sem tæringin
kom fram síðar.
Meðal flugvirkja gengur sú saga
að skoðunin ytra hafi verið flaust-
urslega framkvæmd. Þannig hafl
lúgur á skrokk vélarinnar verið opn-
aðar en ekki verið hirt um að ýta
einangrunarull undir lúgunum frá
til að sjá hvort bitar þar undir væru
tærðir. Við skoöunina hér hafi hins
vegar komið í ljós að á bak við þessa
sömu einangrun voru bitar nær
ónýtir af tæringu.
-GK
Strandferðaskipið Hekla við togarabryggjuna á Akureyri, nýkomið úr við-
gerð og endurbótum i Slippstöðinni. DV-mynd gk
Hekla komin
úr viðgerðinni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Strandferðaskipið Hekla var afhent
eigendum sínum í fyrradag eftir
umfangsmikla viðgerð hjá Slippstöö-
inni á Akureyri.
Eins og kunnugt er fékk Hekla á
sig brotsjó sl. haust og urðu miklar
skemmdir á vistarverum og stýris-
húsi. Smíöað var nýtt stálþil í fram-
þil yfirbyggingar. Allar innréttingar,
tæki og raflagnir í stýrishúsi og íbúð-
um voru fjarlægð og allt byggt upp
að nýju, enda var allur búnaður í
þessum hluta skipsins. Um leið var
unnið að almennu viðhaldi á skipinu,
bolviðgerð, sandblæstri og málun á
botni.
Viðgerðin á Heklu hefur verið aðal-
verkefni Slippstöðvarinnar að und-
anförnu og verkefnastaða stöðvar-
innar er nú mjög slæm.
Rafmagnsveita Reykja-
víkur lækkar taxtann
Taxti Rafmagnsveitu Reykjavíkur
lækkar um 2,4% frá 1. mars. Það er
borgarráð sem hefur ákveðið þetta
og einnig að hitaveitugjöldin hækki
ekki um 6% 1. mars eins og átti að
verða. Þetta er gert í trausti þess að
frumvarp um orkugjald verði ekki
að lögum á þessu þingi.
Þá er ákveðið að dagvistargjöld,
farmiöar í strætisvagna og aðgöngu-
miðar aö sundstöðum hækki ekki
heldur á næstu mánuðum nema hug-
myndir um þróun verðlags, sem
komið hafa fram eftir nýgerða kjara-
samninga, standist ekki.
-GK
Týr við bryggju á Sauðárkróki. DV-mynd Þórhallur
Sauöárkrókur:
Úreldingarbátur á safn
Þórhafiur Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
Bæjarstiórn Sauðárkróks ákvað á
fundi sínum nýlega að verða við til-
mælum hafnarstjómar að semja við
Steingrím Garðarsson um kaup á Tý
SK-33 sem kominn er í úreldingu. Týr
þykir merkilegt skip, er annar 2ja
báta sinnar gerðar sem eftir eru í
landinu. Einn bæjarfulltrúa greindi
frá því að falast hefði verið eftir bátn-
um hjá Steingrími af aðilum sem
hygðust gera Tý að lystisnekkju.
Bæjarstjórnarmönnum sýndist
ekki grundvöllur fyrir að kaupa Tý
dýrum dómum, þrátt fyrir að í bátn-
um væru verðmætir hlutir, frá Sóló-
eldavél upp í skipsvélina sjálfa.
Áhugi eigenda bátsins þyrfti að koma
til við varðveislu hans, þar sem ljóst
væri að kaupverð hans yrði smá-
munir hjá því sem kosta yrði upp á
hann sem safngrip.
Gólfteppí, mottur og dreglar,
gólfdúkar, gólftlísar, parket
Grensásvegi 11,
simi 91-83500
G.Á. Böðvarsson hf.
Byggingavörur
Selfossi, simi 98-21335
M
METRO
Álfabakka 16,
simi 91 -670050
£
arma
Bæjarhrauni 16,
Hafnarfirði, simi 91 -652466