Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Síða 11
01
-11
„Ég var að koma af balli síðasta
vetrardag og undir áhrifum frá sam-
komuhúsinu áleiðis heim. Við Þjórs-
árdalinn missti ég stjórn á bílnum,
hann fór nokkrar veltur og ég kast-
aðist út úr honum,“ segir Ingi Steinn
Gunnarsson en í apríl eru liðin tíu
ár frá slysinu örlagaríka. Ingi var
einn í bílnum, blæjujeppa án velti-
grindar og öryggisbeltis. Félagar
hans, sem óku í bíl rétt á eftir, komu
á vettvang skömmu síðar. Farið var
með Inga Stein með sjúkrabifreið
Landsvirkjunar, sem staðsett er við
Búrfellsvirkjun, á slysadeild Borgar-
spítalans og hélt hann meðvitund
ailan tímann. „Ég man að ég vildi
standa upp og gerði ítrekaðar til-
raunir til þess en líkaminn neitaði
að hlýða,“ segir Ingi Steinn. Þegar
hann kom á slysadeildina missti
hann fyrst meðvitund. ,
Lamaður fyrir lífsstíð
Á Borgarspítalanum lá hann á sjö-
undu viku algerlega hreyfmgarlaus
í strekk. Við honum blasti strax sá
raunveruieiki að hann yrði bundinn
við hjólastól fyrir lífstíð. Þann 16.
júní 1980 fór Ingi Steinn í endur-
hæfingu á Grensásdeildinni, sem átti
eftir að verða hans heimili í tæp tvö
ár en þaðán útskrifaðist hann 10.
mars 1982.
„Líf mitt tók vissulega miklum
stakkaskiptum við slysið en ég hef
kappkostaö aö vera ekki að velta mér
upp úr því,“ segir Ingi Steinn. „Það
fóru engar framtíðaráætlanir út um
þúfur því að þær voru engar fyrir.
Ég var 22 ára þegar ég lenti í þessu
og var svona ósköp venjulegur strák-
ur, hugsaði mest um líðandi stund
og hafði litlar áhyggjur af framtíð-
inni. Það verða miklar breytingar á
persónuleikanum við það að ganga í
gegnum svona lífreynslu og enginn
verður samur á eftir.“
Tekjurnar eru
örorkubætur
Ingi Steinn er fæddur og uppalinn
í Gnúpverjahreppi. Hann haíöi unnið
í nokkur ár hjá Landsvirkjun en ekki
farið í neitt framhaldsnám. „Það má
segja að það hafi komið mér til góða
að hafa verið á vinnumarkaði en
ekki í skóla. Lífeyrissjóðsréttur minn
er töluverður og ég hef tekjur af hon-
um. Ef ég hefði verið í langskólanámi
hefði ég engan rétt haft í lífeyrissjóði
og þurft að láta bætur Trygginga-
stofnunar nægja,“ segir Ingi Steinn.
Góður árangur
í endurhæfingu
Hann lætur vel af vistinni á Grens-
ásdeildinni og hrósar öllum starfs-
mönnum. „Ásgeir Ellertsson, yfir-
læknir deildarinnar, hefur reynst
mér mjög vel og er starfsfólkið alveg
frábært og öll umönnun mjög góð.
Oft er ungt fólk á stofnuninni í lengri
tíma og er það gjarnan hvatt til að
taka þátt í lífinu fyrir utan. Auðvitað
eru ákveðnar reglur en þær eru
sveigjanlegar, ef maður gengur ekki
of langt,“ segir Ingi Steinn og brosir.
„Ég náði góðum árangri í endur-
hæfingunni, enda ætlaði ég mér það
frá byrjun. Ég hafði góða þjálfara og
einsetti mér að vinna vel með þeim.“
Fyrst eftir að Ingi Steinn útskrifaö-
ist frá Grensás bjó hann einn í íbúð
á Flyðrugrandanum. „Það var alveg
rosalegur tími fyrir mig. Ég hafði
búið í vernduðu umhverfi í tvö ár
og allt í einu var ég einn á báti. Ég
var mjög kvíðinn og þetta var hörku-
vinna alla daga. Nú þurfti ég skyndi-
lega að gera sjálfur hluti sem ég áður
hafði fengið aðstoð við. Að mínu
mati ætti að vera eitt milhstig frá
Grensás og út í lífíð á ný, til að venja
mann við það aö sjá um sig sjálfur."
í óhentugu
leiguhúsnæði
Núna býr Ingi Steinn í leiguhús-
næði í Reykjavík. íbúðin er á jarð-
hæð en hentar samt ekki vel fyrir
hjólastóla. Þröskuldar eru of háir og
dyragat inn á baðherbergið er of
mjótt. Hann vill gjaman kaupa sér
Ingi Steinn Gunnarsson lenti i bilslysi árið 1980 og hefur siðan verið bundinn við hjólastól.
DV-mynd KAE
Líkaminn neit-
aði að hlýða
- segir Ingi Steinn Gunnarsson sem verið hefur lamaður í tíu ár
íbúð sem hentar honum betur.
„Lánakerfið er snúið og erfitt að
borga háa vexti þegar maður hefur
ekkert annað en örorkubætur til
framfærslu. SEM-hópurinn ætlar að
byggja tuttugu íbúðir fyrir félags-
menn en sú framkvæmd leysir að-
eins hluta af þörfinni. Mér fmnst
verst að aðstoð í félagslega íbúöa-
kerfinu fá aðeins hópar eða samtök
en ekki einstaklingar."
Fólk viróir ekki sér-
merktu bílastæðin
Að sögn Inga Steins hefur margt
breyst til batnaðar varðandi aðgengi
fólks í hjólastólum. Þó er fólk enn
það ósvífið að virða ekki bílastæði
sérmerkt fotluðum og segir hann að
bílastæðin við Laugaveg séu lýsandi
dæmi. „Til eru þeir bílstjórar sem
halda að þessi stæði séu ætluð þeim.
Þeir hreyfa sig ekki einu sinni þó
maður flauti á þá. Við stórmarkaöina
eru sérmerktu stæðin yfirleitt látin
í friði enda er gæsla þar. Kringlan
var hrein himnasending fyrir okkur
í hjólastólum en þar er hægt að sinna
flestum erindum og alltaf hægt að fá
bílastæði," segir Ingi Steinn.
Borgar sig
ekki að vinna
Ingi Steinn hefur enga fasta vinnu
og segir að í raun borgi sig ekki að
vinna fyrir tekjum því viö þaö skerð-
ast örorkubæturnar. Hann hefur að-
eins fengist við sölu auglýsinga í
gegnum síma en það hentaði honum
illa. „Ég tók starfið alltof alvarlega
og varð jafnvel niðurbrotinn ef mér
var illa tekið. Sumir hreyttu út úr
sér ónotum og kvörtuðu sáran undan
svona sníkjudýrum," segir Ingi
Steinn og hlær.
Síðustu ár hefur hann eytt hluta
af sumarfríunum í útlöndum og ferð-
ast víða. Talið berst að umferðarmál-
um hér og erlendis og hugsanlegum
úrbótum. „Það er ólíkt betra að ferð-
ast í útlöndum en hér. Tillitssemi
ökumanna er hér í algjöru lágmarki
og vegakerfið í Reykjavík og ná-
gremú er löngu hætt að anna allri
umferðinni. Slysin í umferðinni eru
alltof mörg og ungt fólk í stórum
hluta fórnarlömbin. Ég get samt illa
dæmt um það hvernig á að koma
vamaðarorðum til ungra krakka
sem eru að byrja sinn ökumanns-
feril. Gönguferð um Grensásdeild og
þyngri refsingar gætu hugsanlega
vakið þau til umhugsunar um hætt-
umar og þær hrikalegu afleiðingar
sem eitt slys getur haft,“ segir Ingi
Steinn.
Værukær að eðlisfari
Deginum eyðir hann að mestu við
lestur blaða og bóka eða eftir því sem
til fellur. Honum finnst ágætt að lúra
fram eftir á morgnana og taka daginn
rólega. Allt sem hann gerir, svo sem
að klæðast, tekur lengri tíma en hjá
þeim sem hafa hreyfiorkuna óskerta.
„Ég er afar værukær að eðlisfari
og því segi ég stundum að ég sé í
ákjósanlegu starfi nema hvað launin
mættu vera hærri,“ segir Ingi Steinn
glettnislega. „Ég er sáttur við að-
stæður mínar og læt hjólastólinn
ekki hindra mig í því að gera það sem
mig langar til. Að velta vöngum yfir
þvi sem búið er og gert hefur engan
tilgang."
-JJ
c'b ‘Leather
^Sc7WASTERj
leðttrhúsgögn og
leðurfatnað
Borgarholtsbraut
KAJPINDH/F
Skjólbruut 6
Kópavogi
Siml 45960
*
Skjólbraut 6
> r
Kópavogsbraut
Höfum á boðstólum efni til hreinsunar, við-
halds og verndunar á Ieðurhúsgögnum og leð-
urfatnaði.
Einnig á sama stað litanir á leðurhúsgögnum.
Leðurhreinsir:
Leðurnæring:
Leðurvörn:
Áklæðahreinsir:
Áklæðavörn:
Hreinsar leðrið og opnar stíflaðar
svitaholur.
Mýkir upp og verndar leðrið. Fáanlegt
með lit og litlaust.
Verndar viðkvæmt leður, s.s. rúskinn
og mokkafatnað.
Fljótvirkt hreinsiefni á úðabrúsum.
Sprautað yfir áklæði til verndar.
Heildsala - smásala
Sendum í póstkröfu
KfiJ PIND HF.
Skjólbraut 6, Kópav.
Sími 45960