Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Side 18
18
Veiðivon
Dorgveiði bönnuð:
Á stórum hluta Elliða-
vatns og í Helluvatni
Veiðisvæðið neðst á Norðurá i Borgarfirði hefur gefið töluvert af bleikju
síðustu daga en kalt hefur verið í veðri. DV-mynd G. Bender
Dorgveiði á vötnum landsins að
vetri nýtur mikilla vinsælda og þeim
fjölgar stöðugt sem dorga. Margir
bændur veiða sér í soðið, sumir
leggja net undir ísinn en aðrir dorga
bara. Svo eru það sportararnir sem
finnst gaman að renna dag og dag
þegar veðurfar er skaplegt. En veð-
urfarið í vetur hefur veriö erfitt þótt
veiðivötnin séu mörg og sum gjöful.
Einn og einn dagur í dorgi gerir vötn-
in bara betri sem mörg eru yfirfull
af smáum silungi. Dorgveiðin gæti
jafnvel bjargað þeim mörgum ef veitt
væri allan ársins hring en sam-
kvæmt landslögum má alls ekki
veiða nema hluta af árinu. Sumir
bændur og landeigendur hafa leyft
þessa veiði því að þeir vita að veiðin
fer ekki illa með vötnin.
„Veðurfarið hefur verið erfitt síð-
ustu daga en þegar hefur gefið hefur
veiðin verið góð og töluvert sést af
bleikju," sagði Þorkell Fjeldsted í
Ferjukoti í gær. En þrátt fyrir kulda
og trekk síðuátu daga hafa dorgarar
verið að veiða einn og einn neðst á
Norðurá í Borgarfirði. „Bleikjan
virðist vera að koma aftur og aldrei
er að vita hvað hún stendur lengi
við, getur verið farin eftir nokkrar
vikur. Flestar eru bleikjurnar kring-
um eitt pund, þær stærstu um tvö
pund. Fiskifræðingur, sem hefur
verið hérna hjá okkur, fór fyrir fáum
dögum, hann veiddi um 20 bleikjur.
Ég fór í klukkutíma og fékk þrjár
bleikjur.
Það hefur viðgengist að dorgveiði
hefur verið leyfð á vötnum viða um
land. En þær fréttir berast að veiöi-
mönnum hafi verið vísaö frá sem
hugðust dorga á Elliðavatni og Hellu-
vatni fyrir landi Skógræktarinnar.
-,,Ég hef oft fengið að dorga fyrir fisk
á Elliðavatni og Helluvatni en fyrir
fáum dögum var mér neitað um leyfi.
Þetta skil ég alls ekki, vatnið er ofset-
ið af smáfiski og allt í lagi að renna
eina og eina dagstund,“ sagði veiði-
maður sem dorgar mikiö fyrir fisk á
vetuma í næsta nágrenni Reykjavík-
ur.
„Við leyfum ekki lengur dorgveiði
í Elliðavatni og Helluvatni hérna hjá
okkur,“ sagði Vignir Sigurðsson eft-
irlitsmaöur í samtali viö DV.
Eitthvað hafa dorgarar fengið að
veiða fyrir landi Gunnarshólma og
þar í kring en sjaldnar nú orðið.
-G. Bender
Dýrasta fluga landsins
DV-mynd G.Bender
Dýrasta fluga landsins:
Verður varla
kastað fyrir lax
„Viö höfum gefið fluguna í tíu ár
og í ár er hún um 180 þúsund króna
virði, með allri vinnu og efnum,“
sagði Siguröur G. Steinþórsson, gull-
smiður í Gulli og silfri, en fyrir fáum
dögum afhenti hann dýrustu flugu
landsins. Eins og við sjáum á mynd-
inni er hún sett á íslenskt grjót. „Ég
veit ekki hvað við munum gefa þessa
flugu lengi, það verður að koma í ljós
með tíð og tíma,“ sagði Sigurður enn-
fremur.
Þó ekki sé vitað hve lengi flugan
verður gefin veröur henni varla kast-
að fyrir þann silfraða. Til þess er hún
alltofdýr. -G.Bender
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1990.
, r'°y gjJMgag QI V^TD.'jjQg A DUA.T
Þjóðarspaug
DV í skamm-
deginu
Eins og Kristur
Gamall og kenjóttur karl lá
banaleguna. Þar sem karl átti þó
nokkra peninga til handa þeim
ættingjum er hann liíðu bað hann
um aö kallað yrði í tvo lögfræð-
inga svo allt yrði nú löglegt, Er
þeir birtust reis karl eilitið upp
úr rúminu og sagðí:
„Mig langaði nú bara til að
deyja eins og Kristur, á milli
tveggja ræningja. Þess vegna lét
ég kalla á ykkur.“
Skyldi hann
ekki gjósa?
Gömul kona fór með feröahóp
að skoða Gullfoss og Geysi. Er
veriö var að skoða Gullfoss sást
hún henda nokkrum sápustykkj-
um út í hann og segja stuttu síöar:
„Æ, farðu nú að gjósa, greyíð
mitt.“
Það þarfnúað
borða á milli
Nýgift hjón eyddu hveiti-
brauösdögunum á Hótel Lofleið-
um. Fyrsta daginn fóru þau ekki
út úr „brúðarsvítunni“ en þann
næsta birtust þau hins vegar i
matsalnum.
„Hvað vilt þú fá, elskan,“
spurði sá nýgifti.
„Þú veist hvað mér þykir best,
ástin mín,“ svaraði brúðurin.
„Já, en við verðum nú eitthvað
að borða líka.“
Fann númer
Einu sinni sem oftar hringdi
síminn á skrifstofu Alþingis. Er
skrifstofustjórinn svaraði í sím-
ann heyröist ekkert frá hinum
enda línunnar. Er hann hafði
spurt öðru sinni hver þar væri
heyrðist konurödd segja:
„Ég var bara að gá hvar þetta
númer væri, ég fann það nefni-
lega skrifaö á miöa í jakkavasa
mannsins míns.“
Nafn:........
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast
við fyrstu sýn eins en þegar
betur er að gáð kemur í ljós
að á myndinni til hægri hef-
ur fimm atriðum verið
breytt, Finnir þú þessi fimm
atriði skaltu merkja við þau
með krossi á hægri mynd-
inni og senda okkur hana
ásamt nafni þínu og heimil-
isfangi. Að tveimur vikum
hðnum birtum við nöfn sig-
urvegara.
1. Vasadiskó með bassa-
mögnun að verðmæti kr.
5.900.
2. Vekjaraklukka að verð-
mæti kr. 1.900.
Vinningarnir eru úr Opus,
Skipholti 7, Reykjavík.
Merkiö umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 41
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Sigurvegarar fyrir þrítu-
gustu og áttundu getraun:
1. Guðrún Þorláksdóttir,
Keilusíðu 11, 603 Akureyri
2. Bergís Ingibergsdóttir,
Kjarrhólma 18,200Kópavogur
Vinningarnir verða sendir
heim.