Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Page 30
38
LÁÚGARDAGUR 10. FEBRÓÁR 1990.
Lífestm
í Esperanza-Bay er gifurleg mörgæsabyggð og þar má á stundum sjá allt
að 70 þúsund mörgæsir með unga.
Veðrið í útlöndum
HITASTIG IGRÁÐUM
-10 Ingra Otll-6 'mB Iiíéé11,1115 1611120 20 tll 25
Byggt á veðurfréttum Veðurstolu Islands kl. 12 á hádegi, tðstudag
Imur 4°
imborg 7'
mim
Montreal
Léttskýji
T Chicago 3°
’YTfc
Atekýja^, Log Angeles 10'
lanta 15'
Orlando 17'
Þrándheimur 3
* * :
Reykjavík -1
Þórshöfn 4° $
Glasgow 8'
Bergen
New York 6
DVJHJ
Rignlng V Skúrlr
Snjókoma Þrumuvéður
: Þoka
ísland:
Hópferðir
til suður-
skautsins
Það er ekki á hverjum degi sem
1 íslendingar eiga þess kost að bregða
sér til Suðurskautslandsins í rúm-
lega tveggja vikna hópferð og borga
fyrir það um hálfa milljón króna.
Það er Svenska Turistfóreningen
(STF), sem er samsvarandi félags-
skapur og Ferðafélag íslands, sem
hefur skipulagt ferð til Suöurskauts-
landsins fyrir almenning í janúar
1991. Fjöldi þátttakenda í ferðinni
verður þó takmarkaöur og ekki er
reiknað með að nema tæplega 40
manns komist með.
Fararstjóri í ferðinni verður dr.
Olle Melander en hann var leiðang-
ursstjóri sænskra rannsóknarleið-
angra til suðurskautsins á árunum
1987/1988 og 1988/1989. Dr. Melander
er þekktur vísindamaður í Svíþjóð
og í ferðinni mun hann fræða þátt-
takendur um dýralíf og náttúru Suð-
urskautslandsins og skýra frá rann-
sóknum sínum þar.
Afskekkt og trjálaust
Roland Amundsen, norskur heim-
skautakönnuður, kom fyrstur til
suðurpólsins. Það var 14. desember
1911. Hann varð fyrstur manna til
að komast að hjarta síðasta ókann-
aða meginlandsins. Bandaríkjamenn.
hafa þar nú búðir. Rákir í pólnum
einkenna hann.ásamt hnetti á toppn-
um og fánum þeirra þjóða sem undir-
rituðu suðurheimskautssamninginn
en þær eru 14 að tölu. Samkvæmt
honum var meginlandið skoriö niöur
eins og kaka, þar sem póllinn er mið-
punktur, og skipt á milli þjóðanna
sem gerðu kröfur um aö eiga þetta
risastóra land.
Suðurheimskautið er afskekktasta,
hálendasta og eina trjálausa megin-
landið. Það er á stærð við Bandarík-
in, að viðbættu Mexíkó. Það liggur
undir um það bil 90 prósentum af
öllum snjó og ís heimsins. Að meðal-
tali er það 2.134 metra þykkt lag sem
þekur
Ferðir
suðurskautið. Ef heimskautaísinn
bráðnaði myndi hæð sjávar um allan
heim hækka um 60 cm. Þó er loftslag
á þessum slóðum eins þurrt og í Sa-
hara. Miklir vindar blása réttsælis
um meginlandið og ná allt að 160 km
hraða á klukkustund. Mesti kuidi,
sem mælst hefur á suðurskautinu og
jafnframt allri jörðinni, er mínus 88,3
gráður á Celsius.
Feröatilhögun
Þann 20. janúar 1991 verður flogið
frá Norðurlöndum með SAS til Buen-
os Aires en þaðan er haldið á þriðja
degi til Punta Arenas við Magellan-
sund sem skilur Eldlandið frá megin-
landi Ameríku. Þaðan er flogið á
fjórða degi til Puerto Wilhams á Eld-
landinu. Þaðan er siglt meö norska
skipinu Nordbrise sem er 485 tonna
og sérsmíðað til siglinga í ís. Skipið
tekur 39 farþega. Siglt verður um
Beaglesund og fyrir Hornhöfða í suð-
urátt en um 50 tíma sighng er fyrir
stafni áður en fyrstu ísjakarnir sjást.
Fyrst veröur gengið á land á eyju
Georgs konungs, King George Island,
og skoðaðar rannsóknarstöðvar sem
þar eru. Á eyjunni eru maðal annars
stöðvar Chilebúa, Sovétmanna, Pól-
verja, Kínverja og Brasilíumanna.
Þaðan verður haldið til Vonarflóa,
Esperanza Bay, þar sem verður farið
í land. Þar er stór argentínsk rann-
sóknarstöð með fjölskyldufólki. Þar
verður dvalið heilan dag.
Á Esperanza Bay er mikil mör-
gæsabyggð. Oft má sjá þar meira en
70 þúsund mörgæsir með unga. Siglt
verður meðfram ströndinni í gúmmí-
bátum, auk þess sem efnt verður til
göngu- og skíðaferða.
Á Gerlache-sundi er stórfenglegt
umhverfi þar sem hópurinn fylgist
með risastórum ísjökum sem gríðar-
legir skriðjöklar ryðja í sjó fram.
Þarna synda hvahr og mörgæsir við
skipshlið og selir hvílast á jökunum
og mikið fuglalíf er aht um kring.
Fegurð Paradísarflóa er rómuð þar
sem landslag hkist háum tindum
Alpanna. Þar verður farið í land og
litast um, sömuleiðis á Anvers-eyju
og Deception-eyju. Á fimmtánda degi
ferðarinnar er komið til baka til Pu-
erto Wilhams. Þaðan verður farið til
Buenos Aires og gefst þátttakendum
færi á að lengja ferðina í Suður-
Ameríku, skoða Buenos Aires, svo
og Iguazu-fossana og fleira ef áhugi
er fyrir hendi.
Það eru ferðaskrifstofurnar Saga
og Úrval-Útsýn sem veita allar nán-
ari uppl. um þessa óvenjulegu ferð.