Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1990, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1990, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1990. 9 Utlönd Nafn Reykjavík- ur minnir á frið - sagði Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvakíu Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvakíu, hélt fund meö íslenskum og erlendum blaðamönnum á laugardag. DV-mynd KAE „Við, sem erum nú að taka okkar fyrstu skref í lýðræðisátt, höfum mikinn áhuga á því landi sem hefur á að skipa elsta þjóðþingi í heimi. Og við sem viljum fækka hermönn- um okkar höfum mikinn áhuga á þjóð sem engan hefur herinn," sagði Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvakíu, á fundi með íslenskum og erlendum fréttamönnum á laugardag er hann skýrði frá hví hann hefði komið til fslands. Havel þekktist boð Þjóðleik- hússins til að koma til íslands í stutta heimsókn og sjá m.a. uppsetningu Þjóðleikhússins á verki sínu, Endur- byggingunni. „Löngu áður en ég varð forseti hafði mér verið boðið á frumsýningu á verki mínu. Ég vil standa við orð mín, hvort sem ég er andófsmaður eða forseti," bætti tékkneski forset- inn við. Friðarhljómur i nafni Reykjavíkur Einnig sagði Havel að nafn höfuð- borgarinnar hefði átt stóran þátt í komu sinni. „Það er friðarhljómur í nafninu Reykjavík,“ sagði hann og átti þar greinilega við fund þeirra Reagans, fyrrum Bandaríkjaforseta, og Gorbatsjov Sovétforseta í Höfða árið 1986. „Tékkneska stjórnin vill berjast fyrir friði á víðtækari og dýpri grundvelli en fyrri stjómhafar," sagði forsetinn. Útilokar ekki forsetaframboð Havel drap víða niður fæti á blaða- mannafundinum á laugardag, fjall- aði bæöi um stjómmál og ritstörf sín. Hann vildi ekki útiloka að hann byði sig fram til forseta þegar kosið verð- ur um næsta forseta landsins að afloknum þingkosningum í Tékkó- slóvakíu, þeim fyrstu fijálsu í ára- tugi, sem fara í júní næstkomandi. „Það er ekki undir mér komið," sagði forsetinn. „Það em undir hin- um ýmsu stjórnmálaöflum og flokk- um komið. Allt sem ég get gert er að þiggja slíkt eður ei. Ekki okkar að uppræta kommúnista Havel sagði að það væri ekki á stefnuskrá sinni, ríkisstjómar sinnar né þjóðarinnnar að uppræta kommúnisma. „Allir geta átt þátt í að byggja lýðræðislega Tékkóslóvak- íu, hvort sem hann er eða var félagi í kommúnistaflokknum." „Ég er ekki spámaður," sagði for- setinn þegar hann var spurður hvað hann teldi nánustu framtíð bera í skauti sér fyrir ríki Austur-Evrópu. „En eitt get ég sagt og það er að þró- unin í lýðræðisátt í þessum löndum er óumflýjanleg og óafturkallanleg." Helsta verkefnið sagði Havel vera að breyta hugsunarhætti og hefðum, afnema alræðishyggjuna í stofnun- um sem og hugsanagangi fólksins. Lítill tími til skrifta „Ef ég skrifa nokkurn tíma aftur, ef ég hef nægan tíma til að skrifa aftur, verður það áreiðanlega ekki um setu mína á forsetastóli,“ sagði Havel þegar tahð barst að skrifum hans. „Eg myndi ekki kunna að skrifa þannig leikrit. Að auki ef ég skrifaði þannig leikrit yrði þaö nokk- urra mánaða langt, ekki aöeins tveggja stimda verk.“ En Havel vildi þó ekki útiloka að reynsla hans í embætti forseta Tékkóslóvakíu kæmi lesendum hans ef til vill fyrir sjónir síðar meir, í ein- hveriu leikrita hans í framtíðinni. -IBS/StB Havel í Kanada: Sameinað Þýskaland gæti orðið jákvætt afl Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvak- íu, sem nú er í heimsókn í Kanada, sagði í gær að sameining þýsku ríkj- anna gæti orðið jákvætt afl í myndun nýrrar Evrópu. Utanríkisráðherra Tékkóslóvakíu, Jiri Dienstbier, sagði þó að taka þyrfti tillit til Pólverja í sambandi við ákvörðun landamæra sameinaðs þýsks ríkis. Havel sagði að engin hætta stafaði af sterku, sameinuðu Þýskalandi, svo framarlega sem það væri lýðræö- islegt. „En ef þar yrði alræði mundi ég verða hræddur, jafnvel þótt íbú- sagði tékkneski forsetinn. I greinargerð eftir Havel, sem birt var á laugardaginn, segir hann að ný Evrópa muni ekki hafa þörf fyrir verði eða vemdara. Hins vegar muni alltaf verða rúm fyrir Bandaríkin, mesta lýðræðisríki í heimi. Og einnig lýðræöisleg Sovétríki. Hræringarnar í Tékkóslóvakíu halda áfram. Á laugardaginn, á með- an Havel ræddi við íslenska ráða- menn, rak kommúnistaflokkurinn í Tékkóslóvakíu Gustav Husak, fyrr- um forseta, úr flokknum, fyrrum for- Strougal og tuttugu aðra harðlínu- menn sem komust til valda eftir innr- ás Varsjárbandalagsins 1968. Nýleg- ar skoðanakannanir hafa gefið til kynna aö kommúnistaflokkurinn hljóti minna en tíu prósent atkvæð- anna í fyrstu fijálsu kosningunum í landinu í meira en fjóra áratugi en þær fram fara 6.júní. Síðastliöna þrjá mánuði hefur yfir hálf milljón manna sagt sig úr flokknum og margar flokksbyggingar verið gerðar upptækar. Eru þær nú í eigu ríkisins. Reuter arnir væru bara tvær milljónir," sætisráðherra landsins, Lubomir Vaclav Havel ásamt Brian Mulroney, forsætisráðherra Kanada, i Ottawa i gær. Havel heldur til Bandaríkj- anna á morgun. Hann kveðst ekki ætla að snikja neitt. Hins vegar vilji Tékkar ekki stór lán sem þeir geti ef til vill ekki endurgreitt. í för með Havel erfjöldi fjármálasérfræðinga. Simamynd Reuter STIMPLAR PRENTUN Eigendur fyrirtækja, athugið. NU ER VSK TEKINN VIÐ AF SÖLUSKATTI! Þá vantar þig stimpil með kennitölu og VSK-númerinu. Búum til stimpla með hraði. PRENTUM: reikninga, bréfsefni, eyðublöð o.fl. Nú þurfa reikningar að vera í samræmi vegna VSK. og góð þjónusta. FÉLAGSPRENTSMIÐJAN hf. Spítalastíg 10, Sími 91-11640-fax 91 -29520

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.