Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1990, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1990.
31
dv Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
Kays '90, simi 52866.
Nýjasta sumartískan á fjölskylduna,
yfir 1000 síður, búsáhöld, leikföng o.fl.
o.fl. Verð kr. 190 + bgj. B. Magnússon.
Útsalan stendur út þennan mánuð, enn
lægra verð. Kreditkortaþjónusta.
Dragtin, Klapparst. 37, sími 12990.
Fyrir öskudaginn: 1 miklu úrvali: bún-
ingar, grímur, andlitsfarði og hárlitur.
Póstsendum. Tómstundahúsið,
Laugavegi 164, s. 21901.
Sérsmíðuð fiskabúr, fyrir þá sem gera
kröfur, aliar stærðir og gerðir t.d. frí-
standandi. Vinnum eftir þínum hug-
myndum. Fagleg ráðgjöf við uppsetn-
ingu. Góð greiðslukjör. Smíðagallerí,
Mjóstræti 2b, sími 91-625515.
■ Sumarbústaðir
Smíðum sumarhús. Sími 91-652388 og
675134.
■ Bátar
Smábátaeigendur! Höfum fyrirliggj-
andi talstöðvar, dýptarmæla, ratsjár,
lóran C og sjálfstýringar í trillur.
Friðrik A. Jónsson hf., Fiskislóð 90,
s. 91-14135 og 91-14340. Kreditkortaþj.
■ Bílar til sölu
Toyota Hiace disil 4x4, árg. ’87, til sölu,
sæti fyrir 8, ekinn 108 þús., tvöfaldur
gangur af dekkjum á felgum. Uppl. í
símum 91-678349 og 985-23882.
Dodge Ram pickup dísil ’85, 6,2 1, upp-
hækkaður o.m.fl., toppeintak, skipti á
ódýrari. Uppl. gefur Bílasalan Blik,
sími 91-686477.
MMC-Pajero disil, turbo, langur, '87, 5
gíra, rafmagn í öllu, mjög fallegur bíll.
Uppl. gefur Bílasalan Blik, sími 91-
686477.
Cherokee Chief ’79 til sölu, vél V-8,401
cu. in. Sérstaklega vel útbúinn bíll í
toppstandi. Uppl. í síma 21179.
R 6696 St. Regis til sölu. Verðlaunaein-
tak. Uppl. í síma 91-14975 og 91-611438.
Honda Accord EX ’87, rauðsans., ekinn
32 þús. km, sjálfskiptur, m/öllu, allur
sem nýr. Uppl. gefur Bílasalan Blik,
sími 91-686477.
Benz sendiferðabíll 307 D ’82 til sölu,
í góðu lagi, með háu húsi og gluggum,
verð aðeins 680 þús. Símar 91-84851,
91-657281 og 91-18735.
Toppeintak af Ford 250 XL
með plasthúsi, ekinn aðeins
kmT8 cyl., sjálfskiptur, bein innspýt-
- íngygóö greiðslukjör. M. Benz rúta,
27-sæta, þarfnast upptekningar á vél,
/nýlega sprautuð, útlit og ástand gott,
mjög gott verð.
' Eigum mjög gott úrval nýrra og not-
aðra bíla í 700 fm innisal, verð og kjör
við allra hæfi. Uppl. Bílasalan Bíla-
kringlunni, Grófinni 8, Keflavík, sím-
ar 92-14690 og 92-14611.
Bílasala í takt við tímann.
Tilbúinn i fjallaferðina: Willys CJ-7,
árg. ’85, vél 4 cyl. 2,5, verð 940 þús.
Uppl. í síma 96-27792 og 96-21123 eftir
kl, 20.
■ Þjónusta
Gröfuþjónusta, sími 985-21901 og
91-689112, Stefán. Tökum að okkur
alla gröfuvinnu, JCB grafa með opn-
anlegri framskóflu, skotbómu og
framdrifí.
Líkannsrækt
Stigvél - nýtt á íslandi. Þú brennir
meira en við hlaup og hjólreiðar,
styrkir kálfa, læri, rassvöðva, hjarta,
lungu og æðakerfi. Verð stgr. 24.890,
afb. 26.200. #Tilboð: Allir sem kaupa
stígvél eða þrekhjól fá tækifæri til að
kaupa úr m/púlsmæli og skeiðklukku
með 30% afsl. á meðan birgðir end-
ast. Vaxtarræktin. Frískandi verslun,
Skeifunni 19, 108 Rvík, sími 681717.
Sá vinsælasti. Öflugur pressubekkur
með fótatæki og „Pec deck“ og vínil-
lyftingasett m/krómstöng. Verð stgr.
31.331, afb. 32.980. •Tilboð: Allir sem
kaupa bekk og lyftingasett fá tæki-
færi til að kaupa mittisbekk (kubb)
með 35% afsl. meðan birgðir endast.
Vaxtarræktin. Frískandi verslun,
Skeifunni 19, 108 Rvík, sími 681717.
Scanlool j
Vandaðar danskar
beygjuvélar
Etnisbreidd:
1045-2040 mm
Efnisþykkt:1,2-1,8mml
Greiðslukjör
I
| MARKAÐSÞJÓNUSTAN
| Skipholti 19 3. hæð j
■ (fyrir ofan Radíóbúdina) ■
h\ sími: 2 6911 H
Fréttir
Á leikritinu Endurbyggingin í Þjóðleikhúsinu. Vaclav Havel sat við hlið frú
Vigdísar Finnbogadóttur og virtust þau hafa mikla ánægju af sýningu leik-
ritsins. DV-mynd KAE
Vaclav Havel ánægður með sýningu Þjóðleikhússins:
ÆUar að sýna
leikurum í Prag
myndband
af leikritinu
- Tékkamir könnuðust við túlkunina úr raunveruleikanum
Helga Jónsdóttir, sem lék eitt aðal-
hlutverkanna í Endurbyggingunni
eftir Vaclav Havel, hitti höfundinn í
leikhléi og í kvöldverðarboði á Hótel
Sögu að lokinni sýningu.
„Havel lýsti ánægju sinni með leik-
ritið. Hann hefur ekki séð leikrit eft-
ir sjálfan sig í 22 ár og þetta var í
fyrsta skipti sem hann sér þetta verk.
Áð lokinni sýningu óskaði hann eftir
myndbandi af leikritinu sem hann
ætlar að sýna leikurum í Tékkósló-
vakíu þegar byrjað verður að æfa
verkið þar. Viö vorum að sjálfsögðu
mjög glöð og ánægð með þessa ósk
hans sem ég geri ráð fyrir að verði
uppfyllt,” sagði Helga í samtali við
DV.
„Havel sagði aö skilningur okkar á
verkinu væri hárréttur. Hann var
jafnframt ánægður með þaö sem kom
honum á óvart og það sem hann vissi
ekki sjálfur að væri í verkinu. Havel
fannst það sem kom honum á óvart
passa vel við verkið og sagði að-það
styrkti verkið.
Þessi maður er mjög einlægur og
þaö sem hann segir held ég að komi
beint frá hjartanu," sagði Helga.
Signý Pálsdóttir leikhúsritari sagði
við DV að hún væri ánægð vegna
viðbragða höfundarins við verkinu.
„Ég fylgdist með Havel á meðan
hann horfði á leikritið. Hann hló
mikið og virtist vera ánægður með
það sem hann sá. Hann er hlýlegur
og áhorfendur sáu hvaö hann var
auðmjúkur þegar hann hneigði sig í
lokin er hann kom upp á svið,“ sagði
Signý Pálsdóttir, leikhúsritari Þjóð-
leikhússins, í samtali viö DV.
Signý sagði að Vaclav Havel hefði
borið fram tvær óskir áður en hann
kom til íslands - annars vegar að fá
að hitta leikara persónulega og hins
vegar að fá að skoða Höfða. „Ég
heyrði haft eftir honum að honum
heíði fundist frammistaða leikar-
anna góð. Mér fannst mikið koma til
ræðu hans í kvöldveröarboðinu á
Sögu þegar hann Svaraði ræðu Vig-
dísar Finnbogadóttur forseta. Hann
sagðist þá hafa á tilfinningunni að
menntamenn og andans fólk ætti nú
eftir að láta æ meira til sín taka í
æðstu stjórnunarstöðum. Hann
nefndi Vigdísi sem dæmi,“ sagði
Signý.
Signý sagði að tékkneskir áhorf-
endur, sem sáu leikritið, hefðu kann-
ast vel við þær manngerðir sem Jó-
hann Sigurðarson og Þórunn
Magnea Magnúsdóttir túlkuðu í leik-
ritinu. Jóhann lék flokksritara í
kommúnistaflokknum og Þórunn
Magnea lék arkitektinn Maco-
urkovu. Tékkunum fannst að hreyf-
ingar þeirra og látbragð lýstu því vel
hvernig yfirbragð fólks í þeirra stöð-
um er í raunveruleikanum.
Þór Tulinius, sem lék eitt aöal-
hlutverkanna í Endurbyggingunni -
Albert, ungan arkitekt og eldhuga,
þurfti að lokinni sýningu í Þjóðleik-
húsinu að flýta sér upp í Borgarleik-
hús þar sem hann leikur annan eld-
huga, Ólaf Kárason í Höll Sumar-
landsins. Sýningin í Þjóðleikhúsinu
var því tímasett með tilliti til Þórs
og sýningarinnar í Borgarleikhús-
inu.
-ÓTT
Bankamenn sömdu
Samband íslenskra bankamanna
og viðsemjendur þess, samninga-
nefnd bankanna, sömdu um helgina.
Launasamningurinn er á sömu nót-
um og samningar ASÍ og BSRB. í
honum er kveðið á um sömu pró-
sentuhækkanir á laun á sömu dögum
og í fyrmefndu samningunum.
Bankamenn náðu þó nokkrum sér-
kröfum fram. Má þar nefna aö að
frumkvæði þeirra var gert sam-
komulag um að skipuð yrði nefnd
sem á að endurskoða launakerfi
bankamanna og gera tillögur um
breytingar á því. Á nefndin að hafa
lokið störfum fyrir 1. mars 1991.
Einnig var ákveðiö að skipa nefnd
sem tekur fyrir og gerir tillögur um
aðild bankanna að atvinnuleysis-
tryggingasjóði. Hingað til hafa bank-
arnir ekki átt aðild að sjóðnum held-
ur hafa þeir sjálfir greitt starfsmönn-
um, sem sagt hefur veriö upp, at-
vinnuleysisbætur. Nefndin á að ljúka
störfum á samningstímanum en
hann er til 1. sept 1991.
Ekki hefur enn verið ákveðið hve-
nær skrifleg allsherjaratkvæða-
greiðsla verður um samninginn en
stefnt er að því að hún verði sem
fyrst.
J.Mar