Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1990, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1990, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1990. Útlönd S^jómarandstöðuflokkur í Samtök lýðræöissinna í Mongól- íu stofnuöu í gær fyrsta stjórnar- andstööuflokkinn í landinu, Lýö- ræöisflokkinn. Á þingi flokksins var fjöldaafsagnar leiðtoga komm- únista krafist og að þeim yröi refs- aö fyrir aö hafa valdið efnahags- vanda í landinu. Kommúnistar hafe verið viö völd í Mongólíu í 69 ár. Um þúsund manns sóttu þing hins nýja flokks í gær en aö sögn talsmanna hans eru stuðnings- menn flokksins um 70 þúsund. Nýi flokkurinn vfil koma á fjölflokkakerfi i Mongólíu og krefst lýöræöis- legra réttinda. Auk frjálsra kosninga er farið fram á efnahagsumbætur til aö bæta kjör láglaunafólks. Flokkurinn hefur lýst sig reiðubúinn til samstarfs við aðra hópa, eins og til dæmis kommúnistaflokkinn. Stjórnin i Mongólíu hefur þegar lofeö fjölflokkakerfi. Fulltrúar á þlngi lýöræðishreyfing- arinnar f Mongólíu. simamynd n«ut«r Flugvéiar kyrrsettar Indversk yfirvöld hafa látið kyrr- setja allar nýjar flugvélar af gerð- inni Airbus A320 á meðan sérfræð- ingar kanna flughæfni þeirra. Fimm dagar eru síöan flugvél af þessari gerð fórst í aðflugi að flug- vellinum viö Bangalore í Indlandi með þeim afleiðingum að nítíu af þeim hundrað fjörutiu og sex, sem um horð voru, létu lífið. Vart hefur orðiö við tæknilega örðugleika við flug nokkurra hinna fiórtán Airbusvélanna sem Ind- verjar hafe keypt af Airbus fyrir- tækinu. Búist er við að kyrrsetning vél- anna vaidi öngþveiti í Indlandi þar sem þörfin fyrir innanlandsflug er mikil. ' ' *' ^ Brak fiugvélarinnar sem fórst á Indlandi í síðustu viku. Símamynd Reuter Fangi beið bana við flóttatilraun Franskir lögreglumenn við þyrluna sem þrir byssumenn, sem reyndu aó bjarga tveimur föngum, rændu. simamynd Reuter Fangi hrapaði til bana og annar særðist alvariega þegar gerð var til- raun tíl að bjarga þeim með þyrlu af þaki fengelsis fyrir sunnan París í gær. Embættismenn segja að þrír byssumenn hafi rænt þyrlunni i París og neytt flugmann hennar til að fljúga til fangelsisins. Meðai fanganna þar er Anis Naccache semafplánar lifstíöardóm fyrir tilraun til að myrða fyrrum forsætisráðherra írans. Ekki er talið að hann hafi átt hlutdeild í flóttatilrauninni. Byssumennimir létu reipi fella frá þyrlunni en það slitnaði þegar fan- gamir gripu í það. Starfsmenn fangelsisíns segja að reipiö hafi greinilega ferið utan í eina af þeim hindmnum sem komiö haföi verið fyrir á þak- inu til að koma í veg fyrir aö þyrlur gætu lent þar. Fanginn, sem lést, afplánaöi 15 ára dóm fyrir rán og 6 ára fyrir flótta úr fengelsi. Sá sem slasaöist sat inni fyrir morð og haföi hann hlotið lífs- tíöardóm. Býsl ekki við frekari fækkun Utanríkisráöherra Bandaríkjanna, James Baker, sagði í gær aö yfirvöld í Vestur-Evrópu og líklega einnig í Sovétríkjunum vildu að Bandaríkin héldu hermönnum sinum í Evrópu vegna þess stöðugleika sem nærvera þeirra veldur. Baker kvaöst efast um að þrýst yrði á Bandaríkin aö kalla heim alia hermenn sína jafnvel þótt Sovétmenn flyttu alla sína á brott. í síöustu viku samþykktu yfirvöld í Moskvu tillöguBush Bandaríkjafor- seta sem kvað á um aö hermenn hvors stórveldis fyrir sig yrðu ekki fleiri en 195 þúsund í Mið- Evrópu. í Nepai Tveir menn biöu bana í Nepal í morgun er lögregla skaut á mann- fjölda sem kastaöi grjóti. Allsheri- arverkfall er i Nepal >-ii lil þess var efnt til að leggja áherslu a krofurn- ar um fjólflokkakerfi. Alls hafe nú sex manns látíð iífið Námsmenn i Nepal hrópa siagorð í átökunum milli lögreglu og mót- gegn yfirvöldum. simamyndReuter mælenda sem hófust í gær. Einnig hafe fréttir borist af bardögum milii mótmælenda og stuðningsmanna yfirvalda. Þau segjast liafa hand- tekiö yflr fimm hundruð manns áöur en baráttan hófst, þar á meðal þrjá háttsetta leiðtoga Kongressflokksins í Nepal en starfsemi hans eins og annarra flokka í landinu var bönnuö 1960 eftir tveggja ára tilraunir meö flölflokkakerfi. Mótmælendur i Tadzhíkístan hafa m.a. fariö fram á að leiðtogar kommúnistaflokks lýðveldisins segi af sér. Símamynd Reuter Tveir háttsettir kommúnistar í Litháen: Lýsum yfir sjálf- stæði fyrir árslok Tveir háttsettir kommúnistar spá því að sovéska Eystrasaltslýðveldið Litháen muni lýsa yfir sjálfstæði sínu frá Sovétríkjunum áður en árið er á enda. Þar með yrði Litháen fyrst af fimmtán lýðveldum Sovétríkjanna til að lýsa yfir sjáhstæði sínu frá Moskvu. Romualdas Ozalas, sem sæti á í stjórnmálaráði kommúnistaflokks lýöveldisins, sagði í viðtali við Reut- er-fréttastofuna að þing lýðveldisins, sem kosið verður til á fimmtudag, myndi að öllum líkindum taka loka- skrefið. Þá sagði Algimantas Cekuol- is, sem er háttsettur í miðstjórn kommúnistaflokks lýðveldisins, að andstaða harðlínumanna í Moskvu við kröfum um aukiö sjálfsforræði, hefði þrýst á ráðamenn í lýðræðinu að leggja fram kröfur um sjálfstæði. Litháen, líkt og Eistland og Lettland, varð sjálfstætt ríki árið 1918 og hélt sjálfstæði sínu til 1940 þegar það var innlimað í Sovétríkin. „Lagalega séð erum við sjálfstæðir nú,“ sagði Cekuolis og vísaði þar með til nýlegrar ákvörðunar þings Lithá- ens að ógilda atkvæðagreiðslu fyrr- um þings lýöveldisins frá sumrinum 1940 um aö ganga til hðs við Sovétrík- in þegar sovéskir hermenn voru þeg- ar komnir. Kommúnistaflokkur Lit- háen hefur þegar sagt skilið viö Kpmmúnistaflokk Sovétríkjanna. í heimsókn til Litháen í síðasta mánuði sagði Gorbatsjov Sovétfor- seti að lög, þar sem útlistaö yrði und- ir hvaða skilyrðumm lýðveldi gætu sagt sig úr ríkjasambandi við Sovét- ríkin, yrðu fljótlega lögð fram fyrir sovéska löggjafarþingiö. Allir þeir stjórnmálaflokkar sem bjóða fram í sveitarstjómarkosning- unum sem fram fara í Litháen um næstu helgi, þar á meðal kommúnist- ar, vilja að lýðveldið fái sjálfstæði. „Þing lýðveldisins Litháen mun taka ákvörðunina um sjálfstæði,“ sagði Ozalas. „Það er enginn vafi á að það muni gerast á þessu ári.“ Cekuohs sagði að ferið gæti svo að ákvörðun yröi tekin í júlí. Eystrasaltslýðveldin þrjú - Litháen, Lettland og Eistland - hafa verið fremst í flokki þeirra sem krefjast aukins frelsis frá Moskvu- stjórninni. Báðir mennirnir segja að komm- únistaflokkur Litháens myndi feta í fótspor kommúnistaflokka í ná- grannaríkjum Sovétríkjanna og breyta nafni flokksins þegar tengslin við Sovétríkin yrðu slitin. Órói í Tadzhíkístan í Mið-Asíulýðveldinu Tadzhíkístan tóku um fimmtán þúsund manns þátt í kröfugöngu í gær þvert á bann við fjöldasamkomum og mótmælum sem sett var í síðustu viku eftir harð- ar og mannskæðar deilur. Að því er fram kom í fréttum reyndi lögregla ekki aö dreifa mann- íjöldanum og fóru mótmælin fram friðsamlega. Kröfumenn fóru fram á bætt lífskjör og aukið efnahagslegt sjálfstæði. Talið er aö yfirvöld í lýö- ræðinu hafi gefið að minnsta kosti þögult samþykki sitt fyrir mótmæl- unum í gær til að reyna að koma í veg fyrir að frekari róstur hæfust. Yfirvöld og leiðtogar íbúanna náðu samkomulagi sem batt enda á róst- urnar í síðustu viku og var meðal annars gert ráð fyrir í því samkomu- lagi að ráðamenn lýöveldisins segðu af sér. Miðstjórn kommúnistaflokks- ins hefur aftur á móti ekki samþykkt slíkt samkomulag. Reuter Vopnahlé í Beirút - Aoun mildar afstöðu sína Vopnahlé milli andstæðra fylkinga kristinna í Líbanon, sem barist hafe um yfirráð yfir kristna hluta höfuð- borgarinnar Beirút, náðist um helg- ina og sögðu sjónarvottar að óstöðugt vopnahlé hefði ríkt í borginni í gær, sunnudag. Bardagar hafa staðið yfir nær sleitulaust í Beirút síðan 31. jan- úar síðastliðinn þegar Aoun hers- höfðingi, sem hefur á að skipa um fimmtán þúsund hermönnum, skip- aði þjóðvarðliðinu að leggja niöur vopn og hafna friðaráætlun þeirri sem Arababandalagið reynir nú að koma á í þessu stríðshrjáða landi. Síðan hafa blóðugir bardagar geisaö í höfuðborginni, þeir blóðugustu í fimmtán ára borgarstyrjöld Líban- ons. Aoun kveðst nú í fyrsta sinn síðan í lok janúar reiðubúinn til að binda enda átökin með samningaviðræð- um en hermenn hans höfðu haft yfir- höndina í átökunum allt þar til á laugardag. „Ég vona að binda megi enda á ... ástandið í borginni með samningaviðræðum," sagði Aoun. Vopnahléið í gær, sem er það tólfta sem næst á nítján dögum, veitti íbú- um borgarinnar tækifæri til aö ná í matvæli, vatn og aðrar nauðsynjar sem þeir hafa ekki haft tök á að nálg- ast í marga daga. Margir fóru til kirkju til aö biðja fyrir hinum látnu. Hinn kristni hluta borgarinnar, þar sem bardagarnir hafa átt sér stað, er nú sem ein rúst. Að sögn heimild- armanna hafa sex hundruð og þrjá- tíu týnt lífi í þessum bardögum og tvö þúsund og þrjú hundruð særst. Aoun og hermenn hans höfðu haft yfirhöndina í bardögum þar til á laugardag þegar sérlið þjóðvarðliðs- ins vann fyrsta sigurinn fyrir þjóð- varðhðið. Árásin stóð í tíu klukku- stundirogvarmjöghörð. Reuter Borgarhluti kristinna í Beirút er nú í rúst eftir harða bardaga síðustu nitján daga. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.