Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1990, Page 4
4 • MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1990.
Fréttir________________________________________________________________________________dv
„Norræn samvinnau í gjaldskrármálum Pósts og síma:
Kostar sama að hringja
til Grænlands og Ástralíu
Þó að Grænlendingar séu næstu
nágrannar okkar er talsvert dýrara
að slá á þráðinn til þeirra en til
Bandaríkjanna og jafn dýrt og að
hringja til landa hinu megin á hnett-
inum.
Samkvæmt þeirri gjaldskrá Pósts
og síma, sem nú er í gildi, kostar
mínútan til Grænlands 169 krónur,
eða jafnmikið og ef hringt er til Ástr-
alíu. í samanburði má geta þess að
mínútan til Bandaríkjanna kostar
128,50 kr.
Það er um 100 krónum ódýrara að
hringja til Danmerkur en Græn-
lands, því til Danmerkur, Noregs og
Svíþjóöar kostar minútan 69,50 kr.
Aðeins dýrara er að hringja til Finn-
lands því þangað kostar mínútan
76,50 kr. -GHK
Sumir biðu í fjórtán tíma
Það var handagangur í öskjunni
hjá Samvinnuferðum-Landsýn í gær
er sala hófst á orlofsferðum VR.
Strax upp úr ellefu á laugardags-
kvöldiö voru þeir fyrstu mættir þótt
sala hæfist ekki fyrr en kl. 13 á
sunnudag.
Að sögn starfsfólks Samvinnu-
ferða-Landsýnar lofaði byrjunin
mjög góðu og var betri í ár en í fyrra.
Klukkan þrjú á sunnudaginn var
þegar búið að selja um 500 sæti af 650
sem VR hafði í boði. Voru það eink-
um ferðir til annarra Norðurlanda,
Lúxemborgar og London sem seldust
best.
í marsmánuði munu önnur stéttar-
félög verða með orlofsferðir í boði,
og er gert ráð fyrir að mesta salan
verðiþannl9.mars. -GHK
Löng biöröö hafði myndast fyrir framan Samvinnuferðir-Landsýn í Austurstræti áður en opnað var og höfðu sumir beðið í rúmlega hálfan sólarhring.
DV-mynd BG
Sala orlofsferða stéttarfélaga:
Flugleiða-
vél
skemmd-
istí
New York
Flugleiðavél lenti í árekstri á
Kennedyílugvelli á fóstudag-
inn. Stóð véhn ennþá við flug-
stöðina er óhappið varð og voru
allir farþegarnir komnir um
borð. Mun það hafa verið svo-
kallaður færibandabíll sem
lenti á henni, með þeim afleið-
ingum að nauðsynlegt varð að
skipta um hlífina framan á
mótor nr. 3.
Var það fremsti hringurinn
framan á mótornum sem varð
að skipta um, og þar sem hann
var ekki til í New York þurfti
að senda eftir honum til Lúxem-
borgar. Vegna snjókomu í New
York tafðist viðgerðin þar sem
vinna við vélina fer fram utan-
dyra. Gert var ráð fyrir aö vélin
kæmi til íslands í morgun sam-
kvæmt áætlun.
Farþegarnir, sem ætluðu með
véhnni, flugu með öðru flugfé-
lagi th Frankfurt, þar sem ís-
landsfarþegar tóku vél heim, en
farþegum á leið til Lúxemborg-
arvarekiðááfangastað. -GHK
I dag mælir Dagfari______________
Umhverfis Júlíus
Um sömu helgi og Júhus Sólnes var
krýndur sem fyrsti umhveríis-
málaráðherra íslands hélt hann
vestur á firði með fríðu fóruneyti.
Sagt er að ráðherrann hafi tekið sér
leiguflug vestur enda þótt tvær eða
þrjá áætlunarflugferðir hafi verið
famar á sama tíma. Ráðherrann
er greinilega ekki kominn í út-
gjaldabindindið sem kratarnir eru
að boða, enda mál til komið að
umhverfismálaráðherrann skoði
umhverfi sitt ef hann á að ráða yfir
umhverfinu. Til þess þurfa menn
að fljúga prívat til að geta htast um
án þess að fastar áætlanir trufh þá.
Eins er hitt að ef kjósendur vhja
að umhverfismálaráðherrann
standi undir nafni oghti umhverfis
sig, þá getur enginn farið fram á
neitt helvítis bindindi í þann mund-
inn sem nýi ráðherrann skoðar sig
um. Júlíus er búinn að vera lokað-
ur inni á Hagstofunni frá því í
haust og þarf að komast í snertingu
við náttúruna og lífríkið utan Hag-
stofunnar th að geta gert eitthvað
í umhverfismálum.
Júhus flaug sem sagt vestur á
firði th að ræða atvinnumál viö
Vestfirðinga. Nokkum mannfjölda
dreif að, th að berja nýja ráðher-
rann augum og vita hvað hann
hefði th málanna að leggja. Fyrir
vestan hafa menn áhyggjur af at-
vinnumálunum eins og við fyrir
sunnan og það er ekki á hverjum
degi sem ráðherrar koma fljúgandi
á einkaþotum til að vera umhverfis
fólkið. Þessi mannfjöldi hópaðist
umhverfis Júhus á fundinum og
beið eftir boðskapnum.
Eftir því sem leið á fundinn kom
hins vegar í ljós, samkvæmt upp-
lýsingum viðstaddra, að ráðher-
rann vissi ekki í hvaða umhverfi
hann var. Hann vissi ekkert um
atvinnumálin og ekkert um náttúr-
una og ahs ekkert um umhverfið.
Margir gengu af fundi og höfðu á
orði að umhverfis Júlíus væri ekk-
ert að hafa og á engu að græða.
Að svo búnu flaug ráðherrann aft-
ur heim með leiguvélinni án þess
að vera nokkurs vísari og án þess
að aðrir þeir sem hittu hann yrðu
nokkurs vísari.
Nú er því almennt haldið fram
að Júlíus umhverfismálaráðherra
eigi að stuðla að umhverfisvemd.
Það er aö segja að vernda um-
hverfið fyrir óæskilegum aðskota-
hlutum. Margt bendir þó til þess
að þessu verði öfugt farið. Kjósend-
ur í landinu telja umhverfismála-
ráöherrann vera til þess gagns að
nú geti þeir varað sig á honum. Nú
verði framvegis hægt að vemda
umhverfið fyrir umhverfismála-
ráðherranum! Ef ráðherrann ferð-
ast um landið á leiguvél til að ræða
um atvinnumál og umhverfisvemd
þá sé það til að hafa sem minnst
vit á atvinnumálum og til að vara
umhverfið við ráðherranum. Það
verður sem sé að friða umhverfið
umhverfis Júlíus.
Auðvitað er til nokkurs unnið að
skipa Júhus sem ráðherra yfir
umhverfismálum efkjósendur geta
þannig vemdað sig frá því um-
hverfi sem er umhverfis Júlíus.
Hann er þá ekki fyrir neinum á
meðan og menn eru fyrirfram var-
aðir við þeirri mengun, sem stafar
af komu ráðherrans í kjördæmin.
Nú þegar má segja að kjósendur
hafi verndað sig fyrir Borgara-
flokknum, því ekki finnast neinir
kjósendur lengur sem styðja þann
flokk en ef Júlíus vill gera betur
og fæía fólkið og kjósendurna frá
sér með skipulögðum ferðalögum
um landið þá gerir hann vissulega
sitt gagn í umhverfisvernduninni.
Það er einmitt svona ráðherra sem
við þurfum, menn sem fara um-
hverfis landið til að umhverfa öll-
um sem eru umhverfis þá.
Nýi umhverfismálaráðherrann
ber nafn með rentu og í rauninni
mættu fleiri ráðherrar verða skip-
aðir umhverfismálaráðherrar ef
kjósendur öðluðust þannig betri
skilning á því umhverfi sem ráð-
herrar þrífast í. Ráðherrar koma
ekki í kjördæmin til að tala af viti
eða til að sýna þekkingu sína eða
miðla tillögum um atvinnumál.
Ráðherrar mæta á opinberum
fundum til að vernda umhverfið
fyrir sjálfum sér. Geta farið eins
og hvítir stormsveipir um landið
og boöað náttúruvernd í eigin per-
sónu þeirrar náttúru sem fólk vill
fá vemd fyrir.
Júlíus kann á því lagið að vemda
umhverfið umhverfis sig. Hann ber
nafn með rentu. Hann hefur friðað
flokkinn sig og næst ætlar hann að
friða sjálfan sig.
Dagfari