Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1990, Page 8
8
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1990.
Utlönd
Bretland:
Verkamanna-
flokkur sækir
á í skoðana-
könnunum
Verkamannaflokkurinn í Bret-
landi, sem er í stjómarandstöðu,
hefur sautján prósenta forskot á
stjómarflokkinn, Ihaldsflokk
Thatcher forsætisráðherra, að
því er fram kom í breska blaðinu
The Sunday Times í gær. Skoð-
anakönnun á vegum blaðsins
sýndi aö ef gengið yrði til kosn-
inga nú hlyti Verkamannaflokk-
urinn meirihluta, alls 51 prósent,
en íhaldsflokkurinn 34 prósent.
Þetta er mesta forskot sem
Verkamannaflokkurinn hefur
haft á íhaldsflokkinn síðan
Thatcher komst til valda fyrir
nærri ellefu árum.
Slíkar niðurstöður myndu þýða
aö Verkamannaflokkur Neil
Kinnocks myndi hljóta eitt
hundrað og tuttugu sæta meiri-
hluta á þingi í kosningum.
Verkamannaflokkurinn hefur
haft forystú í sköðanákönnunum
í næstum ár á sama tíma og éfiia-
hagurirm hefur átt á brattann að
sækja. í viðtali við The Sunday
Times kvaðst Thatcher fullviss
um að efnahagurinn myndi rétta
úr kútnum áður en hún þyrfti að
boða til kosninga næst, árið 1992.
Reuter
Nicaragua:
IDNVELAR
Járnsmíðavélar
Rennib. 2000 mm
Rennib. 3000 mm
Rennib. 3500 mm
Radial borv. Tos
Súluborvél Mes
Plötusax 2000 mm
Plötusax 2500 mm
Beygjuvél
Kantpressa 2000 mm
Prófílbeygjuvél
Fjölklippur
Loftpressur
Trésmíðavélar
Plötusög Sac
Plötusög Kamro
Dílaborvél Scm
Fræsari T130
Kílvél Weinig
Kílvél Harbs
Bandsög
Samb. vél Robland
Samb. vél Minimax
Samb. vél Samco
Afréttari Paolini
Þykkthef. Scm
Loftpressur
I & T HF.
Iðnvélar & tæki
Smiðshöfða 6
674800
Kosningarnar þykja
marka þáttaskil
Nicaraguabúar gengu að kjörborð-
inu í gær og bíða nú úrshta frið-
samlegra kosninga sem mörkuðu
þáttaskil í sögu landsins. Þykir jafn-
vel líklegt að nú verði endi bundinn
á borgarastríðið í landinu.
Kjörstöðum var lokaö klukkan 18
að staðartíma eða á miðnætti í nótt
að íslenskum tíma. Engar fregnir
höfðu borist af ofbeldi á kosning-
adaginn en tvö þúsund og fimm
hundruð erlendir eftirlitsmenn
fylgdust með því að kosningarnar
færú löglega fram.
Fýi-stú niðurstöðurnar; frá fjórUm
BÍ 4391 kjörstað, sýiidú áö flökkUi-
sandíriista háfði-sigrdÖ i tveÍfhUt-
kjördæmum og kosningabandalag
stjómarandstöðunnar í tveimur.
Niöurstöður sýndu að sandínistar
voru með nær tvöfalt fleiri atkvæði
en sljórnarandstaðan en úrtakið
þykir of lítið til að það sé marktækt.
Fyrir kosningar sýndu skoðana-
kannanir að sandínistar myndu
sigra.
Forseti yfirkjörstjómar sagði að
kosningamar hefðu farið fram „án
Daniel Ortega, forseti Nicaragua, og Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkjaforseti, á fundi með fréttamönnunum fyrir
kosningarnar. Simamynd Reuter
Violeta Chamorro, forsetaframbjóð-
andi kosningabandalags stjórnar-
andstöðunnar í Nicaragua, greiðir
atkvæði í gær i Managua.
Símamynd Reuter
teljandi svindls. Það er að segja það
er ekkert sem varpað getur skugga á
kosningarnar." Að sögn hans var
ekki hægt að opna níu kjörstaði
vegna aðgerða kontraskæruliða og
færa þurfti kosningarnar á tólf stöð-
um. Eftirlitsmennirnir voru meðal
annars frá Sameinuðu þjóðunum,
Samtökum Ameríkuríkja og Carter-
hópnum svokallaöa sem Jimmy
Carter, fyrrum forseti Bandaríkj-
anna, er í forystu fyrir.
Nokkru áður en kjörstöðum var
lokað kvartaði talsmaður kosninga-
bandaiags stjómarandstöðunnar
undan því að 31 kjörstaður hefði ekki
verið opnaður og að byttur með
bleki, sem hægt er að þvo burt, hefðu
fundist með rofnu innsigli í Matag-
alpa héraðinu. En klukkustund áður
en kjörstöðum var lokað sagði Carter
að kosningamar heíðu fariö fram
samkvæmt áætlun. Varðandi kvart-
anirnar um blekið sagöi Carter aö
hann hefði prófað það sjálfur og get-
aö þvegið það burt. Hann bætti hins
vegar við að ekki hefðu fundist nein
sannindamerki þess að átt hefði ver-
ið við blekið. Carter sagðist einnig
aðeins vita til þess að sjö kjörstaðir
í afskekktum hémðum hefðu ekki
verið opnaðir.
Lokaorð Carters munu vega þungt.
í fyrra tóku bandarísk yfirvöld tillit
til úrskuröar hans um kosninga-
svindl í Panama. Bandaríkjastjórn
hefur verið andvíg Daniel Ortega,
forseta Nicaragua, og stutt baráttu
kontraskæruliða gegn sandínistum.
Sljórnarerindrekar segja að ef Or-
tega vinni kosningamar eigi Banda-
ríkjastjóm lítilla annarra kosta völ
en að endurskoða samskiptin við
Nicaragua. Reuter
Japan:
Ostöðugleiki
á verðbréfa-
mörkuðum
Þeir voru áhyggjufullir á svipinn fjármálasérfræðingarnir í Tokýo í síðustu
viku því þá féll verð á verðbréfamörkuðum. Simamynd Reuter
RÝMINGARSALA - ALLT AÐ 50% AFSLATTUR
CB AM/FM heimatalstöðvar * Straumbreytar úr 220 V í 12 V
CB FM handstöðvar
CB bílaloftnet
CB húsloftnet
Rafstöðvar
VHF bílaloftnet
Höfuðnuddtæki
Mikill órói ríkti á verðbréfamörk-
uðum í Tokýo í dag í kjölfar mjög
óstöðugra viðskipta og fallandi verðs
í síðustu viku. í morgun, að íslensk-
um tíma en síðla dags að staðartíma,
þegar mörkuðum í Japan var lokað,
hafði verð á hlutabréfum í kauphöll-
inni í Tokýo þó náð sér nokkuð á
strik eftir mikinn óstöðugleika.
Nikkei-verðbréfavisitalan var
skráð á 33.321,87 og hafði þá fallið
um 1.569,10 stig. Það samsvarar fjög-
urra og hálfs prósents falli. Vísitalan
hafði þó mjakast nokkuð upp frá því
um miðjan dag því um hádegi hafði
vísitalan fallið um rúmlega sjö pró-
sent frá opnun kauphallarinnar. Það
er annaö mesta fall á einum við-
skiptadegi í Tokýo.
Japansbanki seldi að minnsta kosti
átta hundruð milljónir dollara á
148.90-149.00 yen síðdegis í dag til aö
reyna aö koma í veg fyrir að jap-
anska yenið sigi frekar en þegar var
orðið. Þegar kauphöllin var opnuð
var yenið skráð á 147.50 gagnvart
dollar en um miðjan dag var það
Skrað á 149.00 Reuter
SENDUM í PÓSTKRÖFU
TÍTAiY lll*. - (áöur Benco)
LÁGMÚLA 7, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 91-84077
ÚRVAL á næsta blaðsölustað
Úrval
tímarit fyrir alla