Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1990, Page 11
MÁNUDAGUR 26. PRBRÚAR 1990.
Sviðsljós
11
Ólyginn sagði...
Cheryl Ladd
er einhver vinsælasta sjónvarps-
leikkona í Bandaríkjunum og getur
valið úr hlutverkum. Það mætti því
halda að hún gæti lifað án þess að
hafa áhyggjur af peningum, en svo
er nú ekki. Þrátt fyrir að mánaðar-
tekjur hennar séu áætlaðar 2,7
milljónir króna þá hefur hún lýst
sig gjaldþrota. Sem sagt skuldir eru
meiri en eignir. Ladd, sem ekki
hafði hugmyndum hve illa var
komið fyrir henni, kennir eigin-
manni sínum um en hann sá um
fjármálin. Brian Russel heitir hann
og er titlaður framleiðandi en vinn-
ur víst lítið. Hún er samt ekki alveg
saklaus sjáif, segja kunnugir, því
bruðlið í þeim hjónum hefur verið
með ólíkindum og var svo komið
að eyðslan var orðin þriðjungi
meiri en tekjur og er nú allt í óefni
hjá henni.
Mel Gibson
sýndi um daginn að hann hefur
hjartað á réttum stað. Var hann
staddur á góðgerðarsamkomu í Lós
Angeles þegar einn maður stökk
upp á sviðið og sagðist ætla að
drepa sig fyrir framan alla sem
þama voru. Gibson ávarpaöi
manninn og byijaði þar með mara-
þonsamræður við hann og gat róað
manninn niður. Maðurinn, sem
kvaðst heita Lonny, sagði að lífið
væri ekki þess virði að lifa því.
Gihson lét sér ekki nægja að fá
Lonny af sjáifsmorðsáætlun sinni
heldur tók manninn heim með sér
til fjölskyldu sinnar bauð honum í
mat og gaf honum pening í vega-
nesti þegar hann taldi að hættan
væri liðin hjá.
Telly Savalas
getur þakkað það Kojak, persón-
unni sem hann skapaði, að hann
skuh vera ómeiddur eftir bílferð í
Harlem seint að kvöldi. Bíllinn bil-
aði á heldur skuggalegum stað í
hverfinu og einkabílstjórinn neit-
aði alfarið að fara út og í nálægan
götusíma. Savalas varð því sjálfur
að fara í símann. Hann var ekki
kominn langt þegar skuggalegur
flokkur manna nálgaðist en þegar
þeir sáu hver maöurinn var heyrð-
ist: „Hæ, strákar, þetta er Kojak,“
það var eins og við manninn mælt,
viðhorfið breyttist og í stað þess að
ráðast á hann stóðu þeir vörö um
hann meðan hann beið eftir hjálp.
Fergie í
brjálaðri megrun
Hertogaypjan af York er í brjálaðri
megrun. Hún nærist vart á öðru en
ávöxtum og grænmeti og læknar
hennar, eiginmaður og öll breska
Konungsfjölskyldan eru orðin dauð-
hrædd um að megrunaræði hennar
bitni á ófæddu bami hennar.
Fergie er nú komin á áttunda mán-
uð meðgöngunnar en vegur einungis
72 kíló en þegar hún var gengin jafn-
langt með Beatrice vó hún 15 kílóum
meira.
Vinir Fergie telja ástæðuna fyrir
þessu megrunaræði hennar vera þá
samkeppni sem ríkir milii hennar og
Díönu prinsessu um aö líta sem best
út. Enda lét Fergie hafa eftir sér ekki
alls fyrir löngu aö hún ætlaði sér að
vera grennri og glæsilegri þegar hún
kæmi heim af fæðingardeildinni en
Díana var þegar hún sneri heim eftir
að hafa alið prinsinn Harry.
„Ég leit út eins og blaðra þegar ég
gekk með Beatrice og þegar ég kom
heim var ég akfeit. í dag hef ég ekki
hugsað mér aö endurtaka leikinn og
ætla að vera grönn og glæsileg eftir
fæðinguna," hefur einn af vinum
Fergie eftir henní'.
Hún borðar ávexti í morgunmat,
hrátt grænmeti og örlítinn ost í há-
degismat, síödegis fær hún sér ávexti
og á kvöldin borðar hún svo örlítið
hrátt grænmeti og skinku. Hafa
læknar hennar þungar áhyggjur af
ófæddu barni hennar og eru hræddir
um að megrunaræði hennar bitni á
því og það fæðist fyrir tímann.
Andrew eiginmaður hennar hefur
margbeðið hana að borða svolítið
meira en hún lætur sig ekki. Fergie
er komin með megrun á heilann lét
vinur hennar hafa eftir sér.
Það er ekki aö sjá á Fergie að hún
sé komin langt á leið.
NU ERUM VIÐ FLUTTIR
Á LAUGAVEGINN
— Ný og betri húsakynni —
— Aukin og bætt þjónusta —
— Aldrei meira úrval bíla —
STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR