Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1990, Blaðsíða 14
14
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SlMI (91 >27022-FAX: (91)27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr.
Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr.
Vægi dóma
í síðustu viku var gerð fróðleg úttekt í DV á nýlegum
dómum sem annars vegar hafa verið kveðnir upp vegna
auðgunarbrota og hins vegar kynferðisafbrota. í ljós
kemur að dómstólar virðast taka harðar á fyrrnefndum
brotum og samanburðurinn leiðir í ljós að nauðganir
eru taldar léttvægari afbrot en rán sem framin eru á
bíræfinn hátt.
Hér er ekki um vísindalega úttekt að ræða og þess
réttilega getið að margt lögfræðilegt álitaefnið getur
haft áhrif á dómana. En meginniðurstaðan er samt sú
að íslenskir dómstólar og hæstiréttur virðast ekki taka
hart á kynferðisafbrotum. Þetta er athyglisvert og að-
fmnsluvert vegna þess að fáir glæpir, að mannsmorðum
undanskildum, eru jafnsvívirðilegir og misnotkun á
börnum og unglingum, nauðganir og líkamlegt ofbeldi
vegna afbrigðilegra kynhvata.
Almenningsálitið á bágt með að skilja að menn, sem
eru aftur og aftur staðnir að slíkum óhæfuverkum og
eru beinlínis hættulegir umhverfi sínu, skuh ganga laus-
ir nokkrum mánuðum eftir að verknaður hefur átt sér
stað. Það er talinn meiri glæpur að svíkja fé af náungan-
um heldur en misþyrma börnum. Shkar refsingar eru
ekki í samræmi við réttarvitund þjóðarinnar.
í greininni í DV er sagt frá tveimur dómum í nauðgun-
armálum. Annars vegar var maður dæmdur th þriggja
ára fangelsisvistar fyrir að nauðga eldri konu á leiði
foreldra hennar í kirkjugarðinum við Suðurgötu í
Reykjavík. Hins vegar fékk maður þriggja og hálfs árs
fangelsisdóm fyrir að nauðga tveimur stúlkum með
klukkutíma millibili á Hverfisgötu í Reykjavík.
Á sama tímabih voru kveðnir upp tveir dómar í ráns-
málum. Þar var um að ræða í öðru tilvikinu bíræfið rán
á Laugaveginum þar sem grímuklæddir menn rændu
dagsölu Áfengisverslunarinnar. Höfuðpaurinn í ráninu
fékk fimm ára dóm. í hinu tilvikinu var maður á ferð-
inni sem framdi þrjú rán á stuttum tíma. Hann fékk
þriggja ára fangelsi.
Rán er rán og er ósvífmn glæpur. En enginn vafi er
á því að nauðganir, eins og þær sem hér er vitnað til,
eru hálfu verra athæfi. Hvað þá þegar börn eru misnot-
uð með valdi til að svala afbrigðilegri kynhvöt. Skyn-
semin og fordæmingin segir manni að fyrir shk brot
eigi að refsa af fullum þunga.
Hér er ekki við refsilöggjöfma að sakast, enda gefur
hún dómsvaldinu rúmt vald til að meta hvert brot og
kveða upp misþunga dóma. Ástæða er th að halda að
dómsvaldið fylgi ekki almenningsáhtinu eftir í þessum
efnum og hafi tilhneigingu til að mhda dóma sína í kyn-
ferðisafbrotum. Að minnsta kosti í samanburði við
auðgunarbrot.
Kynferðisafbrotum fer fjölgandi og sjálfsagt kemur
aðeins htið brot þeirra th kasta dómstólanna. Langflest
kynferðisafbrot eru innan íjölskyldna og eru sjaldnast
kærð eða gerð opinber. Kvennaathvarfið kann margar
sögur af þeim harmleikjum.
Refsingar eru ekki lækningar en þær eru dómur þjóð-
félagins og vörn fórnarlambanna gagnvart ofbeldis-
mönnunum. Vægi refsingarinnar er vitnisburður um
það álit sem samfélagið hefur á afbrotum. í umræðum
undanfarinna daga hefur réttarvitund samfélagsins
gagnvart kynferðisafbrotum komið glöggt í ljós. Fólk
vhl láta taka hart á slíku athæfi og fólk vih fá vernd
fyrir mönnum sem eru hættulegir umhverfi sínu. Dóm-
stólar eiga að taka mið af því almenningsáliti.
Ellert B. Schram
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1990.
Frá prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík árið 1982. - Baldur Guðlaugsson, núverandi formaður Fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavik (lengst til vinstri) lýsir úrslitum.
Hið virka lýðræði
Þá hefur framboðslisti Sjálfstæö-
isflokksins viö borgarstjórnar-
kosningarnar séö dagsins ljós.
Hann er sá fyrsti í Reykjavík í tvo
áratugi sem er valinn án þess aö
kjósendur Sjálfstæöisflokksins hafi
nokkuö um það að segja með hvaöa
hætti raðað er niður á listann.
Það var því spennandi að sjá
hvort Davíð Oddsson borgarstjóri,
með tilstyrk kjömefndar, myndi
eingöngu notast við ljósritunarvél-
ina þegar hstinn væri ákveðinn,
með brottfelhngum á þeim sem
dánir eru síðan í síðustu kosning-
um eða hvort hún geröi eitthvað
meira. - Nú er komið í ljós að hún
gerði pínulítiö meira.
Þannig hafa þeir sem eru í náðar-
ljósi borgarstjórans verið færðir
ofar á hstann og þeir sem eru þar
ekki verið færðir neðar. Þannig er
hið virka lýöræði í Sjálfstæðis-
flokki nútímans, flokksins sem seg-
ist geta kennt öhum öörum lýðræð-
islegar starfsaðferðir. - Flokksins
sem einn hefur þann styrk og stærð
að hann getur framkvæmt opna
lýðræðislega könnun á vilja kjós-
enda sinna um hveijir skuli vera í
framboði fyrir flokkinn.
Yfirtil þín, Davíð
Framboðshsti Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík fyrir þessar kosn-
ingar er ákveðinn með eftirgreind-
um hætti:
l. þáttur: Baldur Guðlaugsson, fé-
lagi í Eimreiðarkhkunni, sér-
stakur vinur borgarstjórans, for-
maður Fuhtrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík, leggur til
að ekki verði viðhaft prófkjör að
þessu sinni. Framboðsmál heyra
undir fulltrúaráðið. Tillaga for-
mannsins er samþykkt.
II. þáttur: Kosin er kjömefnd. Alhr
frambjóðendur meirihluta
stjómar’ fulltrúaráðsins, þ.e.
Baldurs og félaga, eru kosnir,
hinir faha, enda koma þau fram-
boð frá fólki úti í bæ sem á jafn-
vel ekki innangengt á flokks-
skrifstofurnar í Valhöll.
Formaður kjömefndar er vahnn
Jón Steinar Gunnlaugsson, sér-
stakur vinur Baldurs Guðlaugs-
sonar og samstarfsmaður hans
og vinur borgarstjórans og félagi
í Eimreiðarklíkunni. - Jón stýrir
kjömefnd af röggsemi og snilld
eins og hans er von og vísa (enda
valinn þess vegna);
m. þáttur: Fært er th á listanum
eftir því sem hæflr. Þeir sem
unnið hafa á Mogganum, veriö í
vinfengi við framkvæmdastjóra
flokksins eða tflheyra merkUeg-
um ættum í flokknum eru færðir
upp, þeir sem hafa ekki þessa
mann- eða kvenkosti til aö bera
eru færðir niður.
Eftir þessa uppstokkun er listinn
síðan kynntur á fundi Fuhtrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík sem haldinn er á þeim
tíma sem gerir venjulegu launa-
fólki ómögulegt að sækja fund-
inn. Slíkt er sjálfsagt nauðsyn-
legt þar sem hlutur launþega-
armsins í flokknum rýmar vem-
lega við þessa uppstUhngu.
KjáUaiinn
Jón Magnússon
lögmaður
Leiknum er lokið, tjaldið fellur. -
Höfundinum, aðalleikaranum og
leikstjóranum, sem er sami maöur,
er vel fagnað.
Þessi farsi minnir mann á send-
ingar fréttamanna í alþekktum
gamanþætti. Þannig má stytta leik-
ritið og hafa það svona: Davíð höf-
undur, aðalleikari og leikstjóri seg-
ir: yfir tU þín, Baldur, en Baldur
~ segir: yfir tU þín, Jón Steinar, sem
segir aftur: yfir til þín, Baldur, en
þrátt fyrir sviðsetninguna fóru
framboðsmálin aldrei frá upphafs-
stað.
Lýðræðisást Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík hefur verið fuhnægt.
Hinn sterki foringi og klíkan ræð-
ur. Skyldi heimsbyggðin áður hafa
kynnst slíkum forningjum og
hvaða framþróun varð í lýðræðis-
átt undir þeirra stjórn?
Prófkjör
Nú er það þannig með prófkjör
að þau leysa aö sjálfsögðu ekki all-
an vanda. Þau eru hins vegar mjög
góð, t.d. þegar gera þarf upp á milli
tveggja frambjóðenda, en þau eru
misheppnaðri eftir því sem kosið
er um fleiri.
Þegar byrjaö var að hafa prófkjör
fyrir um 20 árum voru þau galopin
hjá Sjálfstæðisflokknum. Á annan
tug þúsunda kjósenda kaus og tók
því þátt í að velja framboðslista
flokksins sem venjulega er í meiri-
hluta í Reykjavík.
Smátt og smátt fór ráðandi klíku
í Sjálfstæðisflokknum að fmnast
prófkjörin vera af hinu vonda.
Henni fundust líka prófkjörsregl-
urnar vera ómögulegar vegna þess
að hennar menn komust ekki nógu
ofarlega stundum. Þess vegna var
prófkjörsreglum breytt. Breytt
fram og breytt til baka. Síðan var
farið að takmarka þátttöku í próf-
kjöri, t.d. með því að aðeins þeir
sem skráðir eru í flokkinn fengu
að kjósa.
Þannig var það þegar síðast var
vahð á framboðslista til borgar-
stjórnar í Reykjavík. Þá fengu að-
eins flokksbundnir að kjósa og þá
kaus tæpur helmingur þeirra sem
áður hafði gert það. Nauðsynleg og
eðhleg takmörkun á lýðræðinu
hafði farið fram að mati ráðandi
afla í flokknum.
Nú hefur enn frekari takmörkun
átt sér stað með því að Eimreiðar-
klíkan ein fær um það að segja,
hverjir skuli vera og hverjir skuli
ekki vera á framboðshsta flokksins
í Reykjavík.
Afgerandi straumhvörf urðu í
þessu efni eftir að Geir Hallgríms-
son, þáverandi formaður flokksins,
lenti í 7. sæti í opnu prófkjöri
flokksins árið 1982. - Síðan hafa
ekki verið opin prófkjör á vegum
Sjálfstæðisflokksins hér í borg og
verða ekki, nema klíkan telji sig
svo sigurvissa aö engin hætta sé á
ferðum.
Næsti borgarstjóri
Nú liggur næsta ljóst fyrir að
Davíð Oddsson mun ekki verða
borgarstjóri út kjörtímabilið
næsta. Annar maður mun því taka
við því starfi og eðhlegt hefði verið
að kjósendur Sjálfstæðisflokksins
hér í borg hefðu fengiö um það að
segja hver það skyldi vera.
Þannig varð Davíð Oddsson hlut-
skarpari á sínum tíma þegar kosið
var um hver skyldi vera borgar-
stjóraefni Sjálfstæðisflokksins síð-
ast þegar sá slagur fór fram. Það
var því nauðsynlegra en ella að
viðhafa prófkjör núna til að venju-
legir stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins fengju að velja borgar-
stjóraefni. Þessi sjálfsagði réttur
hefur verið tekinn af Reykvíking-
um.
Næst þegar Sjálfstæðisflokkur-
inn stillir upp á framboðslista þá
verður það til alþingiskosninga. Þá
vill Davíð Oddsson verða í fyrsta
sæti og koma Friðriki Sophussyni
úr því. - Þá verður prófkjör.
Mál eru nefnilega þannig vaxin,
að þó að Friðrik Sophusson sé vafa-
lítið skeleggasti málsvari sem Sjálf-
stæöisflokkurinn á innan þingdyra
þá hefur hann aldrei verið í náð-
inni hjá klíkunni og komst miklu
lengra en hann átti nokkurn tíma
að fara. - Það skal leiðrétt næst.
Prófkjör skulu sko haldin þegar
henta þykir, með þeim reglum sem
henta þykir, þannig aö sjálfstæðir
menn fái ekki að komast inn.
Jón Magnússon
„Prófkjör skulu sko haldin þegar henta
þykir, með þeim reglum sem henta
þykir, þannig að sjálfstæðir menn fái
ekki að komast inn.“